Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ 72. FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 --------------------------- m Vinningashrá 26. útdráttur 11. nóvember 1999 Bif reiðavinningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 24585 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvðfaldur) 1436 606 1 0 64493 71111 Ferðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfald ur) 1186 15685 56253 62451 67727 75080 9839 32315 59284 66128 67747 79279 Húsbúnaðarvinningur Kr. 10.C »00 Kr. 2C 1.000 (tvöfaldur) 262 10337 21181 30924 42048 53871 66879 73917 263 11755 22796 31888 42936 54162 67990 74845 1474 12689 23353 32110 44875 54199 68472 74904 i 1836 13191 23430 32357 45569 54330 68625 75514 2033 13561 23615 35447 46597 58825 68660 76285 3548 14189 24231 36127 48166 58973 68987 76880 5608 15130 24723 37701 48898 59290 69040 78121 7395 17499 27108 38273 49019 59654 69369 78818 7603 17555 27247 38416 49308 59749 70990 78960 8441 17979 27652 38983 49647 60466 72013 9068 20082 27899 39595 51458 61807 72090 9565 20344 28408 40533 51581 63785 72541 9583 20423 30722 41006 52316 64479 72874 Húsbúnaðarvi Kr. 5.000 Kr. 10.1 n n í n g u r 1019 11145 22748 30759 39519 50280 61830 71769 1176 11364 23411 30776 39691 50552 61997 72021 1947 11483 23792 30903 40033 51181 62403 72565 2823 12661 23801 30931 40419 51653 62668 73679 3051 14268 24206 31154 40517 51784 62921 73932 3123 15006 24749 31292 40806 52847 63133 74211 3493 15851 24972 31517 41071 52952 63490 74237 3553 16056 25062 31544 41446 53296 63553 74823 3669 16089 25183 31626 42013 53915 63564 75010 3978 16189 25220 31830 42265 54204 63581 75655 4468 16446 25762 32219 42345 54999 63726 75980 4639 16575 26068 32476 42590 55001 64408 76217 4778 17060 26125 33169 43500 55125 64702 76248 4946 17429 26789 33886 43607 55362 65990 76452 5047 18063 26930 34041 43633 56190 66007 76680 5325 18067 26981 34295 43835 56414 66180 76688 5572 18357 27422 34489 44563 56615 66288 76731 5660 18498 27448 34570 45279 57389 66549 76894 6253 19061 27622 34947 45553 57538 66592 76960 6279 19624 28121 35019 45555 58126 67393 76979 7461 19756 28816 35170 46022 58131 67938 77125 7691 20152 28839 35506 46859 58296 68013 77191 7758 20308 28868 36036 47111 58512 68372 77393 7985 20545 28875 36560 47614 58557 68693 78714 8264 21729 29023 36711 47967 58763 68786 78967 8364 21957 29626 37772 49025 59112 69036 79544 8937 22055 29643 38236 49310 59230 69041 9404 22073 29695 38386 49478 59667 69659 9487 22078 29786 38445 49535 60041 69799 10666 22251 29818 39009 49702 60302 71073 11071 22416 29993 39380 50011 61148 71230 11133 22496 30036 39503 50193 61339 71468 Næstu útdrættír fara fram 18. & 25. nóvember 1999. Heimasíða á Interneti: www.das.is ;jl_ Nýjar vörtir Pelsjakkar Úlpur Ullarjakkar - stórar stærðir Hattar og hú£ur ■ • \<#HI/I5IÐ *' ® 1 IV Mörkinni 6, sími 588 5518 I DAG VELVAKAMU Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Nýtt líf ÉG er sjötug kona, eða því sem næst. Alveg frá því ég var um 36 til 40 ára, hef ég verið með vonda vefjagigt og verki í hálsi og herðum, í og með vegna áverka á hálsi og svo endurtekinn áverka á sama stað, að vísu var langur tími á milli þessara tveggja óhappa. Seinna á ævi minni fékk ég slitgigt í hné og mjaðmir, sem sagt daglegir verkir - líka í höfði og fótum, allt á víxl. Lengi vel vissi ég ekki hvað amaði að mér, vegna þess að t.d. vefjagigt var þá ekki nefnd, mér vitan- lega, sem sjúkdómur og erfitt að finna til í annars kroppi, það er þó stað- rejmd. Ég fékk þó yfirleitt mjög góða hjáip bæði frá læknum og sjúkraþjálfur- um og var þá nokkuð góð um tíma, en þetta vildi samt sem áður láta á sér kræla aftur og aftur alls staðar og oftast óvænt. Að því kom svo að ég lagðist bara í rúmið og lét þá yfir- leitt engan vita um mína líðan, enda erfitt að vera að masa um kvalir í sínum eigin skrokki, sí og æ. Það er þó nokkuð langt síðan ég uppgötvaði Biáa lónið og fór þá alltaf ein og lá þar daglangt. Varð ég þá betri í einhvern tíma, en svo lengdist vegurinn á milli eftir því sem aldur færist yfir. Maður reynir þó að bjai'ga sér eftir bestu getu. Svo var það að ég sá auglýsingu í Morg- unblaðinu um athyglis- verða nýjung við verkjum sem byggjast á segulmeð- ferð. Ég fór á kynningu í Blómavali og fékk þar upplýsingar um þessa dýnu, sem í eru settar ótal- margar litlar segulþynnur, sem eiga að koma manni í lag. Eftir allgóða umhugsun ákvað ég svo að fjárfesta í BlOflex-undirsænginni, sem var í rauninni engin áhætta, þar sem seljand- inn ábyrgðist að endur- greiða mér verðið eftir ákveðinn tíma, ef mér iík- aði ekki dýnan. Nú hef ég sofið á BlOflex-undir- sænginni um tíma og er ákveðin í að nota hana á meðan ég lifi og það segir sína sögu. Undirsængin er alltaf hérna heima á sínum stað og ég þarf ekki að hringja eitt né neitt til að panta tíma. Fyrstu næt- umar voru alveg hræðileg- ar. Vond var ég fyrir og ekkert lagaðist, en ég var svo þrjósk að ég hélt áfram að sofa á undir- sænginni, þótt illa gengi. Eftir sjöttu nóttina fann ég breytingu til batnaðar og þar kom að eftir tíu nætur leið mér mjög vel. Þegar manneskjan hefur ekki lengur verki um ailan skrokkinn fer hún að vinna, glöð yfir því að geta gert það sem hún hefur ekki lengi getað unnið. Þannig fór nú fyrir mér en ég fann um leið að auðvitað er aldrei raunhæft að of- gera sér. Ég get nú flest það sem ég gat ekki gert fyrir fáum dögum og ég er nokkuð örugg að svo verði áfram og mun notfæra mér það frelsi sem felst í því að kveljast ekki lengur. BlOflex-undirsængina hefði gjarnan mátt reka á fjörur mínar iyrr á ævinni, en samt er yndislegt að fá hana núna. Betra er seint en ekki. Ég mæli eindregið með þessari góðu undir- sæng - alltaf. Gunnhildur Kristjánsd. Vantar fleiri pappírsgáma KONA á Kleppsvegi hafði samband við Velvakanda og sagðist hafa áhyggjur af því að t.d. pappír sé ekki endurnýttur. Hún segir að fólk af eldri kynslóðinni hafi kannski ekki tækifæri til að koma pappír í endur- vinnslugáma og finnst henni vanta fleiri gáma. Segir hún að t.d. á Klepps- vegi séu stórar blokkir og langt að fara í endur- vinnslugáma. Sagði hún að það yrði til mikilla bóta ef gámar væru settir við hverja blokk, þá yrði fólk viljugra að setja pappír í endurvinnslu. Það sé ekki gott að henda þessu, þetta séu verðmæti sem betra væri að nýta og endur- vinna. Tapað/fundið Karlmanns- gleraugxi týndust Straumlínulöguð karl- mannsgleraugu af gerðinni Brendeli týndust í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudagsins 7. nóvember. Gleraugun eru með ljós- grænni umgjörð. Skilvís finnandi vinsamlegast hringi í síma 863 6399 eða 554 3121. Dýrahald Kettlingur fæst gefins STOR, svartur, eins og hálfs árs gamall köttur þarfnast heimilis vegna búferiaflutninga. Hann er kelinn og blíður. Upplýs- ingar í síma 564 3416 eftir kl. 18. SKAK llmsjún Margeir l’élnrssoii STAÐAN kom upp á armenska meistaramótinu í ár. A. Nadanian (2410) hafði hvítt og átti leik gegn G. Sargissian (2470) 29. Rxf7! - Kxf7 30. Ha6 - Kf8 (Ekki 30. - Hxc3 31. Bxe6+ - Kg7 32. g5 og hvítur vinnur mann) 31. Bxe6 - Hd8 32. g5 - Bg7 33. Bf4 - Bf5 34. Bc7 - He8 35. Bxf5 - gxf5 36. Ha5 og með peði meira í endataflinu vann hvítur örugg- lega. Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynning- ar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfsíma 569- 1329, sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Yíkverji skrifar... VELMEGUN hefur sína ókosti og nú ætlar Víkverji að barma sér yfir einum. Honum finnst að verið sé að neyða upp á hann þjón- ustu sem hann hefur aldrei beðið um. Inn um bréfalúgu hans streymir endalaust flóð af hvers kyns auglýs- ingabæklingum sem hann hefur aldrei beðið um. Hann fær að vita að á morgun geti hann fengið að kaupa húðáburð og fitudrápstæki sem yngi hann um nokkra áratugi sem hann hefur enga þörf fyrir. Hann er enn bráðungur og bíður þess í ofvæni að öðlast visku ellinn- ar. Hann fær óteljandi tilboð um ódýra málningu, bráðskemmtilegar leiksýningar, sólarlandaferðir og ítalskættaðar flatbökur á gjafverði. Þenslan veldur því að viðskipta- heimurinn leggur enn meiri áherslu á auglýsingar en fyrr. Ekkert er við því að segja en málið er að Víkverji vill fá að ákveða sjálfur hvað berst inn á heimilið af upplýsingum og af- þreyingu. Hann getur sjálfur skipt um rás ef Sjónvarpsmarkaðurinn sleppur óvart á skjáinn með öll sín kostulegu boð en hvað á hann að gera við það sem þrengir sér ofan í póstkassann? Auglýsendur hljóta að fara að átta sig á því að þessi ofkeyrsla hlýtur á endanum að valda því að margir fyllist köfnunartilfinningu. Fólk þarf ekki að vera í einhverri baráttu gegn neysluæði þótt það bandi frá sér þessu offramboði á til- boðum með tilheyrandi skrumi. Vík- verji vill bara fá að losna við hvim- leitt starf sem er að þurfa á hverj- um degi að skilja ruslpóstinn frá því sem kemur honum við. Ef hann fer niður á Hagstofu fær hann litla úrlausn: Hún getur tekið hann út af þjóðskránni sem fyrir- tæki fá afrit af. Þannig losnar hann að einhverju leyti við ruslpóst sem merktur er viðtakanda. En megnið af efninu er ekki þannig vaxið. Þeir sem dreifa bæklingunum, sem oft eru á prentaðir á rándýran pappír sem ekki eyðist í náttúrunni, heimta að allir fái sinn skerf. Ekki er einu sinni nóg að setja upp miða eða skilti með ósk um að vera laus við sendingamar; oft er ekki tekið mark á þeim orðsending- um. Víkverja finnst að í þessum málum þurfi tillitssemin að fá sinn sess og virða eigi friðhelgi heimilis- ins. XXX IÐMÆLANDI Víkverja sagði honum frá óvæntum vanda sem kona nokkur lenti í. Hún hafði farið í tískubúð í Kringlunni tU að leita að fallegri gjöf. Henni leist afskaplega vel á eina sýningarflíkina, trefil sem var framleiddur erlendis og í snyrti- legum kassa. Þegar heim var komið hætti hún af einhverjum ástæðum við að pakka kassanum umsvifa- laust inn í fallegan pappír. Hún opn- aði hann - og út úr flíkinni ultu leif- ar af stórri flugu sem kramist hafði á mUli laga og skUið eftir sig ógeð- felldan blett á treflinum. Konan var ekki sátt við þetta og fór með trefilinn í búðina til að skila honum og tók með sér fluguhræið, sjálft „sönnunargagnið“. En af- greiðslustúlkan var tortryggin. Hún spurði fyrst hvort konan hefði nú örugglega ekki verið búin að opna kassann og prófa flíkina. Síðan gaf hún í skyn að ýmislegt gæti leynst í hárinu á fólki! Kaupandinn hafði þó sitt fram en fannst ekki mikið tU um þj ónustulundina. XXX JÓÐVERJAR hafa undanfarna áratugi gert upp við ógnir nas- ismans og Víkverja finnst að sú velheppnaða hundahreinsun hafi tekist svo vel að þjóðir sem berjast við jafn slæman arf, til dæmis Rússar, ættu að taka þá sér til fyr- irmyndar. Víkverji er Þjóðverjavinur og hefur fylgst vel með hátíðarhöldun- um í Berlín í tilefni af því að tíu ár eru frá falli múrsins. Þeir sem fylgdust vel með fréttum þetta kvöld og fram á nótt gleyma seint þeirri ótrúlegu stund er fréttir bár- ust af því að íbúarnir í austurhlut- anum hefðu fengið leyfi til að heim- sækja vesturhlutann. Tákn kalda stríðsins var að hrynja, nýtt skeið var tekið við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.