Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Best að borða ljdð Er yfirskrift dagskrár í söng og ljóðum sem frumsýnd verður á Smíðaverkstæði Þjóð- leikhússins í kvöld. Háv- ar Sigmjónsson ræddi við höfundana Þórarin Eldjárn og Jóhann G. Jóhannsson. í ljóðinu Bókagleypi i barnaljóða bókinni Óðfluga segir frá Guð mundi ,,„á Mýrum sem þótti ekk- ert eins gott og að borða bækur. „Ljóðinu lýkur á eftirfarandi línum: „Þó er best að borða ljóð, en bara reyndar þau sem eru góð." Petta gera þeir Jóhann og Þóra- rinn að einkennisorðum sýningar sinnar og bjóða til Ljóðaveislu í Þjóðleikhúsinu, „byggðri á völdu ljóðmeti úr búri Þórarins Eldjáms. Ljóðmetið verður svo borið fram með kartöflumús-ík Jóhanns G. Jó- hannssonar." Eldri en umferðarljósin „Það er nú mest mér að kenna að þetta fór í gang „segir Jóhann semgegnir starfi tónlistarstjóra Þjóðleikhússins. „Mig hafði lengi langað til að semja tónlist við ljóð Þórarins og síðastliðið vor gafst svigrúm til þess svo ég hellti mér út í vinnu við það. Það dró svo ekki úr kraftinum þegar ég uppgötvaði að Þórarinn ætti senn stórafmæli en hann varð fimmtugur í ágúst.“ „Þórarinn verður sposkur á svip þegar spurt erhvort hann finni fyr- ir aldrinum „Ég komst að því um daginn að ég er eldri en elstu um- ferðarljósin í borginni. Og svo auð- vitað jafnaldri Þjóðleikhússins enda hafa leiðir okkar legið saman um langa hríð. „Hér vísar Þórarinn til farsæls leikferils síns bama- leikritum Þjóðleikhússins á sjöunda áratugnum en hann lék böm, bæði manna.og íkoma, í fyrstu uppfærslunum á Dýranum í Hálsaskógi og útvarpsupptöku á Nýjar hljóðbækur • HLJÓÐBÓKA ÚTGÁFA Blindrabókasafns íslands, Orð í eyra, hefur gefið út nokkra bóka- titla: Barnabækumar Ronju ræn- ingjadóttur eftir Astrid Lindgren í flutningi Þorleifs Haukssonar og Bíttu á jaxlinn Binna mín eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur í lestri höfundar. Af öðram titlum má geta Dreggja dagsins eftir Kazuo Ishig- uro í lestri Sigurðar Skúlasonar leikara, Lífsgleði á tréfæti eftir Stefán Jónsson í lestri Gísla Hall- dórssonar leikara og Bréfs til Lára eftir Þórberg Þórðarson í lestri Hjalta Rögnvaldssonar leikara, en hann les einnig samstæðu norska Nóbelsskáldsins Knuts Hamsuns, Benóní og Rósu. Þá gefur Orð í eyra nú í fyrsta sinn út kennslubækur fyrir fram- haldsskóla: Félagsfræði eftir Garð- ar Gíslason í lestri Hildigunnar Þráinsdóttur og Upprana nútím- ans eftir þá Braga Guðmundsson og Gunnar Karlsson í lestri Kol- beins Proppé sagnfræðings. Orð í eyra hefur á boðstólum um 70 titla eftir ýmsa höfunda, m.a. Böðvar Guðmundsson, Guðberg Bergsson, Einar Má Guðmun- dsson, Fjodor Dostojevskíj og Mil- an Kundera. Stærð bókanna er frá 2 og upp í 12 snældur. Bækurnar era til sölu á Blindra- bókasafni Islands, en fást auk þess í bókaverslunum Máls og menning- ar, Pennans/Eymundsson og víðar. Netfang útgáfunnar er http:// rvik.ismennt.is/~ordieyra. Þórarinn Eldjárn og Jóhann G. Jóhannsson undirbúa ljóðaveislu kvöldsins á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Flytjendur og listrænir stjórnendur BEST AÐ BORÐA LJÓÐ eftir Þórarinn Eldjárn og Jóhann G.Jóhannsson. Flytjendur: Sigrún Hjálm- týsdóttir, Öm Árnason.Stefán Karl Stefánsson , Bryndís Páls- dóttir fiðluleikari, Jóhann G. Jóhannsson píanóleikari, Richard Korn kontrabassa- leikari, Sigurður Flosason saxófónleikari. Sviðsetning: Melkorka Tekla Ólafsdóttir. títlit: Elín Edda Árnadóttir Lýsing: Ásmundur Karls- son. Kardimommubænum. Þórarinn hefur verið tengdur leikhúsinu meira og minna síðan og verið mik- ilvirkur höfundur og þýðandi leik- og söngtexta. „Það kom mér því ekki á óvart,“segir Jóhann, „að þjóðleikhússtjóri sýndi hugmynd minni fljótlega mikinn áhuga og lýsti vilja til að hún yrði að veru- leika í formi söngskemmtunar eða ljóðadagskrár á sviði leikhússins á þessu afmælisári." Farsælt samstarf Samstarf Þórarins og Jóhanns nær allt aftur til ársins 1981 er þeir unnu saman að revíunni Skornir skammtar hjá Leikfélagi Reykja- víkur í Iðnó. Þeir hlaða lofi hvor á annan fyrirsamstarfíð og segja það afskaplega farsælt. "Jóhann er gott tónskáld og mikill fagmaður. Hann er hinn fullkomni atkvæðateljari og hefur mjög næma tilfinningu fyr- ir brag, en sá hæfileiki er ekki öll- um tónskáldum gefinn,“segir Þóra- rinn. "Hann getur verið mjög strangur og gert ákveðnar athuga- semdir við einstök orð sem honum finnast kannski of veik miðað við þá áherslu sem þau hafa í laglínunni. „Jóhann segir á móti að einstaklega gott sé að semja lög við ljóð Þórar- ins. "Þau era vel ort, skemmtileg og auðskilin, sum era alvarleg og ein- læg, önnur leiftra af stórskemmti- legu hugarflugi og orðaleikjum, og bamaljóðabækumar hans era al- veg einstakar. Eg valdi þau ljóð sem mig lang- aði mest að semja lög við, og lögin komu svo eitt af öðru, oft nánast án mikilla afskipta af minni hálfu.“"Já, þú hefur verið eins konar hlutlaus skrásetjari sjálfs þín,“skýtur Þóra- rinn inn í. Og bætir svo við að Jó- hann hafi valið ljóðin vel og sjálfur- hafi hann ekki gert annað en leggja blessun sína yfir valið. "Jóhann hef- ur góðan smekk fyrir því hvaða Ijóðum hentar lag. Sum ljóð eru vel til þess fallin en önnur eru lesljóð og ætti aldrei að semja lög við." Fyndið og hátíðlegt Utfrá þessu spinnast vangavelt- ur um áhrif andstæðna í tónlist og texta. Jóhann segir oft gaman að gera hátíðlega tónlist við fyndna og alvörulausa texta. Þórarinn tekur undir og kveðst stundum slengja saman ómerkilegu efni við hátíð- lega bragarhætti. "Þetta skapar spennu og kraft sem vekur athygli áheyrandans eða lesandans.“"Oft- ast er þó hugsunin sú að lagið sé þjónn orðanna og falli vel að hug- blæ og stíl ljóðsins,“segir Jóhann. "Það gefur svo lagi og texta nýjam vídd þegar góðir leikarar og söngv- arar leggja sitt af mörkum við flutninginn,“segir Þórarinn. Jó- hann bætir því við að þegar lögin lágu fyrir hafi leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, komið til skjalanna og valið með honum ljóðin sem lesin era í dagskránni auk þess sem hún liðsinnti leikm-unum. Fyrir börn og fullorðna Alls verða sungin eða lesin 35 ljóð úr nær öllum ljóðabókum Þór- arins, hin elstu úr Kvæði er út kom 1974, en nýjust era ljóðin Yðar mjátign er birtist í vorhefti Skírnis 1999 og Veran Vera sem ekki hefur birst á prenti enn. Þá era ljóð úr barnaljóðabókunum Óðfluga og Heimskringla sem mörg hver hafa orðið fleyg á vörum bama um land allt frá því þær komu út 1991 og 1992. Samkvæmt því má ætla að dagskráin sé ekki síður við hæfi stálpaðra barna en fullorðinna og Þórarinn svarar að bragði: "Þetta er dagskrá fyrir bamalega full- orðna og fullorðinsleg börn.“Hann segist hafa sérstaka ánægju af því að yrkja fyrir börn enda hafi börn sterka tilfinningu fyrir rímuðum kveðskap. "Þeim finnst þetta bæði skemmtilegt og spennandi. Tilfinn- ingin að vita næstum því hvað kem- ur næst en ekki alveg. Samt kemur það á óvart. Börn hafa líka gaman af háttbundnu hljómfalli og góð ljóð á að vera hægt að berja á trommur annars era þau bara ekki ljóð." Að ýmsu að hyggja Flest laganna era framsamin fyrir þessa sýningu, en þó era nokkur sem samin hafa verið og flutt við sýningar Þjóðleikhússins á undanförnum áram þar sem Þóra- rinn hefur samið eða þýtt söngtexta við lög Jóhanns. Má þar nefna Litla-Kláus og Stóra-Kláus, Yndis- fríði og ófreskjuna og Bróður minn Ljónshjarta. Jóhann hefur samið og/eða stjómað tónlist við fjölda sýninga í Þjóðleikhúsinu og oftar en ekki hefur Þórarinn verið þar nærri sem þýðandi eða textahöfun- dur. Hann segir að oft liggi mikil vinna að baki slíkum þýðingum, "þó efnislega sé textinn oft ekki ýkja merkilegur. En það þarf að hyggja að ýmsu við söngtextaþýðingar og laglínan ræður þar auðvitað mestu, en einnig verður efnið að komast til skila og þetta getur oft orðið gífur- lega mikil vinna sem er í engu hlut- fallivið skáldskapargildið." Hönnunardagur SAMTÖK iðnaðarins efna til Hönnunardags húsgagna og inn- réttinga 1999 í dag, föstudag. Þetta er í sjöunda sinn, síðan 1988, sem Hönnunardagur er haldinn en markmiðið með hon- um er að kynna helstu nýjungar í hönnun og framleiðslu húsgagna og innréttinga hérlendis og veita viðurkenningar fyrir þær áhuga- verðustu. Að þessu sinni kynna fyrir- tækin Á. Guðmundsson, Epal, GKS og Penninn rúmlega tutt- ugu ný verk tólf hönnuða, arki- tekta og iðnhönnuða, sem til- nefnd era til Hönnunar-verðlauna 1999 en það er iðnaðarráðuneytið sem gefur þau að þessu sinni. Dóm- nefnd, skipuð fulltrúum frá Ai'ki- tektafélagi Islands, Félagi hús- gagna- og innanhússarkitekta, Félagi húsgagna- og innrétt- ingaframleiðenda og Útflutn- ingsráði Islands, birtir umsögn um verkin en úrslit kunngjörir Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum í kvöld. Hjá fyrirtækjunum Á. Guð- mundssyni, Epal, GKS og Penn- anum verður opið á morgun, laugardag, frá kl. 10-16 og býðst fólki að kynnast íslenskri hönnun og framleiðslu húsgagna og inn- réttinga í tilefni Hönnunardags 1999. Teketill; verk eftir Ragnheiði Ingunni Ágústsdóttur sem er á sýning- unni í Galleríi Smíðum og Skarti. Keramikmunir í Smíðum í GALLERÍI Snn'ðar og skart, Skólavörðustíg 16a, stendur yfir sýning Ragnheiðar Ingunnar Agústsdóttur. Þar sýnir Ragn- heiður keramikmuni framleidda á þessu ári. Ragnheiður lauk prófi frá Lista- Nýjar bækur • JOHNNÝ Tremain er ungl- ingasaga eftir bandaríska rithöf- undinn og sagnfræðinginn Ester Forbes. í fréttatilkynningu segir: Sagan af Johnný Tremain gerist í Boston á áranum 1773-1775. Johnný er fá- tækur munaðarlaus piltur sem sog- ast inn í hringiðu frelsisbaráttunn- ar sem er að leysast úr læðingi. Hann tekur m.a. þátt í frægum at- burði úr veraldarsögunni, teveisl- unni miklu. Bókin hefur í mörg ár verið á leslista í efri bekkjum grannskóla í Bandaríkjunum. Sagan vann á sín- um tíma til Newbury verðlaunanna sem veitt eru bestu barna- og ungl- ingabókum í Bandaríkjunum. Þýðandinn, Bryndís Víglun- dsdóttir, hefur tekið saman skýr- ingar á atburðum og staðháttum sem birtast í eftirmála og frekari upplýsingar verður að finna á heimasíðu Máls og menningar (www.malogmenning.is). Utgefandi er Mál og menning. Bókin er einnig fánleg sem hljóð- bók í örlítið styttri útgáfu. Bókin er287 bls., prentuð í Sví- þjóð. Verð: 2.480 kr. o g skarti háskólanum í I’Ecole des Arts Decoatifs, Strassburg í Frakk- landi árið 1991. Árið 1998 lauk hún MA-námi í hönnun frá Domus Academy í Miianó á ítah'u. Hún hefur bæði sýnt og tekið þátt í fjölda samsýninga í Belgíu, Frakk- landi, Þýskalandi, Sviss, ítahu og Reykjavík. Sýningin er opin kl. 10-18 virka daga og kl. 10-14 á laugardögum og lýkur henni 4. desember. ------♦ ♦ ♦----- Nýjar plötur • REYKJA VÍK - rómantík í húmi nætur er fyrsta geislaplata Borg- arkórsins, sem stofnaður var haustið 1996, af stjórnandanum Sigvalda Snæ Kaldalóns. Uppistaðan á plötunni era Reykjavíkursöngvar og fleiri dæg- urperlur, sem heyrasta hér í nýjum búningi í raddsetningu stjórna- ndans, s.s. Austurstræti, Við Reykjavíkurtjörn, Ástarsæla, í Vesturbænum o.fl. Einnig er að finna syrpu söngva úr sjónleiknum Dansinn í Hrana eftir Indriða Ein- arsson, en sönglögin í leikritinu era eftir Sigvalda Kaldalóns 1881- 1946. Einsöngvarar með kórnum era Anna Margrét Kaldalóns, Bryndís Hákonardóttir og Inga Backmann. Píanóleikarar eru Gunnar Gunn- arsson og Jón Sigurðsson. Utgefandi er Fermata. Stjórn upptöku annaðist Halldór Víkings- son, en upptökurfóru fram íVíði- staðakirkju sl. vor. Japis sér um dreifingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.