Morgunblaðið - 12.11.1999, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Líf og fjör á vímuvarnadegi í Menntaskólanum 1 Kópavogi
Víma
er
gríma
Kópavogur
NEMENDUR og kennarar
Menntaskólans í Kópavogi
skemmtu sér saman á vímu-
varnadegi skólans í gær.
Veitt voru verðlaun í rit-
gerðasamkeppni sem tengd-
ist forvarnastarfi skólans og
nemendur stigu á svið með
hljóðfæraleik og söng, auk
þess sem kennarar iðkuðu
fótmennt með nemendum.
I haust voru þau Hannes
Hilmarsson og Þórunn Tóm-
asdóttir Gröndal ráðin sem
fomvarnafulltrúar MK, en
þau eru jafnframt kennarar
við skólann. Vímuvarnadag-
urinn er liður í þeirra stai’fí,
sem þau segja að snúist fyrst
og fremst um að stuðla að
hugarfarsbreytingu meðal
nemenda skólans varðandi
vímuefni.
Hannes og Þórunn stóðu
ásamt öðrum að fyrsta vímu-
varnadegi skólans í febrúar á
síðasta vetri. Þá kom fram
slagorðið „VÍMA ER
GRÍMA“ sem þau segja að
hitti beint í mark. Þau eru
daglega með viðtalstíma fyrir
nemendur og einnig hafa for-
eldrar leitað mikið til þeirra
með spumingar og leitað hjá
þeim ráða. Fyrr á önninni
stóðu þau fyrir námskeiði í
því að hætta að reykja, en
Þómnn segir að því miður sé
það nokkuð stór hópur nem-
enda sem reyki. Þá var
skipulögð sérstök fræðsla ný-
nema, sem lauk með því að
foreldrum var boðið á kynn-
ingarfund. Hannes og Þór-
unn segja að vímuvarnadag-
urinn sé hápunktur forvarna-
starfsins á þessari önn.
Aðalheiður Erla Davíðs-
dóttir hlaut bókarverð-
laun fyrir ljóð um reyk-
ingar og Anna Bergljót
Thorarensen bar sigur úr
býtum í ritgerðasam-
keppni í tilefni af vímu-
varnadeginum.
Forðast hræðslupredikanir
Að sögn Hannesar eru
forvarnir flókið fyrirbæri
þar sem hægt sé að taka á
vandanum á ýmsum stigum.
Hann segir að starf þeirra
Þórunnar tengist ekki með-
ferðum eða eftirliti, heldur
séu þau fyrst og fremst að
reyna að hafa jákvæð áhrif á
viðhorf nemendanna frá
byrjun. Leitast sé við að
gera það á jákvæðum nótum
en ekki hafa uppi áróður eða
hræðslupredikanir. Vímu-
varnadagurinn dregur dám
af þessum áherslum, þar
sem nemendur og kennarar
eru fyrst og fremst að
skemmta sjálfum sér og öðr-
um, en um leið að minna á að
til eru betri valkostir en
vímuefni.
Þórunn segir að starfið
skili árangri og að krakkarnir
séu sér betur meðvitandi um
þessi mál og ræði þau frekar.
I tengslum við forvamastarf-
Þeir voru hressir krakkarnir í MK
ið var haldin ritgerðasam-
keppni í skólanum, þar sem
umfjöllunarefnið var vímu-
efni og afleiðingar þeirra. A
vímuvarnadeginum tilkynnti
Margrét Friðriksdóttir skóla-
meistari hverjir hefðu haft
sigur í þessari samkeppni og
veitti þeim vegleg verðlaun.
Fyrstu verðlaun hlaut Anna
Bergljót Thorarensen, nem-
andi á 2. ári á hagfræðibraut,
fyrir ritgerð sína „Afstaða
mín til vímuefna". Hún hlaut
í vinning utanlandsferð fyrir
tvo í boði Heimsferða. Önnur
verðlaun fóru til Aðalheiðar
Erlu Davíðsdóttur fyrir ljóð
sem hún samdi og heitir
„Hættu að reykja“ og hlaut
hún bókaverðlaun fyrir.
Lífið á að vera
skemmtilegt
I ritgerð sinni ræðir Anna
Bergljót um það hvernig
notkun vímuefna blasir við
henni, en hún telur hana
vera sívaxandi þjóðfélags-
vandamál. Sjálf telur hún sig
lánsama að hafa alltaf verið í
vinahópi sem forðast hefur
vímugjafa og hafi aldrei sjálf
þurft að standa frammi fyrir
þessum vanda.
„Það skrýtnasta við þetta
allt saman er að það virðist
engum sem notar þessi efni
líða betur heldur en hinum
sem gerir það ekki. Þegar
maður lítur yfír skólakrakk-
ana og veit hverjir eru
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
A myndinni eru frá vinstri talið Margrét Friðriksdóttir skóla-
meistari, Hannes Hilmarsson, Þórunn Tómasdóttir Gröndal
og Helga Braga Jónsdóttir sem var kynnir á skemmtuninni.
á vímuvarnadegi skólans í gær.
þekktir fyrir neyslu sína
virðist sem þeir hafi það
verst. Þeir standa sig oftast
verr í skólanum, eiga oft
færri vini og gefast fyrr upp
á skólanum heldur en þeir
sem halda sig frá efnunum. í
tímum eru þeir oft þreyttir
og einbeitingarlausir, þeir
eru mun stressaðri og upp-
stökkari og eru í allri fram-
komu óöruggari."
Vandamálið er þó ekki auð-
leyst að mati Önnu og verður
líklega seint leyst. „Þjóðin
þyrfti sjálfsagt öll að fara á
eitt heljarinnar námskeið.
Vímuefni eru af hinu illa en
samt notar stærsti hluti þjóð-
arinnar þau á einhvem hátt.
Afengi, sígarettur, eiturlyf,
alit þetta dregur okkur smátt
og smátt til dauða og veldur
ekki nema stundaránægju.
Lífíð er til þess að lifa því og
hafa gaman af. Það hlýtur að
vera skemmtilegra að eyða
því hraustur og heilbrigður."
Hættu að reykja
Hættu að reykja! Hættu í dag!
Heimsku þína sjáðu.
Komdu hjarta og heilsu í lag,
hreinsaðu lungun þjáðu!
Lengdu heldur lífsins kveik,
lungu og æðar kvarta.
Burt með ösku, burt með reyk,
burt með tjöru svarta!
Aðalheiður Erla
Davíðsdóttir
Ný íþróttamiðstöð Hauka rís af grunni á Ásvöllum
Gjörbreytir að-
stöðu til íþrótta-
iðkunar í bænum
Hafnarfjörður
NÝ íþróttamiðstöð og fé-
lagsheimili Knattspyrnufé-
lagsins Hauka er þessa dag-
ana að rísa af grunni. Að
sögn Lúðvíks Geirssonar,
formanns Hauka, er þetta
stærsta framkvæmd sem fé-
lagið hefur ráðist í og með
tilkomu þessarar íþrótta-
miðstöðvar komi öll íþrótta-
aðstaða í Hafnarfirði til með
að stórbatna. Lúðvík segir
ekki veita af, því eftirspurn-
in sé mikil og öll íþróttahús í
bænum þéttsetin.
Hann segir að þrátt fyrir
að framkvæmdin sé í nafni
Hauka eigi þessi aðstaða að
nýtast öllu fólki í bænum
sem áhuga hefur á íþrótta-
iðkun. Miðstöðin öll verður
um 5.300 fermetrar og skipt-
ist í þrjá hluta. Iþróttasalur-
inn verður 45x46 metrar og
rúmar þær íþróttagreinar
sem helst eru stundaðar inn-
anhúss, þar sem gert er ráð
fyrir útdregnum áhorf-
endapöllum sem rúma 2.000
manns. Við hlið salarins
verða 10 búningsherbergi,
en tvö búningsherbergi
verða í suðurenda hússins
við karatesalinn. Þau nýtast
einnig þeim sem nota gervi-
grasvöllinn. I félagsmiðstöð-
inni verða skrifstofur félags-
ins ásamt starfsaðstöðu og
geymslum fyrir hverja deild.
Þar verður einnig fundar-
herbergi ásamt veislusal
fyrir 120 manns með fram-
reiðslueldhúsi. Með því að
fella niður veggi og bæta við
karatesalnum er hægt að
taka á móti 250 veislugest-
um.
Gert er ráð fyrir að taka
íþróttasalinn í notkun næsta
haust og munu þá
körfuknattleiks- og hand-
knattleiksdeildir Hauka
spila heimaleiki sína í nýju
húsi á næsta keppnistíma-
bili. Miðstöðin verður síðan
öll vígð 12. apríl árið 2001 á
70 ára afmæli félagsins.
Lúðvík segir að nú sé í
fyrsta skipti í 70 ára sögu fé-
lagsins verið að sameina allt
starfíð á einum stað. Hann
telur að veruleg framsýni
hafi ráðið ferðinni við skipu-
lagingu svæðisins og hönnun
á íþróttamiðstöðinni.
Heildarkostnaður rúmar
500 milljónir
AIls er Haukasvæðið á
Ásvöllum rúmlega 16 hekt-
arar og er gert ráð fyrir fjöl-
breyttu íþróttastarfi á svæð-
inu. Auk æfingaaðstöðu og
knattspymuvalla er á skipu-
laginu reiknað með þremur
tennisvöllum ásamt sund-
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Ný íþróttamiðstöð Hauka rís nú af grunni þessa dagana. Á myndinni eru þeir Pétur Vil-
berg Guðnason eftirlitsmaður með framkvæmdum, Lúðvík Geirsson formaður Knatt-
spyrnufélagsins Hauka og Sigurfinnur Sigurjónsson verkstjóri frá verktakafyrirtækinu
RIS ehf. sem sér um framkvæmdir. Vinstra megin á myndinni sér í horn íþróttasalarins
og í baksýn eru menn að vinna í verðandi búningsherbergjum.
laugarbyggingu á tveimur
hæðum með 50 metra
útisundlaug og heitum pott-
um. Þá er einnig gert ráð
fyrir göngu- og hlaupaleið-
um um svæðið sem tengjast
nágrenni Astjarnar og um
Ásíjall.
Aætlað er að kostnaður
við nýju íþróttamiðstöðina
verði rúmar 500 milljónir
króna. Af því greiðir Hafn-
arfjarðarbær 80% en Hauk-
ar leggja fram 20% af kostn-
aðinum. Lúðvík segir að
þetta sé auðvitað erfiður
baggi fyrir félagið og að
þetta hefði reynst ógjörn-
ingur ef félagið hefði ekki
átt húseignir við Flata-
hraun, sem renna upp í
kostnaðarhluta Haukanna.
Engu að síður vantar tals-
vert fé ennþá og sagði Lúð-
vík að á næstu dögum yrði
farið af stað með söfnunará-
tak í Hafnarfirði og fólki
gefinn kostur á að styrkja
framkvæmdir við þetta
glæsilega mannvirki og
stuðla um leið að uppbygg-
ingu íþrótta- og æskulýðs-
starfs í Hafnarfírði.