Morgunblaðið - 12.11.1999, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Níu mánaða uppgjör Pharmaco hf.
Hagnaður eftir
skatta 241 milljón
Pharmaco hf. 9 mánuðir 6 mánuðir
9 mán. uppgjör 1999 31/91999 oi/6 1999
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöldr 2.580,4 2.489,2 1.650,8 1.608,1
Rekstrarhagn. fyrir fjármagnsliði 91,1 42,7 5,6 48,2
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) Hagn. af reglu. starfsemi fyrir skatta 6,0 97,1
Hagn. af reglu. starfsemi eftir skatta Aðrar tekjur eftir skatta 54,1 187,0 26,3 174,8
Hagnaður tímabilsins 241,1 201,0
HAGNAÐUR Pharmaco hf. af
reglulegri starfsemi eftir skatta
nam 54,1 milljón króna fyrstu níu
mánuði ársins 1999, en hann var
26,3 milljónir á fyrstu sex mánuð-
unum. Hagnaður þriðja ársfjórð-
ungs af reglulegri starfsemi eftir
skatta nam því um 27,9 milljónum.
Sala Pharmaco fyrstu níu mán-
uði ársins nam 2.580,4 milljónum
króna og jókst um 18,8% miðað við
sama tímabil í fyrra, þegar salan
nam 2.171 milljón króna. Gert er
ráð fyrir að hagnaður af reglulegri
starfsemi eftir skatta verði um 80
milljónir króna, segir í fréttatil-
kynningu frá Pharmaco.
Sindri Sindrason, framkvæmda-
stjóri Pharmaco, segir í samtali
við Morgunblaðið að aukinn hagn-
að fyrirtækisins á þriðja ársfjórð-
ungi megi meðal annars rekja til
samruna lyfjafyrirtækjanna Astra
í Svíþjóð og Seneca í Bretlandi.
Pharmaco var áður með umboð
fyrir Astra og yfírtók 1. ágúst síð-
astliðinn þann hluta vörulínu
Astra Seneca sem áður tilheyrði
Seneca.
„Það var einnig einhver slaki í
sölu í upphafí árs, sem við vitum
ekki hvað olli, því venjulega er sal-
an fremur góð í lyfjum á fyrstu
mánuðum ársins,“ segir Sindri.
„Einnig getur haft áhrif yfír-
taka okkar á tveimur fyrirtækjum,
sem eru snyrtivöruhluti heild-
verslunar Rolf Johansen og heild-
verslun David Pitt. Það fylgdi því
talsverður kostnaður á fyrri hluta
ársins, þegar kostnaður skilaði sér
fyrr en tekjur. Við erum með
þessu að breikka okkar viðskipta-
vinahóp og vöruval.“
Að sögn Sindra voru óregluleg-
ar tekjur á fyrri hluta ársins eftir
skatta, en þær námu um 175 millj-
ónum króna, aðallega vegna sölu-
hagnaðar á hlutabréfum í Opnum
kerfum hf., en óreglulegar tekjur
á þriðja ársfjórðungi eftir skatta
námu um 12,2 milljónum króna.
Fundur um málefni VÞI
Samstarf við er-
lendar kauphallir
„Netið og önnur tæknibylting er
ógnun við hinar hefðbundnu kaup-
hallir. Sjálfstæð viðskiptakerfi eru
farin að undirbjóða þær og því er
spáð að tæknin muni ryðja í burtu
milliliðum á milli fjárfesta og út-
gefenda verðbréfa, sem eru þing-
aðilarnir og kauphallirnar sjálfar."
Þetta kom fram í erindi Stefáns
Halldórssonar, framkvæmda-
rstjóra Verðbréfaþings íslands, á
fundi um málefni þingsins sem
haldinn var á Hótel Loftleiðum í
gær.
A fundinum var rædd möguleg
tenging VÞÍ við erlendar kauphall-
ir en forkönnun þess konar teng-
ingar hefur þegar farið fram og
kynnti Stefán niðurstöður hennar.
„Helstu valkostir í samstarfi sem
við kynntum okkur voru NOREX,
sem er samstarf smárra kauphalla
á Norðurlöndum, kauphöllin í
Frankfurt, sem er stór kauphöll í
miðpunkti Evru-landsins, kaup-
höllin í París, sem er með mjög gott
viðskiptakerfí, og loks er kauphöll-
in í London, sem er sú stærsta í
Evrópu.
Stjórn Verðbréfaþings hefur
rætt þessi mál og að undangeng-
inni þessari forkönnun varð niður-
staðan sú að tveir þessara kosta
verða kannaðir nánar. Það er ann-
ars vegar NOREX og hins vegar
kauphöllin í Frankfurt. Hinar eru
einfaldlega of skammt á veg komn-
ar í þróun slíks samstarfs", sagði
Stefán.
Hann að þessir kostir yrðu skoð-
aðir nánar á næstu mánuðum en ár-
éttaði að ekki væri búið að taka
ákvörðun um hvort af slíkri teng-
ingu verður. Þá nefndi hann að ekki
væri kostur á tengingu við Banda-
ríkin vegna þarlendra laga um
tengingar við erlendar kauphallir.
Avinning af slíkri tengingu sagði
Stefán meðal annars vera öflugt
viðskiptakerfi með alþjóðlegum
viðskiptaháttum, að seljanleiki ís-
lenskra verðbréfa myndi aukast
þar sem um væri að ræða stærri
hóp fjárfesta og að aðgengi íslend-
inga að erlendum mörkuðum
myndi batna.
Sigrún Helgadóttir, starfsmaður
kauphallarinnar í Osló sem fór í
samstarf við kauphallimar í Stokk-
hólmi og Kaupmannahöfn, sagði að
mikill þrýstingur væri á breytingar
hefðbundinna kauphalla og hinn
hefðbundni markaður væri að fær-
ast yfir í viðskipti í gegnum við-
skiptanet. Hún tók jafnframt undir
þau orð Stefáns að söguleg þróun
sýndi að kauphallir væru hættar að
þjóna lokuðum heimamarkaði, en
þess í stað hefði fjaraðild rutt sér
rúms. Þetta gerði það að verkum að
myndast hafí samstarfsklasar
kauphalla víða um heim.
Mannauður í Gæðaviku
STJÓRNUN manna-
uðs var yfírskrift
þriðju ráðstefnu í
Gæðaviku Gæða-
sljómunarfélags Is-
lands sem haldin var í
gær. Páll Skúlason
háskólarektor setti
ráðstefnuna og hald-
in voru fjögur erindi.
Guðfinna S. Bjama-
Morgunblaðið/Kristinn
Guðfínna S.
Bjarnadóttir
dóttir, rektor Viðskiptaháskólans
í Reykjavík, ræddi um þátttöku
starfsmanna í árangursstjóraun,
Ásta Bjamadóttir frá ís-
lenskri erfðagreiningu
ræddi viðdvöl fólks í
starfi og brotthvarf og
spurði: Hvemig höldum
við í gott fólk? Hafsteinn
Bragason frá Gallup
fjallaði um fyrir-
tækjarannsóknir og
Svanbjörn Thoroddsen,
framkvæmdastjóri hjá
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
talaði um tenginu á árangri starfs-
manna og hagsmunum eigenda.
HONNUN / SMIÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
Stórás 6 »210 Garðabæ
sími 569 2100 • fax 569 2101
JEL
Námstefna Stjórnunarfélags íslands
Arangursmat
í fyrirtækjum
STJÓRNUNARFÉLAG
Islands heldur námstefnu
næstkomandi þriðjudag um
notkun EVA-greiningar
(Economic Value Added)
við árangursmat í fyrir-
tækjum. Fyrirlesarar verða
Svanbjörn Thoroddsen,
Jóhannes Ingi Kolbeinsson
og Patrick Finegan.
„Það sem er sérstakt við
þessa aðferð er að hún tek-
ur fullt tillit til alls kostnað-
ar vegna fjárbindingar,
hvort sem það er fjárbind-
ing þeirra sem lána félag-
inu eða eigendanna", segir
Svanbjörn Thoroddsen,
framkvæmdastjóri markað-
sviðskipta hjá FBA og einn
fyrirlesara námstefnunnar.
Hann bætir við: „EVA er í
raun mælikvarði á það sem
eftir stendur þegar þessir
aðilar hafa fengið það sem
þeir gera kröfur um.
Vegna þessa fyrirkomu-
lags tel ég að þessi mælik-
varði tengi saman, betur en
nokkur annar mælikvarði,
ákvarðanir stjórnenda og
starfsmanna annars vegar
og hagsmuni hluthafanna
hins vegar.“
Svanbjöm segir að FBA hafi
verið eitt fyrsta fyrirtækið á Isl-
andi sem tileinkaði sér aðferðir
EVA-greiningar.
„Þetta eru aðferðir sem við höf-
um verið áhugasöm um og fylgst
lengi með en fljótlega eftir
að bankinn tók til starfa
var farið að undirbúa
þetta. Snemma á síðasta
ári réðum við til okkar
ráðgjafafyrirtæki sem
sérhæfir sig í E VA og þeir
störfuðu með okkur við
innleiðinguna.
A námstefnunni mun ég
fjalla um hvernig við not-
um aðferðir EVA-grein-
ingar til að meta árangur í
rekstri FBA. Ennfremur
útskýri ég með hvaða
hætti við notum þetta
kerfí sem grunn að árang-
urstengdu launakerfí okk-
ar,“ segir Svanbjörn að
lokum.
Auk Svanbjörns tala
þeir Patrick Finegan,
framkvæmdastjóri Fineg-
an & Company og frum-
kvöðull í notkun EVA, og
Jóhannes Ingi Kolbeins-
son rekstrarráðgjafi hjá
PriceWaterhouseCoop-
ers. Finegan mun fjalla
um þróun EVA-aðferða-
fræðinnar og notkunar-
möguleika hennar auk
þess sem hann fjallar um
aðrar tengdar aðferðir.
Jóhannes Ingi fjallar um notkun-
armöguleika EVA-greiningar í ís-
lensku atvinnulífi, kosti og galla að-
ferðarinnar, hlutverk ráðgjafans
og framtíðarþróun aðferðarfræð-
innar.
Jóhannes Ingi
Kolbeinsson
Svanbjörn
Thoroddsen
Patrick
Finegan
Bónus í stað
Nýkaups í
Rjörgarði
VERSLUN Nýkaups í Kjörg-
arði við Laugaveg hefur ver-
ið lokað og stefnt er að opnun
Bónusverslunar á sama stað í
byrjun desember. Að sögn
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
forstjóra Baugs, telur stjórn
Baugs meiri gmndvöll fyrir
rekstri Bónusverslunar á
staðnum.
„Það er þekkt erlendis að
reka afsláttarverslanir í
Nykaup
gongu-
götum og
við teljum
þetta
styrkja Laugaveginn," sagði
Jón Asgeir í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta hús-
næði hentaði ekki fyrir rekst-
ur Nýkaups þar sem það er
frekar lítið. Framtíðar-
Nýkaup þarf stærra húsnæði.
Það er stefna Baugs að nýta
hvert húsnæði sem best og
hagræða þannig í rekstrin-
um.“ Að sögn Jóns Ásgeirs
mun apótek e.t.v. verða opn-
að við hlið Bónuss í Kjörg-
arði.
Með breytingunum verður
tólfta Bónusverslunin opnuð
en Nýkaupsverslanir verða
alls fimm talsins. Verslanir
Nýkaups í Hólagarði og
Hverafold í Grafarvogi hafa
verið seldar Kaupási og
Nóatúnsverslun hefur þegar
verið opnuð í Hólagarði.
Verslun Nýkaups í Hverafold
verður lokað á næsta ári og
ný Nýkaupsverslun opnuð í
Spönginni í Grafarvogi.
Islensku gæðaverð-
launin afhent í dag
DAVIÐ Oddsson forsætisráð-
herra mun afhenda íslensku
gæðaverðlaunin á hátíðarfundi
Gæðastjórnunarfélags Islands
sem hefst kl. 16 í dag í íslensku
óperunni.
Islensku gæðaverðlaunin eru
veitt fyrir framúrskarandi gæði á
svicSi reksturs og stjórnunar.
í fréttatilkynningu frá Gæða-
stjórnunarfélagi íslands segir að
með verðlaununum sé verið að
vekja athygli á mikilvægi skipu-
legs og markviss gæðastarfs fyrir
samkeppnishæfni fyrirtækja í
landinu og hagsæld þjóðarinnar,
og jafnframt vekja athygli á þeim
fyrirtækjum sem skara fram úr á
þessu sviði.
„Það er von þeirra sem standa
að Islensku gæðaverðlaununum
að þessi viðurkenning fyrir raun-
verulegan árangur á sviði rekst-
urs og stjórnunar verði þeim er
hana hljóta, sem og öðrum fyrir-
tækjum og stofnunum, hvatning
til að setja sér skýr markmið og
meta reglulega stöðu sína og ár-
angur,“ segir í tilkynningunni.
Hafa ástundað góða
stjórnun til lengri tima
Fram kemur að árangur þeirra
fyrirtækja sem hlotið hafa gæða-
verðlaun í öðrum löndum, og
þeirra sem hlotið hafa Evrópsku
gæðaverðlaunin, megi fyrst og
fremst rekja til þess að fyrirtækin
hafi ástundað góða stjórnun til
lengri tíma. Þessi fyrirtæki hafi
aldrei gefist upp í sókninni, heldur
tileinkað sér og notað bestu að-
ferðir og verkfæri á hverjum tíma
með það að markmiði ná hámarks-
árangri. íslensku gæðaverðlaunin
eru samstarfsverkefni Alþýðu-
sambands íslands, forsætisráðun-
eytisins, Gæðastjórnunarfélags
Islands, Háskóla Islands, Sam-
taka atvinnulífsins og Viðskipta-
blaðsins.
Stjórn verðlaunanna skipa Eyj-
ólfur Sveinsson framkvæmda-
stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar f.h.
GSFÍ, formaður stjórnar, Ari
Edwald framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, Grétar Þor-
steinsson, formaður Alþýðusam-
bands Islands, Guðrún Ragn-
arsdóttir gæðastjóri íslandsbanka
f.h. GSFÍ, Ingjaldur Hannibalsson
prófessor við Háskóla Islands, Ól-
afur Davíðsson ráðuneytisstjóri
forsætisráðuneytisins, og Orn
Valdimarsson framkvæmdastjóri
Viðskiptablaðsins.