Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hamfarasvæðin á Indlandi
Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna
RTiiiT
'þú fterð ekki betra >
Búið að grafa upp
2.000 lík í Kosovo
Reuters
Unnið er að því hörðum höndum á flóðasvæðunum í Orissa að grafa
og breima lík og hræ af dauðum búpeningi. Er það gert til að draga
úr líkum á farsóttum.
Minni líkur á
farsóttum
Astarang. Reuters.
DREGIÐ hefur úr ótta manna við
farsóttir í kjölfar fellibylsins, sem
fór yfir Austur-Indland fyrir næst-
um hálfum mánuði. Tala látinna af
völdum hans er farin að nálgast
8.000 en óttast er, að hún eigi eftir
að hækka mikið enn.
Yfírmenn alþjóðlegs hjálpar-
starfs í Orissa-ríki, sem varð verst
úti í fárviðrinu, segjast raunar
furða sig á, að ekki skuli vera meira
um sjúkdóma en raun ber vitni.
Kann skýringin að vera sú, að
margt fólk hefur flúið burt af
mestu flóðasvæðunum til að verða
ekki hugsanlegum sjúkdómum að
bráð.
I flóðvatninu eru víða rotnandi
lík og mikið af hræjum dauðra hús-
dýra og því er hættan á sjúkdóm-
um mikil. Til þessa hafa tæplega
8.000 manns sýkst af sjúkdómum í
meltingarfærum og 28 hafa látist.
Hundruð eða þúsundir smá-
þorpa þurrkuðust út í fárviðrinu og
flóðunum, sem það olli, en nú er
uppbygging hafín á þeim svæðum,
sem eru orðin þurr.
Reuters
Francisco Labastida.forsetaefni stjómarflokksins í Mexíkó, brosir til
ijölmiðlamanna eftir að hafa greitt atkvæði í forkosningum flokksins.
Labastida
hlutskarpastur
Mexíkdborg. AP.
FRANCISCO Labastida, fyrrum
innanríkisráðherra Mexíkó, fór
með sigur af hólmi í forkosningum
stjórnarflokksins RPI vegna
væntanlegra forsetakosninga. RPI
hefur farið með völd í landinu í 70
ár og því eru taldar miklur líkur á
að frambjóðandi flokksins í forseta-
kosningunum verði jafnframt næsti
forseti landsins.
Sigur Labastida í forkosningun-
um var afgerandi en hann er talinn
njóta stuðnings Emesto Zedillos,
sitjandi forseta. Um tíu milljónir
manna tóku þátt í forkosningunum
og sagði Labastida að þessi mikla
þátttaka sýndi að flokkurinn hefði
tekið miklum breytingum.
„Frá og með deginum í dag mun
ásýnd Mexíkó aldrei verða sú sama.
Flokkur okkar er nú þáttur í al-
gjöru og öflugu lýðræði,“ sagði
Labastida.
Talinn miðjumaður
Hingað til hafa frambjóðendur
RPI verið skipaðir af fráfarandi
forseta og var sú ákvörðun að efna
til forkosninga talin til marks um að
flokkurinn hefði ákveðið að breyta
um ímynd.
Tabastida tilheyrir miðju mexík-
anskra stjómmála á milli markað-
ssinnaðra „nýfrjálshyggjumanna"
og „risaeðlanna" en svo eru þeir
stjórnmálamenn kallaðir í landinu
sem vilja efla hlut ríldsins í efna-
hagslífínu.
Talið er að skæðasti keppinautur
Labastida í forsetakosningunum
verði Vicente Fox, frambjóðandi
miðjuflokks, sem nýtur mikils fylg-
is samkvæmt skoðanakönnunum.
Til þessa hefur þó stjómarandstöð-
unni ekki tekist að sameinast um
einn frambjóðanda og því stefnir í
að atkvæði andstæðinga RPI muni
dreifast á marga frambjóðendur.
Sameinuðu þjóðunum. AP, Reuters.
SVISSLENDINGURINN Carla
del Ponte, aðalsaksóknari stríðs-
glæpadómstóls Sameinuðu þjóð-
anna, segir að búið sé að grafa
upp og bera kennsl á 2.108 lík
fórnarlamba átakanna í Kosovo og
séu flest af Albönum en einnig sé
nokkuð um lík Serba. A fundi með
fulltrúum í öryggisráði samtak-
anna í gær og síðar á blaða-
mannafundi sagði hún að sér-
fræðingar frá alls 14 löndum
hefðu kannað 195 fjöldagrafír
undanfarna fímm mánuði. Fullyrt
hefði verið að í gröfunum væru yf-
ir 4.000 lík en þau hefðu reynst
færri.
Del Ponte sagði embættismenn,
fjölmiðla og ættingja hafa skýrt
frá um 11.300 manns sem grafnir
hefðu verið á alls 529 stöðum, yf-
irleitt í fjöldagröfum. Oft hefði
komið í ljós að hróflað hefði verið
við gröfunum.
„ I allmörgum gröfum er ekki
hægt að slá neinu föstu um fjölda
líkanna. Þar hefur verið reynt að
fela vísbendingar," sagði hún.
Talsmenn Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, giskuðu á sínum
tíma á að 10.000 Albanar hefðu
verið grafnir í fjöldagröfum í
Kosovo en tölur sérfræðinga dóm-
stólsins nú þykja benda til þess að
raunverulega talan sé lægri.
Saksóknarinn sagði að megin-
verkefni dómstólsins væri hins
vegar ekki að rannsaka grafirnar
heldur að safna upplýsingum sem
tengdust ásökunum á hendur
Slobodan Milosevic Serbíuforseta
og öðrum um glæpi gegn mann-
kyninu.
Hún sagði að starfsmenn emb-
ættisins væru einnig að kanna
hugsanlega stríðsglæpi af hálfu
liðsmanna Frelsishers Kosovo,
KLA. Herinn, sem skipaður er Al-
bönum, barðist gegn her og lög-
reglu Júgóslavíu með skæruhern-
aði.
„Við vitum um glæpamenn sem
eru múslimar og komu úr röðum
KLA. Meira get ég ekki sagt ykk-
ur.“
Del Ponte hvatti liðsmenn frið-
argæsluliðsins í Kosovo til að gera
meira af því að leita að og hand-
taka 30 manns sem eru þar á
flótta, sakaðir um stríðsglæpi.
Sumir þeirra væru í Serbíu og
huga þyrfti sérstaklega að landa-
mærum Kosovo og lýðveldis
Serba í sambandsríkinu Bosníu
vegna þess að margir reyndu að
flýja þangað.
Rússar saka del Ponte
um hlutdrægni
Saksóknarinn bað öryggisráðið
um að fjármagna starf tveggja
sérfræðinga er ættu að reyna að
leggja hald á eignir flóttamann-
anna. Hún þyrfti mjög á öflugum
stuðningi ráðsins að halda í starfi
sínu, einkum í viðleitni sinni til að
fá stjómvöld í Júgóslavíu og
Króatíu til að framselja þá sem
stríðsglæpadómstóllinn hefði
ákært.
Flestir fulltrúar í ráðinu lýstu
fullum stuðningi við starf del Pon-
te að Gennadí Gatílov, fulltrúa
Rússa, undanskildum. Hann sagði
dómstólinn vera hlutdrægan í til-
raunum sínum til að ákæra Milos-
evic og einnig með því að einbeita
sér að stríðsglæpum gegn Albön-
um en ekki Serbum. Del Ponte
vísaði þessum ásökunum á bug.
Forkosningar í
stjórnarflokki Mexíkó
Eftirtal
Akraxiess Apótek
Apótek Keflavíkur
Apótek Suðurnesja
Árbæjaraþótek
Borgar Apótek
Borgarness Apótek
Fjarðarkaups Apótek
Graíárvogs Apótek
Háaleitis Apótek
Iðunnar Apótek
Laugarnesapótek
Nesapótek
Rima Apótek
Sauðárkróksapótek
m ■
Lyf&heilsa
Lb LYFJA
LyQa
Lágmúla • Hafnarfirði ‘Kópavogi
Verslanir KÁ
Lyf & heilsa
Kringlunni, Glæsibæ, Háteigsvegi, Hellu, Hveragerði, Hvolsvelli,
Hraunbergi, Melhaga Þorlákshöfn