Morgunblaðið - 12.11.1999, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 35
LISTIR
Stundvísi og
hrynskerpa
TOJVLIST
S a I ii r i n n
Kammertónleikar
Trio Parlando flutti verk eftir
Andrew Ford, Oliver Kentish, El-
ínu Gunnlaugsdóttur, Piazzolla,
Kjartan Olafsson, Robert
Muczynski
og Paolo Perezzani.
Þriðjudaginn 9. nóvember.
TRIO Parlando nefnist samspils-
hópur sem samanstendur af
flautuleikaranum Héléne Navas-
se, píanóleikaranum Sandra de
Bruin og klarinettuleikaranum
Rúnari Oskarssyni og hélt tríóið
tónleika á vegum Tíbrár í Salnum
sl. þriðjudagskvöld. Tónleikarnir
hófust á verki sem ber nafnið
Ringing the Changes og á að
minna á klukknahringingar. Það
hefst á djúpum og afar sterkum
bassatóni, þannig að yflrtónar
komu mjög skýrlega fram, svo
sjálfur grunntónninn varð á köfl-
um óviss í heyrn. Verkið var mjög
skýrlega kaflaskipt, fyrst stakt-
ónaleikur, þá spunakenndur sam-
leikur, þar næst langir tónar með
klasahljómum í píanóinu, þá hrað-
ur þrástefjaleikur og verkið end-
aði svo með tilvitnun í upphafið.
Tónmál verksins var skýrt og sér-
lega vel flutt. Bergmál nefnist
verk sem fi’umflutt var og er eftir
Oliver Kentish, skemmtilega gert
verk, þar sem flautan og klarin-
ettið voru oft í áttundum, á móti
píanóinu, og einnig mátti heyra
tekið í rímnalag og rithátt er
minnir á Jón Leifs, eins og til-
greint er í efnisskrá. Þetta er ág-
ætt verk og ekki sakaði snjall
flutningurinn hjá Trio Parlando.
Rún heitir verk eftir Elínu Gunn-
laugsdóttur sem samið er á þessu
ári. Þetta er fyrir einleik á bas-
saklarinett, þar sem fléttaðar eru
saman tvær tónhumyndir, er í
raun minna oft á gagnort samtal.
Vel gert verk og það fyrsta sem
undirritaður heyrir eftir þessa
ungu listakonu, sem er nýútskrif-
uð í tónsmíðum frá tónlistarhá-
skólanum í-Haag.
Astor Piazzolla er eins og aðrir
Suður-Ameríkanar undarlega
heillaður af meistara J.S. Bach,
enda hóf hann verk sitt, Muerte
del Angel, á hrynfastri fúgufra-
msögu en slær svo fljótlega á létt-
ari strengi með skemmtilegum
tangótiltektum. Sporðdrekadans
nefnist verk eftir Kjartan Ólafs-
son frá 1986, þar sem heyra má að
á ferðinni er efnilegt tónskáld og
á þessum árum að hefja starf sitt
sem tónskáld. Þetta er vel samið
verk og var það hressilega flutt.
Eftir bandaríska tónskáldið
Robert Muczynski var flutt
flautusónata í fjóram köflum,
hefðbundið verk og að mestu í
eins konar skersó-stíl, leikglatt
verk, er gerir nokki’ar kröfur til
flytjenda. Tónleikunum lauk með
verki eftir Paolo Perezzani (1955),
sem í tónmáli sínu reynir að sætta
gamalt og nýtt og tekst það oft
nokkuð vel.
Trio Parlando er skipað frá-
bæra tónlistarfólki og var leikur
tríósins sérlega stundvís og
skarpur í hryn en á móti kom oft
fallega mótuð slökun, þar sem
tónmálið varð líðandi. Flautuleik-
arinn Navasse lék sérlega vel í
sónötunni eftir Muczynski og
einnig í verki Piazzolla. Píanóleik-
arinn Sandra de Bruin lék af
glæsibrag, en henni lætur sérlega
vel að magna upp hrynræna
spennu og var leikur hennar í
sónötu Muczynski, verki Piazzolla
og lokaviðfangsefninu eftir Per-
ezzani hreint frábær. Rúnar Ósk-
arsson er snilldarklarinettuleik-
ari, er lék verk Elínar
Gunnlaugsdóttur og Kjartans Ól-
afssonar á einstaklega sannfær-
andi máta og átti sinn þátt í hinu
stundvísa og hrynskarpa sam-
spili, er var aðal þessara
skemmtilegu tónleika.
Jón Ásgeirsson
Sólarmeg’in
á ísafirði
SÖNGHÓPURINN Sólarmegin
heldur tónleika í Hömrum, tón-
leikasal Tónlistarfélags Isafjarðar,
á morgun, laugardag, kl. 17.
Sönghópurinn Sólarmegin var
stofnaður snemma árs árið 1990 af
nokkrum áhugasöngvurum á Akra-
nesi og hefur nánast eingöngu
fengist við söng án undirleiks.
Sönghópinn skipa Ragna Krist-
mundsdóttir, sópran, Þórgunnur
Stefánsdóttir, sópran, Gyða Bents-
dóttir, alt, Jensína Valdimarsdóttir,
alt, Tómas Kárason, tenór, Sigurs-
teinn Hákonarson, tenór, Lars H.
Andersen, bassi, og Guðmundur
Jóhannsson, bassi og söngstjóri.
Á efnisskránni eru m.a. íslensk
og erlend þjóðlög, lög í útsetningu
Grayston Ives, sem hefur útsett
fyrir Kings Singers, og m.a. lög eft-
ir Billy Joel, Lennon og McCartney
og Albert Hammond.
Sönghópurinn hefur haldið fjölda
tónleika og komið víða fram, bæði
innanlands og utan.
Sönghópurinn gaf út geislaplöt-
una Sólarmegin árið
1996.
Miðaverð á tónleikana er kr.
1.200 og eru þeir seldir við
innganginn. Ókeypis aðgangur
er fyrir skólafólk.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
m Vita-A-Konibi
Píanótónleikar Jónasar
Ingimundarsonar í Salnum
Fyrsta og síðasta
sónata Beethovens
og valsar Chopins
JÓNAS Ingimundar-
son píanóleikari held-
ur sína fyrstu einleik-
stónleika í Salnum,
Tónlistarhúsi Kópa-
vogs, á morgun, laug-
ardag, kl. 16. Tón-
leikarnir era þeir
þriðju í Tíbrá, röð 3,
og er verð aðgöng;
umiða kr. 1.500. Á
efnisskránni eru
fyrsta píanósónata
Beethovens og sú
síðasta og valsamir
fjórtán eftir Chopin.
„Beethoven samdi alls 32 píanó-
sónötur og var sjálfur mikill pían-
isti. Píanóið var hans hljóðfæri og
hann trúði því íyrir sínum dýpstu
tilfinningum. Þetta er eins og ævis-
aga hans í tónum og það er hægt að
rekja allan ferilinn í gegnum sónöt-
urnar,“ segir Jónas og bætir við að
)ess vegna hafi honum einmitt þótt
forvitnilegt að stilla
fyrstu og síðustu
sónötunni upp hlið
við hlið.
Eftir hlé gerir
Jónas sér lítið fyrir
og spilar fjórtán
valsa Chopins, í til-
efni af 150 ára ártíð
tónskáldsins. „Þeir
era eins fjölbreyti-
legir og þeir eru
margir - og persóna
tónskáldsins er yfír
og allt um kring,“
segir Jónas, sem kveðst allt í einu
hafa uppgötvað að hann kunni alla
valsana fjórtán. „Chopin hefur
ábyggilega ekki ætlast til þess að
þeir væra spilaðir allir í einu en
mér fannst það forvitnilegt og svol-
ítið gaman - og það kom mér satt
að segja á óvart hve fjölbreytilegir
þeir era.“
A
Þrfleikur Olafs gef-
inn út í Bretlandi
VETRARFERÐIN eftir Ólaf
Gunnarsson er sjálfstæður loka-
hluti þríleiksins sem hófst með
Tröllakirkju, en strax við út-
komu hennar var útgáfuréttur á
öllum þríleiknum seldur brezka
útgáfufyrirtækinu Mare’s Nest.
Tröllakirkja er komin út á
ensku og Blóðakur, önnur bók
þríleiksins, hefur verið prentuð í
Bretlandi og er að koma út.
Líkt og tveir fyrri hlutarnir,
fjallar Vetrarferðin um líf ís-
lendinga á ofanverðri tuttugustu
öld.
Tröllakirkja var tilnefnd til Is-
lensku bókmenntaverðlaunanna
1992 og Impac-bókmenntaverð-
launanna.
Utgefandi Vetrarferðavinnar
er Forlagið. Bókin er 486 bls.,
prentuðí Prentsmiðjunni Odda.
Kápuhönnun er eftir Finn
Malmquist. Verð: 4.480 kr.
%viéy^(\fy\V- - Gœðavara
Gjaíavara — matar otj kaífislell.
Allir verðflokkar. .
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Yersace.
VERSLUNIN
Laugnvegi 52, s. 562 4244.
Glæsilegui
sanikvæniis-
fatnaðui
Kynnum nýjan 7manna bíl frá Opels