Morgunblaðið - 12.11.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999 37
Nýjar bækur
LÍNUR - smásöguv er fyrsta smá-
sagnasafn Páls Hersteinssonar.
I bókinni eru
tíu sögur og ger-
ast bæði erlendis
og á íslandi. í
fréttatilkynn-
ingu segir að
þótt þær séu ól-
íkar innbyrðis
eigi þær glettn-
inga sameigin-
lega.
Fyrir tveimur
árum kom út eft-
ir höfundinn bókin Agga Gagg.
Útgefandi er Ritverk. Bókin er
152 bls., unnin í Prentsmiðjunni
Odda hf. Verð 3.490 kr.
Skagfírska söngsveitin í Reykjavík.
Nv bók Hemingways
hjá Setbergi
SATT við fyrstu sýn
eftir Ernest Hem-
ingway er meðal út-
gáfubóka Setbergs.
Bókin er samin eftir
langa veiðiferð í
Kenýa, en lögð til
hliðar ófrágengin og
kemur nú í íyrsta
sinn fyrir almenn-
ingssjónir undir rit-
stjórn sonar höfund-
ar, Patricks Hem-
ingways, en það er
Sigurður A. Magn-
ússon rithöfundur
sem þýðir bókina.
Verkið blandar sam-
an skáldskap og
sjálfsævisögu. Þessi síðasta bók
Hemingways kemur út um þessar
mundir í 40 löndum, segir í frétta-
tilkynningu.
Spegilmynd er fertugasta og
fyrsta metsölubók Danielle Steel.
Fjallað er um eitt sterkasta og dul-
árfyllsta samband lífsins, samband
éineggja tvíbura, og segir frá lífí
tveggja systra og ferli þeirra.
I flokld barna- og unglingabóka
koma út bækurnar Pétur Pan og
Afi og amma og stóra gulrófan.
Tvær harðspjaldabækur fyrir
yngstu börnin: Góða nótt, góðu vin-
Emest
Hemingway
ir og Matti í sveit; tvær bækur fyrir
börn sem eru að læra að lesa: Sögur
í háttatíma og Kvöldsögur barn-
anna; tvær límmiðabækur, litprent-
aðar: Límmyndabókin, sem er
orðabók með mörg hundruð ís-
lenskum og enskum orðum og Dýr-
in stór og smá, en þar læiir bamið
að tengja saman orð og mynd;
Vísnabók bamanna - Gæsa;
mömmubók, er há og mjó bók. í
bókinni em 200 litmyndir og teikn-
ingar og rúmlega 100 vísur og
kvæði eftir Böðvar Guðmundsson
skáld.
Böðvar
Guðmundsson
Verk eftir Maríu Jónsdóttur í
glugga Búnaðarbankans við
Hlemm.
María Jóns-
dóttir sýnir í
glugga Bún-
aðarbankans
í SÝNINGARGLUGGA Búnaðar-
bankans við Hlemm (Rauðarár-
stígsmpgin) fá nemendur Listahá-
skóla Islands tækifæri til að sýna
verk sín, hálfan mánuð í senn. Nú
stendur yfír sýning Maríu Jóns-
dóttur, nema á 3. ári í textfldeild.
Hún sýnir þrívíð verk sem unnin
voru undir þemanu Fátækra skúlp-
túr, þar sem nota átti verðlausa og
aflagða hluti til listsköpunar.
Sýningin stendur til föstudagsins
19. nóvember.
Aukasýningar
á 1000 eyja
sósu
SÍÐUSTU sýningar á Þúsund eyja
sósu, eftir Hallgrím Helgason,
verða í Iðnó laugardaginn 13. og
föstudaginn 19. nóvember.
Sýningin mun fara út fyrir land-
steinana að ári því henni hefur ver-
ið boðið á leiklistarhátíð Euro Sce-
ne í Leipzig í nóvember árið 2000.
Stefán Karl Stefánsson leikur
einn í sýningunni undir leikstjóm
Magnúsar Geirs Þórðarsonar.
Síðustu sýn-
ingar á Ein-
ari Askeli
SÍÐUSTU sýningar á barna-
leikritinu Góðan dag, Einar
Askell! verða í Möguleikhús-
inu við Hlemm laugardagana
13. og 20. nóvember. Leikritið
er gert eftir sögum sænska
höfundarins Gunillu Berg-
ström um Einar Áskel. Leik-
gerðin er eftir Pétur Eggerz,
sem jafnframt er leikstjóri, og
er leikgerðin unnin í samráði
við höfundinn. Tónlist er eftir
Georg Riedel, en hann er með-
al annars þekktur fyrir lög sín
um Línu Langsokk og Emil í
Kattholti. Leikarar í sýning-
unni eru Skúli Gautason og
Pétur Eggerz.
Skagfírska
söngsveitin á
Suðurlandi
SKAGFIRSKA söngsveitin í
Reykjavík heldur útgáfutónleika í
Þorlákshöfn og á Selfossi sunnu-
daginn 14. nóvember. Tónleikarnir
í Þorlákshöfn verða í Þorlákskirkju
kl. 16 en tónleikamir á Selfossi
verða í Selfosskirkju kl. 20.30.
Á tónleikunum mun kórinn
kynna og syngja lög af nýútkom-
inni geislaplötu kórsins sem heitir
Nú ljómar vorsins ljós. Titill plöt-
unnar er fenginn að láni úr ljóði
Jóns frá Ljárskógum sem heitir
Stúlkan mín, en lagið er eftir söng-
stjórann Björgvin Þ. Valdimarsson.
Skagfirska söngsveitin í Reykja-
vík hefur í gegnum tíðina sungið
fjölmörg lög eftir stjómanda kórs-
ins, Björgvin Þ. Valdimarsson, en á
plötunni flytur kórinn, ásamt ein-
söngvurum og hljóðfæraleikurum,
sjö lög eftir hann. Auk laga Björgv-
ins verða flutt m.a. lög eftir Eyþór
Stefánsson, Sigurð Þórðarson og
Sigvalda Kaldalóns. Einsöngvarar
með kórnum era Oskar Pétursson,
Guðmundur Sigurðsson og Kristín
R. Sigurðardóttir. Píanóleik annast
Sigurður Marteinsson. Tveir aðrir
hljóðfæraleikarar koma fram með
kórnum: Helga Þóra Björgvins-
dóttir sem leikur á fiðlu og Jóhann
Stefánsson, sem leikur á trompet.
*
ff
ovottavé
Mjög hljóðlát
EÐ Electrolux
• Fyrir 12 manna matarstell
Bamalæsing
• Þreföld lekavörn
Fjögur þvottakerfi
og sér skolkerfi
Þriggja ára ábyrgð
Tilboð
49.995 kr
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Barnaflíspeysur
Verð 2.498.
Úrval af barnabolum,
göllum og buxum.
^ftlsfcl búðin I
Garðatorgi, sími 565 6550
QX
£