Morgunblaðið - 12.11.1999, Qupperneq 60
0 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Af vettvangi
skólamála
KENNARAR í grunnskólum,
framhaldsskólum og tónlistarskól-
um halda stofnþing nýs stéttarfé;
lags dagana 11.-13. nóvember. I
nýju Kennarasambandi íslands
sameinast allir félagsmenn í Hinu
íslenska kennarafélagi og Kenn-
arasambandi Islands. Skólamál
verða meðal mikilvægustu mála á
stofnþinginu og verður hér á eftir
f gt frá ýmsum málum sem skóla-
álanefndir kennarafélaganna
hafa unnið að og verða til umfjöll-
unar á stofnþinginu.
I báðum kennarafélögunum eru
starfandi nefndir, skólamálaráð
Kennarasambands Islands og
skólamálanefnd Hins íslenska
kennarafélags, sem hafa það hlut-
verk að fjalla um uppeldis- og
skólamál, vera stjóm til ráðuneytis
um stefnumörkun í skólamálum og
vinna að eflingu kennaramenntun-
ar og endurmenntunar félags-
manna. Undanfarin ár hafa skóla-
málanefndir kennarafélaganna
unnið náið saman bæði að stefnum-
örkun í skólamálum og menntun
kennara fyrir nýtt Kennarasamb-
and ásamt því að fjalla um málefni
skóla og menntunar á líðandi stund.
Bæði kennarafélög-
in hafa mótað sér
skólastefnu og gefið
hana út í sérritum.
Ný stefnumörkun
byggir því á traust-
um grunni.
Nýjar aðalnám-
skrár fyrir grunn-
og framhaldsskóla
tóku gildi á þessu
ári. Kennarafélögin
tilnefndu fólk í for-
vinnu- og vinnuhópa
námskrárvinnunnar.
Haldnir voru fundir
með menntamálar-
áðherra, starfs-
mönnum mennta-
málaráðuneytisins, kennurum í
forvinnuhópum og formönnum fag-
félaga varðandi málið. Auk þess
ÞrePajdur Vínningur
leysir m^rgfc/
Það eru ekki alltaf „aðrir“ sem fá stóra vinninginn í Lottóinu.
Einmitt þú gætir orðið fimm milljónum ríkari
ef þú kaupir miða fyrir kl. 19.30 á laugardaginn.
JÓI^R
Mundu eftlr J ókernum.
\
OK.PIP fö,
J l i \ i iv V
I þágu íþrótta,
ungmenna og
öryrkja
voru sendar umsagnir um nám-
skrárnar og m.a. lögð áhersla á
endurmenntun kennara og nýtt
námsefni.
í námskránum eru ýmsar nýj-
ungar. Þar má nefna nám í upp-
lýsinga- og tæknimennt og líf-
sleikni sem verða nýjar
kennslugreinar bæði í grunn- og
framhaldsskólum. Nauðsynlegt er
að endurmenntun kennara fylgi
nýjungunum þannig að faglega sé
unnið að málum. Hún þarf að vera
bæði á skólatíma og utan hans.
Endurmenntun kennara er lykila-
triði ef takast á að byggja upp betri
skóla.
I námskránum er einnig gert ráð
fyrir að skólarnir setji sér stefnu í
forvarnarmálum. I grunnskólum er
þegar hafin vinna við forvarnarmál
og í nokkrum framhaldsskólum
hafa verið ráðnir forvarnarfull-
trúar. Drög að forvamarstefnu fyr-
ir framhaldsskólann verða til um-
fjöllunar á stofnþinginu.
Kennarafélögin telja mikilvægt
að kennarar eigi aðgang að faglegri
umfjöllun um skólamál. Eitt af
hlutverkum skólamálanefndanna
hefur verið að halda skólamálaþing
þar sem fjallað er um ýmsa nýbr-
eytni í skólastarfi. A síðasta ári var
Kennarar
Endurmenntun kennara
er lykilatriði, segja
Kristfn Jónsdóttir og
Sigríður Bilddal, eigi að
takast að byggja upp
betri skóla.
haldið framhaldsskólaþing þar sem
fjallað var um nýjar áherslur í
framhaldsskólum. Skólamálaþing
var haldið á þessu ári bæði í
Reykjavík og á Akureyri í sam-
vinnu við Félag íslenskra leikskóla-
kennara. Á þinginu voru erlendir
og innlendir fyrirlesarar sem fjöll-
uðu um fjölgreindarkenningu
Howards Gardners og breytt hlut-
verk og starfsumhverfi kennara.
Þingin voru vel sótt og kennarar
ánægðir með það sem þar kom
fram.
Hér hefur einungis verið drepið á
nokkur atriði um skólamál sem
unnið hefur verið að á undanföm-
um ámm. Næg verkefni eru fram-
undan eins og að fylgjast með fram-
kvæmd námskránna þannig að
hægt sé að tryggja nemendum
framtíðar enn betri skóla.
Kristín er formnður
skólamúluráðs KI og
Sigríður er í skólamálanefnd HÍK.
fSLCHSKUR
HAGFISKUR
- hagur heimilinna
5677040
Rækja, humar, hðrpuskal, ýsa.lúða.siungur,laxoll
FRI HEIMSENDING
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavoqi