Morgunblaðið - 12.11.1999, Side 64
6,4 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Ár aldraðra
Jenna Jensdóttir
„Reyndur veit
þó betur“
Við skriðum öll saman upp tré
hvert eftir öðru eins og þykk skán
á berkinum
§tundum væri gaman að doka við
jafnvel snúa til baka
væri það hægt.
(Anna Kr. Brynjúlfsdóttir.)
SUMIR greina lífssannindi betur en aðrir. Þeir hafa vakið at-
hygli á því að gott og fróðlegt sé að líta til baka eftir langa leið,
ef það er gert af sáttfýsi og góðvild. En þótt dokað sé við í
minningunum, er ekki hægt að snúa við eða breyta því sem
gerst hefur í lífi einstaklings. Það blasir við eins og stór varða á vegi,
hvort sem trú eða trúleysi býr í vitundinni, að kærleikur og fordóma-
leysi eru stór skerfur til góðs fyrir þá sem á eftir koma. Og hver vill
ekki afkomendum allt hið besta?
Þeim sem gefst það að geta htið Hin andstæðu öfl - gott og
til átta með óskertri vitund á j||t - eru á fullu um yfirráð
gamals aldri er gefið meira en j þjóðlífi okkar nú.
orð fá lýst. Þeir eiga lífsreynslu
sem geymir dýrmætan lærdóm handa þeim sem yngri eru.
Hann Jón Arsæll Þórðarson er gott dæmi um fyrst nefndan hóp
manna. Honum hefur nánast ekki komið tO hugar að hann viti betur
en þeir sem lifað hafa mörg árin, sem hann á eftir.
Samskipti hans við aldraða eru á forsendum virðingar og manngæsku,
sem lítur forsjárhyggju og sálarstýringu smáum augum.
Þai- sem Jón Arsæll er þekktur fjölmiðlamaður er Ijóst að þessi
lífsmáti hans spannar yflr allt það er hann hefur að segja um og við
meðsystkini sín.
, Stjórnendur þáttarins „Island í bítið“ hafa ljóstrað því upp hvað Jón
Ársæll aðhefst á „ári aldraðra".
Hin andstæðu öfl - gott og illt - eru á fullu um yfirráði í þjóðlífi okkar
nú. Hópur eðallyndra er stór og lífsreynslan hefur sýnt að þótt hann
nötri um stundir hefur hann engu að tapa.
lÓLflHLflÐBORP í IHOÓLFSSKflLfl
Á komandi aðventu býður Ingólfsskáli upp á
íslenskt jólahlaðborð í einstöku umhverfi
. sem hæfir sönnum íslendingum. Komið og njótið
íslenskrar gestrisni í eina Víkingahúsi landsins þar
sem langborðin svigna undan ljúffengum réttum,
og ljúfir lifandi tónar hljóma.
V
Pantanir og upplýsingar
INGÓLFSSKÁLIVEITINGAHÚS
S: 483-4160 / 483-4666
Fax: 483-4099
e-mail: basinn@islandia.is
Gífurlegt úrval af
nyjum jólaefnum
VIRKA
Mörkin 3 - Sími 568 7477„
Opið
Minud.-föstud. kl. 10—18
Laugard. kl. 10—16
til 20/12
ÞÞ
&co
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 5S3 8640 & 568 6100
Ifeldu rétta efnið - veldu Rutland!
'Hutland þéttir,
bætir og kætir
þegar þakið
fer að leka
ÞAKVIÐGERÐAREFNI
Á -ÞÖK - VEGGI - GÓLF
Rutland er einn
helsti framleiðandi
þakviðgerðarefna í
Bandaríkjunum
BOÖF
C0ATINS
sua
KIRKJUSTARF
Holtskirkja í Önundarfirði
Safnaðarstarf
Holtskirkja
í Önundarfirði
130 ára
HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA verð-
ur sunnudaginn 14. nóvember kl. 14
í Holtskirkju í Önundarfirði. Minnst
verður 130 ára afmælis kirkjunnar.
Herra Sigurður Sigurðsson, vígslu-
biskup Skálholtsstiftis prédikar.
Talið er að kirkja hafi verið reist í
Holti fljótlega eftir árið 100, er
kristni var lögtekin á Islandi. Holts-
kirkja var í kaþólskum sið helguð
heilögum Lárensíusi píslarvotti.
Annexíur eru á Flateyri og Kirkju-
bóli í Valþjófsdal.
Núverandi kirkja er upphaflega
timburhús, reist árið 1869 að frum-
kvæði sr. Stefáns Stephensens
(1829-1900), prests og prófasts í
Holti 1855-1884.
í Holti fæddist 1605 Brynjólfur
Sveinsson, biskup í Skálholti 1639-
1674, einn mestur kirkjuhöfðingi í
lútherskum sið, mikill lærdómsmað-
ur og safnari fornra handrita. Hann
gaf Friðriki II Danakonungi Flat-
eyjarbók, en Danir skiluðu ís-
lendingum þessari gersemi árið
1971. Á 300. ártíð Brynjólfs árið
1975 reistu Lionsmenn á Flateyri
honum minnisvarða á hólnum norð-
an við kirkju og kirkjugarð.
Frá sr. Sveini, föður Brynjólfs
biskups, eru kertastjakar tveir af
kopar á altari Holtskirkju. Áletrun
á stjökunum: Sera Sveinn Simons-
son Anno salutis 1604.
Kaleikur kirkjunnar frá 1897 er
gjöf norska hvalveiðimannsins
Hans Ellefsen, þess er reisti húsið á
Sólbakka við Flateyri, sem nú er
ráðherrabústaðurinn í Reykjavík.
Rautt altarisklæði, með krossi af
bútasaum, er unnið af Heidi Kristi-
ansen, gjöf Kvenfélags Mosvalla-
hrepps, keypt fyrir fé, sem sr. Jón
Ólafsson, fyrrum prófastur í Holti
gaf féiaginu til minningar um eigin-
konu sína, frú Elísabetu Einars-
dóttur (1906-1985).
Fimm prestar hafa setið Holt á
þessari öld: Sr. Janus Jónsson
(1884-1908), sr. Páll Stephensen
(1908-1929), sr. Jón Ólafsson (1929-
1963), sr. Lárus Þ. Guðmundsson
(1963-1989) og sr. Gunnar Bjöms-
son frá 1989.
Gunnar Bjömsson,
sóknarprestur.
Kotstrandar-
kirkja 90 ára
HINN 14. nóvember nk. verður
þess minnst að liðin eru liðin 90 ár
frá vígslu Kotstrandarkirkju í Ölf-
usi. Guðsþjónusta verður í kirkjunni
kl. 14, en þar prédikar biskup Is-
lands, Herra Karl Sigurbjörnsson.
Kirkjan var byggð eftir að sam-
einaðar höfðu verið Reykja- og Am-
arbælissóknir en sóknarkirkjur
vom áður á báðum þeim stöðum.
Amarbæliskirkja var orðin hrörleg,
svo vart svaraði kostnaði úr að bæta
og Reykjakirkja skekktist illa á
grunninum í óveðri haustið 1908.
Varð því að ráði að sameina sókn-
imar og byggja nýja kirkju á Kot-
strönd, sem var í miðri sveit og í al-
faraleið - fjölfarinn áningar- og
samkomustaður.
Rögnvaldur Ólafsson, húsameist-
ari, gerði uppdrátt kirkjunnar og
ber hún mörg höfundareinkenni
hans, sem sjá má á fleiri guðshús-
um, sem hann teiknaði á fyrsta ára-
tug aldarinnar. Kirkjusmíðina ann-
aðist Samúel Jónsson frá Hunku-
bökkum á Síðu, faðir Guðjóns, síðar
húsameistara ríkisins. Komið hefur
í Ijós, þegar unnið hefur verið að
viðhaldi kirkj-
unnar á undan-
förnum ámm, að
hún er vandað
hús að efni og
allri gerð, og er
að töluverðu
leyti byggð af
nýtilegum viðum
gömlu kirkn-
anna á Reykjum
1065©
degisguðsþjónustumar standa yfir í
kirkjunni og kirkjugestir og sunnu-
dagskólabörn hittast í safnaðar-
heimilinu eftir þessar guðsþjónust-
ur. Einu sinni í mánuði fer fram
fjölskylduguðsþjónusta sunnudaga-
skólanna í kirkjunni. Þá sækja
einnig sunnudagskólabörn úr Hval-
eyrarskóla og fjölskyldur þeirra
kirkjuna. Fermingarböm setja
reglubundið upp helgileiki í árdeg-
isguðþjónustunum.
Taizemessur og tónlistarguðs-
þjónustur fara fram síðdegis og
hefjast kl. 17.1 þeim er lögð áhersla
á ljúfa tónlist og
bænaandrúmsloft.
I mánaðarlegum
kvöldmessum sem
hefjast kl. 20.30
er jafnan boðið
upp á létta sveiflu
og nýjungar í tón-
list og heigihaldi.
Sú er von okkar
KRISTIN TRU
í ÞÚSUND ÁR
ÁRIÐ 2000
og í Amarbæli.
Heita má að allt ytra byrði kirkj-
unnar hafi verið endumýjað og
bættir viðir, þar sem þurfti. Búnað-
ur og gripir kirkjunnar era einnig
margir úr gömlu kirkjunum og jafn-
vel nokkuð af innréttingum.
Kotstrandarkirkja er fagurt
guðshús í öllum hlutföllum sem ljá
henni ytra sem innra sérstæðan
þokka og hógværa helgitign.
Kirkjustæðið er áberandi vel valið.
Kirkjugarðurinn vel hirtur og fal-
lega hlaðinn hraungiýtisveggur
hans er til frekari prýði.
Kotstrandarkirkja á ýmsa vel-
unnara, sem hafa styrkt hana á
margan hátt í áranna rás og látið
hana njóta höfðingsskapar.
Kotstrandarkirkja er enn sem
fyrr mjög í alfaraleið og vekur aðdá-
un vegfarenda. Þeir unna sér þó
fæstir þess að leggja þá lykkju á
leið sína, sem er til hennar af þjóð-
vegi, og njóta þessa fagra helgistað-
ar. Hafa margir undrast þá leti sína,
eða óþol í dagsins önn og látið í ljós
löngun til bæta þar úr.
Afmælisguðsþjónustan verður,
sem áður sagði kl. 14, sunnudaginn
14. nóvember og kirkjukaffi í veit-
ingahúsinu Básnum í Ölfusi eftir
messu. í sóknarnefnd era: Guð-
mundur Baldursson, Kirkjuferju,
Eyrún Rannveig Þorláksdóttir,
Krossi og Þorlákur Gunnarsson,
Bakkaárholti. Núverandi sóknar-
prestur er séra Jón Ragnarsson, í
Hveragerði.
Sóknarnefnd.
Morgun- og
síðdegismessur
í Hafnar-
fjarðarkirkju
ÁKVEÐIÐ hefur verið að bjóða aft-
ur upp á guðsþjónustur bæði fyrir
hádegi og síðdegis í Hafnarfjarðar-
kirkju. Hefjast þær kl. 11 og kl. 17,
líkt og tíðkaðist í fyrravetur, en
kvöldmessur fara fram í stað síð-
degisguðþjónustna einu sinni í mán-
uði.
Sunnudagskóli fer fram í Hásöl-
um Strandbergs á sama tíma og ár-
að þetta skipulag sem gefur kost á
því sækja kirkju árdegis og síðdegis
henti vel og laði fólk að kirkjunni.
Prestar Hafnarfjarðarkirkja.
Myndband frá
tónleikum
Ron Kenoly
LOFGJÖRÐARVAKA verður á
föstudagskvöldið 12. nóvember kl.
20. Stendur kristniboðssambandið
fyrir sérstakri „lofgjörðarvöku"
eins og endranær á föstudagskvöld-
um. Á dagskrá eru tónleikar með
lofgjörðarleiðtoganum Ron Kenoly
undh- yfirskriftinni „Sing Out“. Ron
er mjög þekktur víða um heim sem
lofgjörðarleiðtogi og söngvari.
Myndband frá þessum tónleikum
verður sýnt á stóram skjá í aðalsal
húss KFUM og K við Holtaveg.
Margir frægir tónlistarmenn koma
fram og risastór kór syngur, auk
dansara og hljómsveitar. Þetta er
einstök tilbeiðslu- og tónlistampp-
lifun. Allir em hjartanlega vel-
komnir.
Kristniboðssambandið.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir alla
aldurshópa kl. 11-13. Létt hreyfing,
slökun og kristin íhugun. Kyrrðar-
og bænastund í kirkjunni kl. 12.
Orgelleikur, sálmasöngur. Fyrir-
bænaefnum má koma til sóknar-
presta og djákna. Kærleiksmáltíð,
súpa, salat og brauð eftir helgi-
stundina.
Laugarneskirkja. Morgunbænir k.
6.45. Mömmumorgunn kl. 10-12.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif-
un fyrir böm. Kl. 20. Minning lát-
inna. Arviss bæna- og minningar-
stund í kirkjuskipi þar semsóknar-
prestur les upp nöfn þeirra sem
hann hefur jarðsungið á liðnu ári.
Fúslega er tekið við fleiri nöfnum
frá syrgjendum á skrifstofunni í
síma 588 9422. Að stundinni lokinni
er boðið upp á heitan sopa og
fræðsluerindi um sorg og sorgarvið-
brögð í safnaðarheimilinu.
HafnarQarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.