Morgunblaðið - 27.11.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
271. TBL. 87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Karlremba í breska
*
Ihaldsflokknum
, %nja-
kvotakern
eina
lausnin?
The Daily Telegraph.
I NÝRRI skýrslu sem unnin var af
stefnumótunarstofnun á hægri
vængnum kemur fram að mikil karl-
remba sé ríkjandi innan breska
íhaldsflokksins. Stofnunin gagnrýnir
ástandið harðlega og telur að það fæli
konur frá því að sækjast þar til
áhrifa. I skýrslunni segir að kynja-
kvótakerfi sé hugsanlega eina lausn-
in.
Skýrsla stofnunarinnar Centre for
Policy Studies er rituð af þremur
meðlimum Ihaldsflokksins og var
gerð opinber í gær. Þar er William
Hague, leiðtogi íhaldsmanna, hvattur
til að beita sér fyrir því að konur muni
keppa um að minnsta kosti 30% þing-
sæta í næstu þingkosningum, og 40%
sæta í þamæstu kosningum. Fram
kemur að ef þessar aðgerðir skili ekki
árangri, muni flokkurinn ef til vill
neyðast til að taka upp kynjakvóta-
kerfi.
í skýrslunni er Hague gagnrýndur
íyrir að leiða bága stöðu kvenna hjá
sér er hann stóð fyrir endurbótum á
skipulagi flokksins, og varaður við því
að ef ekkert verði að gert, muni varla
líða á löngu þar til flokkurinn verði
kærður fyrir brot á jafnréttislöggjöf-
inni. Einnig er bent á að íhaldsflokk-
urinn hafi ætíð sýnt jafnréttismálum
algert sinnuleysi, og þurfi að leggja
mun meiri áherslu á þann málaflokk
til að geta höfðað til kvenna. I síðustu
kosningum gengu margar konur,
sem áður höfðu kosið Ihaldsflokkinn,
til liðs við Verkamannaflokk Tonys
Blairs, og fullyrða skýrsluhöfundar
að engin von sé til þess að vinna fylgi
þeirra á ný, verði konur ekki meira
áberandi í forystusveit flokksins.
Konur einungis 8% af þing-
mönnum Dialdsflokksins
Stefnumótunarstofnunin telur að
leiðtogar Ihaldsflokksins séu gamal-
dags í hugsunarhætti og virðist enn
byggja stefnu sína á úreltum kyn-
hlutverkum. Þá setji þeir skoðanir
sínar oft fram með óheppilegum
hætti, sem sé til þess fallinn að móðga
konur. „Þörf er á skjótum og róttæk-
um breytingum - bæði til að auka
fylgið og gæta sanngirni," segir í
skýrslunni.
Aðeins 8% af þingmönnum Ihalds-
flokksins eru konur en fjórðungur
þingmanna Verkamannaflokksins.
Þá eru konur einungis 21% þeirra
sem hafa verið í kjöri fyrir flokkinn
síðan 1997.
Vitað að tíu forust er ferja með 88 manns innanborðs strandaði við Noreg
Kinnungur skipsins
rifnaði frá við strandið
Blóðug átök milli
ættbálka í Nígeríu
NORSKA ferjan Sleipnir, sem var á
leið frá Stafangri til Björgvinjar,
strandaði og sökk í óveðri við mynni
Bömla-fjarðar, skammt frá Hauga-
sundi, í gærkvöldi. Um borð voru 80
farþegar og átta manna áhöfn. Vitað
var að tekist hafði að bjarga M 66
skipbrotsmanna, 10 voru látnir og ell-
efu var enn saknað um miðnætti að
íslenskum tíma.
Sea King björgunarþyrla var þeg-
ar send til leitar auk þess sem syst-
urskip ferjunnar, Draupner, og þrjú
önnur skip héldu á slysstaðinn, að
sögn Bergensavisen. Sjónvarps-
stöðvar sögðu einnig að fjöldi minni
skipa og báta væri til aðstoðar og
beitt væri Ijóskösturum til að reyna
að koma auga á fólk í sjónum.
Mörgum skipbrotsmönnum var
bjargað fljótlega en fyrir aðra kom
hjálpin of seint enda höfðu þeir orðið
að berjast um í ísköldum sjónum áður
en björgunarmenn komu á staðinn.
Sumir komust í gúmbáta en margir
fleygðu sér í sjóinn. Farið var með
fólkið í Mpnstervág þar sem það fékk
Ferjan Sleipnir, sem sökk undan Noregs-
ströndum í gærkvöldi, var tvíbytna, sem tek-
in var í notkun í ágúst.
aðhlynningu hjá íbúum á
staðnum. Verdens gang
hafði eftir Egii Mohr,
lækni við fylkissjúkra-
húsið i Haugasundi, að 42
skipbrotsmönnum hefði
verið bjargað úr sjónum.
„Yfirvöldum barst til-
kynning um strandið átta
mínútur yfir sjö [að
norskum tíma],“ sagði
Sander Bull-Gjerdtsen,
talsmaður aðalstöðva
slysavamafélagsins í
Sola, í viðtali við frétta-
stofuna NTB. Þungur sjór var á
slysstaðnum, sem er við Ryvarden-
vita. Miklar skemmdir munu hafa
orðið á ferjunni, hún er sögð hafa
losnað af skerinu en hluti af kinnungi
annars skrokksins rifnaði frá. Rúm-
lega hálftíma síðar var hún sokkin.
Sjónvarpsstöðin TV2 náði sam-
bandi við einn farþeganna er var með
farsíma.
„Skipstjórinn kallaði í hátalara að
skipið hefði strandað. Nú er hér ring-
ulreið en fólk reynir að aðstoða hvað
annað,“ sagði farþeginn.
Ferjan var tvíbytna, smíðuð í
Ástrah'u og gat tekið allt að 358 far-
þega. Hún var hraðskreið, gat náð
allt að 36 hnúta eða um 70 kílómetra
hraða en ekki er vitað hver hraðinn
var þegar feijan tók niðri.
Sleipnir var tekinn í notkun í ágúst
síðastliðnum og sigldi milli Björgvin-
jar og Stafangurs. Haft var eftir Ar-
ne Dvergsdal, forstjóra útgerðarinn-
250 ættbálkar í landinu
ar, að fullkominn björgunarbúnaður
hefði verið um borð. Hann vildi í
gærkvöldi ekki tjá sig um hugsanleg-
ar orsakir slyssins.
Að sögn Aftenposten var ekki
hægt að sigla Sleipni innanskerja á
þeim hluta leiðarinnar sem hann var
á þegar slysið varð.
Sleipnir strandaði
á skerjum í mynni
Bömlafjarðar
kl. 18:08 í gær
og var sokkinn
eftir rúman
hálftíma
Haugasund
Stafangur
Lagos. AFP, Reuters.
BRUNNIN lík og bílar blöstu víða við augum í bænum Kedu í Nígeríu í
gær eftir blóðug átök milli manna af tveimur ættbálkum, Yoruba og
Hausa. Var tekist á um yfirráð yfir matvælamarkaðnum í bænum, sem er
í raun eitt af úthverfum hafnarborgarinnar Lagos.
Talið er að 27 menn að minnsta
kosti hafi fallið í átökunum þar sem
beitt var skotvopnum og sveðjum.
Kveikt var í mörgum verslunum á
markaðnum og nokkrir menn voru
drepnir með því, að bíldekkjum var
troðið yfir þá og eldur borinn að.
Héldu átökin áfram í gær og féllu
þá a.m.k. tveir menn.
Hausa og Yoruba eru tveir
stærstu ættbálkarnir í landinu og
hefur sá síðarnefndi, sem er íslam-
strúar og býr einkum í norðurhluta
landsins, ráðið mestu í Nígeríu frá
sjálfstæðistökunni 1960 og þar til
borgaraleg ríkisstjórn Olusegun
Obasanjos forseta tók við af her-
stjórninni í maí sl. Obasanjo er
Yorubi.
Reuter
Björgunarmenn huga að manni, sem bjargaðist þegar norska feijan Sleipnir sökk með 88 manns um borð f
miklu óveðri í gær, myndin var tekin af sjónvarpsskjá. Feijan tók niðri á skerjum skammt frá Haugasundi.
Margt hefur færst til betri vegar
í Nígeríu síðan lýðræðisstjórnin
tók við en aukið frelsi hefur hins
vegar kynt undir átökum milli ætt-
bálkanna í landinu, sem eru alls
250. Saka Hausamenn Obasanjo
um að hygla sínu fólki þótt hann
hafi raunar fengið miklu minna
fylgi meðal þess en Hausamanna
sjálfra í kosningunum í febrúar sl.
Meðal Ijaw-fólksins er einnig
mikil ólga en það býr við árósa
Nígerfljóts. Eru þar miklar olíu-
lindir og vilja Ijawar fá meira í
sinn hlut af olíuarðinum. Um síð-
ustu helgi hóf stjórnarherinn mikla
sókn í héraðinu til að hafa uppi á
Ijawaungmennum, sem sökuð eru
um að hafa drepið 12 lögreglu-
menn.
EgyptAir-þotunni grand-
að með flugskeyti?
Kaíró. AP, Reuters.
YFIRFLUGSTJÓRI flugfélags-
ins EgyptAir, Tarek Selim, telur
að aðeins tvennt geti hafa valdið
því að breiðþota flugfélagsins
EgyptAir hrapaði í október.
Annars vegar að einhver hafi
komið fyrir sprengju í stéli vélar-
innar eða hún hafi verið skotin
niður með flugskeyti. Kom þetta
fram í viðtali við Selim í blaðinu
Al-Ahram.
Egyptar vísa enn á bug þeirri
skýringu að aðstoðarflugmaður
vélarinnar hafi vísvitandi steypt
henni í hafið og tekið 216 manns
með sér í dauðann.