Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 4
4 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fundur framkvæmdastjóra NATO með forsætisráðherra og utanríkisráðherra
Þátttaka Islands í varnar-
samstarfi ESB verði tryggð
Mbl/Sverrir
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, George Robertson, framkvæmdastjóri NATO, og Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, á fundi með fréttamönnum í gær.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir að fagna beri sameiginlegri
yfirlýsingu Blairs, forsætisráð-
herra Bretlands, og Chiracs, for-
seta Frakklands, frá því á fimmtu-
dag þar sem lýst er vilja til að
aðildan-íki NATO utan Evrópu-
sambandsins fái að taka þátt í fyrir-
huguðu vamarsamstarfi ESB-
ríkja. Forsætisráðherra lét svo um-
mælt eftir fund sinn og Halldórs
Asgrímssonar utanríkisráðherra
með George Robertson lávarði,
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins, í gærmorgun. Stuttri
heimsókn Robertsons hingað til
lands lauk í gær.
A fundinum var einkum rætt um
horfurnar í öryggismálum Evrópu
og þær breytingar sem eru að verða
á varnarsamstarfi Vestur-Evrópur-
íkja. Robertson sagði við frétta-
menn eftir fundinn að hann teldi að
nánara samstarf Evrópuríkja í
varnarmálum yrði til að styrkja
NATO sem heild. Hann sagði að
viðræðurnar við íslensku ráðherr-
ana hefðu verið ánægjulegar og
lagði áherslu á að Island hefði
vegna landfræðilegrar legu sinnar
mikla þýðingu fyrir vamarsam-
starfið við Norður-Atlantshaf.
Robertson sagðist skilja áhuga ís-
lendinga á að vita hver yrði staða
íslands eftir að Evrópusambandið
hefði fengið aukið hlutverk í öiygg-
is- og varnarmálum. „Það er eðli-
legt að ríki sem ekki eiga aðOd að
ESB, eins og t.d. Island, hafi áhuga
á því að vita hvaða áhrif breytingar
sem þessar muni hafa á stöðu
þeirra,“ sagði Robertson en
lagði um leið áherslu á að það
væri á valdi Evrópusambandsins að
finna lausn á málinu. Hann sagði að
NATO vildi stuðla að því að leið yrði
fundin tö að þjóðir sem lengi hafa
átt samstarf í vamarmálum við ríki
innan Evrópusambandsins geti tek-
ið þátt í fýrirhuguðu vamarsam-
starfi þess.
Robertson vakti athygli á sam-
eiginlegri yfirlýsingu Tony Blairs,
forsætisráðherra Bretlands, og
Jacques Chiracs, forseta Frakk-
lands, sem gefin var út vegna ný;
afstaðins fundar þeirra í London. I
yfirlýsingunni er hvatt til þess að
leiðtogafundur Evrópusamban-
dsins, sem haldinn verður í Helsinki
10.-11. desember næstkomandi,
taki ákvörðun um að skapað verði
nýtt stofnanakerfi tö að annast
framkvæmd sameiginlegrar varn-
arstefnu.
Einnig að komið verði á sameig-
inlegum evrópskum hersveitum
sem geti verið reiðubúnar til átaka
eða í annars konar aðgerðir á innan
við 60 dögum frá því að skipun um
það berst. Mælt er með því að her-
liðið lúti sjálfstæðri stjóm, óháð
yfirherstjómum aðödarríkja, og
hafi yfir að ráða eigin vígtólum og
tækjabúnaði tö flutninga. I yfirlýs-
ingunni er mikil áhersla lögð á að
NATO verði eftö- sem áður undir-
staða sameiginlegra varna ríkja við
Norður-Atlantshaf og segjast þjóð-
arleiðtogarnir vænta þess að tengsl
NATO og Evrópusambandsins
muni verða náin og byggjast á
gagnkvæmu trausti.
Getur tekið tíma
að finna lausn
Davíð Oddsson sagðist fagna yf-
irlýsingunni þar sem í henni sé að
finna tölögur um að tekið verði tölit
til þeirra NATO-ríkja sem ekki eiga
aðöd að ESB við mótun sameigin-
legrar vamarstefnu. Islensk stjóm-
völd hafa, ásamt stjórnvöldum ann-
arra Evrópuríkja sem standa utan
ESB en eiga aðild að NATO, lýst
áhyggjum af því að þróunin í átt tö
sameiginlegrar varnarvitundar
ESB geti veikt stöðu þeirra.
„Ég held að sköaboðin sem er að
finna í yfirlýsingunni séu þess eðlis
að þau sýni að þau sjónarmið sem
við höfum uppi haft séu að ná fram,“
sagði Davíð og bætti við að afar
þýðingarmikið væri til þess að vita
að Frakkar styddu tölögur sem
þessar.
Haödór Asgrímsson utanríkis-
ráðherra sagðist telja að nokkum
tíma gæti tekið að móta nýja stofn-
anauppbyggingu sem leyst gæti
samstarfið innan Vestur-Evrópu-
sambandsins af hólmi. Hann sagði
að framhaldið réðist af því hver nið-
urstaða leiðtogafundar ESB í Hels-
inki yrði og einnig væri ráðherra-
fundur NATO-ríkja sem fram fer
um svipað leyti mikilvægur í þessu
tilliti.
Á þriðja
tug
árekstra
ÓVENJUMARGIR árekstrar
urðu í höfuðborginni í gær.
Lögreglan hafði sinnt hjálpar-
beiðnum vegna 23 árekstra á
fimm klukkustundum frá
klukkan 11 til 16. Ekki urðu
slys á fólki nema í einum ár-
ekstri um miðjan dag við Skip-
holt en þar reyndust meiðsli
minniháttar.
í nokkrum tilvika þurfti að
flytja bifreiðar á brott með
kranabifreið. Telur lögregla
að umferðarþungi og hálka
hafi átt sinn þátt í árekstra-
tíðni gærdagsins.
Ræninginn
fundinn
MAÐUR sem lögreglan leit-
aði vegna ráns í sölutuminum
í Lóuhólum 2-6 í fyrrakvöld
var handtekinn síðdegis í gær.
Hann huldi andlit sitt með
trefli, ógnaði afgreiðslustúlku
með hnífi og rændi að því er
talið er 40 þúsund krónum úr
sjóðvél. Hann hafði eytt ráns-
fengnum að mestu. Maðurinn
er 18 ára gamall og hlaut skö-
orðsbundinn dóm fyrr á árinu
fyrir rán.
Sluppu án
meiðsla eftir
bílveltu
ÖKUMAÐUR og farþegi
jeppabifreiðar sluppu án telj-
andi meiðsla úr bflveltu við
bæinn Hvamm í Vestur-Eyja-
fjaöahreppi í RangárvaOa-
sýslu um hádegisbil í gær.
Hvasst var undir EyjafjöOun-
um í gær og hálka á vegum.
Að sögn Hvolsvallarlögregl-
unnar fór bifreiðin eina veltu
en ökumaður og farþegi voru
báðir í böbeltum. Kranabifr-
eið var kööuð á vettvang til að
fjarlægja bifreiðina.
Deilum vegna
starfa á Sultar-
tanga lokið
Gæsluvarð-
hald lengt
yfír Briggs
og tveimur
stúlkum
ÍSLENSK stúlka, 22 ára gömul,
sem búsett er í Danmörku, var
úrskurðuð í áframhaldandi gæslu-
varðhald til 17. desember af dóm-
ara í Sönderborg í gær vegna rann-
sóknar lögreglunnar á e-töflu-
málinu sem kom upp þegar Kio
Briggs var handtekinn með tæpar
800 e-töflur í fórum sínum í Sönder-
borg. Rannsóknarlögreglan í Sönd-
erborg segir það hugsanlegt að
dómur gangi í hennar þætti- í mál-
inu þann dag.
Lögreglan leiddi einnig, með Kio
Briggs, rúmlega tvítuga danska
stúlku fyrir dómara og krafðist
hálfsmánaðar gæsluvarðhalds-
framlengingar yfir þeim, eða til 10.
desember. Samþykkti dómari þá
kröfu, en að sögn lögreglunnar er
líklegt að krafist verði framleng-
ingar að nýju að þeim tíma liðnum.
Briggs og íslenska stúlkan voru
handtekin 7. nóvember og danska
stúlkan tveimur dögum síðar.
DEILUNNI um málmiðnaðarstörf í
Sultargangavirkjun lauk í gær er
þýska verktakafyrirtækið Sulzer
Hydro ákvað að ráða fjóra íslenska
málmiðnaðarmenn til viðbótar þeim
tveimur sem íyrir voru tö að setja
niður vélasamstæðu í virkjuninni.
Öm Friðriksson, formaður Félags
járniðnaðarmanna, segist vona að
ekki þurfi að koma tö frekari að-
gerða á Sultartanga.
Öm sagði að mennirnir íjórir
myndu heQa störf á Sultartanga
strax á mánudag. Frá því hefði verið
gengið að þeir yrðu við störf í vö-kj-
uninni til verkloka eða til næstu ára-
móta. „Með þessari niðurstöðu sýn-
ist mér að málmiðnaðarmenn séu
komnir í.flestöö þau störf sem þeim
tilheyra í virkjuninni," sagði Öm.
Hann sagðist vona að samkomulagið
héldi og félag hans myndi hafa auga
meðþví.
„Astæðan fyiir því að deöan leyst-
ist á þessum tímapunkti er í fyrsta
lagi sú að ljóst var að okkar aðgerðir
trafluðu alla verkframkvæmd á
staðnum. í öðra lagi hygg ég að það
hafi líka legið í loftinu að Vinnumál-
astofnun myndi fara að vísa ein-
hverjum úr landi. Hún var búin að
gefa út ítrekaðar aðvaranir um það.
Þetta tvennt ásamt því að komið var
til átaka hygg ég að hafi flýtt fyrir
því að verktakinn var töbúinn tö að
ganga frá málum,“ sagði Öm.
Til smávægilegra ryskinga kom í
gærmorgun á möli félaga í Járnið-
naðarsambandinu og erlendra
starfsmanna Skoda, undirverktaka
Sulzer Hydro, í Sultartangavirkjun.
Öm Friðriksson sagði að í framhaldi
af þeim hefði fulltrúi Landsvirkjun-
ar óskað eftir því að koma að málinu
og deöunni lauk svo með framan-
greindu samkomulagi.
Menn á vegum Félags járniðnað-
armanna héldu að Sultartangavirkj-
un í gærmorgun og töfðu vinnu er-
lendra starfsmannanna sem þeir
töldu ganga í störf sem þeir hefðu
ekki atvinnuleyfi tö.
Morgunblaðið/Júlíus
Deilunum um störf tékkneskra málmiðnaðarmanna við Sultartanga
lauk í gær með samkomulagi við þýska verktakafyrirtækið um að
ráða fleiri íslendinga í málmiðnaðarstörf
i