Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 8

Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 8
8 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Stoke City F.C., á eftír að griíma við'breska Ijónið..’ Haltu þér bara á mottunni góði, ég get líka öskrað! Skeljungur vinnur mál gegn Flutningsjöfnunarsjóði olíuvara Akureyri viðurkennd sem olíuinnflutningshöfn SKELJUNGUR fær Akureyri við- urkennda sem olíuinnflutningshöfn með dómi. Héraðsdómur Reykja- víkur úrskurðaði í fyrradag að við- urkenna bæri olíuhöfnina Krossan- es við Akureyri sem innflutningsbirgðastöð á gasolíu um leið og fyrsti beini innflutning- urinn væri kominn í tanka stöðvar- innar. Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, segir dóminn geta orðið fyrsta skrefíð í því að fá það viður- kennt að eðlilegra sé að fyrirtækin sjálf finni sér bestu leiðir til þess að dreifa olíuvörum með hagkvæmum hætti en sæti ekki ríkisforsjá í þeim málum. Héraðsdómur felldi úr gildi ákvörðun stjórnar Flutningsjöfn- unarsjóðs olíuvara sem afturkallað hafði eigin samþykkt um að viður- kenna bæri Krossanes sem inn- flutningsbirðgastöð. Vegna beiðni Skeljungs var höfnin viðurkennd af sjóðnum 9. nóvember í íyrra og fé- lagið hóf þangað innflutning í byrj- un desember. Stjórn sjóðsins aftur- kallaði viðurkenningu sína 8. febrúar sl. á þeiiri forsendu að ekki hefði verið um innflutning á heilum farmi að ræða heldur landað slatta úr farmi. Olíufélagið Skeljungur stefndi Flutningsjöfnunarsjóði vegna aft- urköllunarinnar og vann málið, en auk þess að fella ákvörðun stjóra- arinnar úr gildi var Flutningsjöfn- unarsjóði gert að greiða 350.000 krónur í málskostnað. „Þegar við fórum fram á það að Akureyri yrði gerð að innflutnings- höfn var það fyrst og fremst til að freista þess að ná betri nýtingu á flutningi á olíuvörum kringum landið. Olli það okkur miklum von- brigðum þegar Flutningsjöfnunar- sjóður afturkallaði viðurkenningu sína á Krossanesi sem innflutnings- birgðastöð og við töldum raunar að á okkur hefði verið troðið. Á þeirri forsendu hófum við dómsmál," sagði Kristinn Björnsson. Fyrirtækin fínni sjálf bestu leiðina „í niðurstöðu héraðsdóms felst að fyrirtækin og fólkið sem í þeim vinnur verði sjálft að finna bestu leiðina til að ná fram hagræðingu en það sé ekki ákveðið með lagaboði eða reglugerðum af hálfu ríkisins og því síðan framfylgt af forstjóra samkeppnisstofnunar. Við hljótum að vera bestu dómararnir í því hvernig hagkvæmast er fyrir okkur og viðskiptavini okkar að flytja vör- umar inn en eigum ekki að þurfa að lesa um það í einhverjum laga- bókstaf eða reglugerðum hvað við eigum að gera og hvemig við eigum að haga okkur,“ sagði Kristinn. Stretchbuxur St. 38—50 - Frábært úrval verslunarmiöst. Eiðstorgi, sími 552 3970. Brunavarnaátak slökkviliðsmanna Eldvarnavika að hefjast! Guðmundur Vignir Óskarsson Brunavarnaátaki verður hrandið af stað mánudaginn 29. nóvember nk. Á sunnudag verður dreift með Morgunblaðinu sér- stökum fræðslubæklingi með forvarnaáherslum og niðurstöðum könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Islands um eld- varnir og viðhorf almenn- ings þar að lútandi. Und- irbúning fyrir þetta átak hafa annast slökkviliðs- mennirnir Einar M. Ein- arsson, Gunnlaugur Jóns- son og Alfons Sigurðsson. Heildarstjórn annaðist Guðmundur Vignir Osk- arsson, framkvæmda- stjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkra- flutningamanna (LSS). „Markmið þessa branavarna- átaks er tvíþætt, í fyrsta lagi hefur það forvamagildi gagn- vart almenningi og í öðra lagi á það að skapa aukinn skilning al- mennings á eðli starfa slökkvi- liðsmanna." - Hvað viltu segja um for- varnagildið? „Á þessum árstíma er notkun opins elds, rafmagnstækja og annars búnaðar í hámarki; af þeim sökum hafa hlotist bæði eldsvoðar og alvarleg slys. Branavamaátakið miðar að því að hvetja til varkámi í umgengni við eld og að hugað sé að þeim búnaði sem mögulegt er að geti valdið íkveikju. Jafnhliða þarf að hafa eldvamabúnað heimilisins í lagi. Þess má geta að allt árið um kring er rekin sérstök for- varna- og fræðsludeild LSS, þar sem leiðbeinendur era þraut- þjálfaðir slökkviliðs- og sjúkra- flutningamenn.“ - Finnst ykkur slökkvilið- smönnum að almenningur hafi ekki nægilegan skilning á eðli ykkarstarfa? „Störf slökkviliðsmanna eru unnin oft undir erfiðum kring- umstæðum, hvort heldur sem er úti á vettvangi eða inni á heimil- um þar sem slys eða aðrar ófarir hafa átt sér stað. Þessu þarf fólk að átta sig á. Rétt er að geta þess að slökkviliðsmenn sinna jafnframt 80% sjúkra- og neyð- arflutninga í landinu, þetta veit fólk ekki nægilega mikið um að okkar mati en brunavarna- átakinu er ætlað að bæta úr því.“ -Finnst ykkur að fólk al- mennt gerir sér ekki grein fyrir hinu erfiða starfsumhverfí ykk- ar? „Jú, að mörgu leyti gerir það það og við verðum varir við já- kvætt viðhorf til starfa okkar, en eigi að síður mætti fræða fólk meira um eðli þessara starfa." - Hvað gerið þið meira en senda út bæklinginn? „Meginstarfið fer fram í eld- varnavikunni - 29. nóvember til 3. desember. Þá fara slökkviliðsmenn í um hundrað og fimmtíu grunnskóla með sér- stakt verkefni sem gefið er út af samtök- um okkar. Þetta verkefni er ætl- að einkum átta ára börnum sem eru um 5.000 talsins þetta árið. Þessi þáttur starfsins er sam- starfsverkefni með slökkviliðun- um og grunnskólum landsins. Ætlast er til að börnin fái hjálp heima hjá sér við úrlausn verk- efnisins. Loks eiga börnin að svara eldvarnagetraun sem skila skal inn til Landsambands ► Guðmundur Vignir Óskars- son fæddist í Reykjavík 26. nóv- ember 1951. Hann lauk svein- sprófi í pípulögnum frá Iðnskólanum í Reykjavík 1972 og meistararéttindum í iðn- greininni 1975, lauk fram- haldsnámi í neyðarflutningum frá Borgarspítala 1982 og bréfaskóla Norges Brandskole 1988. Hann hóf störf hjá Slökkviliði Reykjavíkur 1976 og starfaði þar sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður fram til 1992. Hann varð formaður heildarsamtaka slökkviliðs- manna árið 1990 og er nú for- maður og framkvæmdastjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í fullu starfi. Guðmundur er kvæntur Örnu Hólmfríði Jónsdóttur, að- júnkt við Kennaraháskóla ís- Iands, og eiga þau fjögur böm samtals. slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna - pósthólf 4023, 124 Reykjavík. Dregið verður úr réttum lausnum eftir áramót og verðlaun veitt í slökkvistöðum á yfir tuttugu stöðum vítt og breitt um landið." - Hvað kom út úr könnun Fé- lagsvísindastofnunar HÍ? „Hún var viðamikil en það sem þegar hefur komið út úr þessum athugunum er að ein- ungis 12% heimila hafa gert neyðaráætlun um útgöngu ef eldsvoða ber að höndum. Níutíu prósent heimila hafa ekki fjár- fest í eldvömum vegna aukinna rafmagnstækjaeignar. Um 85% landsmanna hafa reykskynjara á heimilinu. Slökkvitæki era á heimilum 81% sjómanna og bænda á meðan einungis 37% sérfræðinga og kennara hafa slík tæki á heimilum sínum. Um 94% heimila þar sem eru 3 böm eða fleiri hafa uppsetta reyk- skynjara á móti 80% barnlausra heimila. Við teljum okkur merkja beinan árangur varðandi þessar tölur af forvamastarfi okkar slökkvilið- smanna sem beinst hefur sérstaklega að grunnskólabörnum. Þessa má sjá stað víð- ar í könnuninni. Þess má geta að samkvæmt könnun- inni ætla 45% þeirra sem yngri eru en þrítugir að nota meira af skoteldum en venjulega um ára- mótin. Fram kom að um 70% landsmanna þekkja forvarnast- arf slökkviliðsmanna. Loks má geta þess að samkvæmt könnun- inni fyrrnefndu má gera ráð fyr- ir að 25% eldsvoða verði vegna kerta og skreytinga" Mikið af skoteldum um áramót

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.