Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 14

Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 14
14 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ 1 FRÉTTIR Askrif- endaferð til Lundúna MORGUNBLAÐIÐ stendur í fimmta skipti fyrir áskrifenda- ferð nú í desember. Að þessu sinni í samstarfi við Sam- vinnuferðir-Landsýn þar sem farið verður í fótboltaferð til London. Skapti Hallgrímsson, blaða- maður á Morgunblaðinu, verður fararstjóri í ferðinni. Hann var lengi fréttastjóri íþrótta á blað- inu og hefur yfirgripsmikla þekkingu á ensku knattspyrn- unni. Flogið verður til London að morgni fimmtudags 16. des- ember og heim aftur að kvöldi sunnudags 19. desember. Gist verður í þijár nætur á Thistle Kensington, sem er fjögurra stjarna hótel, og er verðið 49.900 krónur á mann í tvíbýli ef annar hvor leikjanna Arsenal- Wimbledon eða Chelsea-Leeds er innifalinn. Verð án fótbolta- leiks 43.900. SætaQöldi er tak- markaður. Hægt verður að fá miða á tvo leiki á laugardeginum, annars vegar viðureign Arsenal og Wimbledon og hins vegar West Ham og Manchester United. Á sunnudeginum standa fólki til boða miðar á leik Chelsea og Leeds. Áskrifendur sem vilja nýta sér þetta tilboð geta haft samband við söluskrifstofu Samvinnu- Morgunblaðið/Kristj án Hermann Hreiðarsson (t.h.) verður í eldlínunni með Wimbledon gegn Arsenal í leik sem þátttakendum í áskrifendaferð Morgun- blaðsins stendur til boða. ferða-Landsýnar, Austurstræti 12, í dag kl. 10-14, í síma 569 1010, eða eftir helgi kl. 9-19. Skapti Hallgrímsson verður á skrifstofu Samvinnuferða- Landsýnar mánudaginn 30. nóvember kl. 10-12 og svarar fyrirspurnum. Forstöðumenn ríkisstofnana fjalla um breytingar á rikisrekstri Nauðsynlegt að stækka stofnanir NAUÐSYNLEGT er að fækka ríkisstofnunum og stækka þær svo þær verði hæfari til að sinna sínum störfum. Þetta var meðal niður- staðna ráðstefnu sem Félag for- stöðumanna ríkisstofnana hélt á fimmtudag undir yfirskriftinni „Breytt hlutverk forstöðumanna ríkisstofnana". Magnús Jónsson, veðurstofustjóri og formaður Fé- lags forstöðumanna ríkisstofnana, segir að ein af niðurstöðum ráð- stefnunnar hafi verið að miklar breytingar, jafnvel bylting, hafi átt sér stað í ríkisstofnunum á síðustu fimm árum. Breytingarnar stafi af breyttum pólitískum áherslum og stefnumótun í ríkisrekstri al- mennt. Þá hafi alþjóðavæðing og aukin samkeppni um starfsfólk haft mikil áhrif á ríkisstofnanir og muni verða meiri í framtíðinni. Til þess að þær verði í stakk búnar fyrir slíka samkeppni þurfi að styrkja ríkisstofnanir sem margar hverjar séu fámennar og litlar. Skerpa þarf vinnuferlið „Alþjóðavæðing, markaðshyggja og samkeppnismál, allt var þetta til umræðu á ráðstefnunni. Þá var rætt um samskipti ríkisstofnana við ráðuneyti, Aiþingi og við stjórnvöld almennt. Menn voru á því að skerpa þyrfti vinnuferlið og reglur í sambandi við hvernig þessi samskipti ættu að fara fram. Einnig var ofarlega í hugum margra að flestir forstöðumenn væru ráðnir sem fagmenn og ég get tekið sjálfan mig sem dæmi, ég er menntaður veðurfræðingur. I því námi var ekki einn einasti kúrs sem fjallaði um stjórnun og þetta er gegnumgangandi staða í flest- um stofnunum, þ.e.a.s. menn hafa ekki farið í gegnum skólun í stjóm- un, eins og tíðkast á hinum al- menna markaði. Ein af niður- stöðum ráðstefnunnar var að þarna þarf að taka verulega til hendinni. Forstöðumenn sjálfir, félagið og stjórnvöld verða að bæta úr þessu með því að gefa mönnum kost á aukinni menntun á sviði stjórnun- ar,“ segir Magnús. Að hans sögn var ráðstefnan mjög vel sótt, á henni voru um 140 manns. „Miðað við að eingöngu vora send út 350 boð þá teljum við þetta vera mjög góða svörun," seg- ir Magnús. Betri hönnun umferðarmannvirkja með arðsemisútreikningum og notkun hermilfkana I í Fleiri umferðarslys verða á þenslutímum s A ráðstefnu um íslensk umferðarmannvirki og umferðarkerfíð kom fram að gert er ráð fyrir að verja þurfí 13 til 21 milljarði í fram- kvæmdir vegna umferðarmannvirkja á höf- uðborgarsvæðinu til ársins 2010. Morgunblaðið/Júlíus Rætt var um hönnun umferðarmannvirkja og umferðarkerfið, stöðu þess og framtíð á ráðstefnu í gær. „ÞAÐ er alþekkt að í þenslu- ástandi, eins og nú ríkir á Islandi, verða fleiri umferðarslys en í kreppuástandi, án þess að hægt sé að benda á neinn einn þátt sem veldur því. Þetta kann að skýra að hluta af hverju treglega hefur gengið undanfarin ár að ná nægjan- legri aukningu umferðaröryggis hér á landi,“ sagði Haraldur Sig- þórsson, verkfræðingur hjá Línu- hönnun hf., meðal annars í erindi sínu um umferðaröryggi í þéttbýli og dreifbýli á ráðstefnu um umferð- armannvirki og umferðarkerfið sem haldin var á fimmtudag. Haraldur sagði að hérlendis væri fækkun slysa og óhappa ekki eins ör og víða í öðrum löndum. Hann sagði banaslys í umferðinni hér hafa verið of mörg í fyrra og útlitið í ár væri ekki miklu betra. Haraldur kynnti þá framtíðarsýn sem sumar þjóðir hafa tekið upp að ekki sé hægt að sætta sig við umferðarslys, þ.e. óhöpp með meiðslum, og leita eigi allra leiða til að fækka þeim. Nefndi hann nokkur dæmi um að- gerðir við samgöngumannvirki vegna slíkra markmiða: Alltaf verði komið upp miðeyjum á tvístefnuvegum þar sem hraði er meiri en 50 km/klst.; vegrið séu alls staðar þar sem hæðarmunur lands og vegar sé meiri en 4 metrar; allar hindranir nálægt vegum séu fjar- lægðar og tengingum fækkað eftir megni; aukið hraðaeftirlit með myndavélum; engar miðeyjar séu opnar á fjögurra akreina götum nema með umferðarljósum; hækka þurfí sektir og herða innheimtu; auka upplýsingar og fræðslu fyrir unga ökumenn; öryggisbúnaður, svo sem barnasæti, hjálmar og loftpúðar, verði lækkaður í verði; gerðar verði umferðaröryggisáætl- anir fyrir landið, Vegagerðina og öll sveitarfélög og þeim fylgt eftir. Haraldur sagði ennfremur að margir þættir yllu umferðaróhöpp- um. „Ef aðeins er horft á aðalorsök, þá er maðurinn aðalorsakavaldur, en myndin breytist ef fleiri áhrifa- valdar eru athugaðir. Þannig er víða talið að umhverfið hafi áhrif í fjórðungi til þriðjungi tilfella. Hann minnti á að sveitarfélög með fleiri en þúsund íbúa ættu að leggja fram umferðaröryggisáætlun en víða væri pottur brotinn í þeim efnum. Þá sagði hann að Vegagerðin ætti að fara af stað með slíka áætlun, hún hefði þegar hafið kerfisbundn- ar lagfæringar slysastaða í tveimur umdæmum og taka ætti landið allt fyrir á þremur árum. 13 til 21 milljarður í framkvæmdir Samkvæmt langtímaáætlun í vegagerð til ársins 2010 er gert ráð fyrir að verja rúmum 13 milljörðum til vegaframkvæmda á höfuðborg- arsvæðinu en tillögur sveitarfélag- anna þar gera ráð fyrir að til þeirra skuli verja tæpum 21 milljarði. Öm Steinar Sigurðsson, verkfræðingur hjá VST, sagði að væru tillögur sveitarfélaganna raunhæfar myndi þjónusta vegakerfisins á höfuð- borgarsvæðinu verða minni vegna minni nýframkvæmda. Örn Steinar, sem fjallaði í erindi sínu um kostnað við umferðar- mannvirki og umferðina, sagði að með minni þjónustu væri meðal annars átt við minni afköst umferð- arkerfisins. Hann sagði sveitarfé- lögin gera ráð fyrir lagningu Sundabrautar á tímabilinu og sagði að við ákvörðun um gerð umferðar- mannvirkja væri byggt á niður- stöðum þarfagreiningar og arðsem- ismats. Við mat á arðsemi væri m.a. litið til styttingar vegalengdar, ökutíma og fækkunar óhappa og þau atriði vegin á móti stofn- og viðhaldskostnaði. Hann sagði að arðsemi Sundabrautar væri tví- mælalaust mikil og þar vægi tíma- sparaaður mest. Fram kom hjá Erni að sam- kvæmt langtímaáætluninni ætti að verja 115 milljörðum til vegamála árin 1999 til 2010. Á hverju fjögurra ára tímabili yrði 16 milljörðum var- ið til nýrra þjóðvega og væri fjórð- ungur upphæðarinnar til fram- kvæmda á höfuðborgarsvæðinu. Nefndi hann að þar þyrfti að breyta ýmsum eldri umferðarmannvirkj- um vegna síaukins umferðarþunga, byggja mislæg gatnamót á þjóð- vegum til að koma umferðinni í gegn og fleira. Sagði hann mislæg gatnamót kosta á bilinu 200 til 800 milljónir króna. Þá kom fram í máli Arnar að þeg- ar ný íbúðarhverfí væru byggð yrði að sjá fyrir tengingum þeirra við þjóðvegi. Sagði hann að væri gert ráð fyrir um 30 þúsund íbúa fjölgun á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2010 þyrfti að verja kringum 9 mill- jörðum til slíkra framkvæmda en þær væru kostaðar af sveitarfélög- unum og innheimtar með gatna- gerðargjöldum. Sigurður Ragnarsson, bygging- arverkfræðingur hjá Forverki ehf., fjallaði um mannvirki á hönnunar- stigi og mismunandi forsendur verkkaupa, staðla og samræmingu. Hann sagði mikla breytingu hafa orðið til batnaðar í hönnunarferli umferðarmannvirkja síðustu 10 ár- in. Ástæður væru margar, m.a. að gerðar væru ítarlegri umferðar- spár, hermilíkön notuð til að skoða hvemig umferðin hagaði sér eftir að mannvirki hefði verið byggt, beitt væri arðsemisútreikningum, umhverfismál fengju orðið meira vægi og göngu- og hjólreiðamenn skipuðu stærri sess en áður. Sigurður sagði brýnt að endur- skoða reglulega staðla vegna hönn- unar umferðarmannvirkja bæði hjá Vegagerðinni og sveitarfélögunum. „Slík endurskoðun myndi án efa stuðla að meiri samræmingu í hönnun umferðarkerfisins á Islandi og gera það að verkum að vegfar- endur gætu gengið út frá því að út- færslur og merkingar væru eins á Selfossi, Húsavík og jafnvel innan höfuðborgarsvæðisins.“ Sigurður sagði að staðlar og samræming væru þó ekki allt. Hann benti á að stærstur hluti þeirra sem hönnuðu umferðarmannvirki væru verk- eða tæknifræðingar. Þrír fjórðu verk- fræðinga færu utan vegna náms og flyttu með sér siði viðkomandi lands. Aðferðir þeirra þegar heim væri komið mörkuðust af því og við það bættust síðan hefðir og reynsla hjá þeim sem menn störfuðu hjá og þeim sem hannað væri fyrir. „Þeg- ar þetta er haft í huga er ljóst að al- ger samræming á hönnun umferð- armannvirkja er mjög erfið en 5 samræmdur íslenskur hönnunar- staðall fyrir ríki og sveitarfélög myndi engu að síður, að mínu mati, stuðla að betri samræmingu í um- ferðarkerfinu í heild.“ Lýsing þjóðvega I umræðum að loknum fram- söguerindum var drepið á mörg at- riði, m.a. lýsingu á Hellisheiði og reynslu af lýsingu á Reykjanes- brautinni. Kom fram að víða er- ■ lendis væri reynslan sú að slysum fækkaði með lýsingu á þjóðvegum en hraðinn ykist jafnframt og slysahættan þar með. Rögnvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri tækni- sviðs Vegagerðarinnar, benti á að um leið og lýsing var tekin upp á Reykjanesbraut hefði þjónusta einnig verið aukin. Taldi hann það nokkuð langt gengið að lýsa upp veginn um Hellisheiði, betra væri að setja fjármagn í að lagfæra nán- asta umhverfi vegarins. Þá minntu hjólreiðamenn á fundinum á tilvist sína og sögðu vanta nokkuð upp á að gert væri ráð fyrir reiðhjólastíg- um í umferðarkerfinu, menn væru of bundnir af því að hugsa um þarf- ir bíla. Einnig benti Þórhallur Ól- afsson, formaður Umferðarráðs, á að hægt væri að grípa til ýmissa | ráðstafana til að draga úr slysum, m.a. að skylt yrði að útbúa bíla með loftpúðum, „svörtum kössum“ svip- að og í flugvélum til að skrá ökuferil bíla og fleira.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.