Morgunblaðið - 27.11.1999, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.11.1999, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Úr könnun PricewaterhouseCoopers á hugmyndum fóiks um stöðu islensks atvinnulífs og eigin fjárhagsstöðu eftir hálft ár Spurning 1: Telurðu að íslenskt atvinnulíf verði betur sett, eins sett eða verr sett eftir sex mánuði, miðað við hvernig það er í dag ? Betur Eins Verr Allir sem tóku afstöðu IBIMKZIIIZZ 54-2% W Eftir kyni: Karlar 20.7% Konur KLVKSÍft 52.8% 55.6% 25,4%! Ljósavík og Fiskiðjusamlag Húsavíkur sameinast Sameining samþykkt á stjórnarfundi Eftir aldri: 18-29 ára 30-49 ára EHSL 50-75 ára 53,4% 59,6% 48.4% Pfti Lágar tekjur tekjum: Millitekjur Haar tekjur 38,0% 61,1% 61,3% Spurning 2: Telurðu að þú sjálfur verðir betur settur fjárhagslega eftir sex mánuði en þú ert í dag ? Betur Eins Verr Allir sem tóku afstöðu [ 48,3% ■EMCMI Eftir kyni: Karlar | Konur [ 44,9% BBBi 51,5% Eftir aldri: 18-29 ára | 30-49 ára | 50-75 ára | 66,5% Lágar tekjur tekjum: Miiiitekíur Háar tekjur Könnun á viðhorfi fólks til stöðu ís- lensks atvinnulífs og fjárhagsstöðu Öbreytt staða í íslensku atvinnulífí TÆPLEGA helmingur fólks telur að íslenskt atvinnulíf verði eins sett eftir sex mánuði og það er nú, tæp- lega 24% að það verði verr sett en 18% að það verði betur sett, sam- kvæmt viðhorfskönnun sem PricewaterhouseCoopers gerði fyr- ir Verslunarráð Islands í lok októ- ber. Einnig var kannað viðhorf Is- lendinga til þess hver fjárhagsstaða þeirra verður að sex mánuðum liðn- um. Flestir eða tæplega 46% svar- enda telja að fjárhagsstaða þeirra verði óbreytt eftir sex mánuði. Karlmenn telja frekar en konur að þeir verði betur settir fjárhagslega eftir sex mánuði. Fólk á aldrinum 18-29 ára telur frekar en aðrir al- durshópar að það verði betur sett fjárhagslega eftir sex mánuði. Hærra hlutfall fólks á aldrinum 30- 49 ára telur að fjárhagur þeirra verði betur settur að sex mánuðum liðnum samanborið við 50-75 ára einstaklinga. Lágtekjufólk telur síður en aðrir tekjuhópar að það verði betur sett fjárhagslega eftir sex mánuði. Tekið var slembiúrtak 1.138 ís- lendinga um allt land á aldrinum 18-75 ára. Könnunin var fram- kvæmd í lok september 1999. Nett- ósvarhlutfall var um 61% þegar dregnir eru frá látnir, erlendir rík- isborgarar og þeir sem búsettir eru erlendis. STJÓRN Fiskiðjusamlags Húsa- víkur hf. samþykkti á stjómarfundi í gær að leggja til við hluthafa fé- lagsins að Ljósavík hf. og Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. sameinist frá og með 1. september 1999. Gert er ráð fyrir að hluthafafundur í Fiskiðjusam- lagi Húsavíkur hf. verði haldinn í janúar. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu til Verðbréfaþings Islands. Skiptihlutfóll við sameininguna eru þannig að hlutur hluthafa Fiskiðju- samlags Húsavíkur er 62,5% og hlutur hluthafa í Ljósavík er 37,5%. Hlutafé Fiskiðjusamlags Húsavík- ur verður aukið um kr. 370.355.562 og verður útistandandi hlutafé því samtals kr. 987.614.832. Við sam- einingu nemur eigið fé sameinaðs félags um 988 milljónum króna, nettóskuldir 1.338 milljónum króna, veltufjárhlutfall 1,07 og eig- infjárhlutfall 24,2%. Samþykkt var kjör á nýrri stjóm sem skipuð er Guðmundi Baldurs- syni, Þorlákshöfn, Bjarna Bjarna- syni, Seltjarnarnesi, Unnþóri Hall- dórssyni, Þorlákshöfn, Reinhard Reynissyni, Húsavík, og Ingólfi Friðjónssyni, Seltjamamesi. Kjörnir voru varamenn Kristín Þórarinsdóttir, Þorlákshöfn, og Jón Magnússon, Reykjavík. Sam- þykkt var að Pricewaterhou- seCoopers ehf. yrði áfram endur- skoðunarfélag og löggiltur endurskoðandi Björn St. Har- aldsson á Húsavík. Bærinn á áfram sinn hlut Að sögn Reinhards Reynissonar, bæjarstjóra á Húsavík, verður eignarhlutur Húsavíkurkaupstaðar í Fiskiðjusamlagi Húsavikur eftir samrunann rúm 15%. „Það hefur ekki verið mörkuð nein stefna um frekari aðgerðir af hálfu bæjarins í þessu félagi. Við munum fyrsta kastið eiga þennan hlut,“ segir Reinhard. Aðspurður segir Reinhard mikla Skilafrestur í Snjall- ræði að renna út FRESTUR til að skila inn hug- myndum í hugmyndasamkeppninni Snjallræði, sem haldin er á vegum Impra, þjónustumiðstöð fram- kvöðla og fyrirtækja, rennur út næstkomandi mánudag. Tilgangur þessa verkefnis Impru er að hvetja einstaklinga til að leggja fram nýj- ar framleiðsluhugmyndir í sam- keppni þar sem í allt sextán hug- myndir em valdar til hagkvæmniathugunar og átta af þeim valdar til fullnaðarhönnunar og frumgerðarsmíði. Að sögn Eiríks Þorsteinssonar hjá Impra er hugmyndasamkeppn- in fyrir alla þá sem búa yfir góðri hugmynd, ekki aðeins svokallaða hugvitsmenn. Hugmyndasam- keppnin verður haldin þrisvar sinn- um og samtals verða valdar 16 hug- myndir sem styrktar eru til hagkvæmniathugana. Að hag- kvæmniathugunum loknum eru síðan valdar samtals 8 hugmyndir til áframhaldandi þróunar og vinnslu. Allt að 600 þúsund króna styrkur í fyrsta áfanga í fyrri áfanga verkefnisins getur hver hugmynd hlotið allt að 600 þúsund krónur í styrk úr Snjall- ræði. Hugmyndareigandi leggur fram allt að 200 þúsund krónur á móti þessu framlagi. Ef kostnaður við hagkvæmniathuganir fyrir einstök verkefni verður minni en 800 þús- und krónur skiptist kostnaðurinn þannig að hugmyndareigandi greiðir 25% kostnaðarins en Snjall- ræði 75%. í seinni áfanga verkefn- isins, frumgerðarsmíð og fullnaðar- þróun, eru valdar 8 hugmyndir og getur hver hugmynd fengið allt að 1,5 milljóna króna áhættulán frá Nýsköpunarsjóði. A móti þessu framlagi leggur hugmyndareigandi 1,5 milljónir króna. Ef kostnaður við einstök verkefni verður lægii verður kostnaðarskiptingin jöfn milli hugmyndareiganda og Snjall- ræðis. Sjón er sögu ríkari Flauelskjóll4.990 Toppur 1.990 Pils 1.990 OfDiö: mán.-fim. föstudaga laugardaga sunnudaga 10-18 10-19 10-18 13-17 Oxford Street Faxafeni 8 108 Reykjavík sími: 533 1555 hagræðingu felast í sameiningunni og að Húsavíkurkaupstaður sem stór hluthafi í Fiskiðjusamlaginu, hafi átt ákveðið frumkvæði að því að út í þessar aðgerðir var farið. Húsavíkurkaupstaður fjárfesti í Fiskiðjusamlaginu í sumar og segir Reinhard tilgang þeirrar fjárfest- ingar hafa verið að hafa áhrif á það með hvaða hætti eignarhald í félag- inu myndi þróast en ekki að eiga hlutinn til lengri tíma. Sameining Ljósavíkur og Fiskiðjusamlagsins sé útkoman úr þeirri vinnu. Reinhard segir að Ljósavík sé álitlegur samstarfsaðili og horfir björtum augum á framtíðina. „Það liggur í því að bæði fyrirtækin eru sterk í rækju og Fiskiðjusamlagið átti ekki skip.“ Hann segir að sam- einað félag muni nýta sér innlendar og erlendar heimildir og ekki síður leggja áherslu á bolfiskvinnslu sem mestu hafi skilað í framlegð hjá Fiskiðjusamlaginu á síðasta rekstr- arári. Borgarnes Sparisjóð- urinn kaup- ir 30% í Loftorku SPARISJÓÐUR Mýrasýslu hefur keypti 30% eignarhlut í Loftorku ehf. í Borgarnesi, en Loftorka sér- hæfir sig í framleiðslu steypuröra, steypueininga og einingahúsa. Fyr- irtækið veltir um 350-400 milljón- um króna á ár og hjá því starfa um 60 manns. Að sögn Gísla Kjartanssonar, sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Mýra- sýslu, er tilgangurinn með kaupun- um að létta undir með fyrirtækinu sem ráðist hefur í miklar fram- kvæmdir og fjárfestingar upp á siðkastið, m.a. byggingu nýrrar steypustöðvar. „Þetta er gott fyrirtæki og góður viðskiptavinur hjá okkur og við er- um að styðja við fyrirtækið með þessu og hleypa nýju blóði í það. Við hugsum þetta eingöngu til skamms tíma og munum losa okkur við þetta aftur." ♦ ♦ ♦ Nafni Vaka fiskeldiskerfa hf. breytt í Vaki-DNG hf. VERÐBRÉFAÞINGI hefur borist staðfesting á að nafni Vaka fiskeld- iskerfa hf. hafi verið breytt í Vaki- DNG hf. og mun hið nýja nafn framvegis birtast í yfirlitum þings- ins. Jafnframt hefur verið skráð hlutafjáraukning sem átti sér stað við samruna Vaka fiskeldiskerfa hf. og DNG Sjóvéla hf. og er skráð hlutafé félagsins nú 64,5 milljónir króna. Tíu stærstu hluthafa Vaka - DNG hf. eru Þróunarfélag íslands hf. með 23,67% hlut, Hampiðjan hf. með 22,47%, Hlutabréfasjóðurinn hf. með 14,54%, Hermann Kri- stjánsson með 4,28%, Auðlind hf. með 3,11%, Hólmgeir Guðmun- dsson með 2,86%, Guðmundur Unnþór Stefánsson með 2,26%, Eldbjörg ehf. með 2,15%, Brandur S. Guðmundsson með 1,91% og Þorsteinn I. Sigfússon meðl,87%.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.