Morgunblaðið - 27.11.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 29
ERLENT
Fjármálailtstreymið úr Rússlandi
Yandamálin helgast
af kerfísumskiptum
Mikhaíl M. Kasanyov, fjármálaráðherra
Rússlands, segir í samtali við Morfflinblaðið
að fjármálaútstreymi úr landinu og skipu-
lögð glæpastarfsemi séu allt saman vanda-
mál sem helgist af kerfisumskiptunum
úr miðstýrðu hagkerfí kommúnismans.
Allt horfi þetta til betri vegar.
I FJOLMIÐLUM á
Vesturlöndum hefur á
undanförum misserum
mikið farið fyrir
fréttaflutningi af þeim
vandamálum sem við
er að etja í fjármálum
Rússlands, einkum að
því er varðar hlutverk
alþjóðlega skipulagðr-
ar glæpastarfsemi í
þeim vanda, sem jafn-
vel háttsettir embætt-
ismenn í rússneska
stjórnkerfinu hafa ver-
ið bendlaðir við.
Aðspurður um þetta Mikhaíl M.
segir Kasyanov mikil- Kasyanov
vægt að hafa í huga,
„að þessar frásagnir, sem vissir
menn hafa fengið blaðamenn til að
búa til“, séu ekkert nema sögu-
sagnir sem engum hafi tekizt að fá
staðfestar ennþá.
„Rússnesk stjórnvöld eru mjög
opin fyrir hvers kyns ábendingum
um öll slík mál. Fram að þessu hef-
ur rússneskum yfirvöldum ekki
borizt neitt sem sannar ásakanir af
þessu tagi, þrátt fyrir að við séum í
nánu samstarfi við erlenda rann-
sóknaraðila, í Bandaríkjunum,
Bretlandi og öðrum löndum,“ segir
Kasyanov. „Slík upplýsingaskipti
fara einnig reglulega fram milli
saksóknaraembætta landanna.
Fram að þessu hefur samt ekkert
verið staðfest, ásakanirnar eru
ekki sannar."
Það sé vegna þessa, sem almenn-
ingur í Rússlandi og út um alla
Evrópu og víðar skilji, að „þessi
herferð, sem nýlega var efst á
baugi í öllum dagblöðum á Vestur-
löndum, var til komin eingöngu af
pólitískum ástæðum," fullyrðir Ka-
syanov. Annars vegar í Rússlandi, í
aðdraganda þingkosninganna í
desember, og hins
vegar í Bandaríkjun-
um, þar sem forseta-
kosningar fara fram á
næsta ári og kosn-
ingabarátta þegar
hafin.
Ráðstafanir gegn
útstreymi
„Því miður virðist
traust Rússlands á
fjármálasviðinu hafa
beðið skaða vegna
þessa, en eins og ég
er búinn að lýsa hafa
framkomnar ásakanir
[um fjármálaspillingu
þar sem rússneskir
embættismenn koma einnig við
sögu] ekki verið staðfestar. Rúss-
neska stjórnin lokar þó að sjálf-
sögðu ekki augunum fyrir því að
það er fjármagnsútstreymi út úr
landinu - eins og er vandamál í öll-
um þeim löndum sem eru að aðlag-
ast umskiptunum úr miðstýrðu
hagkerfi kommúnismans," viður-
kennir ráðherrann.
Segir hann stjórnvöld í Rússl-
andi vera að reyna sitt bezta til að
grípa til ráðstafana sem duga til að
ná stjórn á þessum vanda, en hann
sé stærri en svo að mögulegt sé að
gera það í einum grænum.
„Á þessu ári hefur okkur tekizt
að minnka verulega fjármagnsút-
streymið miðað við árið á undan.
Þetta er ekki nýtt vandamál - al-
þjóðasamfélagið hefur vitað af
þessum vanda frá því árið 1992 og
það hefur jafnan verið tekið tillit til
hans í samningum okkar við Al-
þjóðagjaldeyinssjóðinn og Heimsb-
ankann,“ segir Kasyanov. Vanda-
málið sé enn til staðar, en umfang
þess hafi minnkað til muna. „Það
kom okkur þess vegna nokkuð
spánskt fyrir sjónir, að þetta fjölm-
iðlafár upphófst á sama tíma og við
vorum farnir að sjá áþreifanlegan
árangur af baráttunni gegn fjár-
magnsútstreymisvandanum. Fyrir
tveimur árum var þessi vandi
miklu stærri, en þá var hann ekk-
ert fréttaefni."
Nú vonist rússneska stjórnin til
að sú efnahagsáætlun sem hún sé
nú að hrinda í framkvæmd muni
skila góðum árangri og „skapa
hagstæð skilyrði fyrir enn metnað-
arfyllri áformum um umbætur í
efnahagsmálum landsins, sem við
vonumst til að muni koma Rússl-
andi á braut varanlegs, sjálfbærs
hagvaxtar."
Segir þingkosning-arnar
munu breyta litlu
Aðspurður segist Kasyanov ekki
hafa trú á því að þingkosningarnar
sem fram fara í Rússlandi hinn 19.
desember nk. muni leiða til mikilla
breytinga á stjórn landsins. „Að
sjálfsögðu munu hlutföll hinna
mörgu flokka sem eiga fulltrúa á
þinginu breytast, en ég á von á því
að ríkisstjórnin muni sitja áfram
eftir kosningarnar og að líkindum
fá meiri stuðning frá þinginu.“
En ráðherrann býst ekki við því
að flokkarnir sem styðja stjórnina
muni ná hreinum þingmeirihluta.
Það sé þó ekki aðalatriðið; það
nægi stjórninni ef þingið verði eitt-
hvað samvinnuþýðara en það hefur
verið á líðandi kjörtímabili, þar
sem kommúnistar hafa haft tögl og
hagldir í neðri deildinni, Dúmunni.
\o^Hl/l5IÐ
Mörkinni 6, s. 588 5518.
Hattar, HÚFUR,
ALPAHÚFUR,
2 STÆRÐIR.
Afsagnir hjá Elite
London. AP.
TVEIR starfsmenn fyrirsætufyr-
irtækisins Elite sögðu af sér störf-
um fyrir það í gær, en þeir komu
báðir við sögu í heimildarmynd
um fyrirtækið, sem BBC, breska
ríkisútvarpið, sýndi fyrr í vikunni.
Mennirnir tveir eru Gerald
Marie, yfu-maður Elite Europe,
og Xavier Moreau, yfirmaður Eli-
te Model Look. I myndinni heyr-
ist Marie segja, að hann vonist til
að komast yfir keppenduma eða
stúlkurnar í Elite Model look-
keppninni, en meðalaldur þeirra
er 15 ár.
Saksóknarinn í Mflanó á Italíu
tilkynnti í gær, að rannsókn væri
hafin á því hvort umboðsmenn eða
aðrir í tískuiðnaðinum þar í borg
hefðu misnotað fyrirsætur.
9jö(&reytt amturíeml^fiátíð -
SúkmdfíóM. Sðgu. nÍQ mtnud,
Árshátíð nýstofnaðs Thailandsvinafélags
eftir stofnfund.
CtímancCsvinaféCagið síizr a.vu£. þijárflugur í emu íiöggi með pvi
að fiaídajramfuiídsstoftijund og aðaífund Cynningu á Candi og
pjóð oggCcesiíega árshátíð.
Kl.19.00 - Húsið opnað með barþjónustu og tónlist
Nýir félagar geta skráð sig og gerst stofnfélagar með rétt
indum félaga.
kl. 19.45 - Hátíðin hefst með tónlist, myndasýningum og ljúffengri
kvöldverðar þrennu:
BALl HAI tígrisrœkja í kókos
Gómsœtt heilagfiski PATONG
Tandori kjúklingur CHIANG RAI
MATARVERÐ - AÐEINS KR. 2.000.
Meðan á máltíð stendur: LOÐSKINN og SAMKVÆMIS-
FÖT. Glæsileg tískusýning undir stjórn Unnar Arngrímsd.
Thailenskar meyjar sýna austurlenska dansa.
Myndasýning og ferðakynning: UNDRA THAILAND í dag.
Happdrætti: 5 ferðavinningar dregnir út á kvöldinu.
DANS - Hljómsveit Stefáns Jökulssonar og Sigrún Eva Ieiða
fjörið í dansinum til kl. 23.30.
AÐGANGUR ÓKEYPIS FYRIR MATARGESTI.
BORÐAPANTANIR: Heimsklúbburinn, sími 56 20 400
Hótel Saga, sími 525 9920
THAILANDS VINAFÉLAGIÐ WORLD CLUB & PRIMA