Morgunblaðið - 27.11.1999, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Lögreglumaður handtekur konu á meðal stuðningsmanna Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra Pakist-
an, við dómhúsið í Karachi eftir að hann var leiddur fyrir rétt í gær.
Mál Sharifs fyrrverandi forsætis-
ráðherra Pakistans
Ákærum
var frestað
um viku
Karachi. AP, AFI'.
SAKSÓKNARAR í máli herstjóm-
arinnar í Pakistan gegn Nawaz
Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra
landsins, frestuðu í gær að gefa út
formlegar ákærur á hendur honum.
Dómari við dómstól í borginni Kar-
achi gaf saksóknuram sjö daga frest
til að leggja fram ákærur en Sharif
hélt enn og aftur fram sakleysi sínu
þegar hann var leiddur fyrir réttinn í
gær.
Þrír fulltrúar frá Evrópuríkjum
og Bandaríkjunum voru viðstaddir
vitnaleiðslurnar og er haft eftir ein-
um þeirra, ræðismanni Hollendinga í
borginni, að Evrópusambandið vilji
fylgjast með því hvort mál Sharifs fái
réttláta meðferð. Sharif hefur meðal
annars verið sakaður um landráð og L
tilraun til morðs og er í varðhaldi. I ;
vikunni voru bróðir hans og fimm |;
aðrir fyrrverandi háttsettir embætt- |l
ismenn ákærðir fyrir aðild að meint-
um glæpum Sharifs. Mönnunum er
gefið að sök að hafa reynt að ráða
Musharraf hershöfðingja, for-
sprakka valdaránsmanna, bana með
því að meina flugvél sem hann var
farþegi í um lendingarleyfi á flug-
vellinum í Karachi daginn sem vald-
aránið var framið. Mjög lítið elds-
neyti var eftir á flugvélinni þegar
hermönnum hliðhollum Musharraf 1
tókst að ná flugvellinum á sitt vald.
Tíu útibúum Goethe-stofnunar
verður lokað um áramot
Frekari lokun-
um afstýrt
EFTIR langvinna rimmu hefur yfir-
stjórn Goethe-stofnunar í Þýzka-
landi nú tekizt að afstýra því að enn
fleiri útibúum stofnunarinnar en
þegar var búið að ákveða verði lokað.
I september sl. var tilkynnt að ell-
efu stofnunum yi'ði lokað um áramót
vegna niðurskurðar fjái-framlaga úr
þýzka ríkissjóðnum. A stjórnarfundi
stofnunarinnar í Múnchen á mið-
vikudag gat forstjórinn, Hilmar
Hoffmann, tilkynnt að fjárlaganefnd
Sambandsþingsins hefði ákveðið að
skera framlög til stofnunarinnar fyr-
ir tímabilið 2000-2001 minna niður
en áður hafði staðið til. A þessum
grundvelli hafi því utanríkisráðu-
neytið, sem Goethe-stofnun heyrir
undir, getað heitið 11 milljónum
marka (420 millj. kr.) minni niður-
skurði á þessu tímabili en fyiTÍ
áform gerðu ráð fyrir. Kemur þetta
fram í fréttatilkynningu.
„Ólýsanlegur léttir“
„Þetta er okkur ólýsanlega mikill
léttir,“ sagði Hofímann á fundinum,
„því í síðustu viku var enn óvíst um
framtíð nokkurra útibúa." Hinn 10.
september hafði stofnunin brugðizt
við niðurskurði fjárframlaganna með
því að ákveða að loka ellefu útibúum
og tveimur til viðbótar að hluta nú
um áramót.
Þessar stofnanir eru: í Jórvík á
Bretlandi, Patras og Chania á
Grikklandi, Níkosíu á Kýpur, Tou-
louse í Frakklandi, Seattle, Ann Ar-
bour og Houston í Bandaríkjunum,
Vancouver í Kanada og San José á
Costa Rica. Einnig var búið að
ákveða að loka stofnuninni í Genúa á
Italíu, en meðal annars með samn-
ingum við ítalska hollvini hennar
tókst að tryggja reksturinn áfram, í
breyttu formi, þó ekki því sama og er
á rekstri Goethe-Zentrum í Reykja-
vík, sem stofnað var í kjölfar lokunar
Goethe-stofnunarinnar hér í fyrra,
en hún var meðal níu útibúa sem lok-
að var á árinu 1998. Nú í september
var ennfremur ákveðið að Goethe-
stofnununum í Bandung í Indónesíu
og Cordoba í Argentínu yrði breytt í
hlutastarfsskrifstofur.
Eftir lokanirnar um áramót verða
samtals 126 útibú Goethe-stofnunar í
rekstri, þar með talin ný stofnun í
Sarajevo, höfuðborg Bosníu, sem á
að opna í janúar.
LISTASJÓÐUR
PENNANS
Auglýsing um umsóknir
úr sjóðnum áríð 1999
Styrkir úr Listasjóði Pennans verða veittir í áttunda sinn
um nk. áramót. Umsóknir þurfa að berast stjórn
sjóðsins fyrir 11. desember 1999.
Sérstök umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins fást
i verslunum og á skrifstofu Pennans.
Hallarmúla 4,
pósthólf 8280,128 Reykjavík,
SÍmi 540 2000, fax 568 0411.
Hörð átök blossa upp í borginni Ambon í Indónesíu
Hermenn urðu 29
manns að bana
laknria AEP
ÖRYGGISSVEITIR hófú í gær
skothríð í borginni Ambon í Indónes-
íu og urðu að minnsta kosti 29 manns
að bana þegar átök blossuðu upp
milli kristinna íbúa borgarinnar og
múslima. Rúmlega 120 til viðbótar
særðust í skothríðinni.
„Öll fórnarlömbin, þeir sem biðu
bana eða særðust, urðu fyrir byssu-
kúlum hermanna," sagði indónesísk-
ur blaðamaður í Ambon. Hann bætti
við að átökin hefðu blossað upp eftir
að kveikt hefði verið í 28 húsum í
borginni.
Kveikt í mannlausum húsum
kristinna Ambon-búa
Malik Shelang, starfsmaður mosk-
unnar Al-Fatah í Ambon, sagði að
óeirðaseggir úr röðum kristinna íbúa
borgarinnar hefðu kastað bensín-
sprengjum inn í mannlaus hús í eigu
annarra kristinna manna til að láta
líta út fyrir að múslimar hefðu kveikt
eldana.
Kona sem tekur þátt í hjálpar-
starfi kirkju mótmælenda í borginni
sagði hins vegar að múslimar hefðu
átt upptökin að átökunum með því að
ráðast á hús kristinna íbúa borgar-
innar með hjálp hermanna sem hefðu
verið vopnaðir handsprengjum.
Tugir aldraðra kvenna, eigendur
húsa sem voru lögð í rúst, fóru í höf-
uðstöðvar hersins í borginni til að
mótmæla því að herinn skyldi ekki
hafa varið eignir þeirra.
Embættismaður í höfuðstöðvum
hersins sagði síðdegis í gær að allt
væri með kyrrum kjörum í borginni
og öryggissveitum úr hernum og lög-
reglunni hefði tekist að binda enda á
átökin. Indónesíski blaðamaðurinn í
Ambon sagði hins vegar að mikil
spenna væri enn í borginni og enn
væri hleypt af byssum á götunum.
Rúmlega 550 manns
hafa fallið
Mannskæð átök hafa hvað eftir
annað blossað upp milli múslima og
kristinna manna í Ambon, sem er
höfuðborg Maluku-héraðs, og ná-
grannabæjum hennar frá því í byrj-
un ársins. Hörðustu átökin voru í
janúar til mars og rúmlega 550
manns hafa fallið það sem af er árinu.
Tugþúsundir íbúa Maluku hafa
ílúið til annarra héraða vegna
átakanna.
Portillo fór með sigur af
hólmi í aukakosningum
MICHAEL Portillo, fyrrverandi
varnarmálaráðherra Bretlands,
vann öruggan sigur í aukakosning-
um um þingsæti Chelsea og Kens-
ington-hverfanna í London, sem
fram fóru á fimmtudag. Sigurinn
kom ekki á óvart, enda hefur kjör-
dæmið í áraraðir verið eitt af helstu
vígjum íhaldsflokksins. Það dró þó
nokkuð úr fögnuði íhaldsmanna yfir
endurkomu Portillos á þingið, að
kjörsókn var með minnsta móti, að-
eins 30%.
Portillo, sem Thatcher-vængurinn
í flokknum er sagður líta til sem for-
ingjaefnis, kvaðst myndu styðja
William Hague, leiðtoga íhalds-
manna, af heilum hug. „Saman mun-
um við veita ríkisstjórninni and-
spymu,“ sagði Portillo. Hague
kvaðst vera „himinlifandi" yfir úr-
slitunum og sagði Portillo vera „öfl-
ugan baráttumann fyrir hin íhalds-
sömu gildi“.
Portillo missti þingsæti sitt í En-
field Southgate í kosningunum 1997,
er íhaldsflokkurinn tapaði gífurlegu
fylgi. Þingsæti Kensington og Chels-
ea losnaði fyrr á árinu, þegar íhalds-
maðurinn Alan Clark lést. Hlaut
Portillo 11.004 atkvæði í aukakosn-
ingunum, á móti 4.298 atkvæðum
frambjóðanda Verkamannaflokks-
ins, Roberts Atkinsons.
Talið efla baráttuandann í
Ihaldsflokknum
Ihaldsflokkurinn hefur átt erfiða
daga undanfarið, vegna neikvæðrar
umfjöllunar um gjaldkerann Michael
Ashcoroft og fjármál flokksins, og
uppljóstrana um að Jeffrey Archer,
sem hafði verið valinn borgarstjóra-
efni í London, hafi hvatt vin sinn til
að bera ljúgvitni í meiðyrðamáli er
hann höfðaði gegn slúðurblaðinu
The Daily Star. Stjórnmálaskýrend-
ur telja að endurkoma Portillos á
þingið gæti eflt baráttuandann í
Ihaldsflokknum í kjölfar þessara
hneykslismála.
Úrslit aukakosninganna þykja
einnig mikill persónulegur sigur fyr-
ir Portillo, sem hefur reynt að breyta
ímynd sinni frá því í kosningunum
1997. Hefur hann meðal annars sýnt
á sér „mýkri“ hliðar en áður, og við-
urkennt að hafa lifað kynlífi með
karlmönnum er hann var ungur
maður.
Enn er ekki Ijóst hvaða hlutverki 1
Portillo komi til með að gegna í þing-
flokknum. Haft er eftir heimilda-
mönnum innan íhaldsflokksins að
Hague muni ekki stokka upp í for-
ystusveit flokksins strax, en að Port-
illo fái líklega umsjón með skugga-
ráðuneyti á næsta ári.
Mary Archer stendur með
manni sínum
Mary, eiginkona Jeffreys Archers, 1
gaf út yftrlýsingu á fimmtudags- p
kvöld, þar sem hún segist standa
með manni sínum, þrátt fyrir að hún
sé honum reið. Ef marka má frétta-
flutning breskra dagblaða af Archer
má vænta frekari uppljóstrana um
framgöngu hans í meiðyrðamálinu,
sem varð honum að falli. The Daily
Star hafði krafist þess að Archer
endurgreiddi skaðabæturnar, sem ,
honum voru dæmdar í meiðyrðamál- I
inu, ekki síðar en á fimmtudag, en fe
Archer varð ekki við því. Búist er við p
því að blaðið höfði nú mál gegn hon-
um.