Morgunblaðið - 27.11.1999, Síða 32

Morgunblaðið - 27.11.1999, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Nýja tónlistarhúsið í Garðabæ Morgunblaðið/Golli Tónlist- arhús í Garða- bæ NÝTT tónlistarhús, þar sem Tónl- istarskóli Garðabæjar er til húsa og sérstakur listasalur, var form- Iega tekið í notkun að Kirkjulundi 11 í Garðabæ í gær. í dag, laugar- dag, verður opið hús í nýja hús- næðinu frá kl. 14-17 Húsnæði tónlistarskólans hefur áað skipa 14 kennslustofum, æf- ingasal fyrir blásarasveit og sér- stökum listasal, sem, þegar tónleik- ar verða haldnir, tekur 109 gesti í sæti. Auk þess er í húsinu skrif- stofuaðstaða, kennarastofa, eldhús og vinnuaðstaða fyrir kennara auk smærri rýma. Flatarmál hússins er 872 fermetrar, en lóð skólans er 4.140 fermetrar. Kostnaður við byggingu hússins og frágang lóðar er um 140 milljónir króna. Hönnuð- ir hússins eru arkitektamir Baldur Ó. Svavarsson og Jón Þór Þor- valdsson. Verktaki var bygginga- fyrirtækið Mark - hús ehf. Lóð skólans og minjagarð hann- aði Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, landslagsarkitekt. Loftorka og Jón Stefánsson, skrúðgarðyrkjumaður, sáu um frágang skólalóðar, en minjagarður verður byggður upp á næsta ári. Tónlistarskóli Garðabæjar var stofnaður árið 1964. Skólastjóri Listasalurinn í nýja húsinu tekur 109 tónleikagesti í sæti. Gunnar Einarsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar og Gísli Magnússon skólasljóri Tónlistarskóla Garðabæj- ar við styttur Gerðar Gunnarsdóttur, sem bæjaryfirvöld færðu nýa húsinu að gjjöf. hans er Gísli Magnússon, en hann hefur starfað við skólann í 30 ár, þar af 16 sem skólastjóri. í tilefni þessara tímamóta og að skólinn er 35 ára hefur leikur nemenda verið hljóðritaður á geislaplötu I dag verður opið hús í nýja hús- næðinu frá kl. 14-17. Tónleikar verða í listasal skólans þar sem nemendur leika tónlist. Þar koma fram einleikarar og samleikshóp- ar, s.s. strengjasveit, saxafónkvar- tett, blokkflautukvartett og gítar- sveit. Kl. 14.30 flytur kammerblásarasveit skólans verk- ið Tveir þættir fyrir kammerblás- arasveit eftir Atla Heimi Sveinsson sem samið var í tilefni af vígslu nýja húsnæðisins. Kl. 15 verður fmmflutt tónverk eftir Huga Guð- mundsson fyrir sópran, klarínett, saxafón, slagverk og pfanó, samið af sama tilefni. Verkið verður end- urfluttkl. 16. Tdnleikar Unglinga- kórs Sel- fosskirkju UNGLINGAKÓR Selfos- skirkju heldur sína fyrstu sjálfstæðu aðventutónleika í Selfosskirkju á sunnudag- skvöld, kl. 20. Kórinn flytur verkið Ceremony of Carols eftir enska tónskáldið Benja- min Britten ásamt Moniku Abendroth, hörpuleikara. Verkið er samið við. enska jólasálma frá miðöldum og hefur hlotið nafnið Söngva- sveigur á íslensku. Einsöngvarar eru allir úr röðum kórfélaga og einnig hljóðfæraleikarar sem aðstoða í aðventu- og jólalögum. Einn- ig flytur fyrrverandi kórfélagi, Magnea Gunnarsdóttir, aríu úr Jólaóratóríunni ásamt Matthíasi Nardeau, óbóleik- ara. Einleikari með kómum er Glúmur Gylfason. Stjórnandi kórsins er Margrét Bóasdótt- ir. Barna- og Unglingakór Hallgrímskirkju æfa tóna aðventusöngvanna. Morgunblaðið/Krístinn AÐVENTUTÓNLEIKAR á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju verða á morgun, sunnudag, kl. 17, í Hallgrímskirkju. Á tónleikunum koma barna- og unglingakórar kirkjunnar fram undir stjóm Bjarneyjar Ingi- bjargar Gunnlaugsdóttur. í barnakórnum era 30 börn á al- drinum 7-10 ára og á tónleikunum syngur hann jólalög við undirleik Harðar Áskelssonar. Unglingakórinn ræðst í sitt Jólasöngva- sveigur Britt- ens á aðvent- utónleikum stærsta verkefni til þessa, en á tónleikunum mun hann flytja jóla- söngvasveig Benjamins Brittens „A Ceremony of Carlos“. Verkið samdi Britten árið 1942 og inni- heldur það 11 lög fyrir 3ja radda kór og hörpu. Texti verksins era gömul ensk ljóð er segja frá fæð- ingu frelsarans, boðun Maríu og freistingunni sem Adam varð fyrir í aidingarðinum Eden. Einsöngvarar era úr röðum kórfélaga og hörpuleikari er Sop- hie Scoonjans. f unglingakórnum era 30 félag- aráaldrinum 11-17 ára. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Jólatónleikar í Vinaminni KIRKJUKÓR Akraness, Kór Nýja tónlistarskólans og Kór Kvenna- skólans í Rykjavík halda sameigin- lega tónleika í Vinaminni á Akra- nesi í dag, laugardag, kl. 16. Einsöngvarar eru Aðalsteinn Leó Aðalteinsson, Stefán Bjarna- son, Bjarkey Sigurðardóttir, Sif Sigmarsdóttir, Smári Vífilsson, Gyða Björgvinsdóttir, Anna Jóns- dóttir, Lindita Óttarsdóttir, Araar Guðjónsson og Anna Margrét Ósk- arsdóttir. Stjórnendur eru Sigurður Bragason, Katalin Lörincz og Hannes Baldursson. Undirleikarar á píanó eru Richard Simm og Kata- lin Lörincz. Nýjar plötur • JÓLASVEINAR ganga um gátt eftir Pétur Eggerz, inniheldur íeikþætti og lög við kvæði Jóhann- esar úr Kötlum. Með hlutverk íslensku jólasvein- anna fara Ai-nar Jónsson, Ámi Tryggvason, Bessi Bjarnason, Bjarni Ingvarsson, Erlingur óísla- son, Gunnar Eyjólfsson, Ingvar E. Sigurðsson, Jóhann Sigurðarson, Jón Hjartarson, Karl Guðmun- dsson, Pétur Einarsson, Róbert Arnfinnsson, og Rúrik Haraldsson. Með hlutverk Grýlu og Leppalúða fara þau Margrét Ólafsdóttir og Steindór Hjörleifsson. Margir fleiri koma fram, í minni hlutverkum, söng og tónlistarflutningi. Leikstjóri er Pétur Eggerz en höfundur tónlistar og upp- tökustjóri er Guðni Franzson. Árni Björnsson veitti sérfræðiaðstoð og samdi kver sem fylgir plötunni og ber heitið Jólavættir. Utgefandi er Mál og menning í samráði við Þjóðminjasafnið. Leik- þættirnii• voru hljóðritaðir hjá RÚVog tóniistin hjá MIX á tíma- bilinu febrúar til september 1999. Verð: 2.199 krónur. Nýjar bækur • KATA manna- bam er eftir Kjartan Árna- son. Foreldrar Kötu ákveða að selja íbúðina í Kópavoginum og flytja út á land. Kötu finnst hún glata öllu, íbúð- inni, vinkonu, skólanum, ömmu og sjálfum Kópa- voginum. Þegar hún er ein að leik í sveitinni finnur hún fallegan hring og uppgötvar síðar að hringurinn er gæddur töframætti. Hún verður þess áskynja að kannski er líf handan þessa lífs ef þá ekki heimur samhliða hinum sýnilega heimi okkar. Útgefandi er Æskan ehf. Bókin er 92 bls., prentuð í Odda hf. Verð: 1.790 kr. • HARRY Potter ogviskusteinn- inn er eftir J.K. Rowling í þýðingu Helgu Haraldsdóttur. Þetta er fyrsta bókin af sjö í bókaflokki sem fjallar um ævintýri Harry Potter sem er 11 ára munað- arlaus strákur. Þegar Harry var í vöggu dóu foreldrar hans og þurfti Han-y því að flytjast til illgjarns frænfólks sem gerði honum lífið leitt. Á ellefu ára afmælisdegi sín- um berst Harry óvænt og dularfull orðsending. Eru honum færðar þær fréttir að hann búi yfir ofur- töframætti. Harry er því kallaður í skóla galdra og seiða - í sjö ára galdranám. Á næsta ári hefst undirbúningur að gerð kvikmyndar eftir þessari sögu. Guðni Kolbeinsson þýddi nokkrar vísur sem eru í sögunni. Utgefandi er Bjartur. Bókin er 260 bls., prentuð í Gutenberg. Kápugerð annaðist Guðjón Ketils- son. Verð: 2.280 kr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.