Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 36

Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 Draumar af himni ogjörð DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns NÚ ÞEGAR jörðin hefur skroppið saman með tilkomu sjónvarps, Nets, GSM og ann- arra fjarskiptamiðla eru menn að vakna bet- ur til vitundar um fegurð hennar, furður og fírn. Tæknin þeytir manni á örskotsstundu frá Tjörninni í Reykjavík inn í myrkasta af- kima Amazon-skógar þar sem furðulegar plöntur og dýr hafast við, eða upp á hæsta tind jarðar þar sem loftið er gyllt og öndin stendur í hálsinum, þaðan er brunað í salí- bunu undir íshellu suðurskautsins í samflot með selum, einhyrningum og Itölum. Það er sama hvar maður vaknar, jörðin er ægifögur í Víetnam, klettafjöllum Norður-Ameríku, Islandi eða bara hvert sem litið er, alltaf er maður jafn dolfallinn og spyi’ sig: „Er mig að dreyma? Er þetta raunveruleiki?" Þegar komist er að raun um að þetta sé raunveruleiki, fer maður að velta fyrir sér undrum jarðar og táknum og kemst að raun um að draumurinn er hlaðinn merkingum sem virðast óraunsæ líkt og raunveruleikinn en eru samt sönn, líkt og tréð sem ég hengdi jólaseríuna á í gær. Þessi umpólun draums og veruleika minnir á hjól sem snýst inni í hjóli og setji maður hjólið í huga sér af stað birtist Guð. Biblían er full af lýsingum þar sem raunveruleikanum er lýst á svo óraun- verulegan hátt að það er líkast draumlýs- ingu, en trúin á að Biblían geymi sannleik- ann, setur mann hljóðan og hugsi. Opinber- un Jóhannesar minnir um margt á draum en jafnframt nútímalegan veruleika. Upplifun Jóhannesar var raunveruleg og því hlýtur það er hann „sá“ að hafa verið raunveruleiki þótt lýsingin líkist mest draumi og maður spyr sig: „Hvað gerðist eiginlega þarna í fortíðinni?" 4., 1-10. „Eftir þetta sá ég og sjá: Opnar dyr á himninum og raustin hin fyrri, er ég heyrði sem lúður gylli, talaði við mig og sagði: Stíg upp hingað og ég mun sýna þér það sem verða á eftir þetta. Jafnskjótt var ég hrifinn í anda og sjá: Hásæti var reist á himni og einhver sat í hásætinu; og sá er þar sat var líkur að sýn jaspissteini og sar- dissteini, og regnbogi var kring um hásætið, líkur að sýn smaragði og umhverfis hásætið voru tuttugu og fjögur hásæti, og í hásætun- um sá ég tuttugu og fjóra öldunga, skrýdda hvítum klæðum og á höfðum þeirra gullkór- ónur. Og út frá hásætinu gengu eldingar, raustir og þrumur, sjö eldblys brunnu fyrir hásætinu og eru það þeir sjö andar Guðs. Og frammi fyrir hásætinu var sem glerhaf, líkt kristalli, og íyrir miðju hásætinu og um- hverfis hásætið voru fjórar lifandi verur al- settar augum í bak og fyrir. Og fýrsta veran var lík ljóni, og önnur veran var lík uxa, og þriðja veran hafði ásjónu sem maður, og fjórða veran var lík fljúgandi erni. Og ver- urnar fjórar, ein og sérhver þeirra, höfðu sex vængi, og voru alsettar augum allt um kring og að innanverðu. Og eigi láta þær af, dag og nótt, að segja: Heilagur, heilagur, heilagur, Drottinn Guð, hinn alvaldi, hann sem var og er og kemur. Og þegar verurnar gjalda honum sem í hásætinu situr, dýrð og heiður og þökk, honum sem lifir um aldir alda, þá falla öldungarnir tuttugu og fjórir niður frammi fyrir honum, sem í hásætinu situr, og tilbiðja hann, sem lifir um aldir alda, og varpa kórónum sínum niður fyrir hásætinu og segja: „Verður ert þú Drottinn og Guð vor, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn, því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og skapaðir." „Draumlyndur“ skrifar Mér fannst ég vera staddur í sumarbú- stað sem rosknir foreldrar mínir höfðu eign- ast, ásamt öðrum úr fjölskyldunni. Þennan bústað höfðu þau keypt af vinnuveitanda mínum á mjög góðum kjörum fyrir hans vel- vilja. Bústaðurinn var ekki stór en vistlegur og nóg pláss fyrir alla, en fjölskyldan er stór. Umhverfið var mjög fagurt, rennandi lækur þar við og gróðursælt umhverfi, grænn skógur og kjarr og fallegt blómahaf. Sérstaklega voru blá blóm áberandi og heill- andi á að líta. Þarna voi'u fleiri bústaðir í kring. Þá fannst mér við vera komin í kirkju eða kapellu sem tilheyrði umhverfinu. Hún var ekki stór en vítt til veggja og stórt orgel við altarið. Þá finnst mér bróðir minn sem er aðeins yngri en ég og næstur mér í aldurs- röð systkinanna vera kominn til altaris. Presturinn sem þjónaði fyiir altari er látinn fyiúr nokkrum árum og var góður vinur minn. Er við krupum við altarið kemur presturinn og býst til að veita okkur altar- issakramenntið en hættir allt í einu og segir: „Rristur." Við stöndum upp og búum okkur að ganga frá altarinu en presturinn segir okkur að ganga í Guðs friði. Eg signi mig er ég geng frá altarinu og mér finnst eins og bróðir minn hafi gert það líka. Fjölskyldan öll sat á kirkjubekknum. Mér finnst eins og ég hafi farið svolítið hjá mér er ég signdi mig en var þó fyllilega sáttur. Ráðning Eg horfi stundum á Omega-sjónvarps- stöðina og þar predika menn hver í kapp við annan endurkomu Krists á næstunni og vandræði þeirra sem linir séu í trúnni. Þegar ég skoðaði draum þinn komu þessir predikarar upp í hugann því draumur þinn snýst um góð hjörtu sem skortir trúar- sannfæringu. Nöfn mannannaí draumnum sem þú vilt ekki birta, tákna öll vandræði vegna fyrrnefnds skorts. Annað tákn er það er þið bræðurnir ætlið að meðtaka sakramentið, hættir presturinn við og seg- ir: „Kristur", sem mætti túlka að hugur Siggi o g Ida Tvær skemmtilegar matreiðslubækur leynast í jólabókaflóðinu, segir Steingrímur Sigurgeirsson, sem gluggaði í uppskriftir þeirra Sigurðar H. Hall og Idu Davidsen. ÞAÐ er nú vart hægt að segja að það sé rífandi gangur í útgáfu mat- reiðslubóka á íslensku. Utgáfa af þessu tagi er dýr, enda verða mat- reiðslubækur að vera vegleg- ar og helst litprentaðar, til að lifa mörg ár í hillu og markaðurinn er jú ekki sá stærsti á Vesturlöndum. Alltaf eru hins vegar ein- hverjar bækur er bæt- ast í flóru íslenskra matreiðslubóka og nú fyrir skömmu komu til dæmis út tvær skemmtilegar bækur. Annars vegar er önnur mat- reiðslubók sjónvarpskokksins vin- sæla, Sigga Hall, og hins vegar bók með smurbrauðsuppskriftum Idu Davidsen. Sigurð Hall þarf vart að kynna fyrir nokkrum manni. Þættir hans á Stöð 2 hafa notið mikilla vin- sælda um árabil og fyrir tveimur árum fetaði hann í fótspor margra erlendra kollega sinna og gaf út sína fyrstu uppskriftabók ,Að hætti Sigga Hall“, vel uppbyggða og sam- setta bók, sem oft hefur verið grip- ið til á heimilinu og ætíð reynst vel. Nú er svo komin önnur bók, sem vonandi mun reynast jafnvel. Uppskriftunum er skipt í nokkra kafla. Samkvæmt venju er fyrst að finna uppskriftir að súp- um og foréttum en síðan heilan kafla, sem helgaður er matargerð undir ítölsk- um áhrifum áður en kemur að fisk- réttum og kjötrétt- um. Uppskrift- irnar eru skýrar og auðvelt að fara eftir þeim og stór myndi fylgir hverjum rétt. Einn helsti kostur bókarinn- ar er lík- lega fjölbreytnir því að þótt mikið sé um rétti þar sem greina má sterk áhrif frá Miðjarð- arhafi og Asíu í hráefni og aðferð- um, líkt og vinsælt er í samtímaeld- húsinu, þá er þarna einnig að finna klassíska rétti, íslenska jafnt sem erlenda, s.s. Vínarsnitsel og nauta- steik með béarnaise. ,Að hluta til er þessi bók ein- faldari en sú fyrri og hafði ég að leiðarljósi að hún ætti að vera að- gengileg fyrir alla,“ segir Sigurð- ur. ,Ég vildi taka saman bók fyrir matreiðslufólk Islands, húsmæð- urnar og húsbóndana, sem eru að elda heima. Þetta á að vera heim- ilisbók og hugsuð sem slík þótt jafnframt séu þarna einnig upp- skriftir örlítið á sparinótunum. Meginþemað er kannski að mikið er lagt upp úr ferskleika, fersku grænmeti, kryddjurtum og öðrum afurðum. Það er heimspekin í stuttu máli.“ Bókin kostar 1.190 krónur og eru byggð á uppskriftum úr sjónv- arpsþáttum Sigurðar auk fullt af uppskriftum, sem hann hefur safn- að saman á síðustu árum. Alls er þarna að finna um tvö hundruð uppskriftir og er hver réttur mynd- skreyttur.,Ég er ekki ennþá búinn að tæma uppskriftabankann minn og á efni eftir í heila bók í viðbót,“ segir Sigurður og bætir við að hann leggi mikla áherslu á það við vinnslu bóka sinna að hver réttur sé eldaður og prófaður áð- ur en hann er notaður í bók. „Myndimar af réttunum byggj- ast allar á raunverulegri eldun og þetta er því ekki eins og maður hef- ur stundum séð í bókum að verið er að stilla upp myndum af réttum án þess að þeir hafi verið eldaðir sam- kvæmt uppskriftun- um.“ í bókinni má finna fínni rétti þar sem notaðar eru andabringur eða villibráð en jafnframt einfald- ari og léttari rétti auk sígildrar ís- lenskrar heimiliseldamennsku. ,Ég er þarna með kjötsúpu og saltkjöt og baunir, lambahrygg, hamborgarhrygg og kalkún með fyllingu. Þó að segja megi sem svo að þetta séu réttir sem allir þekki þá rigna yfír mig spurningar um hver jól hvernig eigi að elda mat af þessu tagi. Nú get ég bent fólki á að þetta sé allt skráð og skrifað í bókinni og fólk getur flett því þar upp.“ Raunar telur Sigurður ekki van- þörf á að leiðbeina ekki síst yngri kynslóðinni varðandi ís- lenska eldamennsku því svo virð- ist sem klassískur matur á borð við kjöt- súpu og saltkjöt gangi ekki lengur í erfðir á milli kynslóða. ,Þótt leiðin- legt sé þá virðist sem yngra fólk kunni ekki lengur að elda þennan mat. Líklega er súpukjöt og salt- kjöt það íslensk- asta af íslenskri matreiðslu, fyrir utan hrútspunga og lifrarpylsu, og það getur verið gott að hafa þetta skráð, þannig að þetta sé til á prenti.Hvað lambakjöt varðar þá sýnist manni líka ft eins og ekki sé talið fínt að nota annað en filé, aðrir hlutar af lambinu eru illselj- anlegir, s.s. skankar og frampar- tar. Þá hluta lambsins er hins veg- ars mjög gott að nota í ýmsa rétti en þeir eru hreinlega komnir úr tísku. Nú er ríkjandi að elda lambakjötið sem allra minnst en þótt að það eigi við um filé þá eru aðrir hlutar sem öðlast annað bragð við langa eldun og gefa mikla möguleika við matreiðslu, auk þess að vera ódýrt hráefni.“ Hin ein- stöku smurbrauð Da- vidsen-fjöl- skyldunnar Þótt Ida Davidsen sé dönsk þá hefur hún ekki verið minna áber- andi í íslenskri matar- menningu undanfarin ár. Má lík- lega færa sterk rök fyrir því að hún sé með þekktari Dönum á Islandi. Davidsen-fjölskyldan frá árinu 1888 rekið einhvern þekktasta veitinga- stað Kaupmannahafnar og verið leiðandi í smurbrauðs- gerð þar í landi og raunar á heim- svísu. Þeir eru nokkrir Islending- arnir sem hafa lært hjá Davidsen-fjölskyld- unni og enn fleiri er hafa notið veit- inga á hennar vegum. Síðustu árin hefur það verið árviss viðburður að sett hefur verið upp jólahlaðborð að hætti Idu Davidsen, fyrst á Hótel Borg og nú síðustu árin á Hótel Loftleiðum. Fyrir skömmu kom út Smur- brauðsbókikin eftir þær mæðgur Idu og Míu Davidsen (2.980 krón- ur) þar sem leyndarhulunni er svipt af fjölmörgum af bestu og þekkt- ustu uppskriftum Davidsen- fjöl- skyldunnar. Bókin er fallega myndskreytt og skemmtileg aflestrar, ekki síst þar sem litlar sögur eru oft tengd- ar við tilurð ákveðinna smur- brauða. Sum brauðin virðast til- tölulega einföld í framleiðslu en önnur kalla á töluverðan undir- búning og jafn- vel hráefnisleit. Þær mæðgur gefa til dæmis góð ráð við því hvernig búa má til eig- ið remúlaði, stökka laukhringi og rauðkál auk þess sem uppskriftin að kjötbollum Alice Ellemann- Jensen er látin fylgja með. Bók sem ætti að gleðja alla vini Dan- merkur og alls þess sem danskt er og vafalítið verða til að fjölga í þeim fjölmenna hópi. Sælkerinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.