Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 38
38 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999
Læknisþjónusta
Engin trygging er fyrir
því að samskipti
lækna og sjúldinga
séu ekki hleruð.
Hjarta
Heilsusamlegt líferni
getur dregið úr hættu
á hjartasjúkdómum
um allt að 80 prósent.
Megrun
Fólk sem ekki
bætti á sig aftur
stundaði fjölbreytta
líkamsrækt.
MORGUNBLAÐIÐ
Reykingar
Rannsóknir hafa bent til
þess að konum sé hætt-
ara við lungnakrabba-
meini en körlum.
Fyrirspurnir og ráðgjöf með tölvupósti verður sífellt algengari
Dulkóðun sögð nauðsynleg
Reuters.
AUKIN notkun tölvupósts og Netsamskipta
lækna eykur hættu á að upplýsingar um sjúklinga
verði aðgengilegar hverjum sem er, að því er
Bresku læknasamtökin (BMA) greindu frá.
Læknar og sjúklingar eru varaðir við því að sam-
skipti á tölvuneti BMA og öðrum tölvukerfum séu
ekki örugg nema skilaboð séu dulkóðuð.
Fyrirspumir í tölvupósti og jafnvel ráðgjöf með
þeim hætti verður sífellt algengari, og einnig vefsíð-
ur sem læknar geta notað til að skiptast á upplýs-
ingum á Netinu. Dr. Paul Cundy, formaður nefndar
á vegum BMA er veitir heimilislæknum tækniupp-
lýsingar, sagði enga tryggingu vera fyrir því að
samskipti lækna og sjúklinga séu ekki hleruð.
Cundy hefur farið fram á að heilbrigðisráðu-
neytið gefi út afdráttarlausar leiðbeiningar til
þess að læknar viti hvar þeir standi. „Netsam-
skipti eru opinber," sagði Cundy. „Maður hefur
ekki hugmynd um hver tekur afrit, hver les þau á
leiðinni, hvar þau eru geymd eða hver hefur að-
gang að þeim.“
Cundy sagði ennfremur að ekkert tölvukerfí
væri öruggt. Læknar ættu um tvo kosti að velja,
hætta að veita þessa þjónustu eða gera hana ör-
ugga með dulkóðun. Ella ættu þeir á hættu að
rjúfa trúnað við sjúklinga sína, sem gæti leitt til
þess að læknarnir yrðu kærðir fyrir læknaráðinu
og þeim refsað.
Talsmaður ráðuneytisins sagði að verið væri að
kanna hversu örugg rafræn geymsla og flutningur
upplýsinga væri. Athugunin færi fram í samvinnu
við lækna. Breska heilbrigðisþjónustan mun senda
frá sér nýjar leiðbeiningar snemma á næsta ári.
Kannabis-
lyf vænt-
anlegt eft-
ir þrjú ár
London. Reuters.
BRESKT lyfjafyrirtæki greindi
frá því nýverið að þess væri
vænst að innan þriggja eða fjög-
urra ára gæti það boðið upp á
lyf, unnið úr kannabis, sem
fengist gegn lyfseðli. Fólk sem
þjáist af sjúkdómum á borð við
MS hefur í mörg ár beðið um að
kvalastillandi lyf úr kannabis
verði fáanleg og hafa margir
gerst brotlegir við lög og keypt
efnið á svörtum markaði.
Dr. Geoffrey Guy, fram-
kvæmdastjóri GW-Iyfjafyrir-
tækisins, sagði að þegar hefðu
verið gerðar fyrstu tilraunirnar
þar sem fólki hefði verið gefíð
staðlaður skammtur af kanna-
bis. Hópur sjálfboðaliða tók lyfíð
við klínískar aðstæður í því
skyni að ákvarða heppilega
skammtastærð. Sumir tóku lyfið
á formi töflu sem leysist upp í
munni, en aðrir notuðu tæki til
að anda lyfinu að sér.
Guy sagði vísbendingar vera
um að kannabis gæti linað sárs-
auka hjá MS- sjúklingum, fólki
með mænuskaða og taugapínu.
Fyrirtækið myndi á næstu árum
meta þessa virkni lyfsins í um
tvö þúsund sjúklingum. GW hef-
ur heimild frá breska innanríkis-
ráðuneytinu til að rækta kanna-
bis í rannsóknarskyni. Gangi til-
raunir vel mun ráðuneytið
breyta lögum til þess að lyf úr
kannabisefnum verði fáanleg
gegn lyfseðli, að því er segir í til-
kynningu frá fyrirtækinu.
y
A höfuðverkur sér sálrænar orsakir?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Að hve miklu leyti á
höfuðverkur sér líkamlegar orsakir
og að hve miklu sálrænar? Eru til
margar tegundir af höfuðverk? Er
hægt að lækna höfuðverk með sál-
fræðilegum aðferðum?
Svar: Höfuðverkur getur átt sér
margar orsakir. Stundum er um að
ræða meinsemd í heila, t.d. æxli,
eða truflanir á heilastarfsemi af
völdum slysa eða sjúkdóma. Lang
algengustu tegundir höfuðverkja
eru þó spennuhöfuðverkur og
mígreni. Flest fólk fær höfuðverk
af og til og hjá mörgum veldur
hann vaniíðan sem leiðir til vinnu-
taps og notkunar verkjalyfja. Höf-
uðverkur er því umtalsvert heilsu-
farsvandamál og hefur í för með
sér töluverðan kostnað.
Mígreni einkennist af takt-
föstum sársauka sem venjulega
byrjar öðrum megin í höfðinu.
Kastið getur síðan haldið áfram
með svima og sjóntruflunum að
einhverju marki. Flökurleiki og
uppköst geta verið undanfari höf-
uðverkjarins. Vöðvaspennuhöfuð-
verkur lýsir sér sem daufur þrýst-
ingssársauki á enni, hálsi og aftan
á höfði.
Líffræðilegar ástæður fyrir
þessum tveimur tegundum höfuð-
verkja eru ólíkar. Spennuhöfuð-
verkur stafar af langvarandi sam-
drætti í vöðvum í höfði, hálsi og
herðum, sem oft má rekja til sál-
rænnar spennu. Mígreni stafar af
útvíkkun og samdrætti í heilaæð-
um. í undanfara mígrenihöfuð-
verkjar eru æðar í samdrætti, sem
veldur minnkuðu blóðflæði til hinna
ýmsu hluta heilans. Nokkru síðar
verður mikil útvíkkun á æðunum
sem veldur taktfóstum sársauka.
Verkurinn er oftast öðrum megin til
að byrja með, og þá við gagnauga,
en breiðist síðan smátt og smátt um
höfuðið sömu megin. Verkurinn
stendur í nokkrar klukkustundir,
eykst við áreynslu, en hverfur ef
sjúklingurinn nær að sofna.
Sálræn
streita
Margir mígrenisjúklingar
telja sig þekkja þau áreiti sem
valda köstunum, og sem dæmi má
nefna vín og súkkulaði. Rannsóknir
hafa þó sýnt að þótt fólk reyni að
forðast þessa áhrifaþætti fækkar
ekki köstunum. Einkenni spennu-
höfuðverkjar og mígreni fara oft
saman og margt bendir til þess að
stór þáttur í báðum þessum teg-
undum höfuðverkja sé sálræn
streita, og reyndar er vitað að upp-
lifun fólks á verkjum yfirleitt fer
mikið eftir sálrænni líðan þess. Or-
sakir höfuðverkjar er því að finna í
samverkandi þáttum, líkamlegum
og sálrænum.
Reynt hefur verið að sýna
fram á að höfuðverkir og aðrir
verkir tengist ákveðnum persónu-
leikagerðum. Komið hefur í ljós að
þeir sem mælast háir á tilfinninga-
semi finna meira til sársauka og
úthverfir einstaklingar hafa meira
sársaukaþol en innhverfir. Þrátt
fyrir þetta virðast úthverfir ein-
staklingar kvarta meira yfir sárs-
auka, enda minni hömlur á tján-
ingu hjá þeim. Langvarandi sárs-
auki er algengari hjá geðveiku
fólki en öðrum og þeir sem leita
læknis vegna höfuðverkja eru al-
mennt með meiri hugsýkieinkenni
en hinir sem ekki gera það. Að
öðru leyti hafa rannsóknir ekki
leitt í ljós að sérstökum persónu-
gerðum sé hættara við höfuðverk
en öðrum.
Sálfræðileg meðferð við
spennuhöfuðverk felst oftast í því
að minnka spennuna eða streituna
sem leiðir til höfuðverkjakastanna.
Atferlismeðferð gefur góðan ár-
angur. Þá er beitt slökun og líf-
rænni endurgjöf (biofeedback) og
sjúklingnum kennt að þekkja og
bregðast við hættumerkjunum og
þeim ytri aðstæðum sem eru oft
kveikjan að höfuðverk. Félagsfælni
og ótti við tiltekna hluti eða kring-
umstæður eru dæmi um slíkt og
sálfræðileg meðferð, sem beinist
að þessari vanlíðan hefur oft áhrif
á höfuðverkinn. Þá má einnig
nefna að viðbrögð annarra við höf-
uðverk sjúklingsins geta haft áhrif
á líðan hans. Ef sjúklingurinn fær
mikla athygli út á höfuðverk sinn
er líklegra að hann aukist og við-
haldist lengur. Ef aðrir sýna kvört-
unum sjúklingsins áhugaleysi og
beina athygli hans fremur að öðr-
um málum, er von til þess að hon-
um líði betur.
• Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það sem
þeim liggur á hjarta. Tekið er &
móti spumingum A virkum dögum
milli klukkan 10 og 17 / síma
5691100 og brófum eða s(mbréfum
merkt: Vikulok, Fax: 5691222.
Ennfremur símbréf merkt: Gylfi
Ásmundsson, Fax: 5601720.