Morgunblaðið - 27.11.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.11.1999, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Vísindasjóður Gildi grunnvísinda hefur opinberast fyrir t.d. fínnskum stjórnvöldum. Fjármögnun þeirra á ísl andi stendur á hinn bóginn í járnum, t.d. hefur fé í Vísindasjóði ekki vaxið í áratug. Gunnar Hersveinn leitaði eft- ir viðhorfum manna um stöðu grunnrannsókna við árþúsundamót og segir m.a. frá nýrri skýrslu um málið. Grunnvísindi njóta ekki enn Þarf að margfalda Vísindasjóð eða leggja hann niður? Er yelmegunin grunnvísindum í HI að þakka? Úthlutanir Vísindasjóðs 1990-1999 Ráðstöfunarfé og heildarupphæð umsókna Milljónir króna á verðlagi ársins 1999 800 700 600 500 400 300 200 100 0 r Heildarupphæð umsókna Ráðstöfunarfé ö ö ö 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 Fjöldi umsókna og fjöldi úthlutaðra styrkja 400 300 200 100 0 1.000 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 Meðalupphæð veittra styrkja (meðalstyrkur) Þúsundir króna á verðlagi ársins 1999 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 Grunnrannsóknir eru rann- sóknir sem ekki er fyrir- séð að hafi hagnýtt gildi í nánustu framtíð. Það eru rannsóknir sem leitast við að afla þekkingar þekkingarinnar vegna. I grunnrannsóknum er tekin áhætta, en þegar eitthvað gagnlegt kemur út úr þeim skiptir það gjarnan verulegu máli eins og tilurð út- varpsins, tölva, fúkalyfja og bólu- setninga sýna. Helstu framfarir á þessari öld má m.ö.o. rekja til grunnrannsókna. Grunnrannsóknir á Islandi hafa skipt verulegu máli í þjóðarbúska- pnum. Þær eru undirstaða kennslu á háskólastigi sem síðan er undir- staða fyrirtækja sem byggjast á sérhæfðu vel menntuðu starfsfólki, sem getur sjálft skapað þekldngu. Fyrirtækin Marel, Vaki, Össur, Lyfjaþróun, hugbúnaðarfyrirtækin öll, erfðatæknifyrirtækin, Islensk erfðagreining og Urður Verðandi Skuld, eru góð dæmi um fyrirtæki sem hafa þróast vegna rannsókna á Islandi eða byggjast á fólki sem hefur fengið_ menntun og reynslu við Háskóla Islands. En spumingin sem leitar á vís- indamenn er um fjármögnun grunnrannsókna á íslandi: Nægir hún til að áfram megi verða upp- bygging nýrra fyrirtækja sem eru að vinna nýja markaði og auka fjöl- breytni í atvinnulífi á Islandi? Helstu sjóðir sem úr er veitt til grunnrannsókna er, Rannsóknar- sjóður HI, og Vísindasjóður, sem hér er í brennidepli, en grunnrann- sóknir eru að meginhluta kostaðar af almannafé. Er vantrú á vísindum? „Það er einlæg ósk úthlutunar- nefndar að framlög til Vísindasjóðs verði stóraukin til að mæta aug- ljósri og sívaxandi grósku í öflugu vísindasamfélagi," segir í greinar- gerð úthlutunarnefndar Vísinda- sjóðs Rannsóknarráðs Islands frá 10. febrúar sl. Nefna má að vísinda- menn fengu 48,9 milljónir krónur, á þessu ári, úr Vísindasjóði vegna nýrra rannsókna. Hinsvegar var 50% af heildarfjölda A-umsókna hafnað, en 62 bárust. Ari áður var 62% umsókna hafnað. (A-umsókn merkir úrvalshóp). Verkefni voru núna að meðaltali styrkt um 790 þúsund krónur. I greinargerð út- hlutunamefndar Vísindasjóðs, frá 10. febrúar segir ennfremur: „Síaukin sókn ungra vísinda- manna til náms og rannsókna hefur nú leitt til þess að fjöldi mjög góðra umsókna um styrki úr Vísindasjóði er nú langt umfram það fjármagn, sem sjóðurinn hefur til ráðstöfun- ar. Fjöldi vísindamanna setur allt traust á að Vísindasjóður verði við beiðni þeirra um styrk, en verða síðan að horfast í augu við neitun, þrátt fyrir bestu meðmæli fagráða. Niðurstaðan verður óhjákvæmi- lega sú að samfélagið glatar tæki- fæmm, sem era borin uppi af hug- myndaauðgi, framsýni og metnaði." Árið 1987 hélt Vísindafélag ís- lendinga ráðstefnu um grannvís- indi á Islandi. Þar vora miklar von- ir tengdar við eflingu Vísindasjóðs og Rannsóknarsjóðs. Komið hefur á daginn að fjármagn sjóðsins hef- ur hefur ekki aukist á þessum ára- tug. Lokaorð Guðmundar Eggerts- sonar prófessors ll.,apríl 1987 á ráðstefnunni voru: „Ég vil að lok- um láta í ljós þá von mína að þessi ráðstefna verði mörgum hvatning til þess að vinna ötullegar en áður að eflingu grannrannsókna hér á landi.“ Núna segir Guðmundur: „Grannrannsóknir á Islandi era í algeru svelti og stundaðar af van- efnum. íslenskir vísindamenn era hinsvegar þrautsegir og gefast ekki upp. Aftur á móti er hætta á að úrvalsfólk sæki fremur í störf í út- löndum.“ Guðmundur Eggertsson er pró- fessor í sameindalíffræði, og hefur verið kallaður faðir erfðafræðir- annsókna á Islandi. Þegar hann kom heim úr námi fyrir þrjátíu ár- um var líffræðiskor Háskólans í burðarliðnum. Hann telur að síð- asta stóra afrek stjórnvalda vegna rannsóknarmála hafi verið árið 1966 þegar Raunvísindastofnun HI var stofnuð ásamt Vísindasjóði. „Ég hef tröllatrú á að grannvísindi séu afar mikilvæg fyrir þjóðina, og að þau eigi að vera skylda og stolt háskóla. En afstaða stjórnvalda á síðustu áratugum hefur einkennst af vantrú á vísindi. Skilningur þeirra er bundinn við hagnýtingu. A.m.k. hafa aldrei verið heitar um- ræður á Alþingi um rannsóknar- mál,“ segir Guðmundur. Þriðjudaginn 30. nóvember nk. verður haldin önnur ráðstefna um grannvísindi á íslandi: „Vísindi í leit að pólitík“. Hana heldur Rann- sóknarráð íslands (www.rannis.is) og hefst hún kl. 8:45 á Hótel Loft- leiðum. Þar verða m.a. kynntar nið- urstöður úttektar Ingu Dóra Sig- fúsdóttur og Þórólfs Þórlindssonar prófessors við HÍ fyrir menntamál- aráðuneytið, sem nefnist Staða grannvísinda á Islandi. Inga Dóra Sigfúsdóttir hefur einnig rannsakað þessa stöðu í M.A. ritgerð sinni „Grunnvísindi á íslandi. Skipulag og árangur" (nr. 1520, júní 1999, Háskóli íslands, Félagsvísindadeild). Fram kemur að staða íslenskra vísinda er sterk á alþjóðavettvangi. Hún sýnir að þeir hafi náð góðum árangri m.t.t. fjölda birtra vísindagreina þeirra í virtum ritum, og fjölda tilvitnana í vísinda- verkin. Aftur á móti er ísland undir meðaltali innan OECD í heildar- framlögum til rannsókna- og þró- unarstarfs, miðað við þjóðarfram- leiðslu. „Þá er fjárskortur til grannvísindastarfsins einn helsti veikleiki íslensks vísindastarfs að mati þeirra vísindamanna sem rætt var við, talinn hefta sköpunarmátt og koma í veg fyrir að eldmóður ungra vísindamanna sé nýttur til fulls,“ (bls. 91) ritar Inga Dóra. Grunnrannsóknir njóta ekki góðs af auknum útgjöldum Inga Dóra vitnar í Jakob K. Kri- stjánsson prófessor á raunvísinda- sviði en hann talar um að nútíma rannsóknir innan raunvísinda verði ekki stundaðar af viti nema með miklu fé: „Lágmarksstærð rann- sóknarhóps sé 10-15 manns, sem saman standi af leiðtoga (prófes- sor), nokkram vísindamönnum (sérfræðingum og „póstdoktor- um“), aðstoðar- og tæknifólki og stúdentum í BS-, MS-, og PhD- námi. Arsvelta í slíkum hópi miðað við íslenskar aðstæður sé nálægt 50 milljónum króna“ (bls 42). Inga Dóra kemst að þeirri niður- stöðu um fjármögnun vísinda- starfs, sem hún skoðar í smáatrið- um, að stöðug aukning á útgjöldum til rannsókna og þróunarstarfs hafi orðið hér á landi, sérstaklega frá árinu 1989. Hlutfallið var 1,8% af vergri landsframleiðslu árið 1997. Hinsvegar ritar hún: „Þjóðir sem Islendingar hafa gjarnan borið sig saman við hafa stóraukið framlög til rannsóknar- og þróunarstarfs. Má nefna Norðurlandaþjóðirnar, sérstaklega Svía (3,7% af VLFýog Finna (2,8% af VLF), svo og íra sem hafa fyllt nánast sömu hlut- fallsþróun og íslendingar." (bls. 44) í skýrslu Ingu Dóru og Þórólfs Þórlindssonar á ráðstefnu Rannís á þriðjudaginn, kemur fram að vera- leg breyting hefur orðið á verka- skiptingu og áherslum í rannsókn- um á síðari árum. Hlutfall útgjalda er árið 1997: atvinnufyrirtæki 41%, sjálfseignarstofnanir 1%, opinber- ar stofnanir 30%, æðri menntast- ofnanir 28%. En grunnrannsóknir hafa ekki notið góðs af auknum útgjöldum til rannsókna og þróunarstarfs og hef- ur hlutfall þein-a í heildarrann- sóknum dregist saman sem nemur um 10 prósentustigum. „Aukin út- gjöld til R&Þ virðast þannig ekki skila sér til eflingar grannrann- sókna. Ástæðan gæti verið sú að at- vinnufyrirtækin era í auknum mæli farin að fjármagna rannsókna- og þróunarstarf og þau sjá sér frekar hag í því að fjármagna hagnýtar rannsóknir og þróunarstarfsemi heldur en grunnrannsóknir.“ (Inga Dóra, bls. 48.) Vert er að geta þess að viðmælendur Ingu Dóra í rann- sókn hennar segja óyggjandi merld vera um að fyrirtæki kæmu til með að leggja aukna áherslu á grunnr- annsóknir í framtíðinni. Feikileg ásókn í styrki Inga Dóra skoðar ráðstöfunarfé þeirra sjóða sem styrkja grunnr- annsóknir og birtir myndir sem sýna að bilið á milli ráðstöfunarfjár Vísindasjóðs og heildarapphæðar umsókna hefur breikkað mikið og hófst sú þróun árið 1995. „Þetta sést vel á því að ráðstöfunarfé sjóðsins hefur hækkað úr 136,6 m.kr. árið 1992 í 168,3 m.kr. árið 1997. Á sama tíma hefur umsókn- um fjölgað úr 325 að upphæð 347,9 m.kr. árið 1992 í 368 að upphæð 626,4 m.kr. árið 1997“ (bls. 50). I skýrslu Ingu Dóru og Þórólfs kemur fram að þróunin er í þá átt að sú upphæð sem úthlutað erverð- ur sífellt minni hluti af heildarfjár- hæð umsókna. Árið 1990 voru þær 45% af heildarfjárhæð umsókna, en árið 1997 vora þær komnar niður í 27%. Ef vísindamenn á Islandi ætla áfram að standast alþjóðlega sam- anburð era breytingar, sem m.a. fela í sér meira fé en áður til grunn- vísinda, óhjákvæmilega framund- an. En hvaða? Hver er tilgangurinn með Vísindasjóði? „I stefnumörkun ríkisstjómar Davíð Oddssonar árið 1993 stendur skýrum stöfum að stækka eigi og auka fé opinberra sjóða til rann- sókna og með þessi orð í farteskinu fór Rannsóknarráð Islands af stað og bjó til áætlun um að 400 milljón- ir yrðu til ráðstöfunar árið 1998 eða 99 til að geta svarað umsóknunum um styrki,“ segir Kristján Kri- stjánsson forstöðumaður vísinda- sviðs og Vísindasjóðs Rannís. „Það eru ansi mörg verkefni sem fá ekki neitt úr sjóðnum og menn eru hættir að nenna að sækja hér um.“ Kristján segir að þrátt fyrir fram- úrskarandi verkefni sé ekki víst að neitt fáist úr sjóðnum, en ef það fá- ist er ekki víst að það sé nema um 25% af því sem sótt er um. En það má spyrja: Hvaða gagn er í að fá styrk fyrir fjórðung verks? Hvaða gagn er að þvi að veita 800 þúsund krónur í verkefni sem kostar 10 milljónir? Hver er tilgangur sjóðs sem veitir ekki betur? Kristján segir að efast megi um núverandi kerfi vegna þess að Vís- indasjóður er svo lítill. Hann spyr hvort það borgi sig að hafa um- fangsmikið matskerfi í kringum umsóknirnar. Hvað kostar það? „Ég held að þegar allt kemur til alls kosti um 100 milljónir að sækja þær 150 milljónir sem era í Vís- indasjóði,“ segir Kristján. Að skrifa umsókn kostar um 150-200 þúsund (m.a. vegna tímans sem fer í hana), það er kostnaður við að meta um- sóknina, hafa menn á launum hjá Rannís, hafa úthlutunarnefnd o.s.frv. Sjóðurinn er m.ö.o. of smár miðað við umgjörðina. Kristján efast um að réttlætan- legt sé að hafa svona dýrt ferli í kringum lítinn sjóð. „Er ekki nær að Rannsóknarráð Islands ákveði árlega hvert peningarnir fari, t.d. að 50 milljónir fari í hugvísindi. Er ástæða til að láta menn keppa um þennan pening?“ Kristján segir að Vísindasjóður hafi misst gildi sitt, hann sldpti ekki lengur nógu miklu máli. Áhrif hans era þverrandi. Hann nefnir Tæknisjóð til samanburðar en þar era meiri peningar og hærri úthlut- anir. í rannsókn (Stefáns Ólafsson- ar) á honum kom í ljós að verkefnin sem fengu hæstu styrkina skiluðu mestum árangri. Meðalstyi-kur í Tæknisjóði er 2,5 milljónir og sú upphæð getur gagnast vísinda- mönnum. „Ef það væru t.d. 450 mil- ljónir til úthlutunar úr Vísindasjóði væri hægt að styrkja öll A-verk- efni,“ segir hann og bætir við að sótt sé árlega um milljarð úr sjóðn- um.“ Niðurstaða Kristjáns er að ann- aðhvort eigi að margfalda sjóðinn og veita vísindamönnum fullan styrk fyrir verkefnin, eða að leggja hann niður og nota þessar 150 mil- ljónir til að efla vísindin á annan hátt. „í stefnu ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar frá árinu ’93 var því lof- að að efla þennan sjóð, en raungildi styrkjanna í honum hefur minnkað. Ríkissjóður setur 25 milljónir í hann og hitt kemur frá Seðlabanka íslands." Þessar 25 milljónir eru svona nokkurn veginn það sem kemur inn af sköttum (vsk.) vegna þessara verkefna sem styrkt era. Kristján segir að menn verði að ræða þessa stöðu Vísindasjóðs og taka ákvarðanir í framhaldinu. Hver er tilgangurinn með honum og hvernig er hægt að nýta fjár- magnið sem best? Hann vill um- ræður. Inga Dóra telur ekki rétt að veita meira fé í núverandi kerfi, það þurfi að stokka það upp. Ær og kýr háskóla En hefur ríkisvaldið trú á vísind- um? Af orðum menntamálaráð- herra í fréttabréfi Rannís (3. tbl. 5. árg. 1999) að dæma virðist svo vera: „Ekkert þjóðfélag fær staðist án öflugra rannsókna og vísinda. Því meira sem ég kynni mér þessi mál þeim mun sannfærðari verð ég um nauðsyn þess að efla rann- sókna- og þróunarstarf." Ríkis- stjórnin sem hann situr í er hins- vegar gagnrýnd í Ársskýrslu Rannís 1998. 25% alls rannsóknar- fjár átti að fara um opinbera sjóði, en eins og Kristján Kristjánsson bendir á var ekki staðið við það. 20% af tekjum af sölu ríkisfyrir- tækja og hlutabréfa í eigu ríkisins áttu að renna til rannsókna og þró- unar. Við þetta var staðið til 1998 en með ákvörðun um markáætlun um upplýsinga- og umhverfismál markaði ríksstjórnin þá stefnu að framvegis yrðu fjáiveitingar til rannsóknarmála ákveðnar með fjárlögum. Ástæðan er ef til vill að tekjurnar af sölunni urðu of mikl- ar? Og í skýi-slunni stendur: „Á síð- astliðnu ári var heildarhlutfall inn- lendra og erlendra sjóða, þar með úr rammaáætlun Evrópusamban-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.