Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 47
MARGMIÐLUN
DREAMCAST
Á SIGLINGU
NÝ LEIKJATÖLVA Sega, Dr-
eamcast, hefur heldur en ekld
slegið í gegn vestan hafs, því
samkvæmt upplýsingum frá
Sega hefur tölvan selst í yfir
milljón eintökum frá því hún
kom á markað. Þetta er talsvert
meiri sala en aðstandendur
Sega í Bandaríkjunum
höfðu spáð og mun
hraðari sala en á
PlayStation á sín-
um tíma.
D r e a m -
cast-tölvan
kom á
markað
vestan
hafs 9.9. sl.
Tölvan kom
á markað í
Japan á síðasta
ári, en salan var
dræm þar framan af, ekki
síst vegna þess að lítið framboð
þótti af leikjum. Síðan hafa
Sega-menn keppst við að búa
svo um hnútana að mikið sé til af
leikjum og um leið lagt mikla
áherslu á nettengimöguleika
tölvunnar, en öllum tölvunum
fylgir mótald. Sú áhersla, mikill
fjöldi leikja og snjöll markaðs-
setning, gerði að verkum að að-
faranótt níunda september voru
biðraðir við verslanir sem seldu
Dreamcast og rífandi sala frá
fyrsta degi.
Markaðsstjórar Sega í Banda-
ríkjunum spáðu því að tölvan
myndi ná mfiljón eintaka sölu
eftir jól, og því er salan talsvert
meiri en þeir ætluðu, ekki síst
í Ijósi þess að mesti
sölutími ársins er
framundan.
I Evrópu
hefur sala
líka verið
meiri en
spáð var, því þar
hafa selst um
400.000 eintök af
tölvunni, en hún
kom á Evrópu-
markað 14. októ-
ber sl.
Eins og getið er
töldu Sega-menn að tölvan
myndi ná milljón eintaka sölu
vestan hafs eftir jól og stefndu á
tvær milljónir fyrir 31. mars á
næsta ári og sex milljónir ári síð-
ar. Samkeppnin á þó eflaust eftir
að harðna næsta haust þegar
Sony setur á markað PlayStation
2 og Nintendo Dolphin-tölvu
sína, sem eru báðar 128 bita
leikjatölvur líkt og Dreamcast,
en talsvert öflugri á pappírnum.
Blanda af Cool Boarders
og Gran Turismo
LEIKIR
Fyrir skömmu gaf EA Sports út
leikinn Sled Storm. Leikinn hannaði
EA Canada, en þema hans er kapp á
vélsleðum. Leikurinn er sérstaklega
hannaður fyrir Dual Shock-stýripinn-
ana en einnig er hægt að nota veriju-
legan stýripinna.
SLED Storm snýst ekki bara
um það að keppa, spilendur geta
gert tugi sérstakra „bragða" í loft-
inu og má þar á meðal nefna helj-
arstökk (á vélsleðum!).
Spilendur geta ákveðið hvort
þeir vilji keppa í venjulegri keppni
eða keppt í svokölluðu „super-
snowcross". I síðarnefndu braut-
inni er megináherslan lögð á að
gera flott brögð í loftinu en í venju-
legri keppni geta spilendur fundið
fjöldann allan af földum stökkpöll-
um, földum hlutum og styttri leið-
um og fundið nýjar brautir til að
keppa á.
I raun og veru er Sled Storm
samblanda af Cool Boarders og Gr-
an Turismo. Ef spilendur geta ekki
keppt við hina sleðana í leiknum er
alltaf hægt að uppfæra sleðann. Allt
er til, frá betri Ijósum til keyrslu í
myrkri eða þoku til betri grinda
sem eru sérstaklega hannaðar til að
skera loftið betur. Einnig er hægt
að kaupa uppfærslur fyrir nýju
uppfærslumar svo spilendur munu
seint eiga hinn fullkomna sleða.
Nú, á fimmta ári PlayStation-
tölvunnar, hafa framleiðendur lært
nokkurn veginn allt sem hægt er
að gera með henni; grafík leikj-
anna sem framleiddir eru í dag
gerist ekki betri. Sled Storm er
engin undantekning, leikurinn lítur
frábærlega út og allar hreyfingar,
eins og þegar spilandinn er að
stökkva, detta eða bara næstum
því detta eru sjaldan eins tvisvar í
röð og allar líta vel út.
Hljóð leiksins er einnig afar gott,
hjálplegar en asnalegar raddir
kalla til þín í loftinu nafnið á bragð-
inu sem þú ert að gera en fyrir þá
sem ekki þola asna er hægt að
lækka allt svoleiðis niður. Tónlist
leiksins er afar góð (ef þú fílaðir
Sororicide) brjálæðingar eins og
Rob Zombie og Uberzone eru með-
al þeirra sem spila í leiknum en
spilendur geta að minnsta kosti
valið lög á meðan tölvan hleður
hverja braut.
Sled Storm er án vafa besti leik-
ur í heimi... fyrir vélsleðafrík. Við
hinir sem höfum aðeins örlítinn
áhuga á leiknum vegna þess að
hann gerist í snjó ættum kannski
að leigja hann fyrst.
Ingvi M. Árnason
Þjónustuver Símans
3MJ7000
Fylgstu með
símtalskostnaðinum
1 Gjaldfrjálst númer
5
o
o
f Nú er hægt að fylgjast með símtalskostnaði á skjánum á ISDN símtækinu þínu, jafnóðum og talað er.
SIMINN
www.simi.is
Allar tölvur fráBT
fáanlegarmeð
30.000,- krona
/36 afslaettií
Nú býður
Fríðiiula-
klúbburinn, (
samstarfi við BT og Margmiðlun, korthöfian
VISA dtrúlegt tilboð. Þeir sem gerast
dskrifendur hjd Margmiðlun til 36 mdnaða
fd 30.000 krdna rafrænan afsldtt af hvaða
tölvu sem er hjd BT!
Þetta er sára einfalt
Þú gerist áskrifandi að Intemetinu hjá
Margmiðlun t ncestu BT verslun og
mánaðarlega eru kr. 1.375,-skuldfœrðar á
VISA kreditkortið þittfyrir dskrifiinni. Þar
með stendur þér til boða kr. 30.000,- rafrænn
afsldttur afhvaða tölvu sem er hjá BT!
VISA er leiðandi (rafrœnum '
viðskiptum d netinu. VISA ————
Skjdveskið er uppsett á öllum tölvumfrá BT
sem tryggir öryggi
' TiiÍfSÉ? Jt bœði korthafa og net-
"WhRK' * ** verslunar.
FRÍÐINDAKIÚBBURINN
Margmiðlun er einn stœrsti
TrTTTli internetmiðlari landsins og
-rEÝVÍ-AZjC- hefur þjdnustað netverja frá
Marumlölun hí. árinu 1995. Áskriftin kostar
krdnur 1.375,- með vsk á mánuði og verður
upphæðin skuldfærð á VISA kreditkortið þitt
mánaðarlega á áskriftarlímanum.
Innifalið er netfang, 5MB heimasíðusvœói og
30 MB gagnaflutningur á mánuði.
• 15" vandaður skjár • 3,5" disklingadrif jnr.
• 433 MHz Intel Celeron • 40X geisladrif
með 128K L2 cache • 56K V90 mótald LÍQ rtzrii
• 64MB innra minni »16 Bita hljóðkort
• 4,3GB harður diskur • Hátalarar
• 8MB ATi skjákort AGP • Win 98SE, Word 97, Works 4.5
Í36 - Dæmi #7
BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020 • BT Kringlunni - S: 550-4499 • BT Reykjanesbæ - S: 421-4040 • BT Akureyri - S: 461-5500