Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 53
RAGÚEL
HAGALÍNSSON
+ Rag-úel Haga-
línsson fæddist
á Leiru í Jökulfjörð-
um 12. apríl 1921.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Isafirði 19. nóvem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru hjónin Hagalín
Stefán Jakobsson, f.
23. júní 1888, d. 13.
febrúar 1959, og
Rannveig Guð-
mundsdóttir, f. 10.
janúar 1893, d. 27.
maí 1972. Ragúel
átti fjögur systkini: Matthías, f.
11. júlí 1918, d. 9. febrúar 1946,
Jakob, f. 10. ágúst 1919, d. 3.
júní 1988, Rebekku, f. 15. sept-
ember 1923, og Margréti, f. 12.
febrúar 1927. Þá ólu foreldrar
hans upp Karl Pálsson, f. 24.
júní 1938, og dótturson sinn,
Smára Haraldsson, f. 20. febr-
úar 1951, til tíu ára aldurs. Eftir
það átti Smári sitt annað heimili
hjá Ragúel og fjölskyldu hans.
Hinn 8. október 1960 kvænt-
ist Ragúel Helgu Stígsdóttur
frá Horni, f. 24. ágúst 1926.
Foreldrar hennar voru Stígur
Haraidsson bóndi á Horni, f. 13.
september 1892, d. 8. septem-
ber 1954, og Jóna Jóhannes-
dóttir húsfreyja á Horni, f. 1.
september 1892, d.
15. mars 1984.
Börn Ragúels og
Helgu eru: 1) Rann-
veig, f. 9. maí 1960,
maki Amad Hajo, f.
12. mars 1955. Syn-
ir þeirra eru Salar,
Sipan og Fannar. 2)
Hallfríður, f. 1. júlí
1962. Börn hennar
eru Helga Björg,
Andri Páll og Ja-
kob Heiðar. 3) Stef-
án Hagalín, f. 16.
júní 1964, maki
Berglind Árnadótt-
ir, f. 3. febrúar ..1961. Synir
þeirra eru Birkir Örn og Elvar
Ari og dóttir Berglindar er
Sandra Dís. 4) Jóna Ragnhildur,
f. 6. maí 1969. Sonur hennar er
Árni.
Ragúel stundaði sjómennsku
framan af ævinni. Hann tók við
búi í Sætúni í Grunnavík við lát
föður síns og bjó þar til ársins
1962 er byggð lagðist af í
Grunnavíkurhreppi. Þá fluttist
Ragúel til Skutulsfjarðar þar
sem hann hóf vinnu í Hrað-
frystihúsinu Norðurtanganum
hf. þar sem hann vann þar til
fyrir rúmum tveimur árum.
Útför Ragúels fer fram frá
Isafjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Vandaður maður hefur kvatt
jarðvistina. Hann bar sjaldgæft
nafn og var afar einstakur maður.
Ragúel Hagalínsson fæddist á
Leiru í Jökulfjörðum í Grunnavík-
urhreppi. Hann ólst upp á Leiru
og Steinhólum, en fluttist. til
Grunnavíkur árið 1941. Til ísa-
fjarðar flutti hann með sveitung-
um sínum árið 1962. Þar með fór
Grunnavíkurhreppur í eyði. Með í
þeirri för var líka eiginmaður
minn, Smári Haraldsson.
Ragúel var stoltur af sveitinni
sinni fögru og rifjaði oft upp at-
burði sem þar gerðust. Ragúel
vandaði líf sitt, var alltaf í góðu
skapi, afskaplega hlýr maður og
gaf mikið af sér. Orðheldinn og
orðvar svo af bar. Börnin mín hafa
oft haft á orði: Ragúel frændi blót-
ar aldrei. Eftir að Ragúel flutti til
ísafjarðar vann hann í Hraðfrysti-
húsinu Norðurtanganum hf. Hann
lét sér annt um vinnuna sína og
sína vinnuveitendur.
Ég kynntist honum sem móður-
bróður mannsins míns, þegar ég
fluttist vestur á ísafjörð árið 1977.
Ragúel bjó í Brautarholti, sem
er í botni Skutulsfjarðar. Brautar-
holt var nánast uppi í sveit á átt-
unda áratugnum. Þar bjó hann
með konu sinni, Helgu Stígsdóttur
frá Horni í Homvík. Þau eignuð-
ust 4 börn. Rannveig, móðir Rag-
úels, var hjá þeim til heimilis þar
til hún lést árið 1972.
þorrablótum Grunnvíkingafélags-
ins, án þess að vín kæmi inn fyrir
hans varir. Frásagnargleði Rag
úels var slík að oft fannst mér ég
vera komin til Grunnavíkur á
miðri öldinni þegar þeir bræður og
frændur þeirra reru á trillum sín-
um fram í Djúpið og undir Grænu-
hlíð.
Ogleymanleg verður hringferð-
in, kringum landið, sem við hjónin
fórum í með þeim Ragúel, Helgu
og Jónu Ragnhildi, dóttur þeirra,
sumarið 1978. Farið var á tveimur
gömlum bílum og tók ferðin viku.
Oft vitnuðum við í ferðina og
glöddumst yfir henni. Alla frænd-
ur og frænkur þurfti Ragúel að
heimsækja og gaf hann sér drjúga
stund hjá hverjum og einum. Þá
skorti stundum þolinmæði hjá mér
Reykjavíkurstúlkunni, en ég sat á
mér og hlustaði á sagt frá löngu
liðum atburðum.
Það er ekki unnt að skrifa um
Ragúel án þess að nefna systkini
hans, sem voru honum öll kær.
Matthías var elstur systkinanna
og var öllum harmdauði þegar
hann drukknaði árið 1946, aðeins
28 ára gamall. Jakob, bróðir hans,
lést árið 1988._Hann bjó í Grunna-
vík og síðar á ísafirði. Tvær systur
lifa, Rebekka í Vestmanneyjum og
Margrét, tengdamóðir mín, í
Reykjavík.
Mætur maður hefur kvatt. Ég
vil þakka alla vinsemd og ástúð
sem Ragúel sýndi mér og fjöl-
skyldu minni. Guð blessi minningu
hans.
Helga Friðriksdóttir.
Elsku afi, við söknum þín svo
mikið, þú varst svo góður maður.
Þú vildir bara dunda þér við að
smíða bátalíkön niðri í kjallara eft-
ir að þú hættir að vinna, en gerðir
ekki eins mikið af því og þú hafðir
áhuga á að gera. Við munum þegar
við gátum dundað okkur niðri í
kjallara hjá þér við að smíða smá-
báta, síðan fórum við alltaf niður í
fjöru í hvítu Norðurtanga-stígvél-
unum þínum til að leika okkur með
bátana. En það endaði oftast með
því að bátarnir fóru of langt frá
fjörunni og við á eftir út í sjó og
rennblotnuðum en það gerði ekk-
ert til því þú reiddist okkur aldrei.
Þegar Salar kom til Isafjarðar í
heimsókn til þín og ömmu gátu þú
og Salar alltaf talað mikið saman
og tókuð oft rúnt niður í bæ, ykkur
kom svo vel saman. Það var alltaf
gaman að tala við þig því þú hafðir
alltaf frá svo mörgu að segja frá
því í gamla daga. Alltaf þegar að
við vorum döpur varstu vanur að
koma og hugga okkur, þér fannst
ekki skipta neinu máli hvað við
hefðum gert heldur komstu alltaf
og talaðir við okkur og komst okk-
ur í gott skap. Stundum varstu of
góður t.d. þegar mömmur okkur
vildu ekki gefa okkur pening laum-
aðir þú oft að okkur pening eða
keyrðir út í Brúarnesti og keyptir
eitthvað gott handa okkur.
Afi, við vorum svo ánægð og
stolt þegar þú varst valinn heið-
ursgestur á seinustu Flæðareyrar-
hátíð. Þú varst alltaf svo ánægður
og hissa þegar einhver gerði eitt-
hvað gott fyrir þig því þú varst
vanur að hugsa svo mikið um aðra
að þú gleymdir stundum að þú
ættir jafn gott skilið og aðrir. Það
er ekki nema tæpt ár síðan þú og
amma svifuð um dansgólfið á sól-
arkaffi Isfirðinga. Við munum
þegar við vorum ein heima með
þér, þá spilaðir þú oft fyrir okkur á
harmonikkuna og við gátum alltaf
komið með óskalög. En uppáhalds
lagið þitt var Ég leitaði blárra
blóma.
Elsku amma, megi Guð vera
með þér.
Hér kemur lítið ljóð.
Afi góði blíði og rjóði
þú blést í burtu okkar bræði
með þinni þekktu þolinmæði.
Okkur þykir fráfall þitt svo leitt
við elskuðum þig svo rosalega heitt
þú varst svo góður og um lífið fróður.
Svo loksins eftir margra ára puð
var komið að því að hitta Guð.
(Andri.)
Guð geymi þig, elsku afi.
Helga Björg Hafþórsdóttir,
Jakob Heiðar Sæmundsson,
Andri Páll Sæmundsson og
Salar Hajo.
Heiðarlegra og betra fólk er
vandfundið en þau hjón. Heimilið
var alltaf opið fyrir þeim einstakl-
ingum sem á hjálp þurftu að halda
um skemmri eða lengri tíma. Mjög
gestkvæmt var þar, þannig að
margir hafa þegið kaffisopa og
hlýtt viðmót í gegnum tíðina í
Brautarholti.
Sársaukafullt hefur það verið að
yfirgefa heimabyggðina og sjá
byggðina þar með leggjast af.
Þessi reynsla hafði greinilega mik-
il áhrif á Ragúel. Aldrei fann ég þó
neina beiskju hjá honum í garð yf-
irvalda eða forsjónarinnar sem
stýrðu þessu á þennan veg. Enn
sér ekki fyrir endann á fólksflutn-
ingum hér vestra.
Sterkar taugar lágu til heima-
slóðanna. Ótaldar kirkjuferðir og
aðrar ferðir sem til féllu voru not-
aðar til að sækja þær heim.
Ragúl var hagur maður á tré og
járn. Hann eyddi mörgum stund-
um í kjallaranum í Brautarholti
við smíðar. Mörg líkön af bátum
vitna um handbragð hans.
Ragúel var mjög góður dans-
maður og var manna hressastur á
Birting afmælis- og
minnmgargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt-
ingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn
blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í
Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is)
— vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfi-
legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmai'kast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða
2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða
eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi
útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg
fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa
sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru rit-
vinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
t
Faðir okkar,
EIRÍKUR KETILSSON
stórkaupmaður,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 29. nóvember kl. 13.30.
Ásgeir Hannes Eiríksson,
Guðrún Birna Eiríksdóttir,
Dagmar Jóhanna Eiríksdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
NÍELSÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
(ínu),
Réttarholtsvegi 83.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki deildar
B-4, Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Elísabet Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Guðmundsson,
Guðmundur Jónsson, Brynja Baldursdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir, Hiimar Helgason,
Jensína Jónsdóttir,
Eiríkur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
TRYGGVA TÓMASSONAR,
Björk,
Grímsnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima,
Selfossi.
Ingibjörg Pálsdóttir,
Guðrún Tryggvadóttir, Hörður Smári Þorsteinsson,
Tómas Tryggvason, Þórdís Pálmadóttir,
Páll Ragnar Tryggvason, Sigríður Björnsdóttir
og barnabörn.
V-
t
Dýpstu þakkir sendum við öllum er vottuðu
virðingu sína, hlýhug og hluttekningu við
andlát og útför
ÆVARS HRAFNS ÍSBERG
þessa nóvemberdaga við aldahvörf.
Alúðarþakkir sendum við starfsfólki Heima-
hlynningar Krabbameinsfélags íslands og
líknardeildar Landspítalans fyrir frábæra hjálp
og umönnun.
Vilborg Bremnes ísberg,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför,
MAGNÚSARJÓNSSONAR,
Selási 26,
Egilsstöðum.
Ármann Örn Magnússon, Erla Jónasdóttir,
fósturbörn, barnabörn og langafabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og vináttu vegna
andláts móður minnar og tengdamóður,
HREFNU RAGNHEIÐAR MAGNÚSDÓTTUR,
Hlíðarvegi 30,
ísafirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungs-
sjúkrahússins á ísafirði sem sýndi henni mikla
virðingu.
Magnús Reynir Guðmundsson, Guðrún Gunnarsdóttir.