Morgunblaðið - 27.11.1999, Qupperneq 60
J»0 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999
UMRÆÐAN
MGRGUNBLAÐIÐ
, 200 valkostir
um flugvöll
FYLGISMENN
flugvallar í Reykjavík
gera kröfu um full-
kominn millilanda-
flugvöll með 3 braut-
um. Andstæðingar
->hans vilja engan völl.
Sem leikmanni virðist
mér þó að með mis-
munandi samsetning-
um brauta, í mismun-
andi lengdum, með og
án snjóbræðslu,
o.s.frv. megi gera um
30 útfærslur af flug-
velli í Reykjavík. Pá
má gera ráð fyrir
a.m.k. 7 mismunandi
þjónustustigum, allt frá því að ein-
skorða umferð við áætlunarflug
innanlands og upp í að hýsa þar
áætlunar og leiguflug innanlands
og utan, einkaflug, ferjuflug og æf-
inga- og kennsluflug.
Þ.e.a.s. a.m.k. 30
ólíkar útfærslur á velli
hver með 7 ólíkum
þjónustustigum eða
alls yfir 200 valkostir í
stað tveggja. Vega
verður og meta ólíka
kosti með tilliti til flug-
öryggis, nýtingar,
hagsmuna flugfélaga,
atvinnulífs í Reykja-
vík, landsbyggðar,
þjóðhagslegs ávinn-
ings, umhverfisáhrifa,
skipulagsþýðingar,
o.s.frv., en ekki annað
hvort láta skipulags-
hagsmuni Reykjavíkur ráða eða
ýtrustu kröfur flugsins.
Æskilegast fyrir Reykjavík væri
A/V brautin ein með öflugu snjó-
bræðslukerfi er tryggði góð
Helgi Hjörvar
List skáldsögunnar
Milan Kundera
Kundera og list
skáldsögunnar
Skáldsagnahöfundurinn
vinsæli, Milan Kundera,
útskýrir hér í viðtölum
og greinum hugmyndir
sínar um skáldsöguna
og þróun hennar.
Geysivinsæl bók sem nú
er komin út á fjörutíu
tungumálum.
★ ★ ★ ★
Súsanna Svavarsdóttir, Stöð 2
Mál og menning
malogmenning.is
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • S
Reykjavíkurflugvöllur
Sé einhver þessara leiða
fær telur Helgi Hjörvar
að skipulagshagsmun-
um Reykjavíkur sé
mætt að nokkru.
bremsuskilyrði. Pá mætti miða við
allt að 20 hnúta hliðarvind í stað 13,
er skilað gæti allt að 92,84% nýting-
arhlutfalli en það er nú 98,5%.
ATR-vélar Islandsflugs miða við
allt að 38 hnúta hliðarvind og má
búast við framförum flugvéla á
nýrri öld. Við þetta losnuðu verð-
mætustu spildur landsins, en mark-
aðsverðmæti þeirra mætti áætla
um einn milljarð. Par risi íbúðar-
byggð er stytti ferðir þúsunda
manna til og frá vinnu um margar
klukkustundir í mánuði hverjum.
Þar myndu líka skapast mikilvæg
atvinnusvæði í tengslum við helstu
þekkingarfyrirtæki þjóðarinnar,
Landspítalann og Háskólann, þjóð-
inni allri til hagsbóta. Látlaus flug-
umferð yfírmiðborgina heyrði sög-
unni til. Agallar væru þeir að
nýtingarhlutfall væri 2,16% undir
æskilegum viðmiðunum Alþjóða
flugmálastofnunarinnar. Þá er
A/V- brautin 30 m breið meðan
N/S- brautin er 45 m. Oryggissvæði
til hliðar við brautina er 150 m en
Vilt þú fara vel með
PENINGANA
þína ? ? ?
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL
HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á fslandi
Núverandi flugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur samkvæmt tillögu Helga Hjörvars.
300 m við N/S braut. Meta þarf
hver áhætta fylgir því að draga
með þessum hætti úr þjónustustigi
vallarins. Jafnframt þyrfti að meta
hver áhrif þéttari byggð og minni
umferð á landi hefði á slysatíðni.
Þá eru til samsettar lausnir er
hliðra A/V-braut, lengja hana,
halda áfram suðvesturbraut sem er
stutt en liggur þvert á, halda syðri
hluta N/S brautar, en miða að því
að loka þeim síðar.
Sé einhver þessara leiða fær er
skipulagshagsmunum Reykjavíkur
mætt að nokkru. Hagsmunir flug-
félaga eru að mestu tryggðir, að-
gengi landsbyggðar að höfuðborg
sömuleiðis og sjúkraflugs að mestu.
Þjóðhagslegur ávinningur virðist
mikill og umhverfisáhiif jákvæð.
Næsta sumar á að verja 240 mill-
jónum króna til endurbóta A/V-
brautar. Mikilvægt er að þegar
verði lagt mat á ólíka kosti við þær
endurbætur og blekkingunni um
tvo valkosti eytt, því þeir eru 200.
Höfundur er forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur.
Canon Prima Zoom Shot í gjafakassa
; •Alsjálfvirk 35mm myndavél með sjálfvirkum fókus
• 38-60mm rafdrífin aðdráttarlinsa með Ijósopi
4,5-6,7 •Prjár mismunandi
flassstillingar •lAgmarksfjarlægð
frá myndefni er aðeins 0,45m
• Taska, ól og rafhlöður fylgja
Canon IXUS M-1 í gjafakassa
•AlsjálfvirkAPS myndavél •Móguleikiáþremurrriynda-
stærðum •23mm rafdrifín linsa með Ijósopi 4,8 *Vegur
aðans 115g •Sjálfvírkur fókus og auðveld filmulsetning
• Möguláki á dagsetningu og texta aftan á mynd
•Sjálfvirkt innbyggt fiass •Taska, ói og __
rafhlöðurfylgja