Morgunblaðið - 27.11.1999, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 61 -
Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir
Ef endurvekja á tiltrú
fólksins í landinu á
----------------7----------
Hæstarétti Islands,
segir Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir, þá
verður það að fá svör við
þessum ósvöruðu spurn-
ingum.
snerist þegar hún kom á staðinn.
Þær voru sendar beint fyrir stóra-
dóm skólans og var dótturinni gef-
inn kostur á að biðja kennarann
afsökunar á staðnum. Aldrei var
stúlkunum gefinn kostur á að
skýra mál sitt eða kannað hvort
kvörtun þeirra átti við rök að
styðjast.
Það vekur athygli að hinn
„snjalli" lögmaður skuli taka
svona setningu algerlega órökst-
udda og úr samhengi og senda
hana þjóðinni sem staðfestingu á
sakleysi ákærða. Ef önnur vinnu-
brögð hans í þessu máli hafa verið
með þessum hætti vil ég ekki bara
leyfa mér að efast um snilli hans
Hvers
Jón Steinar Gunn-
laugsson lögmaður
hefur þeyst milli fjöl-
miðla undanfarna
daga tD að verja mál
sem hann hefur nýl-
ega unnið í Hæsta-
rétti og fólkið í land-
inu greitt honum
fyrir. Fólk sem hann
kallar reyndar múg
og dómstól götunnar
og má skilja á máli
hans að sé varla læst
og alls ekki hugsandi.
Aldrei hef ég séð
jafnmikla lítilsvirð-
ingu skína frá einum
manni í garð annarra
íslendinga. Ég vil vekja athygli
Jóns Steinars á atriðum sem virð-
ast alveg hafa farið fram hjá hon-
um í þessum darraðardansi. Al-
menningur í landinu er vel læs.
Þúsundir manna hafa lesið dóm
Hæstaréttar. Allir sem hafa tjáð
sig með greinaskrifum eða pistl-
um hafa lesið dómsniðurstöður ýt-
arlega. Sakborningur hefur játað
á sig sakir sem hverjum velhugs-
andi manni þykja meir en nógar
til að sekfella hann. Fólkinu í
landinu ofbýður að ekki skuli hafa
verið hægt að sakfella ákærða fyr-
ir þær sakir sem hann játaði á sig.
I viðtali sem Kolbrún Bergþórs-
dóttir, kunningjakona ákærða, tók
við Jón Steinar og birt var í helg-
arútgáfu Dags, með yfirskriftinni
„Nýjar upplýsingar verjanda“ í
kynningu á forsíðu, kemur ýmis-
legt fram. Þar er þó ekki að finna
neinar upplýsingar sem ekki
höfðu legið fyrir og er vitnað í í
opinberum gögnum. Það er hins
vegar nýtt að lögmaður sem unnið
hefur í dómsmáli sem fór fram
fyrir luktum dyrum skuli birta
orðrétt í fjölmiðlum upplýsingar
sem hefði mátt ætla að væru trún-
aðargögn. Er þetta leyfilegt sam-
kvæmt siðareglum lögfræðinga
eða eru slíkar siðareglur yfirleitt
til? í hinu orðinu leggur lögmað-
urinn áherslu á að gæta þurfí
hagsmuna og friðhelgi fjölskyldna
þeirra sem hér eiga hlut að máli.
Getur almenningur sem þarf að
leita réttar síns fyrir dómstólum
átt von á slíkum vinnubrögðum?
Jón Steinar hefur sýnt að hann
rétti íslands verður það að fá svör
við þessum ósvöruðu spurningum.
Varðandi umfjöllun Illuga Jök-
ulssonar í þætti sínum Frjálsar
hendur vil ég frábiðja mér samúð
Jóns Steinars í garð stúlkunnar
og aðstandenda hennar. Sjálfur
notar hann hvert tækifæri með
rangfærslum og útúrsnúningum
til að sverta mannorð þessarar
sömu stúlku. Ef hann vill halda
áfram að misþyrma stúlkunni á
þennan hátt eru ennþá vitni og at-
burðir sem ekki hafa komið fram.
Upplýsingar sem mundu renna
styrkum stoðum undir trúverðug-
leika frásagnar hennar. Sjálfsagt
hefur ekki verið talin ástæða til að
draga þá hluti fram í dagsljósið til
að hlífa öðru fólki sem um sárt á
að binda og kýs að lifa í þögninni.
Ekki ætla ég að lá því það. Enda
verða líklega fleiri sem velja að
bera harm sinn í hljóði hér eftir ef
ekkert verður að gert.
Höfundur er arkitekt og ættingi
kæranda.
vegna þegja lögmenn?
er bæði klókur og út-
smoginn lögmaður en
seint myndi ég^ orða
það við snilli. f um-
ræddu viðtali í Degi
er dregið út bæði á
forsíðu og inni í blað-
inu: „Það kom einnig
fram í þessu máli að
stúlkan, hafði orðið
uppvís að því að bera
kennara sinn röngum
sökum um kynferðis-
lega áreitni." Fullyrð-
ing sem kemur mál-
inu í sjálfu sér ekkert
við. Hið sanna er að
nokkrar stúlkur fóru
til skólastjóra og
kvörtuðu í grandaleysi undan ein-
um kennara sínum. Móttökur
skólastjóra voru með ólíkindum.
Móðir stúlkunnar var kölluð til og
vissi hún ekkert um hvað málið
sem lögmanns heldur líka um rétt
hans til að starfa sem lögmaður.
Meðferð hans á skýrslum sérf-
ræðinga um geðheilsu kæranda
sem líka hefði mátt ætla að væru
trúnaðargögn í Hæstarétti renna
stoðum undir þetta. Þjóðin horfir
spyrjandi á. Eru svona vinnu-
brögð leyfíleg, viðurkennd og al-
geng í Hæstarétti? Getur hver
sem er afhent sækjanda eða verj-
anda gögn utan úr bæ? Taka dóm-
arar í Hæstarétti þegjandi og
hljóðalaust við slíkum gögnum og
byggja á þeim niðurstöður sínar?
Þykir sjálfsagt að slík gögn fái
sama eða jafnvel meira vægi en
gögn og skýrslur sem dómarar
kalla sjálfir eftir og lögð eru fyrir
héraðsdóm?
Fólkið í landinu spyr spurninga
sem enginn virðist geta svarað.
Spurninga sem það á rétt á að fá
svör við. Er réttarkerfið ekki í
stakk búið til að takast á við mál
af þessu tagi? Er réttlæti í hugum
almennings annað en í hugum lög-
fræðinga. Er siðferði héraðsdóm-
ara annað en þorra hæstaréttar-
dómara? Hvað með þau ummæli
að dómarar sem vildu sakfella
manninn hafi brugðist skyldum
sínum? Eru það gild skilaboð til
almennings? Eiga þessir dómarar
að sitja þegjandi undir þessu?
Finnst lögmönnum almennt að
virðing Hæstaréttar hafi vaxið við
þennan dóm? Hvers vegna þegja
lögmenn? Hvar er lögmannafélag-
ið? Hvar er dómarafélagið? Svona
gæti ég haldið áfram að spyrja.
Það er augljóst að eitthvað hefur
farið úrskeiðis í dómskerfínu við
þennan dóm. Kannski hefur það
oft gerst áður. Ef endurvekja á
tiltrú fólksins í landinu á Hæsta-
Hæstaréttardómur
Canon IXUS II i gjafaoskju
• Alsjálfvirk APS myndavél • Möguleiki á þremur
myndastærðum • Sjálfvirkur fókus og auðveld
filmuísetning »23A6mm rafdrifin linsa með Ijósopi
4,2-5,6 • Lágmarksfjarlægð frá myndefni er aðeins
0,45m • Fimm mismunandi flassstillingar
• Filmuskipti möguleg í miðri filmu
•Móguleiki á dagsetningu og texta
aftan á mynd
Canon IXUS L-l
• Alsjálfvirk APS myndavél »Möguleiki á þremur
myndastærðum • 26mm rafdrifin linsa með Ijósopi 2,8
• Sjálfvirkur fókus og auðveld filmufsetning
• LágmarksQarlægð frá myndefni er aðeins 0,45m
• Möguleiki á dagsetningu og texta aftan á mynd
• Sjálfvirkt innbyggt ffass
• Fáanleg í gjafakassa
Ljósmyndanámskeið fylgir hverri myndavél