Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 76

Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 FÓLK í FRÉTTUM Gamli refurinn Tom Jones er vinsælli nú um stundir en hann hefur verið í mörg ár. Árni Matthíasson tók Jones tali sem fregnaði honum að hann vildi helst vera á tónleikaferðalagi til eilífðarnóns. Lifað fyrir listina TOM JONES er goðsögn í tónlistarsögunni; hann hefur verið að í á fjórða áratug og er sprækari en nokkru sinni, aukinheldur sem vin- sældir hans aukast þótt kappinn verði sextugur næsta sumar. Hann komst ðfórvarandis í sviðsljósið að nýju er hann söng Prince-lag inn á band fyiir nokkru og skammt er síðan hann sendi frá sér plötu þar sem hann syngur með mörgum helstu popphetjum Breta af yngri kynslóðinni. Thomas Jones Woodward hét hann þegar hann hóf tónlistarferil sinn fyrir þrjátíu og sex árum með hljómsveitinni Tpmmy Scott and The Senators. Ari síðar breytti hann nafninu í Tom Jones, til að nýta sér mikið umtal sem kvikmynd með því nafni hlaut á þeim tíma. Ekki leið á löngu að hann var farinn að syngja einn, enda erfitt fyrir mann með aðra eins rödd að standa í skugganum af öðrum. Fyrsta lagið sló í gegn 1964 og í kjölfarið fylgdu fleiri vinsæl lög en tölu verður á komið. Mestra vinsælda naut hann á sjöunda áratugnum og þegar komið var fram á þann áttunda, en síðan fjaraði smám saman undan honum, nýir áheyrendur kunnu ekki að meta þróttmikla röddina og karlrembulegt útlitið og um níunda áratuginn má segja að Tom Jones hafi verið flestum gleymdur nema miðaldra konum. Þótt það sé hráslagalegt má segja að andlát umboðsmanns Jon- es til margra ára hafi verið honum mikið lán, því þá tók sonur hans við taumunum og ekki leið á löngu uns hann stakk upp á því við Jones að hann tæki upp lag eftir Prince sem hann hafði verið með á tónleikadag- skrá sinni. Aður en kom að því söng Jones það í breska sjónvarpinu og þeir félagar í Art of Noise sáu til hans og vildu endilega taka það upp með honum. Getur nærri að það vakti mikla athygli að Tom Jones væri að syngja lag eftir Prince og með því komst hann í sviðsljósið á ný og leiddi svo af sér plötuna Rel- oad sem kom út íyrir skemmstu, en á henni syngur Tom Jones lög úr ýmsum áttum með Cardigans, Ster- eophonics, Robbie Williams, James Dean Bradfield úr Manic Street Preachers, Pretenders, Van Morri- son, Nataliu Imbruglia, Cerys Matthews úr Catatonia, Simply Red og Portishead, svo dæmi séu tekin. Tom Jones segir að sig hafi lengi langað til að taka upp nútímalegri tónlist en hann hafði þá gefið út lengi. Prince-lagið var tækifæripð sem hann hafði beðið eftir. „Ekki síst þótti mér upplifun hve lagið var mikið spilað á MTV-sjónvarpsstöð- inni, því áður hafði honum ekki tek- ist að komast þar að. „Ég hafðí lengi verið með ný popplög a tón- leikadagskránni undanfarin ár og átratugi og fannst lagið hans Prince svo erótískt og gott lag að það hlyti að henta mér vel sem það og gerði. Þeir Art of Noise-félagar bættu síð- an við því sem á þurfti til að gera það eins beinskeytt og gött og það varð. Það var frábrugðið því sem ég hafði áður gert, en ekki síst var það frábrugðið útgáfu Prince, því mér finnst sem mér hafi tekist að gera það að mínu lagi.“ A nýju plötunni vinur Tom Jones með grúa tónlistarmanna eins og getið er og hann segir að samstarfið Paul McCartney, Dusty Springfield, Jones og Ringo Starr á góðri stundu. ólíkar að styrk og krafti.“ Jones segist ekki gera upp á milli laga á plöt- unni, þau séu öll góð og í hvert sinn sem hann hlusti á hana heyri hann eitthvað nýtt og hi íi- ist af. „Þau eru svo ólík að það er ekki hægt að gera upp á milli þeirra, það er ekki hægt að taka eitt lag útúr og segia að það sé aðallagið. Mór fannst Burning Down the House besta lagið í smátíma, en núna finnst mér Sexbomb besta lagið og Mama Told Me Not to Come er ekki langt þar und- an. Mér finnst líka lagið sem ég syng með Cer- ys, Baby It’s Cold Outside, mjög gott, en það kemur út núna fyrir jólin sem smáskifa, dæmigert jólalag. Það má segja að um leið og ég fer að pæla í einhverju lagi sem við erum að fara að gera myndband við finnist mér það besta lagið og það eiga eftir að verða ansi margar smáskífm- af plötunni og mörg myndbönd.“ Tom Jones hefur verið á ferðinni í áratugi og náð eins langt og tónlistar- maður getur vænst. Að- spurður hvað það sé sem haldi hon- um á ferð og flugi enn þann dag í dag, stöðugum tónleikaferðalögum, uppákomum í sjónvarpi plötuútgáfu og myndbandagerð segir hann að sú mikla ánægja sem hann hefur af stússinu öllu reki hann áfram. „Mér finnst ekkert eins skemmtilegt og að syngja,“ segir hann. „Ég get ekki einu sinni sleppt þvi þegar ég er í fríi. Þegar ég var í New York fyrir skemmstu átti ég frí eitt kvöldið og við fórum á blúsklúbb. Ég var beðinn um að koma upp á svið og taka lagið og gerði það auð- vitað fram eftir nóttu. Ég garði það líka í Chicago og í Nashville fór ég á tónlistrarbúllu eftir tónleika og söng Elvislög og Jerry Lee Lewis fram á nótt með hljómsveitinni sem var á staðnum. Ég held öruggleg áfram að syngja þangað til ég get einfaldlega ekki sungið lengur, það er ekki flóknara en það. Það gefur mér líka aukinn kraft að ég sé að ná til nýrra áheyrenda og fái að synga nýja tónlist. Ég hef alltaf haft gam- an af nýrri tónlist, hlusta mikið á út- varp, kaupi mér plötur og hoi-fi á MTV til að sjá hvert stefnir, hvaða breytingar eru í vændum. Það er mjög örvandi að fá að taka þátt í því enda hef . ég aldrei getað hugsað mér að syngja bara gömlu lögin.“ Tom Jones segir að Reload sé aðeins fyrsta platan í röð margra slíkra sem hann eigi eftir að taka upp á næstu árum, hann sé með langan lista yfir söngvara sem hann vilji fá til líðs við sig, þar á meðal Björk Guðmundsdóttur. „Ég hef hitt hana, úthlutaði verðlaunum með henni á MTV-hátíð í Berlín, og vildi gjarnan fá hana en mér skilst að það hafi ekki gengið upp vegna anna hennar. Vonandi sér hún sér fært að syngja með mér á næstu plötu, það væri mjög gaman að heyra hvernig það kæmi út. Mig langar til að syngja með svo mörg- um söngvurum og svo margar tón- listarstefnur að það er óljóst hvort ég eigi eftir að komast yfir það allt.“ A tónleikaferðum sínum undan- farið hefur Tom Jones sungið blöndu laga, gamalla og nýrra, en hann segist ekki enn vera farinn að syngja lögin af Reload á tónleikum. „Tónlistarstjóri minn, gítarleikari í hljómsveitinni minni, er þó að út- setja þau og ég býst við að þau bæt- ist flest ef ekki öll á dagskrána á næstu vikum.“ Leiðþér einhvern tímann eins og ferlinum værí lokið? „Nei, mér fannst altaf eins og tíminn yrði mér hliðhollur, hitti ég rétta fólkið myndi ég ná eyrum ungmenna á ný. Mig langaði reynd- ar frekar að syngja glænýtt lag en Kiss á sínum tíma, en þegar ég heyrði útsetninguna á því fannst mér sem ég gæti gert það að nýju lagi og á meðan það tekst eru engin takmörk, fyrir því sem ég gæti sungið. Ég gaf aldrei upp vonina um að fólk myndi taka eftir mér aft- ur.“ Tom Jones er enn á fullu við tón- leikahald, segist syngja á upp undir 200 tónleikum á hverju ári. „Það heldur mér í formi, heilbrigðum og hressum. Ég hef slíkt yndi af því að syngja og það gefst ekki betra tæki- færi til þess en að vera sífellt að halda tónleika og ekki skemmir að ég er að gleðja þúsundir manna. Ég myndi vilja vera á tónleikaferð til eilífðarnóns." Tom Jones og Elvis Presley voru vinir. inu þegar búið var að taka upp grunninn og við Nina sungum það svo á svipuðum tíma, ég fyrst og síðan hún til að tryggja að ekld yrðu neinir árekstrar." Lögin á plötunni eru mörg vel heppnuð fyrír það hversu vel radd- h-narfalla saman þótt þærséu ólík- ai■ að styrk og hljóm. Dæmi um það er söngur þinn með Ninu Persson, sem hefur lágstemmda og við- kvæma rödd samanhorið við þrótt- inn í þinni, en síðan kemur Robbie Williams ekki eins vel út úr öllu saman, það heyríst að hann er ekki eins góður söngvarí og menn hafa kannski haldið. „Hann valdi líka fjörugt lag til að fela það,“ segir Jones og hlær við. „Þegar Nina heyrði mig syngja sagði hún „Guð minn góður, ég hljóma eins og lítil mús,“ heldur hann áfram og skellir enn uppúr, segir síðan með meiri alvöru: „Það skiptir mestu máli að söngvararnir séu þeir sjálfir, séu ekki að reyna að vera eitthvað annað en þeim er eðl- islægt og ekki að reyna að syngja mig í kaf, því það er ansi erfitt. Það heyrist á plötunni að mínu mati; þar sem sungið er af einlægni falla raddirnar vel saman þótt þær séu hafi verið einmitt samstarf, en ekki bara að hann syngi inn á eitthvað sem búið væri að full- gera að öllu leyti. „Ég valdi mörg laganna einn eða í sam- starfi við son minn, sem er um- boðsmaður minn. Hann rifjaði upp með mér lög; ég hef heyrt svo mörg lög um ævina að ég man þau ekki öll,“ segir Jones og hlær við. „Hann stakk þannig upp á Burning Down the House, sem mér leist vel á því ég hélt upp á það á sínum tíma. Önnur voru valin í sam- einingu með þeim listamönn- um sem ég vann með. Stund- um valdi ég fleiri en eitt lag og síðan eitt úr þeim bunka í samvinnu við viðkomandi söngvara, en það kom líka íyrir að þeir sem ég hafði samband við voru með ákveðnar skoðanir á því hvað þeir vildu syngja. Ég lagði til að mynda þrjú lög fyrir Cherys Matthews og hún valdi síðan lag úr því. Ég spurði James Dean Bradfield hvort hann ætti eitthvert lag sem honum fyndist að við ættum að taka saman, en honum fannst hann ekki vera með neitt sem hentaði. Helst hefði ég viljað syngja með þeim ný lög, en það gekk ekki upp og því ákváðum við að hafa það lög eftir aðra. Þann- ig var það með Bradfield, hann sagðist einfaldlega ekki vera með neitt nógu gott lag fyrir okkur en sagðist gjaman vilja syngja Elvis- lag sem mér leist bráðvel á, enda er ég mikill Elvismaður. Hann hækk- aði tónhæðina og fór tveimur tónum hærra en Elvis söng það og ég spurði hann hvers vegna hann færi með það svo hátt og gerði það há- dramatískt. Hann svaraði að bragði að Delilah væri sungið svo hátt, en ég bénti bonum á að það var fyrir meíra en þrjátíu árum,“ segir Jones og skellihlær. „Hann lét sig þó ekki svo við sungum það þannig." Tom Jones leggur enn áherslu á að platan sé samstarfsverkefni í einu og öllu, hann fór í hljóðver með þeim og tók upp á sama tíma, en ekki eins og stundum vill verða að annar syngur inn á band og svo hinn síðar, jafnvel í annarri heims- álfu. „Ég vildi líka hitta þetta fólk og vinna með þvi beint. Þannig var því til að mynda háttað þegar ég söng með Ninu Persson úr the Cardigans. Við hittumst í hljóðver-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.