Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 84

Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 84
Netþjónar og tölvur COMPACL Er búið að leysa málið? Er lausnin föst í kerfínu? Þaó er dýrt að láta starfsfólkið biða! Tölvukerfi sem virkar 563 3000 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691W, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA569II22, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRl:KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Vinnumarkaðskönnun Hagstofu Islands Lengri • vinnudagur á lands- byggðinni FÓLK á landsbyggðinni vinnur að meðaltali 2,7 klukkustundum lengri vinnuviku en fólk sem starfar á höf- uðborgarsvæðinu. Munur á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæð- isins hvað þetta varðar hefur verið að aukast á síðustu tveimur árum. Atvinnuþátttaka ungs fólks hefur einnig aukist mikið á síðustu 12 mán- uðum. Þetta kemur fram í vinnu- markaðskönnun Hagstofu Islands % sem gerð var í nóvember. Samkvæmt könnuninni er meðal- vinnuvika launafólks á höfuðborgar- svæðinu 42,4 stundir, en var 42,9 stundir í apríl sl. og 42,6 stundir fyr- ir ári. Meðalvinnuvika launafólks á landsbyggðinni er hins vegar 45,1 klukkustund. Vinnuvika landsbyggð- arfólks var 44,2 stundir í apríi sl., 44,4 stundir í nóvember 1998 og 43,7 stundir í aprfi 1998. A einu og hálfu ári hefur meðalvinnuvika lands- byggðarfóiks lengst um 1,4 klukku- stund, en á sama tíma hefur meðal- vinnuvika fólks á höfuðborgarsvæð- inu lengst um 0,2 stundir. Samkvæmt könnuninni er enginn munur á atvinnuþátttöku fólks milli höfuðborgarsvæðisins og lands- byggðarinnar. Atvinnuleysi á iands- byggðinni mældist hins vegar 2,4% í nóvember, en 1,5% á höfuðborgar- svæðinu. Fyrir ári mældist atvinnu- leysi á höfuðborgarsvæðinu 2,7%, en 1,9% utan þess. Atvinnuþátttaka ungs fólks eykst Samkvæmt könnun Hagstofunnar hefur atvinnuþátttaka fólks á aldrin- um 16-24 ára aukist á einu ári úr 74,8% í 79,7%. Eftir sem áður er at- t vinnuleysi í þessum aldurshópi mest eða 4,8%, en að meðaltali mældist það 1,9%, sem er minnsta atvinnu- leysi sem mælst hefur í könnunum Hagstofunnar frá því í aprfi 1991. Atvinnuþátttaka ungra kvenna er nokkru meiri en ungra karla. Þannig vinnur 82,1% allra kvenna á aldrin- um 16-24 ára, en 77,5% allra karla í sama aldurshópi. Atvinnuþátttaka fólks í aldurshópnum 55-74 ára hef- ur minnkað á síðustu 12 mánuðum, eðaúr 67,5% í 63,3%. Myrkrahöfðinginn frumsýndur Endanleg gerð til lands- ins rétt fyrir sýningu Á SÍÐUSTU stundu kom í ljós að lokakafli kvikmyndar Hrafns Gunnlaugssonar, Myrkrahöfðinginn, hafði ekki komið rétt út úr litgreiningu. Varð því að vinna hann aftur í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld. Myndin var því ekki komin endanlega til landsins fyrir en síðla dags í gær, aðeins þrem- ur klukkustundum fyrir frum- sýningu. Allt fór þó vel að lok- um og var myndinni vel fagn- að af áhorfendum í Háskóla- bíói í gærkvöldi. ■ Stórbrotin/31 Grunnrannsóknir hafa ekki notið góðs af auknum útgjöldum til vísinda Erfíðara en áður að kosta verkefni BILIÐ milli ráðstöfunarfjár Vís- indasjóðs Rannsóknarráðs íslands og heildarfjárhæðar umsókna vís- indamanna hefur breikkað mikið undanfarin ár. Ráðstöfunarfé sjóðs- ins hækkaði úr 136 m.kr. árið 1992 í 168 m.kr. árið 1997 en á sama tíma fjölgaði umsóknum úr 325 að fjár- hæð 348 m.kr. árið 1992 í 368 að fjárhæð 626 m.kr. árið 1997. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ingu Dóru Sigfúsdóttur félagsfræð- ings og Þórólfs Þórlindssonar, pró- fessors í félagsvísindadeild Háskóla íslands; sem nefnist Staða grunnvís- inda á Islandi og verður lögð fram á ráðstefnunni Vísindi í leit að pólitík á þriðjudaginn. Einnig kemur fram í skýrslunni sem gerð vai- að frum- kvæði menntamálaráðuneytis, að ár- ið 1990 voru þær fjárhæðir sem út- hlutað var til vísindamanna 45% af heildarfjárhæð umsókna um vís- indaverk, en árið 1997 voru þær komnar niður í 27%. Framlag ríkisins til rannsóknar- og þróunarstarfs síðustu tvo áratugi hefur haldist stöðugt en framlag íyrirtækja hefur aukist verulega. ís- lendingar eru nú meðal þeirra þjóða sem hvað örast auka hlut rann- sóknar- og þróunarstarfs í þjóðarbú- skapnum af OECD-löndunum en eru ennþá undir meðallagi. Hlutur hagnýtra rannsókna hefur aukist í heildarútgjöldum til rann- sókna- og þróunarstarfs. Grunnrann- sóknir hafa aftur á móti ekki notið góðs af auknum útgjöldum til rann- sókna. Framlagið hefur dregist sam- Vígslublástur Morgunblaðið/Kristinn Garðbæingar tóku nýtt tónlistarhús í notkun í gær og við það tækifæri var m.a. frumflutt verk Atla Heimis Sveinssonar Tveir þættir fyrir kammer- blásarasveit, sem hann samdi í tilefni af vígslu hússins. í húsinu starfar Tónlistarskóli Garðabæjar og þar er m.a. listasalur, sem tekur 109 tónleikagesti í sæti þegar svo ber undir. ■ Tónlistarhús/34 an sem nemur 10% frá því að vera um 30% árið 1977 í 20% árið 1997. Aukin útgjöld til rannsókna hafa því ekki skfiað sér til eflingar grunnrann- sókna. Ástæðan er líklega sú, segir í skýrslunni, að atvinnufyrirtækin eru í auknum mæli farin að fjármagna rannsóknar- og þróunarstarfsemi frekar en grunnrannsóknir. Inga Dóra mælir ekki með að meira fjármagn sé veitt í núverandi kerfi heldur eigi að útdeila styrkjum eftir árangri manna. Það þurfi að stokka kerfið upp og hætta að „smyrja þunnt á alla“ eins og nú sé gert. „Vísindamenn sem ég tók við- tal við gagnrýndu jafnaðarstefnuna sem fylgt er við úthlutanir," segir hún, „því það gengur gegn megin- markmiðum vísindastarfsins." ■ Grunnrannsóknir/40 Morgun- blaðið hæst í gæðakönn- un Gallup MORGUNBLAÐIÐ fékk 4 í einkunn af 5 mögulegum og var hæst af fjölmiðlum í gæða- könnun sem Gallup fram- kvæmdi í haust og er hluti fjöl- miðlakönnunar fyrirtækisins þegar spurt var hvaða miðill fólki líkaði. Morgunblaðið var einnig efst þegar spurt var um miðla sem gæfu fólki mikilvægar upplýsingar um vöru og þjón- ustu og í öðru sæti í tveimur öðrum tilvikum þegar spurt var um miðla sem fólk gæti lært af og fólk vildi nota þegar það slappaði af. Þá var Morg- unblaðið í fjórða sæti á eftir ríkisfjölmiðlunum þremur, Sjónvarpinu, Rás 1 og Rás 2, þegar spurt var um traust á fréttaflutningi. Ríkisfjölmiðl- amir fengu 4,3 í einkunn en Morgunblaðið 4,2. Gæðakönnunin er hluti fjöl- miðlakönnunar Gallup sem gerð var fyrir Samtök ís- lenskra auglýsingastofa og nokkra af helstu fjölmiðlum landsins seint í október. Urtak í könnuninni var 1.500 manns og var nettósvarhlutfallið 60%. ■ Morgunblaðið/6 Eiríkur Tomasson prófessor um umdeildan dóm Hæstaréttar Vafí leikur á að jafn- ræðisregla hafi verið virt EIRÍKUR Tómasson lagaprófessor telur vafa leika á því hvort Hæstiréttur hafi virt viður- kennda grundvallarreglu um jafnræði aðila fyrir dómi í þeim dómi sem féll í Hæstarétti 28. októ- ber sl., þar sem karlmaður var sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn dóttur sinni. Þetta kemur fram í viðtali Morgunblaðsins við Eirík sem birt er í blaðinu í dag um niðurstöður rann- sókna hans sem birtar eru í nýútkomnu riti um réttláta málsmeðferð fyrir dómi í ljósi 6. greinar Mannréttindasáttmála Evrópu. „í 6. grein Mannréttindasáttmálans er eðli máls samkvæmt aðeins mælt fyrir um rétt sak- bomings í opinberum málum en ekki um rétt al- mannavaldsins. En samkvæmt meginreglunni um jafnræði aðila fyrir dómi á ákæruvaldið að njóta sams konar réttar og sakaður maður. Við megum ekki gleyma því að ákæruvaldið kemur fram fyrir hönd almennings," segir Eiríkur í við- talinu. Hæstiréttur virti skýlausan rétt sakbornings „Hæstiréttur virti í þessu máli réttilega ský- lausan rétt sakbornings samkvæmt 1. málsgrein 6. greinar Mannréttindasáttmálans til að afla álits sérfræðinga vegna þess að ákæruvaldið og lögregla höfðu áður aflað sérfræðiálita, sem lögð höfðu verið til grundvallar í málinu í héraði. Eg tel að með þessu hafi Hæstiréttur gætt réttar sakbomings í þessu máli eins og á stóð. Hins vegar tel ég að eðlilegt hefði verið að gefa ákæru- valdinu kost á því að fá einn af sérfræðingunum íyrir dóm til þess að því gæfist kostur á að gagn- spyrja hann úr því að Hæstiréttur byggði niður- stöðu sína á áliti hans,“ sagði Eiríkur. „Ég er að vísu ekki kunnugur því hvað gerðist í meðferð málsins fyrir Hæstarétti en að mínum dómi leikur vafi á því hvort Hæstiréttur hafi virt hina viðurkenndu jafnræðisreglu, sem gildir jafnt í sakamálum sem einkamálum, gagnvart ákæruvaldinu,“ sagði hann. Eiríkur lagði áherslu á að með þessum athuga- semdum væri hann ekki að taka efnislega afstöðu til þess hvort niðurstaða meirihluta Hæstaréttar hefði verið rétt eða röng. ■ MeginregIum/42

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.