Morgunblaðið - 28.11.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 28.11.1999, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 21/11 - 27/11 ►SEÐLAÖANKI fslands tel- ur að líklega sé enn hægt að komast hjá harkalegri aðlög- un efnahagslífsins á næsta ári, en það krefjist þess hins vegar að afgangur fjárlaga verði meiri á næsta ári en gert sé ráð fyrir í fjárlaga- frumvarpinu, jafnframt því að brýnt sé að vel takist til um gerð kjarasamninga, auk þess sem peningastefnan þarf áfram að vera aðhalds- söm. Að mati Seðlabankans er margt sem bendir til þess að vöxtur eftirspurnar á ár- inu 1999 sé vanmetinn í þjóð- hagsáætlun og að hagvöxtur á næsta ári geti orðið meiri en þar er spáð. Viðskipta- hallinn í ár verði því að lík- indum meiri en spáð sé í þjóðhagsáætlun. ►EKKI verður byggt í Laugardalnum eins og borg- aryfirvöld höfðu ráðgert. DeiliskipulagstiIIaga þar sem gert var ráð fyrir bygg- ingu tveggja stórhýsa hefur verið afskrifuð, að sögn Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borgai-stjóra. Ríflega 35 þús- und andstæðingar frekari byggðar í dalnum skrifuðu undir mótmæli sem afhent voru í lok september sl. ►FÆREYSKA skipafélagið Smyril Line hefur skrifað undir samning um smíði á nýrri farþegaferju, sem mun leysa Norrænu af hólmi. Skipið verður smíðað hjá Flensburger Sehiffbau-Ges- ellschaft í Þýzkalandi. Það verður 161 metri að lengd og 30 metra breitt og mælist 4.300 tonn. Mikið er gert til að tryggja öryggi skipsins til siglinga í Norðurhöfum. Ganghraði er áætlaður 21 sjómíla. Alls getur skipið tekið 1.500 farþega og um 750 fólksbfla eða 130 stóra flutningabfla. Vinnslustöðin slítur viðræðum um sameiningu STJÓRN Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum hefur slitið viðræðum um sameiningu Vinnslustöðvarinnar, ísfélags Vestmannaeyja, Krossaness og Óslands, og telur stjómin eftir ítarlega umfjöllun um málið undanfarnar vikur að hagsmunum félagsins og hluthafa þess sé best borgið með því að reka fyr- irtækið áfram. Sigurður Einarsson, for- stjóri Isfélagsins, segir þetta mikil von- brigði og sennilega hafi Vinnslustöðin ekki lagt í sameininguna þegar til hefði átt að taka. Nánara samstarf Evbrópuríkja styrkir NATO A fundi Georges Robertsons, fram- kvæmdastjóra Atlantshafsbandalags- ins, með Davíð Oddssyni forsætisráð- herra ogUalldóri Ásgrímssyni, utanrík- isráðherra í Reykjavík, á föstudag var einkum rætt um hörfur í öryggismálum Evrópu og þær breytingar semn eru að verða á varnarsamstarfí Vestur-Evr- ópuríkja. Robertson sagði eftir fundinn að hann teldi að nánara samstarf Evr- ópuríkja í vamarmálum yrði til að stýrkja NATO sem heild. Forsætisráð- hg^ sagði eflir fundinn að fagna bæri sameiginlajfer yfnlýsingu forsætisráð- herra BrfflKds og Frakklands þar sem lý^pr yffjlPil að aðildarríki NATO ut- a^fvrópœambandsins fái að taka þátt í fyrirhuguðu vamarsamstarfí ESB. Vafí leikur á að jafnræðisregla hafi verið virt EIRIKUR Tómasson lagaprófessor tel- ur vafa leika á því hvort Hæstiréttur hafí virt viðurkennda gmndvallarreglu um jafnræði aðila fyrir dómi í þeim dómi sem féll í Hæstarétti 28. október sl. þar sem karlmaður var sýknaður af ákæm um kynferðisbrot gegn dóttur sinni. pauðadöm ur yfír Ocalan staðfestur í Tyrklandi ÆÐSTI áfrýjunardómstóll Tyrklands staðfesti á fimmtudag dauðadóm yfir Kúrdaleiðtoganum Abdullah Öcalan. Mannréttindasamtök og Evrópusam- bandið fordæmdu dóminn, sem vafa- laust spillir vemlega fyrir möguleik- um Tyrkja á að telja leiðtoga ESB á að bjóða Tyrkland velkomið í sínar raðir, eins og þeir sækjast eftir. Lög- menn Öcalans hafa þegar tilkynnt að þeir muni skjóta dómnum til Mann- réttindadómstóls Evrópu í Strass- borg, en það kann að taka allt að tvö ár að ná niðurstöðu í málinu þar. Tyrkneskum stjórnvöldum ber að fresta framkvæmd dauðadómsiiís, þar til Mannréttindadómstóllinn hefur kveðið upp úrskurð sinn. Rússneski herinn sækir hart í átt að Grosní RÚSSAR reyndu í vikunni að loka hriiignum í kringum Grosní, höfuð- borg Tsjetsjníu. Hei-flugvélar og stór- skotalið héidu uppi mikium árásum á bæinn Urus-Martan, skammt suður af Grosní, en falli hann hefur Rússum tokist að |inikr'iníya^^höfuðbm'ginu; Martan, sem taldir eru vera um 3.500, hefðu verið umkringdir,en að einhverjum þeirra hafi tekist að flýja úr bænum. Stjórnvöld í Moskvu eru sigurvíss og hafa daufheyrst við gagn- rýni vestrænna júkja á herförina í Tsjetsjpiu. Vladfmír Pútín forsætis- ráðheira sagði á miðvikudagskvöld að öllum þeim skæruliðum, „sem borið hefðu vopn en hafa ekki blóð rúss- neskra borgara á höndunum“, yrði boðin sakaruppgjöf. ►ÓTTAST er að hátt í 300 manns hafi farist með far- þegafeiju, sem sökk undan Kínaströndum á miðviku- dagskvöld. Varð eldur laus um borð í skipinu, sem hvolfdi síðan f mjög slæmu veðri og hörkufrosti. Létust flestir úr kulda um borð í björgunarbátum. Slysið átti sér stað nálægt hafnarborg- inni Yantai á Shandong- skaga. ►HORFUR eru á góðum hagvexti í aðildarríkjum Evr- ópusambandsins á næstu tveimur árum, minna atvinnu leysi og minni fjárlagahalla. Verð bélga verður áfram lít- il, þótt hún aukist nokkuð frá því sem nú er. Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB skýrði frá þessu á miðviku- dag. Útlit í efnahagsmálum heimsins þykir almennt vera gott, og áætlað er að fyrir- hugaðar vlðræður um aukið frelsi í heimsviðskiptum geti : bætt hag jarðarbúa um 30 milljarða íslenskra króna ár- lega. ►BORlS Jeltsín Rússlands- forseti fékk á fimmtudag flensu og alvariegt lungna- kvef, og varð því að fresta fundi sínum méð Alexander Li^asjenkó, forseta Hvíta- : Riíssland.s, sem ráðgerður vaj-,á fðstudagtil að undir- rita sambandssamning ríkj- anna. Jeltsín, sem er 68 ára, hefur lengi átt við vanheilsu að stríða og var síðast lagður inn á sjúkrahús í október. ► LÖGREGLUMÖNNUM í Bretlandi hefur verið skipað að vera á varðbergi þar sem talið er að klofningshópar úr frska lýðveldishernum (IRA) séu aö undirbúa hrinu liermdarverka um jólin og áramótin. Morgunblaðið/Kristinn Nýja Hríseyjarfeijan í slipp Stálsmiðjunnar í Reykjavík. Stálsmiðjan vill rifta kaupsamningi á búnaði í Hríseyjarferjuna Afhendingu seinkar um allt að þrjá mánuði enn STÁLSMIÐJAN í Reykjavík hef- ur farið fram á riftun samnings vegna kaupa fyrirtækisins á vél- búnaði í nýju Hríseyjarferjuna Sævar. Skipið var smíðað í Stálsmiðjunni en vegna bilunar á skrúfu- og stýrisbúnaði, sem keyptur var frá danska fyrirtæk- inu Mekanord, hefur orðið mikil seinkun á afhendingu skipsins til kaupandans, sem er Vegagerðin. Valgeir Hallvarðsson stjórnar- formaður Stálsmiðjunnar sagði að leitað hafí verið eftir tilboðum í nýjan búnað en ljóst sé að afhend- ingu .skipsins geti seinkað um allt ýaðgþliá m$njtði til viðbótar. „Við bíðuimeftir svari frá danska fram- leiðandanum varðandi körfu okkar um riftun samningsins en vonumst eftir því á næstu dögum, þannig að við getum tekið ákvörðun um næstu skref. Þetta er orðið af- skaplega leiðinlegt mál fyrir alla aðila og við hefðum viljað vera búnir að senda skipið frá okkur.“ Valgeir sagði að um síendur- teknar bilanir á þessum búnaði hafi verið að ræða og þær séu þess eðlis að verkkaupinn telji ekki hægt að treysta því að svo verði ekld áfram. Valgeir sagði að Stál- smiðjan hafí lagt á það áherslu að leysa þetta mál og að það yrði gert. Hann benti jafnframt á yfir- lýsingu frá Stálsmiðjunni sem fé- lagið sendi frá sér á dögunum vegna umfjöllunar ýmissa fjöl- miðla um tafir á smíði ferjunnar og hugsanlegar dagsektarkröfur Vegagerðarinnar. Þar kemur m.a. fram að eftir að tilboð í verkið voru opnuð og samningaviðræður stóðu yfír við Stálsmiðjuna voru að ósk verk- kaupans gerðar verulegar breyt- ingar á verklýsingu og hönnun skipsins. Hafi þessar breytingar ýmist leitt til hækkunar eða lækk- unar á samningsverði. Varð þá m.a. fyrir valinu vélbúnaður sem verkkaupi samþykkti og leiddi til verulegrar lækkunar á samnings- verði. Þessi búnaður hafí við próf- anir ekki reynst sem skyldi og hafi það leitt til margvíslegra tafa á framgangi verksins. Stálsmiðjan líti svo á að félaginu verði ekki kennt um þær tafir sem orðið hafa á verkinu og áð á meðan unnið sé 1 að lagfæringum sé umfjöllun um beitingu dagsekta og annaiTa van- efndaúrræða ótímabær. 1 Einar Hermannsson skipaverk- fræðingur og eftirlitsmaður Vega- gerðarinnar við smíði Hríseyjar- ferjunnar sagði að það hafi ekki komið í ljós fyrr en á seinni stig- um að þessi búnaður frá Mekanord sé bara á hönnunar- og prófunarstigi og því ekki fram- bærileg söluvara. Þai-na sé um að ræða framleiðslunúmer 2 og 3 á búnaðinum hjá þessum framleið- anda. Hann sagði aðspurður að það hafi ekki verið teknar endan- legar ákvarðanir varðandi dag- sektir. „Það hafa allir reynt að gera það sem hægt er í stöðunni en því miður hefur reynslan leitt okkur að þessari niðurstöðu. Kostnaður- inn er ekki endanlega frágengin og menn hafa ekki viljað fara út í nánari umræður um það við- kvæma atriði. En það sem allir eru sammála um er að koma skip- inu á viðeigandi hátt í gagnið og því ekki líklegt til árangurs að fara að bítast um einhverjar krón- ur og aura,“ sagði Einar. Hann sagðist hafa rökstuddan grun um að þetta ferli taki um þrjá mánuði til viðbótar, svo framarlega að það fáist hliðstæður búnaður. Sér enginn fyrir hver endirinn verður Kostnaður við smíði ferjunnar miðað við samningsverð var um 130 milljónir króna og sagði Einar að ef þessi danski búnaður hefði reynst sem skyldi, hefði endanlegt smíðaverð orðið innan við 5% frá því verði. „Þessi staða leiðir hins vegár til þess að það sér enginn fyrir hver endirinn verður, þar sem ekki er vitað hvað búnaðurinn sem kemur í staðinn muni kosta, né heldur hver ber aukakostnað- inn.“ ' Upphaflegi skiladagur skipsins var 15. júlí sl. en Éinár sagði að Stálsmiðjan hafí haft einn mánuð til viðbótar til að skila verkinu án þess að verða fyrir dagsektum. Sé farið fram yfir þessa 30 daga virki dagsektirnar afturábak og svo áfram. „Það var búið að veita Stálsmiðjunni frest tvisvar sinn- um, í báðum tilfellum í þrjár vikur, gegn ákveðnum skilyrðum. En nú erum við komnir langt út fyrir þann tíma líka og það liggur ekk- ert endanlegt fyrir í þessum efn- um,“ sagði Einar. Langöflugasta Kröfluhol- an gefur 20 megawött SEINNI borholan sem Lands- virkjun lét bora í sumar við Kröflu er sú aflmesta sem boruð hefur verið á svæðinu og gefur 20 mega- vött. Landsvirkjun lét bora tvær hol- ur á jarðhitasvæði Kröflu í sumar. Nú hefur komið í ljós að síðari hol- an gefur 20 megavött sem er gífur- lega góður árangur, að sögn Þor- steins Hilmarssonar, upplýsinga- fulltrúa Landsvirkjunar. Fyrri holan gaf 8 megavött, en til saman- burðar má geta þess að öflugasta borholan á svæðinu hingað til hef- ur gefið milli 12 og 13 megavött og er sú hola mun öflugari en allari hinar sem notaðar eru, að sögn Þorsteins. Utlit er fyrir að holan gefi um tuttugu megavött en hún þarf að blása út fram yfir áramót og ná jöfnum hita. Er þá hægt að segja með fullri vissu hvert afl hennar er. Þorsteinn segir að þessi árang- ur auki mjög rekstraröryggi Kröfluvirkjunar og gefi góðar væntingar um að unnt verði að ráðast í stækkun hennar á næstu árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.