Morgunblaðið - 05.12.1999, Page 12

Morgunblaðið - 05.12.1999, Page 12
12 SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Aðgerðir gegn ný- nasistum vekja athygli Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. SAMEIGINLEG greinaskrif fjög- urra sænskra blaða, Aftonbladet, Dagens Nyheter, Expressen og Svenska Dagbladet 30. nóvember til að vekja athygli á áhrifum og út- breiðslu sænskra nasista hefur vakið mikla athygli heima og heiman. Um- fjöllunin hefur einnig bitnað á þeim einstaklingum, sem fjallað var um í blöðunum, bæði í máli og myndum. Eftir umfjöllunina hafa ritstjórar blaðanna fjögurra fengið á sig stór- skotahríð rafpósts, sem líklega er nokkurs konar sprengja til að koma rafpóstkerfinu á kné. Viðbrögð al- mennings hafa verið mjög jákvæð. Umíjöllun bitnar á nýnasistum Á vinnustöðum nokkurra þeirra 62, sem umfjöllunin náði til, var hart brugðist við. Einn úr hópnum er 23 ára ritstjóri málgagns nýnasista og hefur skrifað hatursgreinar í blaðið, meðal annars gegn útgáfufjölskyld- unni Bonniers, sem er af gyðingaætt- um. Hann starfar hjá sænsku áfeng- isversluninni og hafði verið valinn í hóp, sem mennta á í þeim tilgangi að hinir útvöldu verði með tímanum verslunarstjórar. Önnur dæmi eru um að í þeim hópi, sem fengu birt nöfn sín og myndir, séu menn, sem starfa í verkalýðsfélögum. í nokkrum tilfell- um hafa verkalýðsfélögin rætt brott- rekstur. Á vinnustöðum, þar sem þessir menn þekktust eftir mynd- og nafnbirtinguna hafa starfsmenn einnig rætt viðbrögð. N ýnasistahr eyflngar vel vopnaðar Blöðin fjögur hafa haldið áfram umfjöllunum sínum. Par hefur meðal annars komið fram að nýnasistar hafa náð til sín töluverðu af vopnum, eins og fram hefur komið, þegar þeir hafa látið til skara skn'ða. Þessi vopn hefur verið stolið úr vopnabúrum hersins eða keypt af vopnasölum, sem ekki spyrja um of eftir leyfum og öðrum formsatriðum. Erlendh- fjölmiðlar hafa gert átaki sænsku blaðanna mikil skil. Fjöl- miðlar á Norðurlöndum og í Evrópu hafa sagt frá átakinu og einnig stórar alþjóðlegar fréttastofur. Associated Press ræddi meðal annars við Björn Pihlblad talsmann lögreglunnar í Stokkhólmi, sem sagði að nýnasistar hikuðu ekki við að sýna að þeir væru vopnaðir og hikuðu heldur ekki við að láta vopnin tala. Nýnasistahreyfíngar hafa mjög stungið sér niður umhverfis Karlstad í Vermlandi. Þar hafa lögreglan og ýmis félagssamtök undanfarið starf- að markvisst að því að uppræta starf- semina og orðið vel ágengt. Greger Wahlgren lögi'egluforingi, sem lengi hefur haft áhuga á nasistum og sögu þeirra, hefur beitt þekkingu sinni gegn hópunum. Wahlgren hefur haldið fyrirlestra fyrir kennara og aðra, sem starfa með börnum, til að kenna þeim að þekkja merki, slagorð og ýmsar aðr- ar viðmiðanir, sem nýnasistar geta slegið um sig með, hvort sem er á plakötum, bolum eða í tónlist. Óinn- vígður tekur kannski ekki eftir strák í bol, sem á stendur „14 orð“, en Wahlgren veit að þetta er tilvitnun í þekktan bandarískan nýnasista. Myndbirtingar blaðanna hafa leitt til kæra til blaðaumboðsmannsins, en enn er ekki Ijóst hvernig tekið verður á þeim. Almennt hefur umfjölluninni þó verið vel tekið. Skriða rafpósts, þar sem móttakendur eru hvattir til að senda póstinn áfram til ritstjóra blaðanna fjögurra, er ekki fjand- samlega orðuð, en á blöðunum hafa menn grun um að þessu keðjubréfi sé ætlað að koma rafpóstkerfi blaðanna á kné. Þeir hafa því hvatt upphafs- mennina til að láta í sér heyra. Barbara J. Griffíths nýr sendiherra Bandaríkjanna á fslandi Viljum styrkja þegar öflugt samband ríkjanna Morgunblaðið/Ásdís Barbara J. Griffiths, nýr sendiherra Bandaríkjanna á íslandi. Nýlega tók Barbara J. Griffíths við sem sendi- herra Bandaríkjanna á Islandi. Steingrímur Sigurgeirsson ræddi við hana um það sem hæst ber í sam- skiptum ríkjanna þessa stundina. BARBARA J. Griffiths tók í haust við embætti sendiheira Bandaríkj- anna á fslandi af Day 0. Mount og er hún fyrsta konan sem gegnir því embætti hér á landi. Það er vart hægt að segja að Griffiths hafi farið hægt og rólega af stað því að eitt fyrsta verkefni hennar sem sendiherra var að vinna að skipu- lagningu í tengslum við kvenna- ráðstefnuna og komu Hillary Clin- ton forsetafrú Bandaríkjanna hingað til lands. „Þetta var vissulega mjög anna- samur tími en jafnframt einstakt tækifæri til að kynnast fólki og mynda tengsl,“ segir Griffiths. Ráðstefnuna segir hún hafa verið mikilvæga og að þar hafi tekist að móta stefnu á breiðu sviði og tengja saman konur frá ólíkum heimshlut- um. Mjög athyglisvert hafi verið að heyra þau fjölbreyttu sjónarmið er komu fram á ráðstefnunni og þá ekki síst frá þeim konum, sem enn væru að berjast fyrir margvísleg- um lýðréttindum er væru talin sjálfsögð.í okkar heimshluta. Mikil- væg verkefni væru því framundan, sem Bandaríkin myndu reyna að leggja sitt af mörkum til að ná fram. í utanríkisþjónustunni í 23 ár Griffiths hefur starfað í utanrík- isþjónustu Bandaríkjanna frá árinu 1977, eða í um 23 ár. Hún er hag- fræðingur að mennt og hefur til þessa fyrst og fremst starfað að efnahagslegum málefnum, jafnt í utanríkisráðuneytinu sjálfu í Was- hington D.C. sem í sendiráðum víðs vegar um heim, m.a. í Seoul í Suð- ur-Kóreu og í Moskvu. í Moskvu kynntist hún eigin- manni sínum, David M. Schoono- ver, sem einnig starfaði í utanríkis- þjónustunni að landbúnaðarmálum, en er nú kominn á eftirlaun. Griffiths er fædd og uppalin í borginni Verona í New Jersey, um 30 kílómetnim norður af New York City. Hún er elst fimm systkina. Faðir þeirra lést er þau voru enn ung að aldri og segir hún það hafa þjappað fjölskyldunni mjög saman og að þau haldi hópinn vel. Að loknu hagfræðinámi í New Jersey og Connecticut starfaði hún hjá hafnarstjórn New York-borgar áð- ur en hún ákvað að fara i inntöku- próf utanríkisþjónustunnar. „Það eru núorðið allmargar konur, sem gegna sendiherraembættum á veg- um Bandaríkjanna," Segir Griffiths aðspurð um stöðu kvenna í banda- rísku utanríkisþjónustunni. „Það hefur verið lögð rík áhersla á það á síðastliðnum árum að auka breidd starfsliðsins, jafnt hvað varðar kyn sem kynþætti. Um helmingur þeirra sem nú hefur störf hjá utan- ríkisþjónustunni er konur þótt að vissulega séu karlar enn í nokkrum meirihluta þegar kemur að æðstu embættum. Það er markviss stefna að fjölga konum, jafnt í hópi emb- ættismanna sem þeirra er skipaðir eru á pólitískum grundvelli. Þetta hefur aukið breidd og fjölbreytni utanríkisþjónustunnar.“ Hrifín af norðlægum ríkjum Griffiths segir að hún hafi ekki vitað mikið um ísland, er hún fékk að vita fyrir tæpu ári að hún myndi gegna hér stöðu sendiherra. Island hafi vakið áhuga hennar af nokkr- um ástæðum. Þróunin á sviði efna- hagsmála hafi verið ör og spenn- andi hér á síðustu árum og hafi það vakið forvitni hennar í ljósi fyrri starfa hennar á sviði efnahagsmála. Þá hafi hún ávallt verið hrifin af norðlægum ríkjum og að auki séu hún og eiginmaður hennar áhuga- menn um fuglaskoðun í frístundum sínum. Loks hafi hún litið til þess að þótt lsland sé lítið ríki gegni.það mikilvægi-i stöðu innan Atlants- hafsbandalagsins, NATO. „ísland var spennandi kostur og við vorum yfir okkur hrifin er við fengum fréttir af því að við værum á leið hingað. Við fréttum fyrst af þessu rétt fyrir síðustu jól og fórum þá strax að undirbúa okkur og lesa okkur til um land og þjóð. Jólagjöf- in til eiginmanns míns um síðustu jól var til dæmis bók um ísland. Eg var hins vegar því miður enn á kafi í mínu gamla starfi í utanríkisráðu- neytinu og gátum við því ekki sinnt undirbúningnum af fullum krafti, t.d. hvað varðar tungumálið. Nú sækjum við hins vegar bæði tíma í íslensku hjá Námsflokkum Reykja- víkur.“ Griffiths segir að hún muni sem sendiherra reyna að styrkja þegar öflugt samband íslands og Banda- ríkjanna. ,Árið 2001 munum við halda upp á fimmtíu ára varnar- samstarf ríkjanna, en á því sviði hefur verið mikil þróun. Ég vonast einnig til að geta lagt mitt af mörk- um til að efla efnahagsleg tengsl ríkjanna. Með efnahagslegum tengslum vísa ég ekki einungis til viðskipta heldur fjölmargra mála- flokka, er ekki falla undir varnar- mál. Þá er það markmið okkar að nýta árþúsundaskiptin til að vekja aukna athygli á sambandi íslands og Bandaríkjanna og hafa fjöl- margar uppákomur verið skipu- lagðar í því skyni til að nýta þessi tímamót sem best.“ „Hætta á“ að ísland uppgötvist Hún segist aðsjjurð ekki telja að erfitt verði fyrir Island að vekja at- hygli á landi og þjóð í Bandaríkjun- um smæðarinnar vegna heldur eigi íslendingar þvert á móti á hættu að verða uppgötvaðir. „Það hefur ver- ið mjög mikil umfjöllun um ísland í Bandaríkjunum upp á síðkastið. Rannsóknir á sviði læknisfræði hafa vakið mikla athygli svo dæmi sé tekið og bandarískir ferðamenn sækja landið heim í auknum mæli, þótt enn bjóði nafn Islands mis- skilningi heim. Bandaríkjamenn hafa mikla unun af því að ferðast og ég held að ísland hafi heillað marga.“ Þær uppákomur sem skipulagð- ar hafa verið í kringum árþúsunda- mótin segir hún að hafi það að markmiði að setja samband ríkj- anna í heildrænt samhengi. í Smit- hsonian-safninu í Washington D.C. og Library .of Congress verði hald- in viðamikil víkingasýning og Bandaríkjaþing samþykkti nýlega útgáfu minningarpenings, en hagn- aður af sölu hans mun renna í sjóð er á að styrkja nemendaskipti milli ríkjanna. Margt annað komi til og nefnir hún að á dögunum hafi komið til Is- lands hópur Vestur-íslendinga frá Norður-Dakóta til að setja upp leikrit. Eldri kynslóð þessa fólks tali enn íslensku en yngri kynslóðin einungis ensku. Yngra fólkið sæk- ist hins vegar eftir því að koma til íslands til að kynnast uppruna sín- um og híbýlum forfeðra sinna. Áhugi á að efla viðskipta- samband Nú eru hafnar umfangsmiklar viðræður í Seattle í Bandaríkjun- um um alþjóðleg viðskiptamál og munu þær standa næstu árin. Isl- and hefur á síðustu árum tengst Evrópu nánari böndum og á nú að- ild að hinum innri markaði Evrópu- sambandsins með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Hins vegar hefur ætíð verið verulegur áhugi á því á Islandi að efla enn frekar viðskiptatengslin við Banda- ríkin. Þegar Griffiths var spurð um þessa þróun sagðist hún ekki telja að einn kostur ætti að útiloka ann- an. „Bandaríkin hafa um langt skeið stutt þá samrunaþróun er á sér stað í Evrópu. Við myndum hins vegar ekki vilja að þetta leiddi til þess að aðgangur okkar að mörkuðum fyrir bandaríska vöru og þjónustu yrði skertur. Hugsan- lega verður hægt að útvíkka við- skiptatengsl Islands og Bandaríkj- anna enn frekar. Enn liggur hins vegar ekki fyrir nein endanleg nið- urstaða í þeim efnum og má nefna að íslendingar eiga nú í viðræðum við kanadísk stjórnvöld um þessi mál. Nú eru hafnar alþjóðlegar við- ræður um viðskiptamál og mikil- vægustu skilaboðin af okkar hálfu eru þau að aukið frelsi í viðskiptum hefur haft jákvæðar afleiðingar. Við viljum að sú þróun haldi áfram og að hagvöxtur og hagsæld haldi áfram að eflast.“ Almennt séð segir Griffiths að tvíhliða samskipti íslands og Bandaríkjanna séu í afbragðsgóðu ástandi og gangi snurðulaust fyrir sig. Hún sjái ekkert er gæti ógnað því að svo verði áfram. „Auðvitað koma ávallt upp mál er taka verður á og ræða,“ segir Griffiths, en framundan eru til dæmis viðræður um endurskoðun á varnarsamstarfi íslands og Bandaríkjanna. Ekki liggi enn fyrir nákvæmlega hver verði áhersluatriði Bandaríkjanna í þeim viðræðum né heldur nákvæm tímaáætlun fyrir viðræðurnar. Hins vegar sé Ijóst að ekki þurfí að taka á neinum stórmálum í viðræð- unum, segir sendiherrann, en þær muni byggjast á þeim minnis- punktum (minutes) sem ríkin urðu ásátt um í síðustu viðræðulotu. Á undanförnum mánuðum hafa verið tekin mikilvæg skref í þá átt að Vestur-Evrópusambandið verði að vamarstoð Evrópusamban- dsins. Er stefnt að því að VES verði jafnframt eins konar Evrópu- stoð NATO er gæti gripið til að- gerða upp á eigin spýtur, án að- stoðar og þátttöku Bandaríkjanna. Hefur þetta vakið upp áhyggjur hjá evrópskuin aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins, sem ekki eiga aðild að ESB, en hafa til þessa átt aukaaðild að VES. Griffiths segir að það mikilvæga í þessu sambandi sé að bætt verði við varn- argetuna í stað þess að byggja upp spegilmyndir af því sem þegar sé til staðar. Bandaríkin vilji efla Atl- antshafssamstarfið og vonist til að aukið samstarf Evrópuríkja á sviði vamarmála verði til þess. Þá leggi Bandaríkin rnikla áherslu á að evrópsku NATO-ríkjunum utan ESB verði ekki mismunað. „Is- lensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á sömu sjónarmið og við erum þeim heilshugai- sammála," segir Grif- fiths. Hún vildi að lokum taka fram áð þótt ekki væri langt um liðið frá því að hún hefði tekið við embætti hefði henni alls staðar verið vel tekið, jafnt af almenningi sem stjórnvöld- um. „Ég hlakka til að eiga samstarf við fólk og reyna að koma málum okkar á framfæri."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.