Morgunblaðið - 05.12.1999, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Sögur o g töfra-
brögð í Leikhús-
kjallaranum
I LISTAKLUBBI Þjóðleikhús-
kjallarans annað kvöld, mánudag-
skvöld, kl. 20.30, verður bókmennta-
dagskrá í umsjá Hjalta
Rögnvaldssonar leikara og verður
upplestur úr nýjum bókum: Halla
Margrét Jóhannsdóttir leikkona og
Sigfús Bjartmarsson lesa úr bókinni
Kajak drekkfullur af draugum, ín-
úítaþjóðsögum sem Sigfús þýddi. El-
ín Edda Gunnarsdóttir les úr smá-
sagnabók sinni Ystu brún. Ágúst
Borgþór Sverrisson les smásögu úr
bók sinni Hringstiganum. Haraldur
Bessason les úr bók sinni Bréfum til
Brands. Hjalti Rögnvaldsson les úr
smásagnabók Páls Kristins Pálsson-
ar, Burðargjald greitt. Páll Her-
steinsson les úr smásagnabók sinni,
Línur. Þórarinn Eldjárn les upp úr
Sagnabelgnum og Óskar Árni Ösk-
arsson les úr þýðingum sínum á smá-
sagnasafni eftir William Saroyan
sem nefnist Kæra Gréta Garbo.
Þá leikur svissneski töframaður-
inn Alex Porter listir sínar. Porter,
sem einnig er þekktur leikari, hefur
vakið athygli víða um lönd fyrir
töfrabrögð sín, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á bókmenntadagskránni árita
höfundar bækur sínar.
Dregið verður úr lukkupottinum
og heppnir áhorfendur fá ókeypis að-
göngumiða á sýningar Þjóðleikhúss-
ins.
Jólasaga Drauma-
smiðjunnar
DRAUMASMIÐJAN hefur hafið
sýningar á Jólasögu eftir Guðrúnu
Ásmundsdóttur.
Jólasaga er farandsýning ætluð
leikskólabörnum og yngri deildum
grunnskólanna. Þetta er sýning með
söngvum og fjöri en umfram allt hef-
ur hún að geyma jólaboðskap, segir í
fréttatilkynningu. Sýningunni fylgir
nánast engin leikmynd heldur nota
leikarar það sem hendi er næst
hverju sinni og fá börnin að taka
virkan þátt í sýningunni.
Jólasaga segir í stuttu máli frá því
að Hurðaskellir er sendur í bæinn til
að ná í lækni fyrir bróður sinn Gátta-
þef sem er með flensu og kvef. Hann
bankar eitt kvöldið í vondu veðri upp
á hjá læknisfrúnni sem er í óða önn
að baka fyrir jólin.
Leikarar eru Margrét Kr. Péturs-
dóttir og Hinrik Ólafsson.
Nýir sambyggðir kæli- og
frystiskáparfrá Siemens.
Þeir gerast vart betri!
KG 26V20 - [Sjá myndl
1381 kælir, 651 frystir.
Hxbxd = 150 x 60 x 64sm.
61.900 kr.
69.900 kr. stgr.
KG 31V20
1981 kælir, 1051 frystir
Hxbxd = 170 x 60 x 64sm.
KG 36V20
2351 kælir, 1051 frystii
Hxbxd = 186x60x6
Ism.
á á SMITH &
\ NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Umboðsmenn um I a n d allt!
Átta myndlistarkonur
Til jarðarinnar, gler-colage, eftir Dröfn Guðmundsdóttur.
MYNDLIST
Sparisjóður Garða-
bæ jar
MYNDVERK
Dröfn Guðmundsdóttir, Hrönn
Vilhelmsdóttir, Guðný Jónsdóttir,
Sigríur Helga Olgeirsdóttir,
Charlotta R. Magnúsdóttir, Árdís
Geirsdóttir, Þóra Sigurgestsdótt-
ir, Áslaug Saja Davíðsdóttir. Opið
á tíma sparisjóðsins. Til 31. des-
ember. Aðgangur ókeypis.
BANKAR og sparisjóðir höfuð-
borgarsvæðisins hafa flestir sinnt
myndlist í meira eða minna mæli,
þótt í fæstum tilfellum hafi það
verið á skipulegan hátt og sam-
kvæmt sérstökum mörkuðum
reglum. Verið meira tii skreyti en
að lyfta undir samtímalist, sem að
sjálfsögðu er öll gild og framsækin
listsköpun á sjónlistasviði á hverj-
um tíma, en einnig hafa mjmdverk
verið tekin upp í skuldir sem síst
skal lastað. Má koma fram að mörg
frábærustu verk sem Reykjavíkur-
borg eignaðist á löngu tímabili fóru
að þeim viðskiptahætti, og loks
skal ekki horft framhjá þrotabúun-
um.
Erlendis tíðkast skipuleg lista-
verkakaup víða, og bankar lána
iðulega einstaklingum stórfé til
kaupa á listaverkum á uppboðum
eins og fram hefur komið í fréttum,
en i slíkum tilvikum ekki af hinu
góða. Hins vegar eru mikilsháttar
myndverk harðasti gjaldmiðill sem
til er og mun öruggari verðbréfum.
Uppboðamarkaðurinn hefur aftur
rétt við svo um munar, eftir að
braskarar og spákaupmenn
spenntu bogann of hátt í lok síðasta
og upphafi þessa áratugar, rústuðu
hann um stund.
Það er einkum í Bandaríkjunum,
Japan og Þýskalandi sem sldpuleg
innkaup banka á listaverkum fara
fram og þekki ég best til í síðast-
talda landinu. Veit að Þýskalands-
banki er einn öflugasti stuðninga-
aðili samtímalistar og reglulega
koma út vegleg rit, skreýtt fjölda
litmynda sem greina frá kaupun-
um. Hef flett í nokkrum þeirra á
Guggenheim Berlín, á Unter den
Linden-breiðgötunni, og fest mér
tvö. Án þessa stuðnings stæði þýsk
myndlist ekki jafn firnasterkt og
hún gerir í dag, því ekkert verður
til af sjálfu sér á listamarkaði.
Tilefni þessara hugleiðinga eru
tvær sýningar í Sparisjóði Garða-
bæjar, sem íýnirinn hefur heim-
sótt, en kom of seint á vettvang til
að gera hinni fyrri skil.
Islenzkir bankar gera fremur lít-
ið af því að vera með kynningar-
sýningar á myndlist og myndlistar-
mönnum. Ber sérstaklega að geta
hlutar Búnaðarbankans og lof-
sverðs framtaks SPRON á Álfta-
bakka, um langt skeið, þótt hús-
næðið væri ekki beinlínis hið
heppilegasta, en hér skorti hvorki
dug né vilja. Vel mætti huga betur
að opnu rými og vellíðan viðskipta-
vinanna í bönkum borgarinnar en
nú tíðkast. Því miður hefur verið
um mikla öfugþróun í þeim efnum
að ræða á allra síðustu árum, og
einmitt á kostnað listaverka í af-
greiðslusölum. Nýverið sá ég eina
sýningu í Berlín þar sem banki
nokkur var að kynna innkaup sín
og listaverkaeign og auglýsti stíft,
aðra í Frankfurt þar sem annar
banki var að kynna verk Danans
nafnkennda, Per Kirkeby, og spar-
aði hvorki íburð né virkt.
Að sjálfsögðu geta Islendingar
ekki borið sig saman við hið gróna
menningarþjóðfélag né auðugu
banka, jafnvel þótt þeh- þykist allra
þjóða ríkastir og ósparir á saman-
burðarfræði og línurit því til árétt-
ingar. Láta þó listir og auðlegð
sköpunar mæta afgangi, sennilega
hlutfallslega meira litið til þjóðar-
tekna en nokkur önnur þjóð í heimi
hér.
Þetta mátti koma fram, þakka
um leið allt sem vel er gert og vísa
hér og nú til framtaksins í Garða-
bæ. Þótt húsnæðið sé ekki stórt, er
einnig sérrými inn af afgreiðslunni
þar sem hægt er að skoða mynd-
verkin í næði. Fyrir þetta sérrými
kæmi til álita að skrifa oftar um
framnínga á staðnum, en þá þarf
að búa aðeins betur að hlutunum
einblöðungur/verðskrá full búi-a-
legt.
Það sameiginlega við sýningam-
ar tvær er einsleitur kvennafjöld-
inn, svo jaðra má við ofríki, en það
verðum við kai-larnh- að þola, jafn-
vel þótt þetta væri engan veginn
hugsunai-hátturinn í gamla daga
heldur átakanlegur kvennaskortur
í faginu. Þessu virðast skólar og
námslánakerfið hafa snúið í heilan
hring, en hlutur grunnmenntunar
minnkað að sama skapi.
Báðar sýningarnar í þokka-
fyllsta lagi, mai-gan eigulegan og
yndisþokkafullan gripinn og skil-
iríið bar fyrir augu, þótt meira
væri (og er) um þreifingar í hinn
margvíslegasta efnivið að ræða, en
minna um úrskerandi átök.
Bragi Ásgeirsson
Kirkian ómar
Á MEÐAN snjónum kyngdi niður
sl. miðvikudagskvöld ómaði kirkj-
an í Reykholti af tónlist þegar
Kammersveit Reykjavíkur flutti
verk eftir stórineistarana Vivaldi,
Bach og Corelli, undir stjórn Rut-
ar Ingólfsdóttur ú aðventutónleik-
um. Efnisskráin mun vera sú sama
og flutt verður í Reykjavík 19.
desember nk.
Sveitin lauk flutningi sínum með
„Slá þú hjartans hörpustrengi“ og
náði sannarlega að skapa þá kyrrð
sem leitað er á jólaföstunni.
Áheyrendur létu hrifningu sína
sterkt í ljós. Tónlistarfélag Borg-
arfjarðar, Borgaríjarðarprófast-
sdæmi og Reykholtskirkja standa
árlega að tónleikum á aðventu í
Reykholtskirkju og er þetta þriðja
árið í röð sem þeir cru haldnir.
Töfrakrist-
allinn til
Helsinki
TÖFRAKRISTALLINN KIDE
frá Helsinki, sem síðastliðna tvo
mánuði hefur verið á bökkum
Elliðaánna, verður fluttur aftur til
síns heima mánudaginn 6. desem-
ber.
I Helsinki verða kristallarnir níu
sameinaðir í einn risastóran skúlp-
túr sem lýsist upp á gamlárskvöld
1999 og stendur út menningarárið
2000.
Um miðnætti næstkomandi
sunnudagskvöld verður sambandið
á milli borganna níu rofið.
Tveir töfrablettir eru á Kide.
Með því að leggja lófa á tiltekinn
stað á glerskúlptúrnum magnast
ijós, hljóð og litir, sem sérstaklega
voru valdii1 fyrir Reykjavík og
samskonar snerting á myndskjáinn
sendir menn í ferðalag á milli
borganna níu.
Hönnuðir Kide eru tveir arki-
tektar, Finninn Kari Leppanen,
Hollendingurinn Peter Ch. Butter
og tékkneskur myndhönnuður,
Dusan Jovanovie.
Samstarfsaðili Menningarborg-
arinnar um Kide er Orkuveita
Reykjavíkur, sem hefur á meðan á
dvöl Kide stendur, staðið fyrir ým-
iss konar dagskrá og viðburðum í
nágrenni Kide í Elliðaárdalnum.