Morgunblaðið - 05.12.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 05.12.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1999 39 --------------------------* Svefninn langi laðar til sín lokakafla æviskeiðs, hinsta andardráttinn, andinn yfirgefur húsið, hefur sigtilhimna, við hliðið bíður drottinn. Það er sumt sem maður saknar vöku meginvið, leggst út af, á mér slokknar, svífum önnursvið. I svefnrofunum finn ég, sofalengurvil. Þegar svefn minn verður eilifúr finn ég aldrei aftur til. (Björn Jör. Friðbjömss. og Daníel Ag. Haraldss.) Þín Guðbjörg. Kær vinur, Guðmundur Árni Markússon, hefur hvatt þennan heim. Órofin vinátta tókst með okkur er við hófum nám í plötu- og ketilsmíði í Stálsmiðjunni haustið 1958. Arni var liðlega 10 árum eldri en við og hafði orð fyrir okkur, en jafn- ræði ríkti með okkur félögunum. Ámi fæddist í Súðavík og ólst þar upp með foreldrum sínum og systk- inum. Þegar hann hafði aldur til hóf hann að starfa ýmist í landi eða á sjó. Ámi lærði vélstjórn og var vél- stjóri á fiskiskipum. Árni giftist Sign'ði Jónasdóttur frá Grundarfirði, eftirlifandi konu sinni og eignuðust þau sjö böm. Frá átta ára aldri dvaldi Helga meira og minna hjá þeirn hjónum. Áður en Árni giftist Sigríði átti hann eitt barn. Mikil ástúð og um- hyggju ríkti í sambúð þeirra alla tíð. I erfiðum veikindum Árna kom Sigga hvern dag og dvaldi hjá honum daglangt. Af sambúð þeirra mátti sjá markmið hjónabandsins. Efalaust hefur barnafjöldinn ráðið miklu um það að Árni hóf störf í landi. Árni og Sigga reistu húsið Sand- brekku í Blesugróf og á þeim tíma hóf Árni nám við járnsmíði. Að námi loknu stofnaði Árni ásamt öðrum fyr- irtækið Katla og stálverk, sem við fé- lagarnir gengum seinna inn í. Fyrirtækið gekk vel í fyrstu en vegna minnkandi vinnu hallaði und- an fæti og hófum við þá í störf í Stálskipasmiðjunni í Kópavogi, en hana höfðu stofnað duglegir áhuga- menn um skipasmíðar. Þarna voru smíðaðir flóabáturinn Baldur eldri og björgunarskipið Eldingur. Til að fjármagna reksturinn og uppbygginguna, veðsettu eigend- urnir eignir sínar, auk þess lögðu þeir fram ómælda vinnu. Stuðningur við skipasmíðar var ekki fyrir hendi, því varð að loka smiðjunni. Ásamt Ái’na hófum við nokkrir starfsmenn smiðjunnar störf í Stál- vík. Stálvík fékk betri fyrirgreiðslu en Stálskipasmiðjan, en lánin hefðu þurft að vera miklu hærri til að standa jafnfætis skipasmíði Norð- manna. Ái-ni varð verkstjóri og síðar yfir- verkstjóri, enda hafði hann langa reynslu í faginu og hann átti auðvelt með að stýra fólki til verka. Ámi setti hvern mann í það verk sem hann var hæfastur til. Það er mikii ánægja fyrii- Árna að allir synir hans störfuðu hjá honum í Stálvík, þótt í mislangan tíma væri. Síðustu árin starfaði Árni hjá vegagerðinni. Við félagarnir tókum Iðnskólann utanskóla og sóttum því tíma til kennara á kvöldin. Þrátt fyrir stórt heimili og langan vinnudag lauk hann skólanum með góðum einkunn- um. Hann var vel ritfær og hafði Siggi Skúla sérstaklega gaman af að lesa upp skemmtilega kafla úr rit- gerðunum hans. Ái-ni gekk að hverju verki með festu og dugnaði, hann sýndi óhemju seiglu og þolgæði í lífi og starfi, einn- ig sýndi hann sérstakt þolgæði í löngum veikindum sínum. Árni hafði sterk áhrif á okkur, vini sína, og var það mikið lán fyrir okkur að eiga hann að. Árni sýndi það oft að hann bar mikla umhyggju fyrir velferð okkar félaganna og mátum við það mjög mikils. „Til góðs vinar liggja gagnvegir, þótt hann firr farinn.“ (Hávamál) Stórfjölskylda Ái'na reyndi að veita honum sem flestar gleðistund- h', bæði með tíðum heimsóknum og eins með því að hjálpa Siggu að taka hann heim um helgar. Kæra Sigga, við vottum ykkur öll- um innilega samúð. Alfreð, Símon og fjölskyldur. Mig langar að setja á blað nokkur orð um vin minn og tengdaföður Ái-na Markússon sem fallin er frá allt of fljótt. Við áttum eftir að gera svo margt saman í sælureitinum okkar í Súðavík, þegar hann ætlaði loksins að hætta að vinna. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og all. Gekkst þú með Guði Guð þérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Það var um vortíma fyrir 26 árum að kærastan, hún Dóra mín kynnti mig fyrir til-vonandi tengdaföður. Eg man alltaf hve kvíðin ég var tvít- ugur maðurinn að fara og hitta for- eldi-a kærustunnar í fyrsta sinn. Á móti mér í þessari heimsókn tók glaðlegur og glæsilegur maður með mikla kímnigáfu. Hann talaði við mig eins og hann hefði þekkt mig í langan tíma. Þannig var hann í viðmóti alla tíð hann Addi, eins og við kölluðum hann. Við urðum strax þá og alla tíð síðan bestu vinir og miklir félagar. Fljótlega fann ég hvað mikla virð- ingu Addi bar fyrir Islandi og öllu sem íslenskt er. Hann var alla tíð stoltur yfir uppruna sínum „að vest- an“ og unni heimabyggð sinni, Súða- vík og Álftafirði, framar öðrum stöð- um. Enda fór það svo að við Dóra flutt- um „vestur og bjuggum á í safii'ði í 10 ár. Þar „fyrir vestan kynntumst við góðu fólki, Vestfirðingum, ásamt ólýsanlegri náttúru-fegurð sem Addi hafði svo oft talað um við okkur. Ég er honum ævarandi þakklátur fyrir að kynna mig fyrir Vestfjörðum. Þar „fyrir vestaner minn háskóli lífsins. Það voru ánægjulegar heimsóknir vestrn- þegar Afi Árni og Amma Sigga komu að líta á okkur Dóru og stelpurnar. Maður fann það að hann þekkti marga, átti góða vini og kunn- ingja frá sínum uppvaxtarárum á þessum slóðum. Þær voru líka marg- ar sumar-ferðirnar sem við fórum sama öll stórfjölskyldan. Þá var hann stoltur og ánægður að vera með allan hópinn sinn úti í bjartri sumar nótt- inni á Islandi og syngja saman. Árni var meðal fyrstu manna sem fékk meistarabréf í stálsmíði og var lengi yfirverkstjóri í Skipasmíða- stöðinni Stávík hf. í Garðabæ. Á blómaskeiði íslenskrar stálskipa- smíði stjórnaði hann þar smíði á fyrsta íslenska skuttogaranum Stál- vík SI. Á eftir fylgdi nokkur fjöldi af glæsilegum skuttogurum sem runnu af stokkunum. Hann unni þessu starfi af heilum hug og lagði allan sinn kraft í það. Það var unun að sjá hversu mikinn metnað hann lagði í að leysa ótal vandamál sem upp komu, hvort sem það var að degi eða nóttu. Síðustu 10 árin starfaði Addi á lag- er Vegagerðarinna. I nóvember á síðasta ári tveimur mánuðum fyrir starfslok hjá Vegagerðinni, sem fyr- irhuguð voru á 70 ára afmælisdegi hans, var hann fluttur á sjúki-ahús með heilablóðfall. Þetta var honum og okkur öllum mikið áfall. En eins og svo oft áður í fyrri veikindum sín- um sýndi hann ótrúlegan styrk og baráttu við að komast aftur út í lífið. Við þökkum öllu því fólki sem annað- ist hann á þessum tíma. Addi minn kæri vinur, ég, Dóra mín, Sigga, Valdi og Svava Björk söknum þín sárt. Við biðjum góðan Guð að taka á móti þér og búa þér stað í ljósinu eilífa á himnum, Með þakklæti fyrir allt og allt. Megi góður Guð styðja og styrkja Ömmu Siggu og okkur öll. Jónas Á. Ágústsson. OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐALSTRÆTI 4B • 101 REYKJAVÍK Dttvtð lnger Olttfur Útfartmtj. Umsjón Utftrarstj. LÍKKIST UVIN N USTOFA EY\aNDAR ÁRNASONAR 0 ÚTFARARÞJÓNUSTAN ™ Stofnað 1990 Persónuleg þjónusta Aðstoðum við skrif minningarrgreina Sími: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@itn.is rs áv Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjóri LEGSTEINAR t íslensk framleiðsla Marmari Granít Vönduð vinna, gott verð Blágrýti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Líparít Hamarshöfði j 4, Reykjavík, sími 587 1960, fax 587 1986 Skilafrestur minningargreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: 1 sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. + Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, VALGERÐUR SiGURJÓNSDÓTTIR, Dalseli 33, Reykjavík, sem lést föstudaginn 26. nóvember si., verð- ur jarðsungin frá Seljakirkju mánudaginn 6. desember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er vinsamlega bent á Krabba- meinsfélagiö. Sigmundur Felixson, Sigríður Sveinsdóttir, Guðmundur Páll Axelsson, Eva Karen Guðbjörnsdóttir, Sigríður Anný Axelsdóttir, Júlíus Rafn Júlíusson, Kristján Gísli Stefánsson, Grétar Stefánsson og barnabörn. + Utför MARGRÉTAR ALBERTSDÓTTUR (Maggýjar) frá ísafirði, áður til heimilis á Blindraheimilinu, Hamrahlíð, fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 8. desember kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Herdís Albertsdóttir, Ágúst Ólafsson, Albert Karl Sanders. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN JÓNASSON, Víðimel 61, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 6. desember kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Líknardeild Landspítalans. Einar H. Björnsson, Dagbjört Björnsdóttir, Herdís Björnsdóttir, Bjarni Geir Alfreðsson og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför föður okkar, fóstursonar, sambýlismanns, tengdaföður, afa og langafa, HARALDAR S. GÍSLASONAR rafverktaka frá Stykkishólmi, Stelkshólum 10, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar Krabbameinsfélagsins og liknardeildar Landspítalans. Sjöfn Haraldsdóttir, Hlöðver Haraldsson, Sif Haraldsdóttir, Benedikt Sveinsson, Sigríður I. Haraldsdóttir, B. Gunnar Ingvarsson, Valdís H. Haraldsdóttir, Björn Guðmundsson, Magnea Á. Haraldsdóttir, Marius Zimmermann, Albert Haraldsson, Yngvi Kristjánsson, barnabörn, barnabarnabarn og Ingibjörg Axelsdóttir. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur hlý- hug og vináttu við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR G. FENGER, Lynghaga 7, Reykjavík. Geir U. Fenger, Pétur U. Fenger, Sigrún Guðmundsdóttir Fenger, Anna Kristín Fenger, Steinar Jónsson, Ida Hildur Fenger, Skafti Jóhannsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.