Morgunblaðið - 05.12.1999, Síða 56
56 SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
www.trickydisky.com
FÓLK í FRÉTTUM
mvndböiid
Simon Birch ★★%
Vönduð ramatík byggð á skáld-
sögu hins fræga höfundar John Irv-
ing. Myndin er áferðarfalleg en
helst til væmin. Frábær fyrir aðdá-
endur fjölvasaklútamynda.
Patch Adams ★★'/>
Robin Williams er hér í mjög
kunnuglegu hlutverki. Mikið er spil-
að á tilfínningasemina en boðskap-
urinn er jákvæður og sjálfsagt þarf-
ur.
Gjaldskil (Payback) ★★★
Endurvinnsla hinnar frábæru
„Point Blank“. Hröð, harðsoðin, töff
og ofbeldisfull. Eftirminnileg per-
sónusköpun og góður leikur. Ekki
fyrir alla, en að mörgu leyti dúndur
glæpamynd.
Egypski prinsinn (The Prince of
Egypt) ★★★
Vel heppnuð biblíusaga sem sann-
ar að teiknimynd hentar vel fyrir
slík ævintýri. Myndin er ekki síður
ætluð fullorðnum en börnum og er
jafnvel dálítið óhugnanleg á köflum.
Veislan (Festen) ★★★%
Þessi kvikmynd Thomasar Vint-
erberg, sem gerð er samkvæmt leik-
stjórnarreglum Dogma-sáttmálans
danska, er einkar vel heppnuð.
Sterk, óvenjuleg og vel leikin mynd.
Eg heiti Jói (My name is Joe)
★ ★★★
Kvikmynd breska leikstjórans
Ken Loach er hreint snilldarverk,
ljúfsár, raunsæ og hádramatísk.
Leikararnir, með Peter Mullan í far-
arbroddi, eru ekki síðri snillingar.
The Impostors (Svikahrapparn-
ir) ★★★%
Sprenghlægileg gamanmynd í sí-
gildum stíl eftir hinn hæfileikaríka
Joy semur lög um hamingjuna
sem vantar í líf hennar. Úr
myndinni Hamingja eftir Todd
Solondz.
Stanley Tueci sem jafnframt leikur
annað aðalhlutverkið. Frábært sam-
safn leikara kemur fyrir í þessari
ágætu mynd.
eXistenZ (Til-Vera) ★★★
Cronenberg er mættur með nýja
mynd og nýjar hugmyndir. Góður
leikur og skemmtileg flétta gerir
þetta að einkar athyglisverðri
mynd.
Orphans (Munaðarleysingjar)
★★%
Svört gamanmynd sem leiðir
áhorfandans í heim fjögurra systk-
ina, sem eyða nóttinni fyrir jarðaför
móður þeirra á mjög mismunandi
hátt. Góður leikur og fín persónu-
sköpun heldur myndinni uppi.
Chinese Box (Kínverski Kassinn)
★★%
Jeremy Irons, Gong Li og Maggie
Chong standa sig öll mjög vel í ann-
ars meðal kvikmynd eftir leikstjór-
ann Wayne Wang, sem að hluta til
ástarsaga og að hluta til heimild um
yfirtöku Kínverja í Hong Kong.
Big One (Sá Stóri) ★★★‘/2
Frábær heimildarmynd frá
Michael Moore sem ræðst á stóru
fyrirtækin í Bandaríkjunum og
stjórnmálamenn. Moore er sann-
kölluð rödd lítilmagnans.
Dóttir hermanns grætur ei (A
Soldier’s Daughter Never Cries)
★★★
Tíðarandamynd frá þeim Ishmael
Merchant og James Ivory sem
speglar París á sjötta áratugnum og
Bandaríkin á þeim sjöunda. Vel gerð
og dálítið öðruvisi fjölskyldumynd
með úrvalsleikurum.
Hver er ég (Who Am I?) ★★‘/2
Er hægt að renna sér niður há-
hýsi? Maður hefði haldið ekki en í
þessari nýjustu hasarmynd sinni
sýnir sprellarinn og bardagameista-
rinn Jackie Chan að allt er hægt ef
viljinn er fyrir hendi.
Amy ★★ V2
I þessari líflegu áströlsku tónlist-
arkvikmynd segir frá Amy litlu,
heyrnarlausri- og mállausri stúlku
sem getur aðeins tjáð sig í gegnum
tónlist.
Lífið er fallegt / La Vita é Bella
★★★%
Hér ræðst ærslabelgurinn Rober-
to Benigni í það vandasama verkefni
að búa til gamansama kvikmynd
sem á sér m.a. stað í útrýmingar-
búðum nasista. Utkoman er athygl-
isverð kvikmyndaleg stúdía um hið
sorg, kærleika og hlátur.
Hamingja / Happiness
★★★V2
Afdráttarlaus og gráglettin frá-
sögn af misóhamingjusömu fólki
sem hefur sínar jákvæðu og neik-
væðu hliðar. Þessi hamingjusnauða
kvikmynd Todd Solondz hefur
hneykslað marga.
Hurlyburly / Hringiðan ★★★
Ahugaverð, heimspekileg kvik-
mynd gerð eftir samnefndu leikriti.
Hentar þeimvel sem leita einhvers
annars en dæmigerðra afþreyingar-
kvikmynda. Sean Penn á hér stór-
leik.
Guðmundur Asgeirsson/Heiða
Jóhannsdóttir/Ottó Geir Borg
NIKE BÚÐIN
Laugavegi 6
Ginkgo Biloba
Eykur blóðstreymið
út í finustu æðarnar
Eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Krlnglunni, Smáratorgi
Reuters
Hafsjór af húðflúri
ISOBEL Varley frá Stevenage í Englandi sýnir húðflúrið á sér í búð í Berl-
ín. Varley er sögð af Heimsmetabók Guinness sú eldri kona sem er með
mesta húðflúr í heimmum. Hún mun verða einn af gestum á húðflúrsráð-
stefnu í Berlín um næstu helgi.
dragtir
& kjólar
Nýkomin sending af
glæsilegum kjólum og
drögtum á mjög góðu verði.
Verð frá kr. 13.900.-
Verslunin & snyrtistofan Rós er
staðsett í verslunarmiðstöðínni að
Engihjalla 8, Kópavogi.
Bjóðum upp á alla almenna snyrtingu.
9?ósC
ENGIHJALLA 8, KÓPAVOGI