Morgunblaðið - 22.01.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 1 3
FRÉTTIR
Þau Ólafur Ragnar Torssander, Sveinbjörn Thorarensen og Anna
Claessen fluttu fyrirlestur í Háskóla Islands á dögunum.
Ungir háskóla-
fyrirlesarar
ÞRÍR nemendur Tjarnarskóla í
Reykjavík héldu nýlega fyrirlestur
fyrir nemendur í kennslu- og upp-
eldisfræði í Háskóla Islands. Fjallaði
hann um einstaklingsbundið heima-
nám en í Tjarnarskóla vinna nem-
endur heimaverkefni sem nefnt er
rannsóknarverkefni.
Nemendur eiga að skila fjórum
slíkum verkefnum yflr veturinn og
ráða þeir sjálfir viðfangsefninu. Eitt
verkefnanna verður að vera tengt
sagnfræði, eitt skrifað á ensku og
eitt á dönsku. Er þeim heimilt að
skila verkefnunum á ýmsu formi,
sem ritgerð, á geisladiski, mynd-
bandi eða snældu.
Fyrirlestunnn fluttu þau Anna
Claessen, Ólafur Ragnar Tors-
sander og Sveinbjörn Thorarensen
og notuðu þau glærur og dreifirit
máli sínu til stuðnings.
Prests- og
djákna-
vígsla í
Dóm-
kirkjunni
BISKUP íslands, Karl Sigur-
björnsson, vígir einn guðfræðing
og einn djákna til þjónustu í
kirkjunni sunnudaginn 23. janúar.
Vígslan fer fram í Dómkirkjunni
og hefst kl. 11.
Vígsluþegar eru Óskar Haf-
steinn Óskarsson cand. theol. sem
vígist til embættis sóknarprests í
Ólafsvíkurprestakalli og Þórdís
Asgeirsdóttir sem vígist sem
djákni til Lágafellssóknar.
Vígsluvottar verða sr. Friðrik
Hjartar, sr. Jón Þorsteinsson, sr.
María Ágústsdóttir, sr. Sigrún
Óskarsdóttir, Unnur Halldórsdótt-
ir djákni og sr. Ingiberg J. Hann-
esson prófastur sem lýsir vígslu.
Sr. Hjalti Guðmundsson dóm-
kirkjuprestur þjónar fyrir altari
ásamt biskupi. Dómkórinn syngur.
Organisti er Marteinn H. Friðriks-
son.
Fyrstu íbúar flytja í Áslandshverfí í Hafnarfírði
Bann við^hunda- og katta-
haldi í Aslandi ekki virt
FYRSTU íbúar nýs íbúðahverfis í
Áslandi við fólkvanginn Ástjörn í
Hafnarfirði fluttu inn fyrir jól.
í fyrsta áfanga útboðs lóða á
hverfinu var gert ráð fyrir 148 lóð-
um í blandaðri byggð, 40 lóðum fyr-
ir einbýlishús á einni hæð, 20 par-
húsa- og 16 raðhúsalóðum fyrir hús
á tveimur hæðum og lóðum fyrir 72
íbúðir í 12 sex íbúða fjölbýlishúsum.
Athygli vekur að fyrsta fjölskyld-
an sem flytur í hið nýja hverfi held-
ur bæði kött og hund, en yfirvöld í
Hafnarfirði höfðu áður ákveðið að
banna slík gæludýr þar, vegna ná-
lægðar hverfisins við friðland fugla
og einu árvissu varpstöð flórgoðans
á Suðvesturlandi. Var það sérstak-
lega tekið fram við lóðaúthlutun.
„Vegna nálægðar byggðarinnar
við friðlandið og hið einstaka fugla-
líf er bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði
mjög í mun að stuðla að verndun
þess. Með það í huga að hunda- og
kattahald getur skaðað fuglalíf á
svæðinu verður ekki leyfilegt að
halda slík gæludýr þar,“ sagði í
frétt frá Hafnarfjarðarbæ í mars í
fyrra í tengslum við úthlutun í
blandaðri byggð 1. áfanga hverfis-
ins.
Guðrún Hjörleifsdóttir, formað-
ur umhverfisnefndar Hafnarfjarð-
arbæjar, segir að þessir skilmálar
séu enn í fullu gildi og þeim verði
fylgt eftir. „Svæðið við Ástjörn er
sérstaklega viðkvæmt yfir varptím-
ann og þá er ekki viðunandi að kett-
ir séu í nágrenninu," sagði hún.
Borgarfulltruar skora á
samgönguráðherra
Vilja takmarka
starfsemi nekt-
ardansstaða
STEINUNN V. Óskarsdóttir,
borgarfulltrúi R-lista, skoraði á
samgönguráðherra á síðasta fundi
borgarstjórnar að setja reglugerð
sem léti borgaryfirvöldum í té þau
tæki sem þarf til að setja takmark-
anir á starfsemi nektardansstaða
borgarinnar. Setning reglugerðar-
innar var á meðal tillagna sem
vinnuhópur um aðgerðir til að
sporna við starfsemi erótískra veit-
ingastaða og skipaður var fulltrú-
um Reykj avíkurborgar, samgöng-
uráðuneytis, félagsmálaráðuneytis
og dómsmálaráðuneytis skilaði í
nóvember síðastliðnum.
Ólafur F. Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, tók undir
áskorun Steinunnar. Hann sagði að
það umburðarlyndi og eftirlitsleysi
sem ríkt hefði gagnvart starfsemi
nektardansstaðanna væri nánast
hneisa fyrir íslenskt samfélag.
„Borgaryfirvöld eiga að gera allt
sem þau geta til að spyrna gegn
þeirri þróun að svona viðurstyggi-
leg starfsemi eins og þarna þrífst
vaxi og dafni,“ sagði Ólafur.
Rætt um stöðu
ríkisstofnana
gagnvart Alþingi
FÉLAG forstöðumanna ríkisstofn-
ana hélt fund í gærmorgun þar sem
rætt var um stöðu ríkisstofnana og
forstöðumanna gagnvart ráðuneyt-
um og Alþingi. Magnús Jónsson,
veðurstofustjóri og formaður FFR,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
þessi mál væru að mörgu leyti mjög
óskýr og að tilgangur fundarins
hefði fyrst og fremst verið sá að
koma umræðunni af stað.
„Það er alveg ljóst að það þarf að
setja skýrari reglur um þessi mál,“
sagði Magnús. Hann sagði að rætt
hefði verið um hlutverk forstöðu-
manna og ábyrgð þeirra í ýmsum
málum, sem og hvenær og hvort þeir
ættu að tjá sig um ákveðin málefni
o.s.frv.
Að sögn Magnúsar fór Sigm-ður
Líndal lagaprófessor ágætlega yfir
þessi mál á fundinum, en meginnið-
urstaðan varð sú að mikil þörf væri á
því að ræða þetta enn frekar. Magn-
ús kvað nauðsynlegt að stjómmála-
menn tækju þátt í þeim umræðum
því það væri helst í pólitískum mál-
um sem línurnar væru óskýrar.
Verkbókhald
IKERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/
O P I Ð LAUGARDAG KL. 10-16
Springdýnur
SLútuvogi 11» Sími 568 5588