Morgunblaðið - 22.01.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 23
IBM hristir af sér hrakspárnar
Apple blómstrar eftir að Steve
mann
STJÓRNENDUR breska farsíma-
fyrirtækisins Vodafone AirTouch
Plc. hafa tilkynnt að þeir séu reiðu-
búnir að hækka tilboð sitt í þýska
íyrirtækið Mannesmann AG, láti
stjómendur Mannesmann
af tilraunum til að verjast yfir-
tökuboði, að því er fram kemur á
fréttavef BBC.
I nóvember á síðasta ári setti
Vodafone fram tilboð í þýska fyrir-
tækið, sem er hæsta tilboð sem fyrir-
tæki hefur gert til að komast yfir
annað í óþökk þess.
Stjómendur Mannesman hafa síð-
an þá róið öllum áram að því að verj-
ast yfirtökuboðinu. Telja þeir tilboð-
ið ekki vera viðunandi, en samkvæmt
því yrði hlutur Mannesmann í sam-
einuðu fyrirtæki 47,2%.
Stjórnendur Vodafone segjast, til
viðbótar við hækkun tilboðsins, vera
reiðubúnir að semja við Mannes-
mann um jafna skiptingu milli fyrir-
tælqanna í yfirstjórn hins nýja fyrir-
tækis. Yfirmenn Mannesmann
segjast ekki ræða yfirtöku nema ef
fyrirtækið fái í sinn hlut 58,5% hluta-
fjár í sameinaða fyrirtækinu. Hlutir í
Mannesmann séu miklu meira virði
en tilboðið hljóði nú upp á. Einnig
segja þeir stjómendur Vodafone
stunda gamaldags viðskiptahætti
með því að reyna að semja um sam-
eininguna í gegnum fjölmiðla.
-------------------
Betri afkoma en
búist var við
IBM greindi frá því í vikunni að
hagnaður á síðasta ársfjórðungi árs-
ins 1999 hefði dregist saman um
10% í kjölfar minnkandi sölu vegna
ótta við að 2000-vandinn herjaði á
tölvubúnað. Þessi afkoma er þó
betri en gert hafði verið ráð fyrir í
spám fjármálasérfræðinga og er það
fyrst og fremst að þakka hertu
kostnaðareftirliti innan fyrirtækis-
ins.
Samkvæmt tilkynningunni sem
fyrirtækið sendi frá sér fór hagnað-
ur IBM, stærsta tölvuframleiðanda
heims, á fjórða ársfjórðungi síðasta
árs í 2,1 milljarða Bandaríkjadala
eða 153 milljarða íslenskra króna en
á sama ársfjórðungi árið árið nam
hagnaðurinn 2,3 milljörðum dollara
eða 168 milljörðum íslenskra króna.
Tekjur fyrirtækisins minnkuðu að-
eins um 4% á tfmabilinu, fóra í 24,2
milljarða dollara en kostnaður tíma-
bilisins lækkaði um 9% vegna hertra
aðgerða í kostnaðareftirliti.
Þrátt fyrir að að hagnaður fjórð-
ungsins hafi verið lægri en í fyrra
skilaði árið í heild metafkomu, hagn-
aður ársins jókst um 22% á milli ára.
I kjölfar þessara tíðinda hækkaði
markaðsverð hlutabréfa í IBM enda
hafði markaðurinn átt von á mun
verri afkomu en raun varð á.
Spáð er góðri afkomu IBM á
þessu ári en fyrirtækið varaði þó við
því að á fyrsta ársfjórðungi gætti
væntanlega enn áhrifa af árþús-
undaskiptunum.
Vodafone
hækkar tilboð
sitt í Mannes-
Láttu drauminn
Jobs snéri til fyrirtækisins á ný
Cupertino. Reuters.
HAGNAÐUR Apple Computer Inc.
fyrir fyrsta fjórðung fjárhagsársins
fór fram úr væntingum fjármálasér-
fræðinga en iMac-tölvurnar frá App-
le hafa skilað félaginu miklum
tekjum. Hagnaðurinn er um dollar á
hlut en spár sögðu til um 90 senta
hagnað á hlut.
Steve Jobs, aðalframkvæmda-
stjóri Apple, segir yfirstjórn félags-
ins mjög ánægða með vöxt fyrirtæk-
isins og Fred Anderson fjármála-
stjóri segir árið 2000 verða ár vaxtar
fyrir Apple. Fréttir af hagnaði fé-
lagsins umfram væntingar leiddu til
5% hækkunar á
hlutabréfum fé-
lagsins á Nasdaq-
hlutabréfamarkað-
num.
Tekjur félagsins
jukust um 37%, frá
sama tíma í fyrra, í
2,34 milljarða doll-
Steve Jobs ara úr 1,7 milljörð-
um. Apple seldi 1.377 milljónir tölva
á fjórðungnum, yfir 700.000 iMac og
235.000 iBook fartölvur og var sölu-
aukningin 46% á milli ára.
Stjórn Apple hefur tilkynnt um
valréttarsamning við Steve Jobs, þar
sem hann getur keypt 10 milljónir
hluta í fyrirtækinu. Sem þakklætis-
vott vegna frammistöðu Jobs í erfið-
leikum félagsins fær hann einnig
Gulfstream V-þotu að gjöf. Laun
hans verða eftir sem áður einn doll-
ari á ári, sem samsvarar um 72 krón-
um.
Jobs er annar stofnenda Apple og
sneri aftur til fyrirtækisins árið 1997
sem framkvæmdastjóri til bráða-
birgða. Fyrr i þessum mánuði var til-
kynnt að Jobs tæki að sér starfið til
framtíðar.
Ráðstefna
um WAP
ÍSLANDSSÍMI heldur ráðstefnu
um WAP-mál, miðvikudaginn 26.
janúar nk. frá klukkan 12-14 á
Hótel Loftleiðum. Ráðstefnan er
einkum ætluð stjórnendum, milli-
stjórnendum og umsjónarmönnum
net- og samskiptamála fyrirtækja
og stofnana. Einnig eru velkomnir
áhugamenn um fjarskipti og net-
mál. Á ráðstefnunni flytja erindi
meðal annars sérfræðingar frá
OZ.COM, mbl.is, Dímon hugbún-
aðarhúsi og Islandsbanka, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu.
Eins verða á ráðstefnunni erlendir
fyrirlesarar. Sama dag verður
kynnt ný þjónusta fyrir íslenska
WAP-notendur sem hjálpar þeim
að nota Netið. Skráning á ráð-
stefnuna er á www.strik.is og
www.islandssimi.is.
Nú fást amerísku SERTA rúmin
á amerísku verði í Hagkaupi.
Verð á dýnum með ramma:
Queen 153x203 65.900 kr.
King 193x203 verð frá 84.900 kr.
Rúmin eru seld á grind en án gafla.
Smáratorg, Kringla og Skeifa.
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
F4SI1! ^7 HH 1
j|j 1 jjSjlp | ■
' mm mmÉÉ S