Morgunblaðið - 22.01.2000, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Málefni Fiskiðjusamlagsins í brennidepli í bæjarstjórn Húsavíkur
Framtíð fjör-
eggs Húsvík-
inga óráðin
Hætt var við samruna Fiskiðjusamlags Húsavíkur og
Ljósavíkur í Porlákshöfn í síðustu viku. Mál Fiskiðju-
samlagsins hafa löngum verið þrætuepli andstæðra fylk-
inga í bæjarstjórn Húsavikur og svo er enn. Steingerð-
ur Ólafsdóttir tók púlsinn á bæjarfulltrúum á Húsavík.
DEILUR um starfsemi Fiskiðjusam-
lags Húsavíkur eiga sér langa sögu á
Húsavík. Bærinn hefur löngum verið
stærsti hluthafinn í félaginu og má-
lefni Fiskiðjusamlagsins samofin málefnum
bæjarins, enda hefur FH verið kallað fjöregg
Húsavíkur. Sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn hafa lengst af skipað meirihluta bæjai’-
stjórnar á Húsavík en eru í minnihluta nú eins
og á árunum 1994-1996.
Eftir sveitarstjómarkosningamar árið 1994
gengu framsóknarmenn til liðs við Alþýðu-
bandalag og mynduðu nýjan meirihluta. Að-
dragandinn var m.a. innkoma nýs forystumanns
D-listans, Siguijóns Benediktssonar tannlækn-
is, og áhersla hans á sameiningu Fiskiðjusam-
lagsins við útgerðarfélagið Höfða, og að bærinn
losaði sig út úr rekstri sjávarútvegsfyrirtækj-
anna. Bæjarfulltrúar Framsóknarílokksins
sættu sig ekki við framgöngu tannlæknisins og
kærðu sig ekki um áframhaldandi samstarf við
Sjálfstæðisflokk.
Fall meirihlutans árið 1996
Meirihluti Alþýðubandalags og Framsóknar-
flokks hélt velli hálft kjörtímabilið en sprakk svo
í kjölfar þess að sjálfstæðismenn studdu tillögur
Framsóknarflokks um sölu á hlutabréfum í
Fiskiðjusamlaginu og sameiningu þess og
Höfða en G-Hsti sat eftir, á móti sameiningu og
sölu á hlut bæjarins. Alþýðubandalagsmenn
lögðu fram bókun sem gekk gegn viðhorfum
samstarfsmanna þeirra í stjóm. Bókunin var
þess efnis að þeir sem stæðu að sölu hlutabréfa
bæjarins í FH á verði langt undir gengi, væru
ekki að gæta hagsmuna bæjarins heldur ann-
arra aðila. Fyrirtækjasameiningin á Húsavík
fór fram á haustdögum árið 1996 og fljótlega var
myndaður nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarílokks, svokölluð tannlæknastjóm.
Par vom tannlæknamir Sigurjón Benediktsson
og Stefán Haraldsson í broddi hvorrar fylking-
ar. En vinstrimeirihluti komst aftur á árið 1998
og Reinhard Reynisson var ráðinn bæjarstjóri.
Sigurjón Benediktsson varð varamaður sjálf-
stæðismanna en síðar aðalmaður og hefur verið
ólatur við að gagnrýna meirihlutann. Um má-
lefni Fiskiðjusamlagsins hefur alltaf staðið styrr
og hafa deilurnar síðasta hálfa árið minnt á defl-
urnar frá því árið 1996.
Siguijón bæjarstjóraefni
Þegar kemur að áður fyrirhugaðri samein-
ingu FH við sunnlenska sjávarútvegsfyrirtækið
Ljósavík hf. virðast þó meirihluti og minnihluti
hafa skipt um hlutverk frá því sem var við um-
ræðumar um sameiningu FH og Höfða á sínum
tíma. Meirihluti vinstrimanna vill sameiningu en
minnihlutinn er á móti. Meirihluti H-Hstans hef-
ur haldið velli þrátt fyrir yfirlýsingar minnihluta
um að bæjarstjórinn ætti að segja af sér. Odd-
vitinn Kristján Asgeirsson fer mikinn lflct og
fyrr og segir það eina sem vaki fyrir minnihlut-
anum sé að gera Sigurjón tannlækni að bæjar-
stjóra.
Deilur hafa staðið um hlut bæjarins í FH síð-
an í sumar þegar bærinn keypti hlut Kaupfélags
Þingeyinga í FH. Eftir kaupin átti bærinn rúm
46% í FH og var slíkt eignarhald m.a. gagnrýnt
af minnihlutanum í bæjarstjóm. Forsvarsmenn
bæjarins áttu í viðræðum við Þormóð ramma -
Sæberg um sölu á hluta af hlutabréfum bæjar-
ins en viðræðumar skiluðu ekki árangri. Ljósa-
vík hf. keypti 20% hlut í FH af Húsavíkurbæ síð-
astliðið haust en umræddur eignarhlutur er nú á
hendi Jökulvíkur, sem er í eigu sömu aðila og
Ljósavík hf.
Umræða á vettvangi stjómmálanna vill oft
einkennast af árásum á báða bóga og það er
hlutverk minnihlutans að mótmæla, eins og einn
bæjarfulltrúi á Húsavík orðaði það. Umræðan
vill oft einkennast af því að tínd eru til smáatriði,
tölur túlkaðar á mismunandi hátt, sem og afleið-
ingar fyrir hagsmuni bæjarbúa og fjöreggsins
FH.
Reinhard Reynisson er bæjarstjóri Húsvík-
inga og er ráðinn sem framkvæmdastjóri bæjar-
félagsins eins og Siguijón Benediktsson lagði
mikla áherslu á í umræðum á bæjarstjómar-
fundi á miðvikudag. Reinhard er ráðinn til
starfa af meirihlutanum og er póUtískur í þeim
skilningi eins og hann segir sjálfur.
Hagsntunir Húsvíkinga
og Ljósvíklnga
Minnihlutinn í bæjarstjóm Húsavíkur hefur
álitið hagsmuni FH fyrir borð boma í umræddu
samrunaferii FH og Ljósavíkur, en Ljósvfldng-
um aftur á móti hampað. Að mati meirihlutans
er Ljósavík aftur á móti áHtlegur sameiningar-
kostur vegna rækjuveiðiheimilda á Flæmingja-
grunni og fiskiskipa.
Sigurjón tannlæknir Benediktsson hefur ekki
verið hræddur við að tjá sig um málefni bæjar-
ins og FH hingað til. Eins og hann segir sjálfur,
vilja bæjarfulltrúar minnihlutans hagsmuni fé-
lagsins sem mesta og telja miklu máH skipta að
Húsvíkingar verði ekki hlunnfamir í viðsldptum
við smáfyrirtæki með veika eiginfjárstöðu. í
greinargerð með tillögum minnihlutans á bæj-
arstjómarfundi í vikunni er áhersla lögð á að
nauðsynlegt sé að tryggja hag bæjarfélagsins
og annarra hluthafa FH miðað við breyttar að-
stæður og framkomin gögn í málefnum Fisk-
iðjusamlagsins. Með samþykkt tillagnanna væri
stefna stærsta hluthafa félagsins ljós. Tillögur
minnihlutans um að bærinn ályktaði um and-
stöðu við samrana FH og Ljósavíkur vora sem
kunnugt er felldar á fundi bæjarstjómar.
Siguijón hefur gagnrýnt bæjarstjóra hvað
harðast og telur vinnubrögð hans bera vott um
annarleg sjónarmið. Sigurjón gagnrýnir að bæj-
arstjóri skuU tjá sig um pólitísk málefni, sitja í
stjórn FH en koma ekki hreint fram gagnvart
bæjarfulltrúum. Reinhard Reynisson hefur lýst
því yfir að hann sitji í stjóm FH sem fulltrúi
hluthafans Húsavíkurkaupstaðar og trúnaðar-
málefni stjórnar FH eigi ekld erindi á bæjar-
stjómarfundi.
Gengi hlutabréfa FH hafa lækkað
um 58% frá skráningu
Fiskiðjusamlag Húsavíkur var stofnað árið
1975, eftir tæprar aldar saltfiskvinnslu á staðn-
um. Félagið hefur rekið rækjuvinnslu og bol-
fiskvinnslu á Húsavík, átt nokkur skip en selt
þau. Eins hefur FH rekið rækjuverksmiðju og
stofnaði ásamt öðram hlutafélag um rekstur
verksmiðju á Kópaskeri en hefur selt hlut sinn.
Eins og stendur á FH ekkert fiskiskip og er það
ein helsta röksemdin fyrir samruna við annað
sjávarútvegsfyrirtæki. Ljósavík hf. á skip og
hefur auk þess yfir að ráða rækjuveiðiheimild-
um sem meirihlutinn í bæjarstjóm Húsavíkur
hefur lýst sem miklum verðmætum og kemur
enda fram í granni að samræmdu mati á félög-
unum.
Frá í sumar hafa þrír yfirmenn hjá FH sagt
störfum sínum lausum og minnihlutinn í bæjar-
stjóm segir fyrirtækið stjómlaust. Síðast sagði
Einar Svansson framkvæmdastjóri upp og mun,
að því er síðast fréttist, láta af störfum í lok jan-
úar.
Hlutabréf Fiskiðjusamlags Húsavíkur vora
skráð á Verðbréfaþing íslands árið 1997, en frá
þeim tíma hefur gengi bréfanna lækkað um tæp
58%, eða úr 2,8 í 1,18, sem er lokagengi gær-
dagsins.
Skráð hlutafé FH er um 620 milljónir og er
markaðsvirðið samkvæmt genginu um þessar
Morgunblaðið/Kristján
Sigurjón Benediktsson og Dagbjört Þyrí Þor-
varðardóttir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks.
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík.
f Sévfræðingar telja
nauósynlegt að FH leiti
eftir sameiningu við ann-
að fyrirtæki, ætli það að
auka áhuga fjárfesta. í
mundir því rúmar 730 milljónir. Húsvfldngar í
öllum flokkum era sammála um að við íyrirtæk-
inu blasi bjartari framtíð með hærra gengi.
Sérfræðingar á fjármálamarkaði hafa talið það
nauðsynlegt íyrir félag eins og FH að leita eftir
sameiningu við annað fyrirtæki, ætH það að
auka áhuga fjárfesta. Afkoma FH á síðasta
rekstrarári versnaði mjög frá iyrra ári en tap fé-
lagsins nam 126,4 milljónum króna. Rekstrarár-
ið á undan nam hagnaður félagsins 67,3 miHjón-
um.
Deilt um skiptihlutföll
og kvótamat
Þrætuefnið í deilum stjómmálaíylkinganna
varðandi áður fyrirhugaðan samrana Ljósavík-
ur og FH hefur m.a. verið mat á hvora fyrirtæki
fyrir sig og skiptihlutfall á sameinuðu fyrirtæki.
I samranaáætlun er skiptihlutfallið 37,5% til
Ljósavíkur og 62,5% til FH, en í mati Verðbréfa-
stofunnar sem unnið var að beiðni minnihlutans
í bæjarstjórn er skiptihlutfallið 25% og 75%.
Mismunandi forsendur Hggja að baki hvora
mati en minnihlutinn hefur deilt á að eignir
Ljósavíkur hafi verið ofmetnar í samranaáætlun
og eignir FH að sama skapi vanmetnar. Meiri-
hlutinn gagnrýnfr að tölur séu gripnar úr sam-
hengi og bærinn með því sakaður um að hygla
hagsmunum annarra en bæjarbúa.
Reinhard Reynisson bæjarstjóri hefur lýst
því yfir að rækjuveiðiheimildir Ljósavíkui’, auk
þeirrar staðreyndar að félagið hefur yffr fiski-
skipi að ráða, séu verðmæti sem ekki sé hægt að
horfa framhjá við mat á félögunum og hag-
kvæmni samrana þeirra fyrir FH og atvinnulíf á
Húsavík.
Alþekkt er að rækjuútgerð og -vinnsla er
sveiflukennd atvinnugrein og úthlutun á rækju-
veiðiheimildum mismunandi á milli ára. í granni
að samræmdu mati á félögunum sem minnihlut-
inn hefur sérstaklega gagm-ýnt fyrir þá sök að
plaggið var ekld kynnt í bæjarstjórn, eru rækju-
veiðiheimildir Ljósavíkur metnar of háu verði að
mati minnihlutans. Styrkleiki Ljósavíkur Hggur
í rækjuveiðiheimildum en FH hefur yfir meiri
veiðiheúnildum í bolfiski að ráða. Nú er niður-
sveifla í rækjuveiðum að flestra mati og almennt
taUð að botninum sé náð og leiðin Hggi nú upp á
við, að því er bæjarstjóri lýsti á bæjarstjómar-
fundi í vikunni. Vandséð væri að þorskverð
myndi hlutfallslega hækka eins og von er á að
rækjuverð geri.
Verðmæti kvóta Ljósavíkur samkvæmt
granni að samræmdu mati á félögunum er tæp-
ur 1,1 milljarður en kvóti FH er metinn á rúma
2,3 milljarða. Virði félaganna er lækkað vegna
varúðar, Ljósavík um 600 milljónir en FH um
rúman mflljarð. Eignarhlutfall Ljósavíkur
samsvarar 913,5 mflljónum og FH 1,3 milljörð-
um. Þetta telja minnihlutabæjarfulltrúar ofmat
á öðra félaginu og vanmat á hinu.
Mat Verðbréfastofunnar hf. byggist á upp-
lausnarvirði fyrirtækjanna og þar er niður-
stöðutalan 2,5 mUljarðar fyrir FH og 826,3 miUj-
ónir til Ljósavíkur. I mati Verðbréfastofunnai’
kemur fram að einna helst var notast við upp-
lausnai’virði fyrirtækjanna við mat á þeim. Upp-
lausnarvirði er virði fyrirtækis þegar eignir hafa
verið seldar og skuldir greiddar niður. Fram
kemur að rekstrartelqur FH era 5 sinnum
hærri en rekstrartekjur Ljósavíkur. I matinu
kemur einnig fram að rekstrartekjur FH hafa
aukist um 65% á síðastliðnum 4 áram en rekstr-
artekjur Ljósavíkur á hinn bóginn dregist sam-
an um 25%. Miðað er við áætlaðar tölur fyrir ár-
ið 1999.
„Reynslan hefur sýnt að samrani eða yfirtaka
skílar í 50% tUvika stærri aðUanum engum eða
Htlum ábata,“ segir í mati Verðbréfastofunnar.
Ástæða skiptihlutfaUanna 25% og 75% er m.a.
„að hvoragt félag mun vilja sameinast fái það
minna virði hlutfallslega fyrir eignir sínar en
hluthafar hins félagsins fá,“ segir einnig. Tekið
er fram að rekstur félaganna sé á margan hátt
líkur og því megi ætla að hagkvæmni gæti náðst
á ýmsum sviðum starfseminnar.
Hætt við samrunaáform vegna
vanhæfis endurskoðanda
Þegar hætt var við samranaferH FH og
Ljósavíkur í síðustu viku, var því borið við að
komið hefði í ljós að endurskoðandi félagsins
væri vanhæfur vegna eignarhluta síns í FH.
Vangaveltur um hvenær sú staðreynd hefði leg-
ið fyrir og hvort hún væri ekki einungis skálka-
skjól hafa verið uppi. Menn hafa spurt hví ekki
hafi verið fenginn annar endurskoðandi tU
verksins og samrunaferH hafið að nýju. Það þyk-
ir lfldegt að viðsemjendur FH, þ.e. Ljósavfloir-
menn, hafi orðið þreyttir á langvarandi deUum
og ekki viljað halda samranaáformum til streitu.
í Vísbendingu birtist spurningin: „Skyldu öll
þessi axarsköft vera vegna þess að FH er ein af
fáum útgerðum þar sem bærinn hefur enn ráð-
andi áhrif?“
Bréf Bjöms St. Haraldssonar endurskoðanda
til hluthafa í FH sem merkt var sem trúnaðar-
mál og inniheldur áHt endurskoðandans á sam-
ranaferlinu sem hætt hefur verið við, hefur bor-
ist í hendur fjölmiðla. Þar lýsir Bjöm breyttu
mati sínu á samrunaferlinu og telur skiptihlut-
fölUn samkvæmt samrunaáætlun ekki sann-
gjöm. Jafnframt segir Bjöm að matsverð skipa
Ljósa\Tkur sé ofmetið um 168,6 milljónir. Hann
segir jafnframt að ekki hafi verið tekið tillit til
yfirfæranlegs taps félaganna við endurmat
eigna þefrra og sé tekið mið af þessum atriðum
ætti skiptihlutfalHð að vera 34% til Ljósavfloir
og 66% til FH. Bjöm telur því rétt að fallið verði
frá samrana félaganna á grandvelH fyrra skipti-
hlutfalls.
Á títtnefndum bæjarstjómarfundi kvaddi
Gunnar Bóasson, bæjarfuHtrúi H-Hstans, sér
hljóðs og ræddi m.a. vangaveltur sínar um van-
hæfi endurskoðandans. Gunnar telur líklegt að
Bjöm hafi dregið sig í hlé til að koma vinnuveit-
anda sínum, PricewaterhouseCoopers-endur-
skoðunarstofunni, hjá málaferlum.
Nú er talið ólíklegt að fyrirtæki í sjávarútvegi
sýni FH áhuga á sameiningargrandvelli. Pólit-
ískar deilur í bænum era hatrammar og hafa
haft dvínandi áhuga í för með sér. Upp úr sam-
einingarviðræðum FH og Þormóðs ramma -
Sæbergs slitnaði í sumar en fleiri viðræður hafa
ekki verið formlega tilkynntar fyrir utan við-
ræður við Ljósavík. Samherji kom ekki með
formlegt tilboð en umræðugrandvöllur lá fyrir
og var til umfjöllunar hjá stjóm FH, að sögn
bæjarstjóra sem jafnframt er stjómarmaður í
FH. Umræðurnar komust ekki á það stig að
verða öðrum hluthöfum Fiskiðjusamlagsins
kunnar og hefur minnihlutinn í bæjarstjóm
gagnrýnt það harðlega.
Stærstu hluthafar í FH eru, auk bæjarins
sem á 26,44%, Jökulvík, sem er í eigu sömu og
aðila og Ljósavík með 20%, Hlutabréfasjóðurinn
íshaf með 14,82%, Tryggingamiðstöðin á 9,13%
hlut, OHufélagið hf. á 7,49% og Tryggingamið-
stöðin 9,13%. Mastur ehf. á 4,24%. Mastur er í
eigu Olíufélagsins sem einnig er stærsti hluthafi
í Ishafi. Olíufélagið og tengd fyrirtæki eiga því
26,55% hlutafjár í FH. Það ræðst af því hvort
Ljósavík selur sinn eignarhlut í FH hvemig
stjómarskipan í FH verður í framhaldinu.
Stjómarfundur var haldinn í gær en niðurstað-
an varð að hefja ekki samranaferli að nýju að
svo stöddu en ekkert var ákveðið um sölu á hlut
Ljósavíkur í FH. Guðmundur Baldursson,
stjómarformaður Fiskiðjusamlags Húsavíkur,
hefur lýst því yfir að deilumál á Húsavík að und-
anfömu hafi síst orðið FH til framdráttar. „Það
er ekkert nema eðlilegt að það sem gerst hefur á
Húsavík að undanfömu verði til þess að áhugi
utanaðkomandi dvíni,“ segir Guðmundur.
Hann segist ekki sjá að af samrana félaganna
verði en hugsanlegt sé að hlutur Ljósavíkur
verði seldur þótt enginn hafi sýnt áhuga hingað
til. Framtíð FH virðist því enn nokkuð óráðin.