Morgunblaðið - 22.01.2000, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 27
Vopnaeftirlitsnefnd SÞ í frak
Deilt um tilnefn-
ingu Ekeus
Bagdad, Sameinuðu þjóðunum, Kaíró. AFP, AP.
IRAKAR mótmæltu í gær þeirri
ákvörðun Kofis Annans, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,
að tilnefna Svíann Rolf Ekeus sem
formann nýrrar vopnaeftirlitsnefnd-
ar sem ráðgert er að senda til Iraks.
Bandaríkjamenn sögðu hins vegar að
ekki ætti að leyfa Irökum að ráða því
hver færi fyrir nefndinni en Bretar
gáfu til kynna að þeir væru tilbúnir
að fallast á að einhver annar yrði
skipaður til að koma í veg fyrir klofn-
ing í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna.
Rússar og Frakkar snerust á sveif
með Irökum í deilunni og höfnuðu
Ekeus sem yfirmanni vopnaeftirlits-
nefndarinnar. Viðbrögð Kínverja við
tilnefningunni voru ekki eins hörð en
þeir hvöttu til þess að valinn yrði
maður með „nauðsynlega pólitíska
dómgreind".
Ekeus var fonnaður fyrri afvopn-
unamefndarinnar í írak, UNSCOM,
frá árinu 1991 og þar til hann var
gerður að sendiherra Svíþjóðar í
Bandaríkjunum árið 1997. Astralinn
Richard Butler varð þá formaður
nefndarinnar þar til í lok ársins 1998
þegar stjómvöld í írak meinuðu
henni að starfa í landinu áður en
Bandarílqamenn og Bretar hófu loft-
árásir á landið.
Nýrri vopnaeftirlitsnefnd hefur
verið komið á fót samkvæmt ályktun
öryggisráðsins frá í desember þar
sem ráðið bauðst til að slaka á refsi-
aðgerðunum gegn írökum ef þeir
hefðu samstarf við nefndina.
Lýst sem handbendi
Bandaríkjamanna
fraska dagblaðið Al-Iraq gagn-
rýndi tilnefninguna í gær og lýsti
framgöngu Rolfs Ekeus í fyrri nefnd-
inni sem „viðbjóðslegum þætti í sögu
Sameinuðu þjóðanna". „Bandaríkja-
menn viija nú fela hinum bölvaða Ek-
eus að stjóma nýrri njósnaferð í ír-
ak, en hann er búinn að vera og
bömin okkar, sem þjást vegna refsi-
aðgerðanna, munu bölva honum að
eilifu,“ sagði blaðið.
AP
Rolf Ekeus, sem hefur verið til-
nefndur formaður vopnaeftir-
litsnefndarinnar í írak, í höfuð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna í
New York.
Daginn áður hafði Tareq Aziz, að-
stoðarforsætisráðherra íraks, lýst
Ekeus og Annan sem handbendum
Bandaríkjastjórnar.
Bretar ljá máls á málamiðlun
William Cohen, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, fór í höfuð-
stöðvar Sameinuðu þjóðanna í New
York í fyrradag til að lýsa yfir stuðn-
ingi við Ekeus. Cohen sagði eftir
fund með Annan að Irakar ættu ekki
að fá „neitunarvald" í málinu og Ek-
eus væri enn formannsefni nefndar-
innar.
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, gaf hins vegar til kynna að
Bretar væra tilbúnir að fallast á
málamiðlun.
„Ekeus hefur verið í þessu starfi
áður. Hann þekkir þetta starf. Hann
þekkir málefnin," sagði Cook en
bætti við að Bretar „gætu sætt sig við
aðra menn“. „Mikilvægast er að þessi
deila verði leyst í náinni framtíð."
Cook lét þessi orð falla á blaða-
mannafundi í Kaíró með Amr Mussa,
utanríkisráðherra Egyptalands, sem
kveðst vera andvígur því að Ekeus
verði skipaður „í ljósi þeirrar kreppu
sem hann olli áður“.
LAGERÚTSALA í VÖLUSTEINI
50 - 90% AFSLÁTTUR
OPIÐ í DAG FRÁ 10-16
® VOLUSTEINN
fyrir f.
Mörkinni 1/108 Reykjavík / Sími 588 9505
VERKSTJÓRN
Námskeíð ætlað öllum verkstjórnendum,
bæði nýjum og þeim sem vilja bæta námi
við reynslu.
SKEIÐ
Verkstjórnarfræðslan á iðntæknistofnun býr
yfir meira en þriggja áratuga reynslu við
fræðslu verkstjórnenda.
Námsþættirnir eru alls yfir 20. Meðal þeirra eru:
- Almenn samskipti ■ Hvatning og starfsánægja
■1/innusálfræði og stjórnun ■ Valdframsal
■ Aætlanagerð ■ Stjórnun breytinga.
Námskeiðið er samtals 90 stundir og skiptist í tvo hluta.
Þrjú námskeið verða á vorönn og
hefjast 7. febrúar, 6. mars og 10. apríl.
innritun stendur yfir í síma 570 7100 og
á vefsíðu iðntæknistofnunar www.iti.is.
Iðntæknistof nun 11
Keldnaholti, 112 Reykjavík
Weizman hvattur til að fara frá
Jerúsalem. Reuters, AP, AFP.
YOSSI Beilin, dómsmálaráðherra
ísraels, skoraði í fyrrakvöld á Ezer
Weizman, forseta landsins, að taka
sér frí frá störfum meðan verið er að
kanna hvort hann hafi brotið lög með
því að þiggja fé af auðugum vini sín-
um. Margir stjómmálamenn og
fjölmiðlar í Israel krefjast afsagnar
Weizman, en skoðanir kjósenda era
skiptar.
Beilin sagðist telja Weizman fyrir
bestu að taka sér frí frá störfum, en í
gær tilkynnti ísraelski ríkissak-
sóknarinn að hafin væri rannsókn á
hvort Weizman hafi brotið lög er
hann þáði um 33 milljónir ísl. kr. að
gjöf frá vini sínum, franska milljóna-
mæringnum Edouard Saroussi á ár-
unum 1988 til 1993, er hann gegndi
opinberu embætti.
Israelsk sjónvarpsstöð segir
Weizman hefði fengið um 65 millj.
kr. að gjöf frá óþekktum aðila og
virtist Weizman hafa notað féð til að
greiða upp skuldir sínar við ríkið.
Blaðamaðurinn Yoav Yitzhak segir
Weizman einnig hafa selt Verka-
mannaflokknum stuðning sinn árið
1984 fyrir um 250 milljónir ísl. kr.
Fjölmiðlar segja málið snúast um
að David Blas, þáverandi formaður í
samtökum samyrkjubúa, hafi útveg-
að innflutningsfyrirtæki 250 millj.
kr. lán og hafi hluti þess fjár rannið í
vasa Weizmans.
Engar beinar sannanir hafa fund-
ist og vísa talsmenn Verkamanna-
flokksins þessum fregnum á bug.
Reynist þær sannar getur það haft
óþægilegar afleiðingar í för með sér
fyrir Verkamannaflokkinn og Ehud
Barak forsætisráðherra, þó hann
hafi ekki verið í forsvari fyrir flokk-
inn á þeim tíma. Weizman viður-
kennir að hafa þegið fé af Saroussi,
en segir það ekki lögbrot.
ísraelskir fjölmiðlar era sammála
um að Weizman sé ófær um að koma
fram fyrir hönd þjóðarinnar meðan á
rannsókninni stendur. Skoðanir al-
mennings era skiptar og í skoðana-
könnun dagblaðsins Yediot Ahronot
vildu 41% að Weizman færi frá en
39% að hann yrði áfram í embætti.
Búðu þig undir skemmtilega upplifun
á laugardögum í Kringlunni.
Við hitum upp fyrir menningaráriö.
A dagskrá í dag:
Kringlan er viðburða- og upplýsingamiðstöð
Reykjavilcur, menningarborgar Evrópu árið 2000.
Þangað geturðu leitað þegar þig langar
til að træðast um þá viðburði sem
eiga sér stað í Reykjavík.
K\rt*\q(csj\
P fl R S E M /W J R R T fl Ð S L (f R
ilPPlÝSINBfiSlMI 5 8 9 7 7 8 B 5KRIFST0FUSÍMI 5 G 8 9 2 8 0