Morgunblaðið - 22.01.2000, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 31
LISTIR
Byltingin étur
börnin sín
Morgunblaðið/Ami Sæberg
„Dæmi um gleðilega tilbreytingu var skemmtilegl og fjölbreytt dansatriði í síðari hluta sýningarinnar," segir
meðal annars í dómi um Djöflana eftir Dostojevskí.
LEIKLIST
L e i k f é I a g
lteykjavfkur
DJÖFLARNIR
eftir Dostojevskí í leikgerð Alexeis
Borodfns. Leikstjóri: Alexei Bor-
odin. Leikendur: Ari Matthíasson,
Árni Pétur Guðjónsson, Baldur
Trausti Hreinsson, Björn Ingi Hilm-
arsson, Eggert Þorleifsson, Ellert
Ingimundarson, Friðrik Friðriks-
son, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir,
Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Guð-
rún Ásmundsdóttir, Halldór Gylfa-
son, Halldóra Geirharðsdóttir, Jón
Hjartarson, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Marta Nordal, Pétur
Einarsson, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Theodór Júlíusson, Valur
Freyr Einarsson og Þórhallur
Gunnarsson. Leikmynd og búning-
ar: Stanislav Benediktov. Hljóð:
Baldur Már Amgrímsson. Ljós:
Láms Björnsson. Danshöfundur:
Þórhildur Þorleifsdóttir. Tónlist:
Alfred Schnittke. Föstudaginn 21.
janúar 2000.
ÞEGAR RÚSSNESKI
bókmenntafræðingurinn Mikaíl
Bakhtin mótaði kenninar sínar um
þróun skáldsögunnar sem bók-
menntaforms tók hann sérstaklega
mið af skáldsögum Dostojevskís og
þróaði út frá þeim hugtakið marg-
röddun. I hugtakinu felst í stuttu
máli að innan tiltekins verks hljóma
margar jafnréttháar raddir sem tak-
ast á hugmyndafræðilega, siðfræði-
lega og tilfinningalega. Engin ein
rödd er yfirskipuð í margradda
verki, ekki er hægt að benda auð-
veldlega á málpípu höfundar eða ein-
hlítan boðskap. Ég geri þetta að
inngangsorðum hér þar sem Alexei
Borodín, leikstjóri og höfundur
þeirrar leikgerðar sem hér er um
rætt, leggur sjálfur áherslu á þetta
eðli verksins í viðtali við Morgun-
blaðið síðastliðinn fóstudag og bendir
á að það hafi gert sér erfitt um vik í
því markmiði að „ná utan um skáld-
söguna, helstu uppistöðuþætti"
hennar.
Margröddunin sem telst til helstu
kosta skáldsagna Dostojevskís reyn-
ist reyndar helsti akkílesarhæll leik-
gerðar Borodíns og er ástæðunnar
örugglega að leita í mismunandi eðli
og kröfum þessara tveggja listforma.
Lesandi skáldsögunnar getur gefið
sér nægan tíma til að kynnast fjölda
persóna, tengslum þeirra, tilfinning-
um og skoðunum, en áhorfandi
leiksýningar hefur takmarkaðan
tíma og þol gagnvart sömu hlutum. I
leikgerð Borodíns koma tuttugu
persónur við sögu og áhorfandinn á
fullt í fangi með að átta sig á stöðu og
hlutverki hvers og eins og hinum
flóknu innbyrðis tengslum þeirra,
um leið og hann stritast við að henda
reiður á þeim flækjum og hug-
myndaátökum sem eru í gangi
hverju sinni. Nema þá að hann gjör-
þekki skáldsögu Dostojevskís fyi-ir-
fram. Sú þörf leikgerðarhöfundar að
„ná utan um skáldsöguna“ veldur því
einnig að sýningin er alltof löng og
(það sem verra er) langdregin. Sýn-
ingin tekur þrjá klukkutíma í flutn-
ingi og hefði að mínu mati mátt
stytta hana þónokkuð án þess að það
kæmi niður á efninu.
Leikstjóri virðist meðvitað velja
hægan og þungan leikstíl og vinnur
þar með nokkuð á móti stíl Dostoj-
evskís sem einkennist öðru fremur af
ástríðum, ýkjum og lífi. Þessi hægi,
dempaði stíll olli mörgum ieikurum
erfiðleikum, útkoman var litleysi,
svipbrigðaleysi og allt að því áhuga-
leysi á því sem fram fór. Þannig fór
um túlkun Baldurs Trausta Hreins-
sonar á einu af burðarhlutverkunum,
en hann leikur Stavrogín, þá persónu
sem flétta verksins snýst að flestu
leyti um. Stavrogín er hetja og átrún-
aðargoð flestra hinna persónanna,
hann er mjög flókin manngerð frá
hendi höfundar; frelsari og djöfull í
senn, hugsjónamaður eða eigingjam
siðleysingi. Fyrst og fremst er hann
maður sem heillar aðra, konur jafnt
sem karla; hann er dýrkaður, settur
á stall og til hans gerðar kröfur sem
enginn maður getur mögulega staðið
undir. Baldur Trausti var svipbrigða-
laus og ástríðulaus í hlutverkinu, líkt
og hann stæði utan við það sjónarspil
sem fram fór í kringum hann.
Kannski á slík leið að sýna að hér fari
maður sem hefur glatað hugsjónum
sínum og ástríðum; maður sem verð-
ur fórnarlamb eigin sköpunarverka.
Það má ef til vill fallast á slíka túlkun
en á móti kemur að aðdráttarafl
hans, sem er drifkraftur svo margra
annarra persóna, er áhorfandanum
hulið.
Friðrik Friðriksson leikur Verk-
hovenskí, einn af „lærisveinum"
Stavrogíns, og það var helst í leik
hans sem brá fyrir öfgum og ástríð-
um í anda höfundar. Góð stígandi var
í túlkun Friðriks og hann dró fram
óhugnanlega mynd af manni sem
svífst einskis í þágu hugmyndafræð-
innar, manns sem glatar smám sam-
an mennsku sinni og bruggar öðrum
launráð af útsjónarsamri og kaldri
grimmd.
Af öðrum leikurum má nefna þau
Margréti Helgu Jóhannsdóttur, Pét-
ur Einarsson og Guðrúnu Ásmunds-
dóttur sem náðu hvert um sig að lyfta
hinni drungalegu stemmningu dálítið
upp þegar þau voru á sviðinu. Einnig
lifnaði nokkuð yfir leiknum þegar
þær Halldóra Geirharðsdóttir og
Marta Nordal fóru um sviðið. Reynd-
ar voru margir leikaranna mjög góð-
ir í að túlka þau þyngsli sem setja
svip sinn á leikinn í heild, má þar
nefna t.d. þá Ellert Ingimundarson
og Björn Inga Hilmarsson. En ein-
mitt þessi þunglamalegu heildaráhrif
gera að léttleikinn verður enn kær-
komnari en ella. Dæmi um slíka
gleðilega tilbreytingu var skemmti-
legt og fjölbreytt dansatriði í síðari
hluta sýningarinnai'.
í Djöflunum stefnh' höfundur sam-
an ólíkum röddum sem takast á um
siðferðileg, trúarleg og pólitísk má-
lefni. Sú umræða er fyrirferðarmikil
í leikgerðinni og hefði mátt fara
styttri leið að lokaniðurstöðunni: að
byltingin étur bömin sín. Vissulega
má hafa unun af texta Dostojevskís í
frábæiTÍ þýðingu Ingibjargar Har-
aldsdóttur, en sú temprun í leik-
stjómarstíl sem hér hefur verið
nefnd dró nokkuð úr áhrifamætti
orðanna.
Sviðsmynd og búningar era sann-
arlega unnh' af miklu listfengi og
gaman er að sjá eins mikla og góða
notkun á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins og hér um ræðir. Samspil leik-
myndar og lýsingar var oft á tíðum
áhrifamikið.
Upphafs- og lokasena leiksins þar
sem þau Varvara (Margrét Helga) og
Stepan (Pétur Einarsson) tala saman
vora báðar góðar, sú fyrri létt en sú
síðari merkingarþrangin, en þar er
vísað til Lúkasarguðspjalls, í söguna
um djöflana sem fóra úr sjúkum
manni í svín sem steyptust fyrir
björg. Þar leggur höfundur út af sög-
unni og tengir hana á táknrænan
hátt við efnivið sinn á áhrifaríkan
máta. Þessar tvær senur mynda
skemmtilegan ramma um sýninguna,
en stundirnar á milli þeirra era of
lengi að líða.
Soffía Auður Birgisdóttir
Nýjar bækur
• Saga Veðurstofu íslands er eftir
Hilmar Garðarsson sagnfræðing.
I kynningu segir: I ársbyrjun árið
2000 verða liðin 80 ár frá því að rekst-
ur Veðurstofu Islands hófst. Vart
finnst sá íslendingur sem ekki hefur
notið þjónustu Veðurstofunnar með
einhverjum hætti. Þar er fjaliað um
veðurathuganir og veðurspár, flug-
veðurþjónustu, úrvinnslu veðurgagna
og veðurfarsrannsóknir auk vöktunar
og rannsókna á jarðskjálftum, hafís
og snjóflóðum. Auk þess að gera ítar-
lega grein fyrir sögu og íjölþættri
starfsemi Veðurstofu í slands þessi 80
ár sem hún hefur þjónað landsmönn-
um þá er einnig sagt frá framkvöðl-
um sem sinntu veðurathugunum á
17., 18. og 19. öld. I ritinu era um 400
Ijósmyndir, teikningar og kort.
Útgefandi er Mál og mynd. Um-
brot og myndvinnsla: Mál og mynd.
Kápa: Guðjón Ketilsson. Prentun:
Steindórsprent-Gutenberg hf. Bók-
band: Félagsbókbandið Bókfell hf.
Robert Sot sýnir í
Norræna húsinu
PÓLSKI myndlistarmað-
urinn Robert Sot hefur
opnað sýningu á verkum
sínum í anddyri Norræna
hússins. Getur þar að Mta
Ijósmyndir og innsetningu.
Sot hefur búið um árabil í
Björgvin og hefur haldið
sýningar víða um heim.
Hann vinnur jöfnum hönd-
um í hefðbundna og óhefð-
bundna miðla, sýnir mál-
verk, höggmyndir,
ljósmyndir, fjöltækniverk,
innsetningar og fremur
gjörninga.
Sot verður með upp-
ákomu, ellegar gjöming, í
tengslum við sýninguna
helgina 4.-6. febrúar næst-
komandi en sýningunni lýk-
ur 20. febrúar.
Morgunblaðið/forkell
Robert Sot
SKÓ Igluggi INN
^ Fjarðargötu 13-15 «555-1890-565-4 UTSALA ERHAFII Opið til kl. 16:00 í dag, laugardag. ■275 N N!
FIÖRÐIR |
- miðbœ HafnarJjarðar
GKÓ Iglugg INN
UTSALA
REYKJAVIK OG
AKUREYRI
Rafkaup
ARMULA 24 - SIMI 568 1518 - OSEYRI 2 - SIMI 4625151