Morgunblaðið - 22.01.2000, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ_________________________________________________LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 33
MARGMIÐLUN
Þægilegur pakki
Linux er fáanlegt í óteljandi útgáfum og
gerðum. Arni Matthíasson kannaði vinsæl-
ustu gerð Linux vestan hafs, Red Hat, og
segir að það sé leikur einn að setja það upp,
ekki síst ef menn lesa leiðbeiningarnar.
MEÐAL HELSTU goðsagna um
Linux er hve stýrikerfið sé flókið og
erfitt í uppsetningu, en á móti
benda menn gjarnan á Windows,
sem sé mun einfaldara að setja upp
og annast um. Víst er það rétt að
Linux getur verið snúið fyrir þá
sem unnið hafa í vernduðu um-
hverfi Windows eða MacOS þar
sem flækjustig stýrikerfisins er fal-
ið á bak við grafísk notendaskil, en
á síðustu árum hafa Linux-menn
náð mjög langt í að setja á stýri-
kerfið manneskjulegra andlit, ef
svo má segja, sett við það grafíska
uppsetningu og auðveldað að haga
málum svo að tölvunni sé stýrt með
myndrænum notendaskilum.
Linux er ókeypis eins og flestir
vita eflaust, en það sem stýrikerfi
og hugbúnaður getur orðið tals-
verður pakki, hleypur iðulega á
hundruðum megabæta, er þægilegt
að fá hann á geisladiski eða diskum.
Slíkir pakkar kallast Linux-dreif-
ingar, pakkar með stýrikerfinu og
mismiklu af fylgibúnaði. Dreifing-
arnar eru þó nokkrar, Slackware,
Debian, Caldera, Red Hat, Dragon-
Linux, EasyLinux, LibraNet, Lin-
uxWare, SuSE, Cheep, Mandrake,
Corel, og svo má telja, en á vefsetri
www.linux.org eru taldar upp 27
dreifingar og fer fjölgandi í sam-
ræmi við auknar vinsældir stýri-
kerfisins. Vinsælasta dreifing vest-
an hafs er Red Hat, sem margir
kannast við, en í Evrópu hefur Su-
SE, sem er af þýsku bergi brotin,
vinninginn. Fyrir skemmstu kom
út útgáfa 6.1 af Red Hat.
Eins og getið er í upphafi er það
viðtekin sannindi að Windows sé
auðveldara í uppsetningu en Linux,
en því er öðru nær eins og allir þeir
hafa reynt sem glímt hafa við
Windows, þar sem ólíklegustu
vandamál geta komið upp og oftar
en ekki óskiljanleg þar sem þau eru
falin inni í launhelgum stýrikerfis-
ins. Þá er betra að eiga við Linux,
því öll vandamál sem koma upp hjá
þeim sem glímir við að setja það
upp hafa verið leyst af öðrum og
einfalt að finna svörin á Netinu.
Uppsetningarviðmót Red Hat er
bráðgott og skýrt, ekki síst ef menn
leggja sig eftir því aþ lesa það sem
stendur á skjánum. Agætis hjálpar-
texti er við hvert atriði og sjálfsagt
að fara rólega í gegnum uppsetn-
inguna, ekki síst til að skilja hvað á
sér stað. Það er einnig góður siður
að vera búinn að skrifa niður heiti
og gerð jaðartækja og skjás til að
mynda. Þeir sem eru hagvanir Lin-
ux-fræðum eru fljótir að keyra í
gegnum uppsetninguna, enda tek-
ur hún til að mynda talsvert
skemmri tíma en á Windows 9x,
(hvað þá NT). Mikil kostur er og við
Red Hat að búið er að þýða upp-
setningarforritið nánast allt, í sjálf-
boðavinnu, og því hægt að skipta
yfir í íslensku þegar í upphafi.
Grafísk notendaskil fylgja Linux
og hægt að velja um ýmsar gerðir.
Algengastar era Gnome og KDE,
en sjálfsagt er að kíkja á aðrar sem
síðan má setja á til að mynda Wind-
ows 95-útlit eða jafnvel MacOS.
Þess má geta að KDE-notendaskil-
in eru til íslenskuð og því hægt að
halda sig við íslenskt umhverfi alla
leið. Galli er í Red Hat-uppsetning-
arforritinu því þó valið sé KDE í
upphafi keyrir tölvan upp
GNOME. Það ætti í sjálfu sér ekki
að skipta máli því bráðhandhægt
tól fylgir Linux-dreifingum,
Switchdesk, sem gerir kleift að
skipta um notendaskil að vild. Graf-
íska innsetningarforritið setur aft-
ur á móti ekki upp Switchdesk
nema það sé valið í uppsetning-
unni, og nýliðar vita það tæpast.
I textainnsetningunni var það
aftur á móti í lagi. A vefsetri Red
Hat var einfalt að finna lausn á
þessu hvora tveggja, þ.e.
GNOME kemur upp í stað KDE
og Switchdesk ekki uppsett,
enda er skjölun á Linux hreint
út sagt frábær.
Grúi hugbúnaðar er með í
pakkanum, allt frá fullkomnum
myndvinnsluforritum í marg-
miðlunarbúnað.
Red Hat er mjög þægilegur
pakki fyrir almenna notendur og
lengra komna vitanlega líka og í
Ijósi þess hvað það er ódýrt, og
reyndar hægt að fá ókeypis séu
menn með góða nettengingu, er full
ástæða til að hvetja sem flesta til að
spreyta sig á Linux, ekki sist vegna
þess hversu opið það er, ekki vegna
þess að menn neyðast til að læra
flóknar skipanasúpur, heldur
vegna þess að þeir geta það. Það
getur svo sem verið í lagi að kaupa
bíl þar sem húddið er soðið fast, en
eftir því sem mönnum vex kunnátta
langar fæsta til að vera upp á slíkt
komnir til lengdar.
Nýr Renault Scénic
- kraftmeiri, öruggari,
og fallegri.
Nýr Renault Scénic
kostar frá 1.718.000 kr.
Þessi vinsæli bíll, sem var útnefndur bíll ársins í Evrópu þegar
hann kom á markað, er nú orðinn enn betri; útlitið að framan er
breytt, vélin kraftmeiri (16 ventla, 107 hestöfl) og öryggið meira
(t.d. ABS kerfi og 4 loftpúðar). Innra rýmið er jafnvel eim snjallara
með aksturstölvu, fleiri sniðugum geymsluhólfum og aftursætum
á sjálfstæðum sleðum. Komdu í B&L og prófaðu kraftmeiri,
öruggari og fallegri Renault Scénic.
RENAULT