Morgunblaðið - 22.01.2000, Side 73

Morgunblaðið - 22.01.2000, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 73 FÓLKí FRÉTTUM MYNDBOND Minnis- varði um meistara Aparéttarhöldin (Inherit the Wind) llrama ★★★% Leikstjóri: Daniel Petrie sr. Hand- rit fyrir sjónvarp: Nedrick Young og Harold Jacob Smith, byggt á leikriti eftir Jerome Lawrence og Robert E. Lee. Kvikmyndataka: James Bartle. Aðalhlutverk: Jack Lemmon, George C. Scott, Beau Bridges. (127 mín.) Bandaríkin 1999. Warner-myndir. Bönnuð börnum yngri en 12 ára. ÞETTA er þriðja myndin sem gerð er eftir frægu leikriti Jerome Lawrence og Robert E. Lee um ,Aparéttarhöldin“ svoköUuðu sem haldin voru í smá- bænum Dayton í Tennessee-fylki ár- ið 1925 og vöktu heimsathygli. Þar var sóttur til saka ungur mennta- skólakennari sem vogaði sér að kenna nemendum sínum kenningar Darwins um þróun mannsins, en með því var hann sakaður um guð- last og brot á bókstaf Biblíunnar. Sjálf réttarhöldin vöktu ekki hvað síst athygli fyrir þær sakir að þar leiddu saman hesta sína tveir af merkustu lögmönnum þeirra tíma, þeir Clarence Darrow og William Jennings Bryan, en hinn síðarnefndi hafði til að mynda boðið sig oftar en einu sinni fram til forseta Bandaríkj- anna. Auðséð er hvers vegna leikritið hefur svo oft verið kvikmyndagerð- armönnum hugðarefni. Málsatvik eru ákaflega fróðleg og innihaldsrík og hlutverk meginpersóna óvenju safamikil. Það hafa enda ekki nein smápeð farið í föt lögmannanna tveggja. Fyrstir voru þeir Spencer Tracy, í hlutverki Dairow (eða Henry Drummond eins og hann kall- ast í leikgerðinni) og Fredric March sem Bryan (eða Matthew Harrison Brady) í magnaðri kvikmynd Stan- ley Kramer frá árinu 1960. Síðan spreyttu þeir Jason Robards og Kirk Douglas sig á sömu hlutverkum í sjónvarpsmynd sem gerð var árið 1988 en í þessari mynd, sem einnig var gerð fyrir sjónvai-p, ér röðin komin að engu síðri stórleikurum, þeim Jack Lemmon og George C. Scott. Skemmst er frá því að segja að hrein unun er að fylgjast með þess- um tveimm’ meisturum njóta sín út í ystu æsar í þessu framúrskarandi vandaða réttardrama. Þeir leika hina aldagömlu vini og andstæðinga af þvílíkum krafti og sannfæringu að leitun er að annarri eins framistöðu, enda hefur Jack Lemmon verðskuld- að verið tilnefndur til Golden Globe- verðlauna. Það er hinsvegar sárt til þess að vita að hér eru á ferðinni hinstu tilþrif Scott en hann hvarf nýverið yfir móðuna miklu og er eft- h'sjá að slíkum listamanni. Aparétt- arhöldin er tvímælalaust verðugur minnisvarði um einn fremsta leikara kvikmyndasögunnar. Skarphéðinn Guðmundsson og fúguefn Skrípókarl The Music og Raymond Scott - Reccless nights and Turkish twilights. Basta. RAYMOND Scott er kominn aftur úr myrkri gleymsku og vitleysu. Scott var nokkurs konar blanda af Georg gírlausa og Duke Ellington. Hann var sonur rússneskra inn- flytjenda og fæddur í New York- borg árið 1908. Hann hafði snilli- gáfu í tónlist en sem ungur maður hafði hann meiri áhuga á verkfræði og eldri bróðir hans þurfti hrein- lega að múta stráknum í tónlistar- nám. Eftir námið varð Raymond áber- andi fígúra í djasslífi New York- borgar sem allrar Ameríku. Hann leitaði nýrra vídda í djasstónlist sem honum fannst orðin formúlu- föst og leiðinleg. Árið 1936 stofnaði hann jasskvintett sem hann lét púla við að spila tæknilega flókna tónlist sína. Hún var full af takt- og laglínuskiptum, furðulegum hljóð- um og skrýtnu dóti. Tónlist Scott var súrrealískur sveifludjass og svo framsækin að tónskáldið Igor Stravinsky var aðdáandi kvintetts- ins. Kvintettinn var upp á sitt besta milli 1936 og 1940 en eftir það fór Scott að helga sig rafrænni tónlist. Árið 1943 keyptu Warner-bræður réttinn á tónlist kvintettsins og fóru fljótlega að nota hana í teiknimyndir sínar. Les- endur ættu að kannast við lög- in af disknum „Raymond Scott- Reckless Nights and Turkish Twi- lights“ frá æskuárunum þeg- ar þeir sáu „Bugs Bunny", „Duffy Duck“ og félaga ærslast við tóna Raymond. Hann hafði aldrei ætlað tónlist sinni að hljóðskreyta teiknimyndir , (og horfði ekki einu sinni á þær sjálfur) en hún varð að fyrirmynd teikni- myndatónlistar eftir það. Á þessum frábæra disk eru upptökur kvintettsins frá 4. ára- tugnum og ættu ærslin, geðveikin sem meistaraleg spilamennskan að gleðja allt hugsandi fóllk. Scott er einnig merkur fyrir störf sín síðar. Þegar hann missti áhugann á kvint- ettnum sínum fór hann að helga sig þróun rafmagnshljóðfæra svo hann þyrfti ekki lengur að pexa í röflandi hljóð- færaleikurum. Hann byggði sér rafrænt stúdíó á heimili sínu sem var langt á undan sinni samtíð. Árið 1963 gaf hann út raf- rænt verk á þremur plötum sem hét „Soot- hing Sounds for a Ba- by“ og var heilum ára- tug á undan svipuðum tilraunum Brian Eno og Kraftwerk. Raym- ond Scott lést 85 ára gamall árið 1994. Undir það síðasta samdi hann tónlist með PC-tölvu við rúmstokkinn. Hann sá drauma sína um tölv- ur sem hægt væri að stjórna og nýta til tónsköpunar verða að veru- leika. Sína gömlu tónlist sem er á þessum disk samdi hann líka á mjög nútímalegan hátt: Hann tók upp á segulband það sem samið var á æf- ingum með kvintettnum, hlustaði svo á bandið og klippti saman búta sem honum líkaði. Þannig bjó hann til lag úr bútunum og lét kvintett- inn æfa það upp. Þetta ferli var svipað vinnu með „sömpl“ í dag og sýnir svo sannarlega að Raymond Scott var á undan sinni samtíð. Ragnar Kjartansson Forvitnileg tónlist -V ' Tónlistin úr myndinni er fáanleg í næstu tónlistarverslun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.