Morgunblaðið - 23.02.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.02.2000, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Veitinga- og söguskipið Thor hefur opnað í Hafnarfjarðarhöfn Frá veitingasalnum í Thor. Morgunblaðið/Árni Sæberg Varð- skipið Þór í nýju hlutverki Hafnarfjördur VARÐSKIPIÐ Þór, sem á sín- um tíma var áberandi í þorska- stríðunum á síðari hluta 20. aldar, heíur nú fengið nýtt hlutverk. Þar hefur nú verið opnaður nýstárlegur veitinga- staður, sem óhætt er að segja að líkist fáum hér á landi. Um borð í skipinu hafa einnig verið sett upp drög að sögusýningu, þar sem fjallað er um útfærslu landhelginnar, sögu skipsins, átök og atburði. Skipið er staðsett við norð- urbakka Hafnarfjarðarhafnar, en þangað var skipinu siglt frá Húsavík í fyrra. Það heitir núna Veitingaskipið Thor og eigandi þess er Amar Sigurðs- son, en um reksturinn sér Maríus Helgason. Hann tók við veitingarekstrinum í byrj- un janúar og var fyrsta veislan haldin 21. janúar þegar heim- ildarþættimir, Síðasti valsinn, vom frumsýndir um borð en þeir fjalla um átök Breta og ís- lendinga í kjölfarið á útfærslu landhelginnnar. Maríus segir að hægt sé að taka á móti 240 gestum í sæti. I byijun janúar ákvað hann að byggja yfir dekkið og breyta því í borðsal, m.a. til að koma öllum frumsýningargestum fyrir í fyrstu veislunni. Að auki em tveir aðrir salir um borð. Að sögn Maríusar er ætlun- in að gera skipið fyrst og fremst út sem veitingastað og leggja áherslu á fjölbreyttan og glæsilegan matseðil. Skipið opnar klukkan 18 alla daga og á fostudögum og laugardögum er síðan boðið upp á lifandi tónlist á dekkinu eftir klukkan hálf tólf, og þá geta gestir tek- ið sporið á dekkinu. Auk borð- salanna þriggja er notalega konaíaksstofa um borð þar sem áður var forsetasvíta. Fjölmargir hafa sýnt þess- um nýja stað áhuga og segir Maríus að aðsókn hafi farið fram úr vonum, þrátt fyrir að ekki hafi verið farið af stað með markaðssetningu og auglýsingum. Sá mánuður sem liðinn er frá opnun hefur verið notaður til að gera ýmsar breytingar á skipinu, laga dekkið og bæta veitingaað- stöðuna. „Eg er mjög sáttur við það hvemig viðbrögðin hafa verið. Það var rétt gert að byrja ekki á því að auglýsa mikið, þannig að okkur gafst tími til að sjá hveiju hefur þurft að breyta." Maríus segir að þetta hafi hinsvegar spurst mikið út og fólk hafi oft komið til að skoða skipið. Skipið á sér merka sögu Skipið hefur ekki haffæmi- skírteini og mun því verða bundið við bryggjuna í Hafn- arfjarðarhöfn. Að sögn Mar- íusar hafa Hafnfirðingar tekið skipinu opnum örmum og bæj- aryfirvöld verið reiðubúin að greiða götu veitingamanna í skipinu. Tekið hefur verið upp samstarf við leikfélögin sem sýna í húsi gömlu Bæjarút- gerðarinnar. Leikhúsgestir fá sér snæðing um borð fyrir sýn- ingar og koma jafnvel eftir sýningu í eftirrétt og kaffi. Varðskipið á sér merka sögu og lenti Þór margoft í frægum átökum við freigátur Breta þegar landhelgin var færð út á sínum tíma. Þór var keyptur til landsins árið 1951 og í skipinu er núna vísir að sögusýningu og geta matargestir því rifjað upp gang þorskastríðanna um borð í skipinu, sem jafnframt er merkasti sýningargripur- inn. Þar sem Landhelgisgæsl- an hefur einkarétt á nafninu Þór, var ákveðið að skýra skip- ið Thor eftir fyrsta björgunar- skipi íslendinga, sem kom til Vestmannaeyja árið 1920. Morgunblaðið/Eiríkur Gunnar Helgason las upp úr bók sinni um Gogga og Gijóna í gær við gdðar undirtektir barnanna. T • • / Lií og ij or í bókasafninu Garðabær BÖRN í Garðabæ hafa fjöl- mennt í vikubyrjun í Bóka- safn Garðabæjar, en þessa dagana hefur safnið boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á öllum aldri. Dagskráin hdfst á mánudag með gátukeppni og mynd- bandasýningu og síðan kom Ragnheiður Stephensen, handbolta-„stjarna“, og las upp úr uppáhaldsbdkinni sinni. I gær var síðan haldin brandarakeppni þar sem keppendur höfðu með sér brandara og sigurvegari varð sá sem kunni flesta brandara. Þá mættu börn í sögusmiðju um morguninn og horfðu á myndband. Eftir hádegi mætti síðan Gunnar Helgason, rithöf- undur og leikari, og las upp úr sinni eigin bdk um ævin- týri Gogga og Grjdna. Hann spjallaði fyrst við krakkana um daginn og veginn og fékk auðvitað þá spurningu hvar Felix væri. Krakkarnir skemmtu sér hið besta við líflegan lestur Gunnars, og lifðu sig inn í frásögn Gunnars af baráttu þeirra félaga við stdrhættu- legan strætdbílstjdra. Oddný Björgvinsddttir, forstöðumaður Bdkasafns Garðabæjar, sagði þessar uppákomur mælast vel fyr- ir meðal barnanna. Hún sagði að mikilvægt væri að sýna börnunum fram á að margt skemmtilegt væri hægt að gera í bókasöfnum, annað en að fá lánaðar bækur, enda væru börnin safngestir framtiðarinnar. Þau hafa líka sett mikinn svip á safnið síðustu daga, um 50-70 börn hafa að jafn- aði verið í bdkasafninu til að taka þátt í dagskránni þessa daga sem hún hefur staðið yfír. Oddný sagði það samkvæmt björtustu von- um, enda væri oft rennt blint í sjdinn með dagskrá af þessu tagi. Það væri því ánægjulegt að sjá börnin mæta jafn vel þegar þau eiga frí í skólanum, en þessa daga er einmitt vetr- arfrí í grunnskdlunum í Garðabæ. I dag er von á fjölda barna úr a.m.k. tveimur leikskólum til að horfa á brúðuleikhús hjá Helgu Þ. Steffensen. Þá verður fyrir hádegi haldin bdkagetraun. Lesin verða brot úr nokkr- um barnabdkum og kepp- endur eiga að segja til um úr hvaða bdkum þau eru. Morgunblaðið/Ami Sæberg Ragna Sigursteinsdtíttir, Kolbrún Finnsddttir og Sig- ríður Garðarsddttir umplanta sumarbldmum í Rækt- unarstöð Reykjavíkurborgar. Sumarblóm á hörðum vetri Laugardalur SUMARBLÓMIN eru við- fangsefni vetrardaganna í Ræktunarstöð Reykjavík- urborgar í Laugardal. Að sögn Sigríðar Guðna- dóttur, stöðvarstjóra, var fræjum sumarblómanna sáð í janúar og um þessar mundir er verið að dreifplanta blómunum, þ.e. flytja þau milli bakka og gefa þeim aukið rými til að vaxa. í lok mars verða sum- arblómin svo færð út í yl- reit undir gleri en með vor- inu verða þau gróðursett víðsvegar um borgina. Ágústa Edda Bjömsddttir og Guðjdn Valur Sigurðsson, íþrdttamenn Selljamamess 1999. Þau sköruðu fram úr á N esinu Seltjarnarnes Handknattleiksmennimir Ágústa Edda Bjömsddttir og Guðjdn Valur Sigurðsson voru valin íþrdttamenn Sel- tjamamess 1999. Þeim var veitt viðurkenn- ingin á Qölmennri samkomu í samkomusal Grdttu, þar sem vom um 120 manns í síðustu viku. Æskulýðs- og íþrdttaráð bæjarins hefur um nokkurra ára skeið staðið fyrir kjöri íþróttamanns bæjarins. Aðeins þeir sem hafa bú- setu eða lögheimili á Sel- tjarnamesi geta fengið til- nefningu til kjörsins, dháð því hvar þeir stunda íþrdttina. 29 hlutu viðurkenningar Einnig vom veittar viður- kenningar fyrir ungt og upp- rennandi íþrdttafdlk sem t.d. hefur náð þeim áfanga að leika með unglingalandslið- um sinnar íþrdttagreinar. Loks vom ungir og efnilegir iþrdttamenn úr yngstu ald- urshdpunum heiðraðir en alls fengu 29 einstaklingar viður- kenningu að þessu sinni. Guðjdn Valur er tvítugur Seltimingur sem æfði hand- knattleik og knattspymu með yngri flokkum Grdttu og byijaði 16 ára gamall að leika með meistaraflokki félagsins. Hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Islands. 1999 var hann valinn í A- landslið og á að baki 7 lands- leiki meið liðinu á síðasta ári. Guðjdn Valur Ieikur nú með KA á Akureyri. Ágústa Edda Bjömsddttir hdf sinn feril í fimleikadeild Grdttu og náði þar mjög gdð- um árangri, sem hún býr að í handknattleiknum því fáar stúlkur í 1. deild kvenna búa yfir þeim líkamlega styrk sem Ágústa býr yfir, að mati ddmnefndar. Hún á fast sæti í A-landsliði kvenna og er burðarás í meistaraflokksliði Grdttu-KR. Ráðuneyti skoðar kröfu Mos- fellinga Mosfellsbær KRAFA um aukna lög- gæslu í Mosfellsbæ, sem undirrituð er af 827 íbú- um bæjarins, barst til Sólveigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra á mánudag. Ráðherra er staddur erlendis og gat ekki tjáð sig um þessa kröfu þegar Morgun- blaðið leitaði viðbragða í ráðuneytinu. Ingvi Hrafn Óskar- sson, aðstoðarmaður ráðherra, sagði að þess- ar athugasemdir yrðu auðvitað skoðaðar í ráðuneytinu. Hann sagði að það væri jafn- framt í gangi athugun á grenndargæslu í borg- inni og að menn væru að vinna hugmyndir um skipulagsbreytingar hjá lögreglunni í Reykjavík. Mosfellsbær heyrir þar undir og hafa lögreglu- mál bæjarins því verið til skoðunar þar sem annars staðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.