Morgunblaðið - 23.02.2000, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 23.02.2000, Blaðsíða 46
^6 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 KIRKJUSTARF FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Safnaðarstarf Nýjum félögum fagnað í KFUM Á MORGUN, fímmtudag, verður nýjum félögum í KFUM boðið í mat og fagnað sérstaklega. Máltíð- in hefst kl. 19 og er nýjum liðs- mönnum boðið í matinn. Eldri fé- lagsmenn þurfa að greiða 2.000 kr. Skráning fer fram á skrifstofu KFUM við Holtaveg. Að borðhaldi loknu verður dagskrá í umsjá stjórnar KFUM í Reykjavík. Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr- 'aðra í dag kl. 13.30. Dómkirkjan. Samvera fyrir mæður með ung börn kl. 10.30-12 í safnaðarheimilinu. Hádegisbænir kl. 12.10. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á eftir. Grensáskirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Allar mæður vel- komnar með lítil börn sín. Sam- verustund eldri borgara kl. 14-16. Biblíulestur, samverustund, kaffi- veitingar. TTT-starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17. Unglingastarf kl. 19.30. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir- foreldra ungra barna kl. 10-12. Biblíulestur kl. 20 í umsjá Sigurð- ar Pálssonar. Náttsöngur kl. 21. Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrirbænir kl. 18. Langholtskirkja. Samvera eldri borgara í dag kl. 13-17. Spil, lest- ur, handavinna. Kaffí og meðlæti kl. 15. Djákni flytur hugvekju. Söngstund undir stjórn Jóns Stef- ánssonar organista. Lestur pass- íusálma kl. 18. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45. Kirkjuprakkarar kl. 14.30. Starf fyrir 6-9 ára börn. TTT kl. 16. Starf fyrir 10-12 ára börn. Fermingartími kl. 19.15. Unglinga- Kvöld kl. 20 í samvinnu við Laug- arneskirkju, Þróttheima og Blóma- val. Gospelkvöld í Hátúni 10. Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Fræðsla: Sigríður Hulda Jónsdóttir. Lífsleikni. Inntak og áherslur. Biblíulestur kl. 16. Lesið úr Þessalóníkubréfi. Opið hús kl. 17. Kaffiveitingar. Bænamessa kl. 18.05. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- stund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu. Starf fyrir 11- 12 ára böm kl. 17-18.15. Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldraðra. Opið hús í dag kl. 13.30- 16. Handavinna og spil. Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 16. Bænar- efnum er hægt að koma til presta- safnaðarins. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyr- irbænir. Léttur málsverður í safn- aðarheimilinu á eftir. Kirkjuprakk- arar, starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16. TTT-starf 10-12 ára kl. 17.15. Digraneskirkja. Unglingastarf á vegum KFUM & K og Digranes- kirkju kl. 20. Fella- og Hólakirkja. Helgi- stund í Gerðubergi á fimmtudög- um kl. 10.30. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Léttur hádegisverður. KFUM fyrir drengi 9-12 ára kl. 17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir unglinga kl. 20-22 í Engjaskóla. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgn- ar kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17. Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safnaðarheimilinu Borgum. Starf á sama stað með 10-12 ára (TTT) kl. 17.45-18.45. Seljakirkja. Kyrrðar- og bæn- astund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Léttur kvöldverður að stund lokinni. Tek- ið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og í síma 567-0110. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi- stund, spil og kaffi. Vídalínskirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar- stund kl. 12. Hugleiðing, altaris- ganga, fyrirbænir, léttur málsverð- ur á eftir í Ljósbroti, Strandbergi kl.13. Hallgrímskirkja Keflavíkurkirkja. Kirkjan opn- uð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í kirkjunni kl. 12.10. Sam- verustund í Kirkjulundi kl. 12.25. Súpa, salat og brauð á vægu verði. Allir aldurshópar. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 20 opið hús unglinga í KFUM & K-húsinu. Akraneskirkja. Unglingakórinn. Söngæfing í Safnaðarheimilinu Vinaminni kl. 17.30. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Hólaneskirkja, Skagaströnd. Kl. 12 bæn og súpa. Allir velkomnir. Ffladelfía. Súpa og brauð kl. 18.30. Kennsla kl. 19.30. Krakka- klúbbur, unglingafræðsla. Kennsla fyrir enskumælandi og biblíulest- ur. Allir hjartanlega velkomnir. Boðunarkirkjan. I kvöld verður 6. hluti námskeiðs um Opinberun- arbók Jóhannesar á sjónvarpsstöð- inni Omega og í beinni útsendingu á FM 107. Leiðbeinandi er dr. Steinþór Þórðarson. Efni: Dauðinn - Hvað segir Biblían um hina dánu? Á morgun verður dr. Stein- þór með hugleiðingu á FM 107 kl. 15. Gerir athugasemd við túlkun ítí á könnun Gallup MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Hafsteini Má Einars- syni, verkefnisstjóra fjölmiðlakönn- unar: „Vegna auglýsinga Islenska út- varpsfélagsins sem birtust á heilsíðu í Morgunblaðinu og DV 19.-20. febr- úar vill Gallup koma eftirfarandi at- hugasemd á framfæri við samstarfs- hóp um fjölmiðlakannanir. I auglýsingunni er sett fram túlk- un á niðurstöðum fréttaáhorfs sem byggð er á nýjustu könnun Gallup frá í janúar. Þar er lagt saman áhorf á tvo fréttatíma á Stöð 2, annars vegar kl. 18.55 og hinsvegar aðalfréttatím- ann klukkan 19.30 og það borið sam- an við áhorf á aðalfréttatíma RÚV klukkan 19. Þessi framsetning nið- urstaðna er ekki í samræmi við fram- setningu Gallup á niðurstöðunum og er ekki réttlætanleg út frá aðferða- fræðilegum sjónarmiðum. Fyrir þessu liggja margvísleg rök. í fyrsta lagi er vísað til meðfylgjandi kynningargagna frá Islenska út- varpsfélaginu um uppbyggingu dag- skrár á tímabilinu 18.55-20.05. í yfir- litinu kemur fram að á eftir fréttum kl. 18.55 kemur auglýsingatími, síðan nýr þáttur, „ísland í dag“ og íþróttir, síðan kemur annar auglýsingatími rétt fyrir 19.30 þegar aðalfréttatími Stöðvar 2 hefst. Umræddir tveir fréttaþættir teljast því sjálfstæðir, enda ekki um samfelldan fréttaþátt að ræða og einnig samkvæmt skil- greiningu útvarpsréttamefndar, þar sem kveðið er á um að óheimilt sé að rjúfa dagskrá frétta og fréttatengds efnis með auglýsingum. Það eru tvær meginreglur í fram- setningu niðurstaðna á áhorfi á sjón- varp; annars vegar að bera saman áhorf á einstaka þætti og hins vegar að bera saman áhorf á ákveðin tíma- Sænska landsliðið með mikla yfírburði í Flugleiðamótinu SÆNSKA bridslandsliðið hafði mikla yfirburði í Flugleiðamótinu í sveitakeppni sem lauk á Hótel Loftleiðum í gær. Svíarnir unnu alla leiki sína og enduðu heilum leik, eða 24 stigum, fyrir ofan næstu sveit. Alls tóku 79 sveitir þátt í Flug- leiðamótinu, eða nokkru færri en undanfarin ár. Svíarnir tóku strax forustuna og höfðu fullt hús, eða 59 stig, eftir tvær um- ferðir: Þeir juku forustuna jafnt og þétt og þegar umferðunum 10 var lokið var þetta lokastaðan: 1 Svíþjóð 209 2 Þrír Frakkar 186 3 George Mittelman 181 4. Bóhem 177 5 Dillon 176 6 Kaupf. Borgfirðinga 174 7 Samvinnuferðir-Landsýn 173 8 Jón Sigurbjörnsson 172 9 Iceclean 171 10 Innheimtuþjónustan 170. Sex efstu sveitirnar fengu pen- ingaverðlaun, samtals 8.200 doll- ara eða um 600 þúsund krónur. Magrét Hauksdóttir, kynningar- fulltrúi Flugleiða, og Guðmundur Ágústsson, forseti Bridssam- bands íslands, afhentu verðlaun- in í mótslok. Innsvíningin freistaði ekki Leguguðinn bauð upp á sjald- gæft spilabragð í síðustu umferð sveitakeppninnar en ekki er vitað til þess að neinn spilari í mótinu hafi látið eftir sér að reyna sig við það. Morgunblaðið/Amór Ragnarsson Svíarnir sigruðu með mikium yfirburðum í sveitakeppninni. Þeir voru að vonum kampakátir við verðlauna- afhendinguna. Talið frá vinstri: Tommy Gullberg, Peter Fredin, Magnus Lindkvist og Lars Anderson. Norður * Á10 v Á974 * 842 * DG82 Vestur Austur a D87632 a G94 r G3 ♦ 76 * 1097654 Suður a K5 v D862 ♦ RG1053 * AK v R105 ♦ AD9 * 2 Flestir spiluðu 4 hjörtu í NS, stundum eftir spaðaströgl hjá vestri. Eftir spaðaútspil út snýst vandamálið um hvernig eigi að spila hjartanu. Augljóslega gengur ekki að spila hjarta á drottninguna, eða taka hjartaás og spila meira hjarta, því þá fær vestur tvo slagi á hjarta og tvo slagi á tígul. En það er til leið til að gefa aðeins einn trompslag. Sagnhafi tekur fyrsta slaginn á spaðaás í borði og spilar hjarta á áttuna heima. Vestur fær á tíuna og spilar væntanlega spaða áfram. Inni á spaðakóng spilar sagnhafi nú hjartadrottningu að heiman og það er sama hvort vestur leggur á eða ekki: sagn- hafi gefur aðeins einn hjartaslag og getur í rólegheitum brotið út ÁD í tígli. Guðm. Sv. Hermannsson bil. Sú aðferð sem lögð er til grund- vallar í auglýsingunni er í raun að bera saman saman áhorf á þátt (fréttir RÚV) við áhorf á tvo tíma- punkta á Stöð 2. í skýrslu sem Gallup gerði með niðurstöðum könnunarinnar var byggt á ofangreindum meginreglum á framsetningu niðurstaðna á frétta- áhorfi og þær sýndar á tvennan hátt: • I fyrsta lagi var sýnt áhorf á frétt- ir RÚV og aðalfréttatíma Stöðvar 2 (kl. 19.30). Þetta er sams konar fram- setning og gerð var með áhorf frétta- tíma stöðvanna á síðasta ári. • I öðru lagi var sýnt áhorf á „prime time“-áhorfstíma frá klukkan 19-20 á RÚV og Stöð 2, en vegna breytinga á dagskrá Stöðvar 2 nær þetta tímabil þar frá 18.55-20.05. Beinn samanburður á aðalfrétta- tímum stöðvanna er og hefur verið sú mælieining sem fylgst hefur verið hvað best með á undanfömum árum. Þama er borið saman áhorf á þátt við þátt án tillits til annarra atriða s.s. tímalengdar. Tilgangur þessarai- mælingar er ekki að mæla mínútu við mínútu enda var fréttatími Stöðvar 2 heldur lengri í fyrra en á RÚV en það hefur snúist við eftir þær breytingar sem gerðar hafa verið á fréttatímum stöðvanna. Framsetning niðurstaðna ætti því að mati Gallup að byggjast á annarri hvorri þessara aðferða sem settar vom fram í skýrslunni. Þetta einstaka mál er ekki það fyrsta sem veldur deilum um túlkun á niðurstöðum kannana fjölmiðla- samstarfsins og örugglega ekki það síðasta, nema til komi breytt viðhorf og aðilar geri samkomulag um leik- reglur á þessum vettvangi. Það er til- laga Gallup að aðilar samstarfsins setji sér formlegar siðareglur um framsetningu og túlkun niðurstaðna í fjölmiðlakönnunum á vegum sam- starfsins, til að tryggja að kannanim- ar njóti trausts og virðingar á mark- aðnum.“ ------------------- Græn framtíð í Mosfellsbæ NÆSTU fjórir fundir í fundaröð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Græn framtíð: Atvinna - velferð - umhverfi, verða í Mosfells- bæ miðvikudagskvöldið 23. febrúar, á Selfossi 1. mars, í Keflavík 2. mars og í Reykjavík 15. mars. Fundurinn í Mosfellsbæ verður haldinn á kaffihúsinu Álafoss föt bezt og hefst klukkan 20:30. Eins og á fyrri fundum munu fulltrúar flokksins kynna hugmyndir sínar um græna atvinnustefnu og nýja sókn í velferðarmálum. Frummælendur verða Kolbrún Halldórsdóttir, Kristín Halldórs- dóttir og Steingrímur J. Sigfússon en fundarstjóri verður Jóhanna G. Harðardóttir. Fundurinn er öllum opinn og hefst klukkan 20:30 eins og áður segir. ♦ » Kvöldganga á Góu HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferð í kvöld, mið- vikudagskvöld, frá Hafnarhúsinu, Miðbakkamegin, kl. 20. Farið verður um Amarhól, með Sæbrautinni og upp á Skólavörðu- holt, þaðan niður í Hljómskálagarð og með Tjörninni og um Austurvöll niður á Miðbakka. Ferðinni lýkur við Hafnarhúsið. Leiðina varða útilistaverkin: Sólfarið, Ingólfur Amarson, Leifur heppni, Móðurást, Jón Sigurðsson, Hoft til hafs og Hafnarsaga. Allir eru velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.