Morgunblaðið - 23.02.2000, Page 45

Morgunblaðið - 23.02.2000, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 45^ og virðing óx fyrir ólíkum skoðunum og vinátta okkar Steindórs dýpkaði með hverju árinu sem leið og óx út fyrir fjölskylduböndin. í seinni tíð reyndist Steindór mér oft vel sem persónulegur og faglegur ráðgjafi. Hann reyndist alltaf hollráður og ein- lægur. Eftir að Steindór hóf störf hjá Keflavíkurverktökum urðu símtöl tíð. Hann hringdi gjaman á leið til eða frá Keflavík til þess að spjalla um það sem hæst bar á innlendum og er- lendum vettvangi, eða til að ræða ýmsar hliðar á pólitískum samsæris- kenningum. Ég mun sakna Steindórs sem góðs vinar og félaga. Steindór vissi að hann yrði ekki langlífur. Hann talaði í fyrsta sinn um það við mig þegar Jónas bróðir hans lést rúmlega fimmtugur íyrir hálfum öðrum áratug. Ég gæti trúað að með- vitað og ómeðvitað hafi Steindór síð- an reynt að búa í haginn fyrir fjöl- skylduna sína, Bjamdísi, Evu, Fríðu og Snorra Val, svo þau gætu staðið sterk án hans. Steindór var afar stolt- ur af konunni sinni, Bjarndísi mág- konu minni, og var jafnframt mjög háður henni. Bjarndís var kjölfestan í lífi hans. Steindór var líka vakinn og sofinn yfir velferð bamanna þeirra. Það breyttist ekki þótt þau fullorðn- uðust. Þau vissu öll að ekkert var mikilvægara föður þeirra og þyrftu þau á honum að halda urðu allar aðr- ar skyldur að víkja. Missir þeirra fjöguma er mikill en sá sem hefur misst mikið hefur einnig mikið átt. Megi sú vissa verða til að sefa sorg þeirra. Steindór og Bjarndís áformuðu ferð til Israels og Palestínu á næstu vikum. Af þeirri ferð Steindórs verð- ur ekki en við Valur óskum þess að í þeirri langferð sem hann nú hefur lagt upp í finni hann fyrirheitna land- ið og njóti eilífs friðar. Guð blessi minningu Steindórs Guðmundssonar og veri með fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímum. Kristín A. Ámadóttir. Vegna fjölskyldutengsla lágu leiðir okkar Steindórs Guðmundssonar saman um árabil á unglingsárum mínum í nábýli að Öldugötu 50 í Reykjavík. Hann var sjö ára og ég nær helmingi eldri en hann þegar við kynntumst. Um næsta sex ára bil leið vart sá dagur, að við ekki hittumst. Snar þáttur í samgangi okkar og vin- áttu þá voru bækur. Ahugi Steindórs eða Denna eins og hann var kallaður var með ólíkindum. Hann fékk lík- lega allar mínar bækur lánaðar sem voru ekki fáar og bókasafn uppeldis- foreldi-a minna stóð honum einnig op- ið. Það var því gaman að sjá hann þroskast svo vel til unglings sem hann gerði, en þá skildi leiðir okkar og lágu ekki saman fyrr en árið 1995. Við hittumst aldrei, en ég fylgdist með góðu gengi hans og frammistöðu eftir að hann lauk námi. Það var því gleðiefni að eignast hann á ný sem vin og samstarfsmann er ég kom til starfa erlendis frá í utanríkisráðu- neytið árið 1995. Steindór var þá orð- inn forstjóri Framkvæmdasýslu rík- isins og umsýsla hans um bygg- ingarframkvæmdir við nýtt sendiráð í Berlín, fyrirhugaðar byggingar- framkvæmdir við stækkun flugstöðv- arinnar á Keflavíkurflugvelli og við- haldsvinna við íslensku sendiráðin tengdu okkur náið næstu fjögur árin, en með allt öðrum hætti en áður. Ég var ekki svikinn af þeim nýju kynnum. Drengurinn sem ég þekkti var nú orðinn fullorðinn maður, en áhugi hans og áreiðanleiki var sem fyrr. Hann var skilvís á bækurnar sem drengur og fór vel með þær og hon- um fórust ábyrgðarmikil störf vel úr hendi sem fullorðnum manni. Stein- dór var sem fyrr afburða fróðleiksfús og það var gaman að heyra af hans vörum um ýmisleg áhugaefni hans og rannsóknir sem með engum hætti tengdust vinnu hans. Fréttin um andlát Steindórs var mér sem öðnim harmafregn. Ég mun geyma með mér ljúfar myndir frá tveimur æviskeiðum hans og vil þakka honum vináttu hans og frá- bært samstarf. Ég votta eftirlifandi eiginkonu hans, börnum og fjölskyldu hans allri innilega samúð mína. Helgi Ágústsson. Þá er hann Steindór Guðmundsson dáinn. Þegar vinur minn sagði mér þessi sorglegu tíðindi brá mér illa. Ég minntist okkar fyrsta fundar. Þessi rólegi, geðfelldi maður tók mér eins og við hefðum þekkst alla ævi. Hann reyndist mér sem sannur vinur í raun. I hvert sinn sem við hittumst gaf hann mér trú á lífið og trú á Jesú Krist og Guð almáttugan. Fyrir allt þetta vil ég þakka þér, Steindór minn. Ég vil biðja Guð almáttugan að halda sinni verndarhendi yfir fjöl- skyldu þinni. Þinn vinur, Guðfreður Hjörvar Jóhannesson. Kær vinur er látinn fyrir aldur fram. Ég kynntist Steindóri Guð- mundssyni þegar við unnum saman við mælingar hjá gatnamálastjóran- um í Reykjavík sumarið 1970. Enda þótt við værum að mörgu leyti ólíkir tókst fljótlega með okkur góð vinátta. Við brölluðum ýmislegt saman í þá daga. Mér eru einna minnisstæðastar samverustundir okkar á gæsaveiðum austur á Héraði, en við fórum líka saman í laxveiði. Steindór naut sín ávallt vel úti í náttúrunni í hópi góðra vina eða í faðmi fjölskyldunnar. Þegar við höfðum báðir fundið okkar lífsförunauta þróaðist vináttu- sambandið enn frekar. Við Halla átt- um margar góðar stundir með Steindóri og eftirlifandi konu hans Bjamdísi. Það var því ekki tilviljun að við ákváðum að byggja saman rað- hús ásamt Eiríki Benjamínssyni, æskuvini Steindórs. Við fluttum í raðhúsið okkar í Flúðaseli árið 1976. Þar bjuggum við hlið við hlið í fimm ár, að undanskildu tveggja ára hléi þegar við Halla brugðum okkur út fyrir landsteinana. A þessum árum voru kynni okkar náin, enda stutt að fara í heimsóknir. Það var alltaf gam- an að ræða við Steindór um landsins gagn og nauðsynjar. Hann hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum. Þó að verkfræði og raunvísindi væru ofar- lega í huga hans þá var hann líka mikill áhugamaður um húmaníska hluti, bæði list, sögu og menningu. Þegar við hittumst síðast núna rétt fyrir jólin þá vorum við að spá í að hittast fljótlega aftur og fara saman í leikhús eða á tónleika. Steindór tók strax af skarið og mælti eindregið með tónleikum, en tónlistin skipaði ríkan sess í lífi hans. Steindór var vel gefinn og sterkur persónuleiki. Hann var líka tilfinn- ingaríkur og trygglyndur. Mannleg samskipti voru ein af hans sterku hliðum. Það var því ekki tilviljun að honum var trúað fyrir ábyrgðarstöð- um. Við og börnin okkar minnumst ánægjulegra samverustunda með þeim hjónum og börnum þeirra í sumarbústaðnum í Grímsnesinu. Steindór lagði mikla rækt við að skapa sér og fjölskyldu sinni þar gott athvarf. Hann naut þess að dvelja þar langdvölum með fjölskyldu sinni og hvíla sig eftir erilsaman vinnudag. Elsku Bjarndís, Eva Hrönn, Fríða Dóra, Ragnar Ingi og Snom Valur. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Okk- ar hugur er hjá ykkur. Þórarinn og Halla. Steindór Guðmundsson fyrrver- andi forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins er látinn. Þegar sú fregn barst okkur síðastliðinn þriðjudag var sem eldingu hefði slegið niður. Fyrstu viðbrögð voru að hafna þess- ari fregn enda ólítóegt að maður í miðri hringiðu lífsins með mikil fram- tíðaráform væri allur. Það reyndist þó því miður rétt. Arið 1992 tók Steindór Guðmunds- son til starfa sem forstjóri Fram- kvæmdasýslu ríkisins og þá þegar voru miklar breytingar gerðai’ á starfsemi stofnunarinnai’. Hann inn- leiddi ný og fagleg vinnubrögð við op- inberar framkvæmdir og breytti svifaseinu og þungu ferli í skilvirkt og afkastamikið með nýrri hug- myndafræði. Við sem urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast Steindóri og starfa með honum búum að minningunni um eldhuga og frum- kvöðul. Mann sem hvergi hvikaði frá sannfæringu sinni og sneri oft erfið- ustu viðfangsefnum upp í glæsta sigra. Steindór Guðmundsson var að- sópsmikill og atorkusamur og hafði ávallt mörg járn í eldinum. Á síðast- liðnu hausti varð hann forstjóri Keflavíkurverktaka og hvarf þá til þeirra starfa. Á þeim vettvangi sem og annars staðar lét Steindór til sín taka og eftir hann liggur nú dijúgt ævistarf á fjölbreyttum vettvangi mannvirkj agerðar. Eftirlifandi eiginkonu, Bjamdísi Harðardóttur, bömum og öðmm aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. F.h. starfsfólks Framkvæmda- sýslu ríkisins, Jóhanna B. Hansen. Það var mér, eins og fjölmörgum, mikið áfall að fregna andlát vinar míns, Steindórs Guðmundssonar. Þegar Steindórs er minnst hvarfla að mér kjamyrtar mannlýsingar Is- lendingasagna og er þá engu logið. Steindór var stórbrotinn maður. Hann var stórvaxinn og svipmikill. Hann var skapmikill. Hann var kjarnyrtur og talaði tæpitungulaust. Hann lét sig aðalatriði skipta en lét öðram um að fást um smáatriði. Hann var óragur við að taka ákvarð- anir og og hafði þá lífsstefnu að röng ákvörðun væri betri en engin. Stein- dór bar með sér myndugleika og fólk komst ekki hjá því að finna íyrir ná- lægð hans en hann tranaði sér ekki fram. Hann var snjall að vinna mál- um brautargengi og að koma þeim í þann farveg sem hann kaus. Fram- kvæmd ákvarðana var honum auð- veld. Hann vildi hafa skipulag á hlut- unum og hafði lag á því að hvetja aðra og virkja til þátttöku í verkefnum sem hann bar ábyrgð á. Hann hafði áhuga á stjómmálum og hafði gaman af að tala um þau og velta fyrir sér þjóðmálum. Hann hafði húmor. Það sem skildi Steindór frá mörgum öðr- um var sú staðreynd að hann var ger- andi; hann framkvæmdi. Þannig minnist ég Steindórs Guð- mundssonar. Við Steindór höfðum þekkst á ann- an áratug. Leiðir okkar lágu fyrst saman vegna starfa okkar að mann- virkjagerð; hann verkfræðingur, ég lögfræðingur. Steindór átti þátt í gerð stærstu mannvirkja á íslandi, stundum lítinn en oft mikinn. Samskipti okkar hóf- ust þegar Steindór rak verkfræði- stofu með Stanley Pálssyni og síðar störfuðum við mikið saman þegar Steindór vai’ forstjóri Framkvæmda- sýslu ríkisins. Mér finnst hann hafi haft þann kost, sem ekki allir hafa, að gera sér grein fyrir takmörkunum sínum. Hann kallaði eftir annarra áliti sem hann tók þó ekki gagnrýnis- laust. Stæði eitthvað til hjá Steindóri var eins gott að vera viðbúinn. Þegar mikið lá við var viðkvæðið að hann kæmi eftir hálftíma og „hvort ekki væri á könnunni?“ eða að ég var boð- aður til hans eftir hálftíma. Auðvitað tókum við tillit til hvor annars en þetta var hinn almenni verkgangur. Hann var ótrúlega fljótur að taka ákvarðanir og mér finnst að þær hafi jafnan verið réttar. Auk samskipta í vinnu lágu leiðir okkar líka saman í einkalífinu. Þar, eins og á öðram sviðum, var Steindór gefandi og ágætur hlustandi en sú lífskúnst er ekki öllum gefm. Þegar ég lít nú til baka skynja ég vel hverj- ar tilfinningar Steindór bar til fjöl- skyldu sinnar. Efst í huga er ást hans á sínum nánustu og umhyggja fyrir þeim. Hann var stöðugt að huga að vel- ferð fjölskyldunnar. Ég fann hvað hann gladdist mikið þegar allt lék í lyndi og hvað það fékk á hann þegar erfiðleikar steðjuðu að. Hann gerði sér vel grein fyi-ir því að lífið væri ekki alltaf dans á rósum og að erfið- leikar væra til þess að sigrast á. Ég fann að sú ást og umhyggja sem Steindór bar til konu sinnar og fjöl- skyldu var endurgoldin. í návist þeirra hjóna, Bjarndísar og Stein- dórs, varð maður áskynja þeirrar virðingar sem þau bára hvort fyrir öðra. Það vora góðar stundir sem við hjónin áttum saman. Við Helga vottum Bjarndísi, böm- um þeirra og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Guð geymi Steindór Guðmunds- son. Othar Öm Petersen. Fallinn er frá góður drengur, Steindór Guðmundsson. Hann var traustur og góður vinur sem gott var að leita til, hvort sem það var vegna mála er snera að vinnu eða áhuga- málum. Ég kynntist Steindóri fyrir nærri tíu áram. Frá þeim tíma höfum við unnið saman að fjölbreytilegum verkefnum. Má nefna sendiráðs- byggingu í Berlín, flugstöð í Keflavík, reglusetningu um kaup ríkisins á þjónustu, einkaframkvæmd, fram- kvæmdir og umferðarskipulag á kristnihátíð og umdirbúning landa- fúndahátíðarhalda í Ameríku. Aldrei bar skugga á þetta samstarf og það var alltaf skemmtilegt og uppbyggj- andi að vinna með honum. Vandasöm verkefni rötuðu til Steindórs enda var hann úrræðagóð- ur og ósérhlífinn við að vinna að framgangi mála. Hann kom miklu í verk enda var vinnudagurinn oft langur. Það liggur því mikið eftir hann. Steindór var etód að hanga yfir smáatriðum. Hann var fljótur að átta sig á kjama málsins, móta stefnu og framkvæma. Steindór var blátt áfram og heiðar- legur. Hann kom framan að mönnum og orðaði hlutina eins og þeir vora. Það á að kalla spaða spaða, var við- kvæðið. Fjölskyldu Steindórs votta ég samúð mína. Guð blessi minningu hans. Skarphéðinn. Fallinn er frá, langt fyrir aldur fram, Steindór Guðmundsson og skil- ur hann eftir sig stórt skarð sem erf- itt verður að fylla. Það var í júlí 1999 sem Steindór Guðmundsson var ráðinn forstjóri til Keflavíkurverktaka hf. Mitóar breyt- ingar áttu sér stað með sameiningu fjögurra verktakafyrirtækja, Bygg- ingaverktaka Keflavíkur, Málara- verktaka Keflavíkm’, Járn og pípu- lagningaverktaka Keflavíkur og Rafmagnsverktaka Keflavíkur, í Keflavíkurverktaka hf. Miklar vonir vora bundnar við ráðningu Steindórs Guðmundssonar sem forstjóra. Allir vora sannfærðir um að honum tækist að sameina fyrirtækin og gera þær róttæku breytingar sem þui-fti. Steindór var stórhuga og gekk ákveðið til verks. Hann var fljótur að komast inn í fyrirtækið og rekstur þess, fljótur að sjá framtíðarmögu- leikana og vinna að þeim. Stjórn KV hf. var í nánu samstarfi við forstjór- ann, vel upplýst af honum og smituð af þeim eldmóði sem í honum bjó. Framundan vora bjartir tímar. Það ríkir því mikill eftirsjá hjá fyrirtæk- inu. Stjórn Keflavíkurverktaka hf. og starfsmenn votta Bjarndísi og böm- unum, Evu, Fríðu og Snorra Val, dýpstu samúð og hluttekningu í þeirra miklu sorg. Stjórn Keflavíkurverktaka hf. og starfsmenn. Það var eins og stormsveipur hefði hitt mann og umhverfið sem maður lifði í. Ekki sveipur fellibylsins sem skilur eftir sig spor eyðileggingarinn- ar heldur stormsveipurinn sem flytm* með sér ferskan andblæ og feykfr burt ryki og rusli þannig að maður sér allt í nýju Ijósi og það sem áður rétt grillti í gegnum móðuna var á eftir svo skýrt og aðgengilegt. Þann- ig var Steindór. Hann var allt í einu kominn inn í líf mitt með sinn ódrep- andi áhuga á því sem hann tók sér fyrir hendur og ósjálfrátt hreifst maður með því sem hann var að vinna að. Hann hafði ótrúlega hæfileika til að greina hismið frá kjarnanum og setja flókin mál þannig fram að þau urðu í hugum annarra skýr og að- gengileg og nauðsynleg ákvarðana- taka því auðveldari. I raun held ég að fáir sem hittu Steindór hafi verið ósnortnir eftir. Allt hans fas, pers- ónuleiki og framkoma var þannig að ekki var hægt að komast hjá því að taka eftir honum eða því sem hann hafði til málanna að leggja. Við kynntumst fyrir tæplega tíu árum þegar hann var ráðinn forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins. Á þeim tíma höfðu verið uppi hugmyndir í fjármálaráðuneytinu um breyttar • áherslur í tilhögum framkvæmda rík- isins sem fólu það í sér að leggja meiri áherslu á framathugun og áætlanagerð við undirbúning fram- kvæmda í því skyni að komast hjá umframkostnaði sem virtist óhjá- kvæmilegur íylgifiskur þeirra. Það kom fljótt í Ijós að þama var kominn maður sem ætlaði að setja mark sitt á það verkefni sem hann var ráðinn til og reynsla hans sem verkefnisstjóri og ráðgjafi í mörgum stóram fram- kvæmdum var gott veganesti á þess- ari leið. Á stuttum tíma tókst honum að innleiða nýjar áherslur í starfsemi1 Framkvæmdasýslunnar og er skipu- lagning framkvæmda við hina nýju byggingu Hæstaréttar gott dæmi um það hvernig hægt er með góðri skipu- lagningu að sameina hagkvæmni í framkvæmdum og fallegt form bygg- ingar, og vera jafnframt innan ramma fjárveitinga. Enda kom það fljótt á daginn að Steindór naut óskoraðs trausts úr öllum áttum til að undirbúa og skipuleggja fram- kvæmdir á vegum ríkisins og var sí- fellt falin stærri og flóknari verkefni. Fyrir mig sem iylgdist náið með þessari þróun var etód hægt að kom- ast hjá því að hrífast af þeim ódrep- andi áhuga sem hann hafði á því sem hann var að gera og því mikla þretó . sem hann hafði til að fylgja málum eftir. Vegna starfa okkar þurftum við að ferðast talsvert saman ei’lendis. Það er einmitt í slikum ferðum sem tóm gefst til þess að kynnast persónunni á bak við samstarfsmanninn. Steindór var afar skemmtilegur maður og það kom fljótt í Ijós hversu víðlesinn hann var og hvað hann hafði mikla þekk- ingu á ólítóegustu málum. Endalaust var hægt að eiga skoðanaskipti um hin ýmsu málefni enda maðurinn bæði litríkur og afdráttarlaus í fram-’’ setningu síns máls, eða hlusta á hann segja sögur sem hann gerði með eft- irminnilegum hætti. Hann gat virst hijúfur á yfirborðinu en var í raun mjög næmur á fólk sem best sést á því góða samstarfsfólki sem hann fékk til liðs við sig hjá Framkvæmda- sýslunni. Steindór var gæfumaður í einka- lífi. Eftir því sem kynni okkar urðu nánari fann ég hversu miklu fjöl- skyldan hans skipti og hversu annt honum var um velferð hennar. Alltaf var hann reiðubúinn að rétta börnun- um hjálparhönd hvort sem var í leik eða námi. Nú er komið að leiðarlok- um í samstóptum okkar Steindórs í bili. Hins vegar eigum við hjónin margar ánægjulegar minningar um samveru okkar við góðan dreng sem ektó verða frá okkur teknar og áfram munu lifa. Við Rannveig flytjum Bjarndísi, bömunum Evu Hrönn, Fríðu Dóra, Snorra Val og tengda- syninum Ragnari Inga okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Þórhallur Arason. ÚTFARARST OFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfiröi, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsta. Sverrir Olsen, útfararstjóri Svem'r Einarsson, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.