Morgunblaðið - 23.02.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.02.2000, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Húsleit gerð hjá CDU í Rhein- land-Pfalz Saksóknarar hætta við leit í íbúðum og á sknfstofu Berlín, Wiesbaden, Mainz. AFP, Reuters. ÞÝZKIR saksóknarar gerðu í gær húsleit á skrifstofum flokksdeildar Kristilega demókrataflokksins (CDU) í Rheinland-Pfalz, heimahér- aði Helmuts Kohls, fyrrverandi kanzlara. Greindi Bemd König, tals- maður saksóknaraembættisins í Bonn, frá þessu. Húsleitin var gerð í tengslum við rannsókn sem í gangi er á þætti Kohls í meintum ólöglegum vinnu- brögðum við fjármögnun flokks- starfsins, sem tíðkuð voru á stjóm- arárum Kohls og hafa steypt flokkn- um í verstu kreppu sögu sinnar. Akveðið var að gera húsleitina á skrifstofum CDU í Mainz í kjölfar þess að saksóknurum barst nafnlaus ábending um að þar væm geymd gögn um leynisjóði flokksins, eftir því sem AFP hefur eftir heimildar- mönnum innan CDU. Hins vegar ákvað saksóknaraem- bættið í Bonn á mánudag að hætta við að gera húsleit í íbúðum og á skrifstofu Kohls, eftir að áform þar að lútandi höfðu kvisazt út til fjöl- miðla. Frá því var greint í vikuritinu Der Spiegel á mánudag, að saksóknarar myndu fara þess á leit við þýzka þingið, að það veitti slíka húsleitar- heimild, en þingið hefði þurft að samþykkja beiðnina þar sem Kohl á enn formlega sæti á þingi og nýtur því þinghelgi. Að sögn lögmanns Kohls fóm hús- leitaráform saksóknara mjög fyrir brjóstið á honum. Sagði lögmaður- inn, Stephan Holthoff-Pförtner, að ekkert vit væri í áformunum. „Eini tiigangur aðgerðar af þessu tagi væri að lítillækka Kohl,“ sagði hann. Kohl hefur viðurkennt opinber- lega að hafa á tímabilinu 1993-1998 tekið við allt að tveimur milljónum marka, jafnvirði um 75 milljóna króna, í leynileg og þar með ólögleg framlög í flokkssjóði CDU. Hefur Kohl þótt storka lögunum enn frek- ar með því að standa fastur á því að segjast aldrei munu gefa upp hverjir gefendur hinna nafnlausu fjárfram- laga voru. Kohl hefur lítið látið á sér bera frá því fjármálahneykslismálin komust í hámæli og hefur til að mynda ekki sézt á þinginu í nærri þrjá mánuði. Vaxandi fjöldi áhrifamanna í CDU er þeirrar skoðunar, að flokks- menn ættu einfaldlega að leiða Kohl hjá sér vegna þeirra vandræða sem hann hefur bakað flokknum með því að gera eins lítið og raun ber vitni til að leggja þeirri viðleitni lið að upp- Helmuts Kohls Reuters Helmut Kohl, fyrrverandi kanzl- ari Þýzkalands, sést hér fara frá heimili sínu í Grunewald-hverfi í Berlín fyrir nokkru. Saksóknar- ar hafa hætt við áform um að gera húsleit í íbúðum Kohls í Berlín og Ludwigshafen eftir að sagt var frá þeim í fjölmiðlum. lýsa öll hneykslismálin. Thomas Scháuble, innanríkiráðherra í stjóm sambandslandsins Baden-Wurttem- berg og bróðir Wolfgangs Scháuble, fráfarandi flokksleiðtoga CDU, lýsti því til að mynda yfir fyrir helgina, að hann fyrirliti Kohl. Koch sleppur við sakarannsókn Saksóknarar í Wiesbaden, þar sem stjórn Hessen hefur aðsetur, tilkynntu á mánudag að þeir sæu ekki tilefni til að hefja sakarannsókn gegn Roland Koch, leiðtoga flokks- deildar CDU í Hessen og forsætis- ráðherra sambandslandsins. Wemer Roth, aðalsaksóknari í Hessen, sagði að ekki lægju fyrir nægjanlegar vísbendingar um að Koch hefði gerzt sekur um sviksam- legt athæfi í skilningi laganna. Koch hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að hafa sagt ósatt um uppmna stórra upphæða sem m.a. vom notaðar til að standa straum af kostnaði kosn- ingabaráttunnar fyrir héraðsþing- kosningarnar sem Koch vann fyrir réttu ári. Féð kom í raun af leynileg- um bankareikningum í Sviss. Á laugardag sýndu flokksfélagar Kochs í Hessen svo ekki varð um villzt að hann nyti enn trausts þeirra, er hann var á héraðsflokks- þingi á laugardag kjörinn með yfir- gnæfandi meirihluta til að gegna formennsku flokksdeildarinnar áfram. AP Meðlimir hægriflokks í Úkraínu, UNA, söfnuðust í gær saman íyrir utan sendiráð Austurríkis í Kiev til að lýsa yfir stuðningi við ríkisstjórnarþátttöku Frelsisflokks Jörgs Haiders. Ráðgjafí Gerhards Schröders kanzlara um Austurríki Oskynsamlegt að skera á tengsl Vín.AP.AFP. RÁÐGJAFI Gerhards Schröders Þýzkalandskanzlara í utanríkismál- um, Michael Steiner, sagði í blaða- viðtali í gær að það væri allt annað en skynsamlegt að skera á tengsl við Austurríki; eins og sakir standa væri Evrópubúum nær að efla tengsl sín og viðræður við Austurríkismenn. Nú, eftir að hinn umdeildi Frelsis- flokkur er kominn í ríkisstjóm í Austurríki, sé rétti tíminn til að heimsækja landið, segir Steiner í austurríska blaðinu Der Standard. „Það sem við þurfum á að halda við slíkar aðstæður er að efla sam- skiptin og viðræður milli Austurrík- ismanna og annarra Evrópubúa,“ sagði Steiner. Hann tók fram að þýzk stjórnvöld tækju ekki undir áskoranir á borð við þær sem belg- íski utanríkisráðherrann Louis Michel hefur látið frá sér fara, en hann hefur m.a. sagt að nú væri „ósiðlegt" að fara í frí til Austurríkis. „í þessu sambandi getur þýzka stjórnin aðeins gefið eitt ráð: Farið á skíði í Austurríki,“ sagði Steiner. ,Að hvetja til þess að landið sé snið- gengið væri það heimskulegasta sem hægt væri að gera,“ sagði hann. Frá því samsteypustjórn austur- ríska Þjóðarflokksins og Frelsis- flokksins tók við völdum 4. febrúar sl. hafa Evrópusambandið, ísrael og Bandaríkin gripið til ráðstafana til að einangra Austurríki pólitískt. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun em þrír fjórðu hlutar Austurríkis- manna þeirrar skoðunar, að við- brögð umheimsins við myndun ríkis- stjórnarinnar gangi of langt. Aðeins tíundi hluti aðspurðra í könnuninni, sem Der Standard birti niðurstöður úr, telur refsiaðgerðir ESB munu vara lengur en eitt ár. Fjórðungur telur þær munu verða úr sögunni eftir fáeinar vikur. Steiner sagðist gera sér grein fyr- ir að margir Austurríkismenn skynj- uðu aðgerðir ESB sem afskipti af innanríkismálum. Hann vildi hins vegar benda á, að ESB væri það náið bandalag þjóða, að öll aðildarríkin hefðu sitt að segja um þróun mála í öðmm aðildarríkjum. „Þetta er það verð sem við verðum allir að greiða ef við viljum vera aðilar að ESB,“ sagði hann. Haider Iíkir sér við Blair Athygli vakti í gær að Jörg Haid- er, leiðtogi Frelsisflokksins, skrifaði grein í brezka dagblaðið Daily Tele- graph, þar sem hann líkir sér og stefnumiðum flokks síns við Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og stefnumið „Nýja Verkamanna- flokksins" (New Labour). Segir hann mikinn samhljóm megi finna í stefnumiðum beggja, ekki sízt í mál- efnum eins og innflytjendamálum og hvernig unnið skuli gegn glæpum. í greininni, sem ber titilinn „Blair og ég og íhaldsöflin", spyr Haider meðal annars: „Era Blair og Verka- mannaflokkurinn öfgaöfl til hægri vegna þess að þeir era ekki sam- þykkir Schengen-sáttmálanum [um opin landamæri innan ESB] og era áfram um að settar séu strangari reglur um innflytjendamál?" „Sé Blair ekki öfgamaður, þá er Haider það ekki heldur," skrifar hann. Haider segir sig og Blair eiga það sameiginlegt, að hafa tekizt að gera róttækar umbætur hvor á sínum flokki og losað þá við gamla hug- myndafræði sem íþyngdi þeim. Báð- ir séu þeir að leitast við að finna „nýja samkennd í þjóðfélagi sem æ meira markast af hinum alþjóða- vædda heimi nútímans“. Þá segir Haider Frelsisflokkinn líkjast „Nýja Verkamannaflokkn- um“ einnig að því leytinu, að hann vilji „losa um ósveigjanleika velferð- arkerfisins án þess að skapa félags- legt óréttlæti," og báðir flokkar vilji bera hag fjölskyldunnar fyrir brjósti, velferð barna og baráttu gegn fíkniefnum. Vöktu þessar samlíkingar Haiders ekki mikla lukku í Downingstræti 10. ------+++-------- Bandaríska alríkislögreglan Frábær tilboð á rúmum, náttborðum, kommóðum og klæðaskápum. fnffimnnmnfsrna 15% afsláttur affylgihlutum (dýnum, dýnuhlífum, koddum o.fl.) þegar keypt er rúm. Skútuvogi 11* Sími 568 5588 RYMUM FYRIR NYJUM SVEFNHERBERGISHUSGOGNUM Opið: laugardag 10-17 Skrifstofa í Búdapest BANDARÍSKA alríkislögreglan, FBI, mun í næsta mánuði opna skrif- stofu í Búdapest í Ungverjalandi, að sögn fréttavefjar blaðsins Moscow Times. Borgin er miðstöð fyrir marga leiðtoga rússneskra mafíu- samtaka sem finnst hún vel í sveit sett með tilliti til aðgerða í álfunni. FBI hefur ekki fyrr rekið skrif- sttofu erlendis enda er stofnuninni ætlað að fást við afbrot innan landa- mæra Bandaríkjanna. Er ákvörðun- in sögð sýna hve áhyggjur manna vestanhafs vegna starfsemi rúss- neskra mafiuhópa séu orðnar miklar. Ungverska stjórnin hefur beðið um aðstoð Bandaríkjamanna við að brjóta á bak aftur rússnesku mafíu- hópana. Liðsmenn FBI fá leyfi til að bera vopn við rannsóknir sínar og handtaka fólk en þá í samstarfi við ungverska lögreglumenn. Tíu Ung- verjar og fimm Bandaríkjamenn munu starfa á skrifstofunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.