Morgunblaðið - 23.02.2000, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Það voru tveir ungir Þórshafnarbúar sem afhjúpu
skiltið með nafninu Ver.
Arsafmæli íþrótta-
hússins í Þórshöfn
Mikið unglingastarf
hjá Snæfelli
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámson
Nýigörin stjórn Umf. Snæfells árið 2000. Árþóra Steinarsdóttir, gjald-
keri, Eydís Eyþórsdóttir meðstjórnandi, Hjörleifur Hjörleifsson, for-
maður, María Valdimarsdóttir, ritari.
Þórhsöfn-íþróttahúsið á Þórhsöfn
hélt fyrir skemmstu upp á ár-
safmælið sitt að viðstöddu fjöl-
menni. Brugðið var á leik í sund-
lauginni og tóku bæði ungir og
eldri þátt í gamninu.
Við þetta tækifæri var húsinu
gefið nafn og í hugmyndabankan-
um varð nafnið Ver hlutskarpast.
Tveir ungir íþróttamenn afhjúpuðu
nafnið við lófatak viðstaddra og síð-
an voru kaffiveitingar.
Stykkishólmi - Ungmennafélagið
Snæfell hélt aðalfund sinn fyrir
stuttu. Ungmennafélagið sem er
rúmlega 70 ára er með öflugt starf
á sínum vegum og setur mikinn
svip á bæjarlífið. Félagið sinnir
mjög unga fólkinu í bænum og býð-
ur upp á fjölbreytt starf. Sjö deildir
störfuðu á vegum Snæfells: Frjáls-
íþróttadeild, hnitdeild, knatt-
spyrnudeild, skíðadeild, sunddeild,
blakdeild og körfuknattleiksdeild.
Frjálsíþróttadeild hefur séð um
rekstur íþróttaskóla, en s.l. sumar
tóku nokkrir foreldrar að sér að sjá
um rekstur hans. Körfuboltinn hef-
ur verið mest áberandi í starfsemi
Snæfells undanfarin ár og er félag-
ið með lið í úrvalsdeild, en útlitið
fyrir áframhaldandi veru þar er
ekki gott um þessar mundir. For-
eldrar koma mjög að starfi Snæf-
ells. Þeir halda utan um unglinga-
starf í körfubolta, frjálsum
íþróttum og fótbolta og er mikið
starfað. Lítil starfsemi hefur aftur
á móti verið hjá meistaraflokki í
knattspyrnu og eru það vonbrigði
því í Stykkishólmi er nýr grasvöllur
ogjiví góð aðstaða fyrir hendi.
I ársreikningi Snæfells kemur
fram að tekjur félagsins og deilda
þess árið 1999 voru um 13,5 milljón-
ir króna. Ekki dugði það til að
greiða öll útgjöldin. Það vantaði um
700 þúsund krónur til að rekstur fé-
lagsins stæði á sléttu. Mesta veltan
er hjá meistaraflokki í körfubolta.
Kostnaður við að reka deildina var
5,5 milljónir króna og vantar um 1,3
milljónir króna í tekjur til að standa
undir rekstri. Mikil vinna fer hjá
öllum deildum í að afla fjár og
markaðurinn takmarkaður í ekki
stærra bæjarfélagi.
Á aðalfundinum urðu umræður
um að breyta umgjörð fjölliðamóta
sem félagið stendur fyrir. Leggja
þarf meiri áherslu á vandaðan und-
irbúning svo að mótin verði eftir-
minnilegri.
Aðstaða til íþróttaiðkunar í
Stykkishólmi er góð og Stykkis-
hólmsbæ til mikils sóma. Forráða-
menn bæjarins hafa sýnt starfsemi
Snæfells mikinn stuðning og skiln-
ing eins og öll uppbygging íþrótta-
mannvirkja ber vitni um. Líkur eru
á því að Unglingalandsmót UMFÍ
verði haldið í Stykkishólmi árið
2002.
5. rammaáætlun ESB
Kynningarfundur um rannsóknaáætlun
ESB um orku og sjálfbæra þróun
Vistvæn og endurnýtanleg orka. Hagkvæm vinnsla og nýting orku
Fimmtudaginn 24.02.2000, kl. 08:00 -10:00, Borgartúni B
Haldinn verður kynningarfundur um Orkuáætlun ESB fimmtudaginn 24. febrúar n.k. og
hefst fundurinn kl. 8:00. Stjómamefndarfúlltrúar íslands í Orkuáætlunni, Sveinbjöm
Bjömsson og Ólafur Flóvenz, munu kynna áætlunina, en John Gamish, sérfræðingur frá
DG 12 Framkvæmdastjóm ESB mun kynna þau lykilsvið sem em opin fyrir umsóknum,
en næsti umsóknaffestur rennur út í maí 2000. Auk þess mun hann veita einkaviðtöl milli
kl. 10:00 - 12:00 sama dag við þá aðila sem íhuga þátttöku. Þeir sem hafa áhuga á viðtali
við John Gamish em beðnir um að panta tíma hjá Grími Kjartanssyni, á skrifstofu RANNÍS.
Hægt er að nálgast upplýsingar um áætlunina á vefsíðu CORDIS á slóðinni:
http://www.cordis.lul'eesd/ eða með því að hafa samband við skrifstofu RANNIS í síma
5621320 (Hjördís eða Grímur).
Kynningarfundurinn er ókeypis og öllum opinn en þátttakendur em beðnir um að tilkynna
þátttöku sína fyrirfram með tölvupósti: rannis@rannis.is eða í síma 5621320.
iikJ
ORKUSTOFNUN
<§)
SAMTOK
mmm IÐNAÐARINS
Rannsóknaþjónusta Háskólans
n
Iðntæknistofnun
RAIHMfS
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Dittað að bílnum
Vaðbrekku, Jökuldal - Jónas Jónas-
son bifvélavirki á Egilsstöðum er
einbeittur á svip þar sem hann er að
dytta að bíl við verkstæði sitt. Nú er
vetrartími og nauðsynlegt að bíllinn
sé í lagi og tilbúinn að takast á við
vetrarfærðina. Eitthvað virtist leka
með nipplum á olíuverkinu og bíllinn
hálf kraftlaus, svona eins og hann
væri með flensuna. Jónas trúði illa
þessu flensutali og herti á nipplunum
og bíllinn varð eins og nýr.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
Sekt og öku-
leyfissvipting
TVEIR piltar um tvítugt hafa verið
dæmdir til greiðslu sektar í ríkissjóð
og að sæta upptöku á fíkniefnum sem
í fómm þeirra fundust auk þess sem
annar þeirra var sviptur ökurétti í
eitt ár og var gert að greiða skaða-
bætur vegna eignarspjalla. Dómur-
inn var kveðinn upp í Héraðsdómi
Norðurlands eystra.
Piltarnir tveir vora handteknir í
bifreið annars þeirra í febrúar í fyrra
og höfðu þá nokkurt magn af hassi í
fóram sínum, en það höfðu þeir
keypt í Reykjavík og flutt með sér
norður. Sá er bifreiðina átti var einn-
ig ákærður fyrir eignaspjöll, en hann
braut rúðu í hárgreiðslustofu við
Strandgötu í desember síðastliðnum.
Loks var hann einnig ákærður fyrir
að hafa ekið undir áhrifum áfengis í
desember síðastliðnum.
Maðurinn viðurkenndi brot sín
fyrir dómi. Hann hefur nokkrum
sinnum áður hlotið refsidóma vegna
umferðarlaga- og fíkniefnabrota. Fé-
lagi hans hefur einnig hlotið nokkra
refsidóma á síðustu áram, m.a. vegna
hegningarlaga- og fíkniefnabrota.