Morgunblaðið - 23.02.2000, Side 52
52 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Sævar og Davíð
taka forystuna
SKAK
Hellisheimilið
MEISTARAMÓT
HELLIS
14. feb. - 1. mars 2000
DAVÍÐ Kjartansson lagði
Björn Þorfinnsson, núverandi
skákmeistara Hellis, að velli í
fjórðu umferð meist-
aramóts Hellis. Þar
með náði Davíð for-
ystunni ásamt Sæv-
ari Bjarnasyni, sem
sigraði Jón Ama
Halldórsson. Helstu
úrslit fjórðu umferð-
ar urðu þessi: Saevar
Bjamason - Jón Árni
Halldórsson 1-0,
Davíð Kjartansson -
Bjöm Þorfinnsson
1-0, Stefán Arnalds -
Róbert Harðarson
0-1, Sigurbjöm
Björnsson - Jóhann
H. Ragnarsson 1-0,
Vigfús O. Vigfússon -
Guðjón Heiðar Val-
garðsson 1-0. Staðan
að loknum fjórum
umferðum er sem hér
segir:
1.-2. Sævar
Bjamason 4 v.
1.-2. Davíð Kjart-
ansson4v.
3.-7. Jón Ámi Hall-
dórsson, Pétur Atli
Lárusson, Vigfús Ó.
Vigfússon, Róbert
Harðarson, Sigur-
björn Bjömsson 3 v.
8.-19. Bjöm Þor-
finnsson, Jóhann H.
Ragnarsson, Jónas
Jónasson, Stefán
Amalds, Páll Sigurðsson, Guðjón
Heiðar Valgarðsson, Kristján Om
Elíasson, Ingólfur Gíslason, Sig-
urður Ingason, Baldur Möller,
Sveinbjöm Jónsson, Ólafur Is-
berg Hannesson 2 v.
o.s.frv.
Fimmta umferð verður tefld í
kvöld, miðvikudaginn 23. febrúar,
og hefst klukkan 19:30.
Capelle la Grande
Nokkur fjöldi íslenskra skák-
manna tekur þátt í Capelle la
Grande skákmótinu sem nú
stendur yfir í Frakklandi. Fjórum
umferðum er nú lokið á mótinu og
hefur gengi íslensku keppend-
anna verið með ágætum. Mótið er
afar sterkt og t.d. er Hannes Hlíf-
ar Stefánsson (2.566) í 23. sæti í
stigaröðinni. Annars taka 643
skákmenn þátt í mótinu frá 50
löndum. Þar af eru 105 stórmeist-
arar og 59 alþjóðlegir meistarar.
Vinningafjöldi íslensku keppend-
anna er þessi þegar fjórum um-
ferðum er lokið:
Hannes Hlífar Stefánsson 3‘/z v.
Helgi Ólafsson 2M> v.
Þröstur Þórhallsson 214 v.
Stefán Kristjánsson 214 v.
Ólafur Kjartansson 2 v.
Hlíðar Þór Hreins-
son 3 v.
Birkir Örn Hreins-
son Vá v.
Firmakeppni TR
Firmakeppni TR
er hafin. Dagskráin
verður sem hér segir:
B-undanrásir þriðj-
ud. 29. febrúar kl. 20,
C-undanrásir fimm-
tud. 2. mars kl. 20, D-
undanrásir sunnud.
5. mars kl. 20. Úrslit
mánud. 6. mars kl.
20. Verðlaun verða
veitt fyrir bestan ár-
angur úr fjórum mót-
um. Árangur í úrslit-
um telst með: 1.
verðlaun kr. 20.000,
2. verðlaun kr.
15.000, 3. verðlaun
kr. 10.000. Sérstök
verðlaun verða veitt í
úrslitum.
Kvennameistara-
mót Hellis
Annað kvenna-
meistaramót Hellis
verður haldið sunnu-
daginn 27. febrúar kl.
13. Tefldar verða 7
umferðir eftir Mon-
rad-kerfi með 15
mínútna umhugsunartíma. Mótið
er opið konum á öllum aldri, en
titilinn sjálfan getur aðeins fé-
lagsmaður í Helli unnið. Sigur-
vegari á Kvennameistaramóti
Hellis 1999 var Áslaug Kristins-
dóttir. Kvennameistari Hellis
1999 varð hins vegar Anna Lilja
Gísladóttir eftir einvígi við Mar-
gréti Jónu Gestsdóttur. Ekkert
þátttökugjald. Góð verðlaun
verða í boði.
Skákmót á næstunni
24.2. Finnland. NM í skólaskák
27.2. Hellir. Kvennameistara-
mót.
3.3. Hellir. Klúbbakeppni.
Daði Örn Jónsson
Sævar
Bjarnason
Davíð
Kjartansson
Mótmælir áformum um
niðurskurð við geðdeildir
BSRB mótmælir harðlega þeim
áformum að skera niður framlög til
geðdeilda Ríkisspítalanna um veru-
legar upphæðir. í því fælist sam-
dráttur í þjónustu og umönnun við
geðsjúka, veruleg fækkun sjúkrar-
úma og óvissuástand um bráða-
þjónustu við geðsjúka. Þessi áform
koma fram á sama tíma og land-
læknir hefur hrundið af stað her-
ferð til að berjast gegn þunglyndi
og sjálfsvígum sem hafa færst
mjög í aukana á undanförnum ár-
um, segir í ályktun BSRB.
„Um tvo áratugi hefur verið
starfrækt bráðamóttaka fyrir geð-
sjúka á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Þangað hafa sjúklingar og aðstan-
dendur þeirra getað leitað aðstoðar
allan sólarhringinn. Um 90 ein-
staklingar leita að meðaltali á mán-
uði til bráðadeildarinnar og margir
þeirra hafa gert sjálfsvígstilraun
og eru þjáðir af þunglyndi. Gangi
þessi áform eftir mun þessi þjón-
usta við geðsjúka minnka verulega.
Landlæknir hefur lýst því yfir í
sambandi við aukningu sjálfsvíga
að bæta þurfi bráðaþjónustu við
geðsjúka og að ljóst sé að ekki
megi skerða hana úr því sem komið
er.
Geðlæknafélag íslands hefur
mótmælt fyrirhuguðum niður-
skurði og segir í ályktun félagsins
„að þessi kerðing komi verst niður
á þeim sem haldnir eru alvarleg-
ustu geðsjúkdómum, þeim sem búa
við erfiðar félagsaðstæður og
einstalingum sem þurfa á bráðainn-
löng að halda vegna sjálfsvígs-
hættu. Geðsjúkdómar eru oftar en
ekki sjúkdómar ungs fólks. Ónóg
meðferð á byrjunarstigi geðsjúk-
dóma getur stofnað lífi ungra ein-
staklinga í hættu og stuðlað að var-
anlegri örorku.“
Þekking almennings og skilning-
ur á geðsjúkdómum hefur aukist
mikið að undanförnu og fordómar
þar með verið á undanhaldi. Áform
heilbrigðisyfirvalda sýna hins veg-
ar að sú þekking virðist ekki hafa
numið land þar á bæ og fordómarn-
ir í garð geðsjúkra minna á afstöðu
manna um síðustu aldahvörf en
ekki árið 2000,“ segir í ályktun
BSRB.
ÍDAG
VELVAKMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Gæfan er
fallvölt
ÉG ER mjög reið yfir því
sem ég hef heyrt að forsæt-
isráðherra hafi á Alþingi
Islendinga niðurlægt ör-
yrkja og annað fólk með því
að kalla þá smælingja.
Hann líkti þessu við óreiðu.
Gæfan er fallvölt í þessum
heimi og enginn veit hvað
fyrir getur komið. Slys og
veikindi hafa lagt marga
manneskjuna á besta aldri
að velli og þá taka við lúsar-
bætur frá Tryggingastofn-
un ríkisins. Þótt fólk hafi
verið þokkalega efnað,
jafnvel átt íyrirtæki sem
blómstrað hafa, hefur slíkt
stundum hrunið eftir slys
eða veikindi. Ráðherra tal-
ar lika um öryggisnet, en
það mun aldrei koma í stað
kaups eða yfirvinnukaups.
Örorka og það að vera gam-
all á ekki að vera ávísun á
fátækt. Örorkubætur og
ellilífeyrir á ekki að vera
ölmusa. Hann sagði líka að
ekld væri hægt að leysa
erfiðleika vegna fjárhags-
aðstæðna á hverjum bæ.
Það má kannski vera, en
hann hefur nú ekki sýnt því
mikinn áhuga að leysa
vanda þessa fólks. Það er
þungur kross að bera að
missa heilsuna þótt fólk sé
ekki ofurselt fátækt. Og
ekki hefur láglaunafólk og
einstæðar mæður það
betra. Þettá fólk verður í
neyð sinni að leita til hjálp-
arstofnana. Það er samfé-
lagi sem státar sig af góð-
æri til skammar. Margt
fólk veltir langt á undan sér
skuldabagga sem sífellt
vefst upp á eins og snjó-
bolta og sumir geta ekki
ráðið við fyrir fátækt.
Margir nota greiðslukort
til að bjarga sér og hafa
margir farið illa út úr slíku.
Þetta kallar ríkisstjómin
kaupmátt. Finnst mér að
forsætisráðherra eigi að
biðja fólk afsökunar á þess-
um orðum sínum. Allir eiga
rétt á að fá að halda mann-
legri reisn.
Sigrún.
Mótmæli
ummælum
ÉG VIL mótmæla harðlega
ummælum forsætisráð-
herra, Davíðs Oddssonar, á
Alþingi þar sem hann lét
frá sér fara ummæli um ör-
yrkja og ellilífeyrisþega og
láglaunafólk og kallaði það
smælingja. Af orðum hans
að dæma mætti halda því
fram að þetta fólk væri allt-
af í víndrykkju og sukki.
En óreiðan er ekki fyrir
það að fólk sé í víndrykkju
og sukki heldur fyrir of lág
laun.
Vil ég að Davíð biðji
þjóðina afsökunar á um-
mælum sínum.
Hallgrímur Kristinsson.
Misjafnt hafast
mennirnir
ÉG VIL svara grein sem
birtist í Velvakanda og er
skrifuð af Bryndísi. Greinin
heitir Misjafnt hafast
mennimir. Hún skrifar um
öfundar- og fúkyrðistón 111-
uga Jökulssonar. Ég hlusta
alltaf á pistlana hans á
fimmtudagsmorgnum og
hann var alls ekki að setja
út á sjómenn í þessu tilfeÚi.
Ég vil koma því á framfæri
að hann er aldrei með öf-
undar- og illgimishugarfar.
Hann segir alltaf satt og
rétt frá að mínum dómi en
sumt fólk getur aldrei þolað
sannleikann.
Með kveðju.
Húsmóðir.
Um gagnagrunn
VEGNA gagnagrunns,
peningaþvættis þar sem
hver hugsar um sig og sér-
hagsmunastöðu vísinda-
nefndar og heilbrigðisráðu-
neytið.
Það er mjög hættulegt
séu margir sérfræðingar að
rannsaka sama hlutinn.
Það ættu allir í heilbrigðis-
geiranum að vita. Ég hef
sagt mig úr gagnagrunnin-
um, en það er hægt að tala
við mig þegar prófessor
Tómas Helgason er hættur
störfum, annað læt ég ekki
bjóða mér
Anna Bjarkan.
Leikir fyrir heimili
og skóla
VEIT einhver hvar hægt er
að fá bókina „Leikir fyrir
heimili og skóla“ eftir Aðal-
stein Hallsson, leikfimi-
kennara? Bókin er útgefin
af prentsmiðjunni Leiftri
1969. Þeir sem gætu gefið
upplýsingar hafi vinsam-
lega samband við Önnu
Maríu í síma 464-3567.
Tapað/fundid
Taska óskast aftur
MAÐURINN sem er með
svörtu töskuna mína er
beðinn að hringja í númerið
sem er í veskinu.
Fundur í Esju
GÖNGUMAÐUR gekk
fram á svarta Charlot-Mos-
er tösku er inniheldur mjög
dýran klifurbúnað, neðar-
lega í Esjuhlíðum, neðan
Mógilsár. Eigandi vinsam-
legast hafið samband í síma
5868368.
Nokia gsm-sími
týndist
GRÁR Nokia 3210 gsm-
sími týndist milli Brautar-
holts og Hlemms sl. mánu-
dag. Finnandi hafi sam-
band i síma 867-2034.
Víkverji skrifar...
FYRIR nokkru var greint frá vali
verktaka við nýja verslunar-
miðstöð í Kópavogi, Smáralind. Ætt-
um við kannski fremur að segja
verslunarþorpið Smáralind? Vík-
verja hefur nefnilega skilist að hér sé
nánast um heilt þorp eða bæ að ræða
fyrir sakir stærðar og fjölbreytni.
Gott ef ekki verður hægt að búa
þama líka og vera sjálfum sér nógur
án þess að fara nokkru sinni út fyrir
lóðarmörkin! Þama verður nefnilega
bæði nóg að bíta og brenna og fjöl-
breytt atvinnutækifæri og nýjasta
tiltækið er kvikmyndahús svo það
ætti að vera vel séð fyrir flestum
þörfum.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með gengi Smáralindarþorpsins
þegar íbúar taka sér þar bólfestu og
gestir streyma í bæinn. Mun þorpið
taka frá öðram miðstöðvum sem fýr-
ir era á höfuðborgarsvæðinu, svo
sem Kringlunni eða miðborginni?
Flyst verslun að einhverju leyti frá
Selfossi eða Keflavík, sem heitir
reyndar Reykjanesbær núna? Eða
verður verslun þama hrein viðbót
við öll önnur tækifæri sem við höfum
til að stunda útsölur og kjarakaup?
Víkverji átti hins vegar fyrir
nokkru tal við mann sem hefur
tröllatrú á Smáralind. Kannski
vegna þess að hann hefur ákveðið að
hefja þar verslunarrekstur og þegar
gengið frá kaupum á plássi. Hann er
sannfærður um að þarna sé góð hug-
mynd fædd og að menn muni flykkj-
ast í Kópavoginn til að höndla. Ekki
hefur Víkverji vit á að meta eða spá
einu eða neinu um framvinduna í
Smáralind en endurtekur aðeins að
fróðlegt verður að fylgjast með þess-
um rekstri.
Um leið má leiða hugann að fjár-
festingunni. Uppbyggingin á að
kosta tæpa sex milljarða króna sem
er talsvert mikið fé. Víkverji er þó
löngu hættur að láta sér koma á
óvart hvera miklar upphæðir hægt
er að galdra fram þegar menn telja
sig veðja á réttan hest. Hér hætta
fjárfestar og væntanlegir verslunar-
eigendur fjármunum sínum en þeir
hljóta að bera nokkurt skynbragð á
hvar arðsemi sé helst von.
DAG er nú tekið að lengja og allt-
af þykir Víkverja það ánægju-
legt þegar hann getur farið að heim-
an í björtu árla morguns og komið
heim í björtu. Ekki síst þegar vinnan
teygist fram yfir kvöldmat en þá er
gott að enn lifir eitthvað af deginum í
birtunni. Þótt veturinn hafi sínar
björtu (!) hliðar er Víkveiji meira
fyrir vorið og sumarið. Þá er bæði
léttara yfir veðri og vindum og meiri
glaðværð yfir mannfólkinu. Bjart
nánast allan sólarhringinn og minni
þörf á að lúra undir sæng.
Um leið og Víkverji er í þessum
árstíðahugleiðingum tekur hann
heilshugar undir álit þingmanna sem
vilja halda í gömlu heitin á vind-
styrk, gola, kaldi, rok og svo fram-
vegis. Þótt tækniöldin vilji fá þessar
upplýsingar í metram á sekúndu
geta margir enn notað sér gömlu
nöfnin og því ekki að halda í þau?
Ættum við ekki bara líka að taka í
daglegt brúk gömlu mánaðaheitin?
Þorrinn er nýliðinn, nú er góa og
næst er það einmánuður.