Morgunblaðið - 23.02.2000, Page 56
§6 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Harðsoðin
og hrá
The Big Blowdown, glæpasaga eft-
ir George P. Pelicanos. St. Martins
Griffin gefur út í september 1999.
313 síðna kilja í stóru broti. Kostar
2.195 í Máli og menningu.
GEORGE P. Pelicanos er með
fremstu glæpasagnasmiðum Banda-
ríkjanna um þessar mundir, meðal
annars með bókum sínum um spæj-
arann Nick Stefanos, Nick’s Trip,
Down by the River Where the Dead
Men, A Firing Offense. Aðal Pelican-
os er hversu honum tekst að glæða
persónur sínar lífi, ekki síst með því
að gefa sterka mynd af umhverfi
Stefanos, sem er, eins og nafnið gef-
ur til kynna, grískur að ætt og upp-
runa, þó hann hafi dvalist lengstaf í
Bandaríkjunum. Grískur uppruni
Stefanos er aldrei langt undan og
þungamiðja The Big Blowdown er
vinátta Italans Joey Recevo og
Grikkjans Petes Karras, sem eru
báðir bandarísk ungmenni að alast
upp í Washington á árunum fyrir
seinna stríð. Recevo er snyrtipinni,
vel greiddur töffari í dýrum fötum,
maður sem endurspeglar nýjan
heim, en Karras er aftur á móti
evrópskari, líkari grískum manga
bófa en ítölskum mafíósa, heiðarleg-
ur og sterkur og kvensamur enda
stenst engin kona sterku þöglu týp-
una með harm í hjarta.
Karras óttast ekkert, er reyndar
stríðshetja, en Reveco er minni í sér
■og langt í frá sama hörkutólið þó
hann sé gjarnari á að beita ofbeldi til
að leysa deilur en félagi sinn. Það
slettist upp á vinskapinn þegar
Recevo lætur óttann komast upp á
milli sín og Karras, en uppgjörið
verður ekki umflúið.
Fyrri bækur Pelicanos eru
skemmtilegar aflestrar, en þó er allt-
af eins og eitthvað standi útaf í pers-
ónusköpun eða innsæi. I The Big
Blowdown er hann aftur á móti í ess-
inu sínu og tekst bráðvel að flétta
saman þroskasögu Karras og söguna
af hinum veikgeðja Recevo, sem
verður ekki að manni fyrr en í fulla
hnefana. Stfllinn er harðsoðinn og
hrár, nóg um ofbeldi og blóð. Fjöld-
jnn allur lætur lífið í bókinni og ekki
allir fallega. Þrátt fyrir það er of-
beldi ogblóð aldrei aðalatriði, heldur
lím til að halda sögunni saman.
The Big Blowdown er á köflum
skrifuð eins og kvikmyndahandrit og
þó söguþráðurinn sé víða götóttur
sér lesandinn hana fyrir sér sem
gamaldags svart/hvíta glæpamynd,
þar sem menn eru alltaf í rykfrakka,
með krypplaðan vindling milli var-
anna, en konurnar stífmálaðar í há-
hæluðum skóm og kjólgopa.
Eins og getið er telst Pelicanos
með bestu glæpasagnasmiðum vest-
iSn hafs og bækur hans seljast í stóru
upplagi. Hann nær að sýna í The Big
Blowdown hvers vegna menn hafa á
honum svo miklar mætur. Þetta er
hæglega hans besta bók til þessa,
gæti orðið prýðis spennumynd, og
bendir til þess að hann eigi enn eftir
að bæta sig.
Árni Matthíasson
FÓLK í FRÉTTUM
BANDARÍSKIVÍSINDAMAÐURINN CARL SAGAN
Drekarnir í Eden
Carl Sagan útskýrði undur himingeims-
ins fyrir leikmönnum en Örn Arnarson
komst að því að í bókum sínum fjallaði
hann ekki eingöngu um himintunglin
heldur einnig um manninn sjálfan, upp-
runa hans og þróun og þær hugmyndir
sem hann gerir sér um heiminn.
MAÐURINN hefur virt fyrir sér
gang himintungla frá öndverðu en
skilið lítið í þessu flókna tafli eilífð-
arinnar. Skilningur manna á al-
heimsfræðum hefur vaxið mikið á
þessari öld en ekki er á allra færi að
skilja merkingu rauðvika, kvarka og
andefnis svo einhver af þeim hug-
tökum sem skjóta upp kollinum í
flóru þekkingar mannsins á alheim-
inum séu nefnd. Bandaríski vísinda-
maðurinn Carl Sagan var einn af
þeim mönnum. Hann var virtur
fræðimaður og prófessor í stjörnu-
fræði og geimvísindum við Comell-
háskóla en hann hafði einnig þá náð-
argjöf að geta skýrt út þekkingu
mannsins á þessum fyrirbærum á
tungumáli sem allir skildu. Hann
varð heimsfrægur fyrir þætti sína
„Cosmos“ þar sem hann fjallaði um
upphaf alheimsins og rakti sögu
hans til þess tíma að líf kviknaði á
jörðinni. Þættimir nutu mikilla vin-
sælda og er talið að um hálfur millj-
arður manna víðsvegar um heim
hafi fylgst með þættinum.
Sagan fjallaði ekki bara um það
sem fer fram fyrir ofan mannslikam-
ann og neðan. Hann skrifaði einnig
bækur um manninn sjálfan og stöðu
hans í ógnarstórum alheinn. Ein af
þessum bókum er „The Dragons of
Eden - speculations on the evalution
of human intelligence“. í henni fjall-
ar Sagan um þróun heila mannsins
og þeirrar hugsunar sem í honum
býr á einkar læsilegan og áhuga-
verðan máta.
Þróun heilans í
áhugaverðu samhengi
Carl Sagan leggur út af þróunar-
kenningu Darwins í bókinni um
drekana í Eden og samtvinnar hana
við uppgötvanir vfsindamanna á
heilanum og uppbyggingu hans og
kemur fram með mjög skemmtileg-
ar og umhugsunarverðar kenningar
um þessa tegund spendýra sem enn
lifir í skugga hræðslunnar við eðl-
urnar sem eitt sinn réðu lögum og
lofum á jörðinni.
Sagan fjallar ítarlega
um lagskiptingu heil-
ans. Það er hvemig eitt
lag tekur við af öðru og
hvemig hann hefur
þróast smám saman úr
því að vera eðluheili yfir
í það verða að því illskilj-
anlega furðuverki sem
hann er f dag og hvaða
áhrif sú þróun hefur haft
á hugsun mannsins og
minningar. Sagan veltir þeim mögu-
leika fyrir sér að eðluheilinn og aðr-
ir frumstæðari hlutar heilans orsaki
hugsanir sem bærast í undirmeðvit-
und mannsins og hafa áhrif á
hræðslu hans og ótta meðal annara
hluta. Þessar pælingar tengir Sagan
við ýmsar þjóðsögur sem hafa verið
á kreiki frá örófi alda og með því
varpar hann áhugaverðri sýn á þær.
Einnig notar hann þær til þess að út-
skýra hluti varðandi manninn sem
margir hafa velt fyrir sér. Eins og
upprana ýmissa tákna sem maður-
inn notar hvaðan sem hann er ættað-
ur, köfunarviðbrögð ungbama og
hvers vegna maðurinn er almennt
lofthræddur.
í aldingarðinum Eden
í skemmtilegasta kafla bókarinn-
ar um drekana í Eden fjallar Sagan
um vist Adams og Evu í aldingarð-
inum góða eins og hún er skráð í
Biblíunni og kemur með mjög
skemmtilega skýringu á goðsögunni
út frá kenningum um þróun manns-
ins. Hann bendir á að refsing Evu
fyrir að hafa komið af stað átinu á
ávextinum af tréi visku góðs og ills
(sem líta má á sem tákn fyrir af-
stæða hugsun mannsins) var að
barnsfæðingar hennar og afkom-
enda skyldu vera sársaukafullar.
Sagan segir að maðurinn sé eina
spendýrið sem finni til sársauka
þegar það fæðir afkvæmi og ástæð-
an sé sú hversu höfuð mannsbama
er stórt hlutfall af líkamanum. Refs-
ingin felst einnig í því að Adam og
Eva em gerð brottræk úr paradi's og
Sagan telur að í því felist hliðstæður
við kenningar um þróun mannsins.
Manninum var vikið úr paradi's þar
sem hann lifði í sátt og samlyndi við
dýr merkurinnar vegna þess að
hann fór að hugsa handan góðs og
ills og þess vegna var hann dæmdur
til þess að strita og þess vegna þurfti
hann að drottna yfir plöntum jarðar
eins og Kan og yfir dýmm merkur-
innar eins og Abel. Og þannig færir
Sagan rök fyrir að goðsögnin um
Carl Sagan leggur út af þróun-
arkenningu Darwins og sam-
tvinnar hana við uppgötvanir
vísindamanna á heilanum.
aldingarðinn góða þar sem fyrsti
maðurinn steig sín fyrstu spor í átt
til glötunar sé táknsaga um mikil-
væga atburði í þróun mannsins og
bendir á margt annað umhugsunar-
vert sem ekki er tóm til að rekja hér,
máli sínu til stuðnings.
Frumleg hugsun stýrð
afþekkingu
Bækur Carl Sagan má skipta í tvo
flokka. Annars vegar þær bækur
sem hann skrifaði til þess að útskýra
dásemdir vi'sindanna fyrir leikmönn-
um. Þar notar hann snilli sína til
þess að gera hið flókna einfalt og
auðskiljanlegt. í þessum flokki eru
bækur eins og sú sem hann skrifaði
upp úr þáttaröðinni „Cosmos“. í hin-
um flokknum eru bækur þar sem
Sagan notar þekkingu sína og inn-
sæi, sem nær langt fyrir utan
ramma stjamvísindanna, til þess að
velta sér upp úr sígildum ráðgátum
mannlegrar tilveru og jaftivel til-
gangi hennar.
I síðari flokknum er að finna bæk-
ur eins og „The Dragons of Eden og
Broca’s Brain“. Eflaust geta margir
lesendur fundið einhveija meinbugi
á skoðunum og vangaveltum Sagan í
síðamefnda flokknum - en þrátt fyr-
ir það em þær skrifaðar af það mik-
illi þekkingu sem er stýrð af svo
frumlegri hugsun að þær hljóta að
opna nýjar dyr hugsunar fyrir les-
andann. Hugsunar sem endist þeim
mönnum sem á annað borð em gefn-
ir fyrir vangaveltur heila lífstíð.
Carl Sagan skrifaði einnig eina
skáldsögu sem ber nafnið „Contact"
og fjallar hún um fyrsta samskipti
mannkyns við verur utan úr
geimi. Skáldsagan var
kvikmynduð ekki alls fyr-
ir löngu og lék leikkonan
ástsæla Jodie Foster aðal-
hlutverkið. Þrátt fyrir að
myndin sé ansi fmmleg sýn á
þreytt þema í kvikmynda-
sögunni er óhætt að benda á
að skáldsagan tekur mynd-
inni mikið fram og er öllu
raunhæfari. Sykurleðjan
sem einkenndi myndina
er víðsfjarri í þessari
ágætu skáldsögu.
f bóklnnl Drekarnlr i
Eden fjallar höfund-
urlnn um vlst Adams
og Evu í aldingarðlnum
og kemur með
skemmtilega skýr-
ingu á goðsögnlnni
útfrá kenningum
um þróun mannslns.
Valdasiúk-
tJ
ar bullur
Killing Rage, bók eftir Eamon Coll-
ins, Mick McGovern lagði honum lið
við samningu bókarinnar. Granta
gaf út 1998. 371 bls. kilja. Keypt á
útsölu í Tower á 600 kr.
ÞAÐ ER von flestra að skálmöldin
á Irlandi sé í rénun og friðvænlegra
er þar í landi nú en um langt skeið.
Fjölmargir eiga um sárt að binda
vegna hjaðningavíga kaþólikka og
mómælenda sem tekist hafa á um
völdin á Norður-írlandi í áratugi. í
fjömiðlum utan írlands verður oft
vart samúðar í garð Irska lýðveldis-
hersins, IRA, enda þykir mörgum
sem kaþólskir íbúar landshlutans
séu kúgaðir af mótmælendum með
þegjandi samþykki breskra yfir-
valda.
Málið er aftur á móti ekki svo ein-
falt, því þó að víst hafi kaþólskir
íbúar Norður-írlands verið beittir
órétti í fyrndinni er það engin rétt-
læting þess að drepa og meiða í dag
og liðsmenn IRA eru oftar en ekki
valdasjúkar bullur Sú söguskoðun
skín að minnsta kosti í gegn í bók
Eamons Collins Killing Rage, sem
segir frá veru hans í IRA og hvernig
hann gerðist fráhverfur hinni til-
gangslausu baráttu.
Eamon Collins gerðist liðsmaður
IRA sumpart vegna þess að hann sá
sjálfan sig fyrir sér sem marx-len-
ínskan byltingarmann. Hann tók
smám saman æ meiri þátt í starfi
IRA, en hrottaskapur breskra her-
manna varð til þess að snúa honum
endanlega eins og fram kemur í sögu
hans sem hér er gerð að umtalsefni.
Eftii’ það tók hann þátt í ljölda til-
ræða, ýmist fyrirsát, sprengjuárás-
um eða almennum hryðjuverkum.
Svo fór hann að efast, ekki bara um
félaga sína í IRA sem margir voru
ofbeldishneigðir fylliraftar sem
beittu félagsskapnum fyrir sig í
auðgunarskyni, heldur einnig um
það að tilgangurinn helgaði meðalið.
Hann segir frá því í bókinni að hann
hafi smám saman áttað sig á að þótt
bresk yfirvöld gætu ekki sigrað IRA
myndi lýðveldisherinn heldur aldrei
ná því fjöldafylgi sem hann sóttist
eftir.
Svo fór að Collins var handtekinn
og varð það sem IRA-menn kölluðu
„supergrass“, kjaftaði frá öllu sam-
an. Á endanum dró hann framburð
sinn til baka og losnaði fyrir lipurð
verjanda síns úr fangelsi en átti ekki
afturkvæmt inn í hreyfinguna. Hann
tók aftur á móti að berjast gegn
henni, meðal annars með bókinni
Killing Rage, þar sem hann segir
sögu sína og dregur ekkert undan.
Þeir sem dáð hafa írska lýðveldis-
hermenn verða eflaust slegnir yfir
lýsingunni á samtökunum í bókinni
enda var IRA-mönnum ekki skemmt
við lesturinn. Þeir skipuðu Collins í
útlegð og er hann virti það boð ekki
myrtu þeir hann einn sunnudags-
morgun þar sem hann var á gangi
með hundinn; börðu og pyntuðu og
myrtu síðan af sínum alkunna
skepnuskap.
Árni Matthíasson