Morgunblaðið - 02.03.2000, Blaðsíða 1
52. TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Umdeilt lagafrumvarp lagt fram á ísraelska þingmu, Knesset, í gær
Gæti spillt fyrir friðar-
sammngi við
Jerúsalem. AP, AFP, Reuters.
Sýrlendinga
AP
Líbanskir námsmenn mótmæltu í gær ummælum Lionels Jospins, for-
sætisráðherra Frakka, sem hann lét falla í heimsókn sinni til Austur-
landa nýlega. Jospin kallaði árásir Hizbollah-skæruliða hryðjuverk.
ÞINGIÐ í ísrael, Knesset, sam-
þykkti í gær við fyrstu umræðu
frumvarp sem talið er að muni geta
komið í veg fyrir að friður verði sam-
inn við Sýrlendinga, verði það að
lögum. Á sama tíma sagði útvarps-
stöð í ísrael frá því að forsætisráð-
herra landsins, Ehud Bai’ak, hefði
boðað til fundar um framhald friðar-
viðræðna við Sýrlendinga í dag.
Hizbollah-skæruliðar í Suður-Líb-
anon felldu í gær fimm liðsmenn líb-
anskra hersveita sem hliðhollar eru
ísraelum.
Frumvarpið sem Knesset sam-
þykkti í gær setur það skilyrði fyrir
því að friðarsamningur við Sýrland
öðlist gildi, að meirihluti atkvæðis-
bærra manna í landinu samþykki
samninginn í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Þingmaður Likud-banda-
lagsins, Silvan Shalom, lagði frum-
varpið fram. Likud-bandalagið er í
stjórnarandstöðu og leggst gegn
friðarsamningum við Sýrlendinga.
Nokkrir af þingmönnum flokka sem
styðja stjórnina greiddu atkvæði
með frumvarpinu.
Barak hefur áður sagt að hugsan-
legur friðarsamningur verði borinn
undir þjóðaratkvæði en vill að meiri-
hluti þeirra sem atkvæði greiða fái
að ráða, óháð því hversu margir taka
þátt.
Talið er að afdrif frumvarpsins
muni geta ráðið úrslitum um hvort
friðarsamningur yrði samþykktur
eða felldur. Ástæðan er sú að hund-
ruð þúsunda ísraelskra ríkisborgara
eru búsett erlendis og hafa atkvæð-
isrétt í landinu. Fólkið yrði talið til
atkvæðisbærra manna í hugsanlegri
þjóðaratkvæðagreiðslu en ólíklegt
þykir að margir legðu á sig ferðalag
tÚ Israels til að geta tekið þátt í
henni. Frumvarpið á eftir að fara í
gegnum þrjár umræður og því er
enn óvíst hvort tillögurnar muni ná
fram að ganga.
Hefjast viðræður
senn að nýju?
Aðstoðarvamarmálaráðherra Isr-
aels, Ephraim Sneh, sagði í gær í
samtali við dagblaðið Jerusalem
Post að friðarviðræður við Sýrlend-
inga myndu að öllum likindum hefj-
ast í byrjun næsta mánaðar. Viðræð-
ur þjóðanna, sem hófust í desember
á síðasta ári eftir fjögurra ára hlé,
hafa legið niðri að undanförnu vegna
ágreinings um inntak þeirra. Fund-
ur sem Barak forsætisráðherra hef-
ur boðað í dag og ætlað er að fjalla
um stefnu ísraela í komandi viðræð-
um þykir benda til þess að auknar
líkur séu á því að þær muni hefjast
að nýju áður en langt um líður.
Vilja
fækka
slysum
um 40%
London. Reuters.
BRESK stjórnvöld stefna að
því að draga úr umferðarslys-
um um 40% á næstu tíu árum,
að því er Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði í
gær. Ætlunin er einnig að
fækka dauðsföllum meðal
barna í umferðinni um helming.
Á hverju ári látast um 3.500
manns í umferðinni í Bretlandi
og 40.000 slasast alvarlega.
Blair sagði að ríkisstjóm
hans ætlaðist til þess að yfir-
völd í borgum og bæjum lækk-
uðu hámarkshraða, sérstaklega
í grennd við skóla. Stefnt er að
því að refsingar vegna hrað-
aksturs verði þyngdar og að
auknu fjármagni verði veitt til
samgöngumála. Samgönguráð-
herra Bretlands, Gus Macdon-
ald lávarður, sagði í gær að rík-
isstjómin vildi beita sér fyrir
því að litið yrði á hraðakstur
sömu augum og ölvunarakstur.
Hann sagði að ríkisstjómin
væri fylgjandi því að refsing
fyrir þessi brot yrði höfð sú
sama.
AP
Börn og fullorðnir yfirgefa með hjálp lögreglu byggingu þar sem byssu-
maðurinn hélt fimm manns í gíslingu.
Byssumaður
skaut tvo til bana
Wilkinsburg. AP.
Átök trúarhópa magnast í Nígeríu
Allt að 450
manns myrtir
Aba. Reuters, AFP, AP.
Býður fé til
að mæta
sektum
Berlín.AFP, AP.
HELMUT Kohl fyrrverandi kanzl-
ari Þýzkalands hefur boðizt til að út-
vega Kristilega demókrataflokkn-
um, CDU, sex
milljónir marka,
andvirði um 220
milljóna króna,
fyrir sektum sem
reikna má með að
flokknum verði
gert að greiða
vegna þeirra
u.þ.b. tveggja
milljóna marka
sem Kohl hefur
játað að hafa tekið við og lagt í sjóði
flokksins. Er þetta fullyrt í nýjasta
hefti þýzka efnahagsmálatímaritsins
Wirtschaftswochc. Enginn á skrif-
stofu Kohl vildi tjá sig um málið í
gær.
Er Kohl þegar sagður hafa safnað
um þriðjungi upphæðarinnar í frjáls-
um framlögum frá vinum í viðskipta-
heiminum. Samkvæmt þýzkri lög-
gjöf um stjómmálaflokka getur
flokkur, sem verður uppvís að því að
taka við háum fjárhæðum án þess að
geta þess í bókhaldi, átt von á því að
verða sviptur opinberum framlögum
að upphæð sem nemur þrefaldri
summu hinna ólöglegu framlaga.
Að sögn Wirtschaftswoche er
Kohl mikið í mun að geta haft áhrif á
það hver verður næsti formaður
flokksins. Er Kohl sagður mjög mót-
fallinn því að Angela Merkel, núver-
andi framkvæmdastjóri flokksins,
komizt í æðsta flokksembættið.
■ Stuðningur við Merkel/28
BYSSUMAÐUR hóf í gær skot-
hrfð á gesti tveggja skyndibita-
veitingahúsa í Bandaríkjunum
með þeim afleiðingum að tveir
létust og þrír særðust. Árásin átti
sér stað í Wilkinsburg, sem liggur
skammt austur af Pittsburg í
V estur-Pensyl vaníu-rfki.
Byssumaðurinn mun fyrst hafa
lagt eld að íbúð sinni í bænum og
skotið einn mann þar í grennd.
Vitni segja að hann hafi virst yf-
irvegaður í þann mund sem hann
gekk inn á skyndibitastað og
byrjaði að skjóta að gestum. Því
næst mun maðurinn hafa gengið
inn í nærliggjandi byggingu þar
sem hann hélt fimm manns f gfsl-
ingu þar til hann gafst upp fyrir
lögreglu, án þess að til átaka
kæmi.
Skotárásin í gær er sú ellefta í
röðinni á innan við einu ári f
Bandaríkjunum, þar sem saklaus-
ir óbreyttir borgarar verða fórn-
arlömb morðóðra byssumanna.
ÍBÚAR bæjarins Aba í suðaustur-
hluta Nígeríu hafa myrt allt að 450
múslima af Hausa-ættbálknum til
að hefna drápa á kristnum Ibo-
mönnum í borginni Kaduna í norð-
urhluta landsins í vikunni sem leið.
Hersveitir voru sendar til staða
þar sem hætta er talin á átökum
milli kristinna manna og múslima
til að koma í veg fyrir að blóðsút-
hellingarnar breiddust út.
Ibo-menn eru í meirihluta í Aba
og flestir þeirra eru kristinnar
trúar. Drápin hófust á mánudag
þegar lík Ibo-manna voru flutt til
Aba frá Kaduna. „Rúmlega 400
manns hafa beðið bana í óeirðun-
um en okkur hefur tekist að stilla
til friðar,“ sagði háttsettur lög-
regluforingi í Aba í gær.
Áður höfðu stjórnarerindrekar
og fleiri heimildarmenn sagt að
Ibo-menn hefðu myrt hundruð
Hausa-manna frá norðurhlutanum,
sem eru langflestir múslimar, til
að hefna drápanna í Kaduna.
Leiðtogar norður-
ríkjanna slaka til
Allt að 300 manns biðu bana í
átökunum í Kaduna sem hófust
vegna áforma yfirvalda í nokkrum
ríkjum í norðurhluta Nígeríu um
að framfylgja íslömskum refsilög-
um sem kveða m.a. á um að menn
verði grýttir, aflimaðir eða háls-
höggnir fyrir ákveðna glæpi.
Olusegun Obasanjo, forseti Níg-
eríu, boðaði leiðtoga ríkjanna í
norðurhlutanum til neyðarfundar á
þriðjudag og þeir samþykktu þá að
íslömsku refsilögin yrðu ekki tekin
upp í fleiri ríkjum og að þau ríki,
sem hafa þegar samþykkt þau,
myndu ekki framfylgja þeim „að
svo stöddu“.
Þessi tilslökun er líkleg til að
koma ríkisstjórunum í norðurhlut-
anum í vanda þar sem þeir höfðu
lofað að framfylgja íslömsku refsi-
lögunum og þess vegna notið mik-
ils stuðnings meðal múslima, sem
eru í meirihluta á svæðinu.
Hausa-menn ráða hernum
Hausa-menn frá norðurhlutan-
um hafa bæði tögl og hagldir í
hernum og voru mjög valdamiklir
á 15 ára valdatíma hans sem lauk í
fyrra þegar Obasanjo var kjörinn
forseti. Obasanjo er kristinn og frá
suðurhlutanum.
Háværar kröfur múslima í norð-
urhlutanum um að íslömsk lög taki
gildi má meðal annars rekja til
óánægju þeh’ra með aukin völd
kristinna suðurríkjamanna.
MORGUNBLAÐK) 2. MARS 2000
Helmut
Kohl