Morgunblaðið - 02.03.2000, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ein glæsiiegasta bílaþvottastöð
landsins opnar í dag að Bæjarlind 2 í
Smáranum Kópavogi.
Löður er staðsett miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu
og býður fjölbreytta
þvottaþjónustu fyrir
bíleigendur.
Opið allan
sólarhringinn
Löður
Elko
Hagkaup
^urtns
Ve9ur
Smáralind
Hraðvirk bílaþvottastöð sem þvær
allt að 5 bíla í einu, lítil bið og þurrkað
úr hurðafölsum. Opið frá kl. 8-19.
Þú þværð bílinn við bestu aðstæður
með háþrýstidælu. Sápa, tjöruleysir
og öll hreinsiefni á staðnum.
Opið allan sólarhringinn.
Uf'Ju]
alar mea þu,
reinsiklútun
TePPahreins
Sjafar
Hyksiigur
Þú skilur bílinn eftir og hann er
þrifinn hágt og lágt. Alþrifþjónustan
opnar á næstu vikum.
Hraði-gæði-þjónusta
Sjálfvirk þvottastöð
LISTIR
Morgunblaðið/Sverrir
Leikstjórinn ásamt samstarfsfólki við Draum á Jónsmessunótt.
50 ára afmæli Þjóðleikhússins
Draumur á
Jónsmessunótt
DRAUMUR á Jónsmessunótt eftir
William Shakespeare í leikstjórn
Baltasar Kormáks verður frumsýnt
á 50 ára afmælisdegi Þjóðleikhúss-
ins 20. apríl 2000 og er á dagskrá
Menningarborgar 2000. Æfingar
hófust sl. mánudag á hinum sígilda
gamanleik, sem er bæði ljóðrænn
og erótískur og draumur og ímynd-
unarafl ráða ríkjum til jafns.
Þýðandi er Helgi Hálfdanarson,
danshöfundur Aletta Collins, lýs-
ingu hannar Páll Ragnarsson. Sýn-
ingarstjóri er Kristín Hauksdóttir,
aðstoðarmaður leikstjóra Margrét
Vilhjálmsdóttir. Höfundur leik-
myndar er Vytautas Narbutas, og
er hann einnig höfundur búninga
ásamt Filippíu I. Elísdóttur. Leik-
stjóri er Baltasar Kormákur.
Leikendur eru: Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Brynhildur Guð-
jónsdóttir, Stefán Karl Stefánsson,
Guðrún S. Gísladóttir, Hilmir Snær
Guðnason, Atli Rafn Sigurðarson,
Rúnar Freyr Gíslason, Bergur Þór
Ingólfsson, Gunnar Eyjólfsson,
Bessi Bjarnason, Herdís Þorvalds-
dóttir, Róbert Arnfinnsson og
Björn Jörundur Friðbjörnsson.
Verkið var síðast sýnt í Þjóðleik-
húsinu 1955, fyrir 45 árum. Leik-
stjóri var Walter Hudd. Þá léku
Bessi Bjarnason, Róbert Arnfinns-
son og Herdís Þorvaldsdóttir einnig
í sýningunni, Herdís lék Hermíu og
Bessi og Róbert voru í hlutverkum
handverksmannanna þá sem nú.
Einföldu hlutirnir
BÆKUR
Þýddar myndabækur
ÉG ELSKA ÞIG
OGMAMMA
eftir Lauren White. Asa M. Ólafs-
dóttir íslenskaði. Mál og menn-
ing, Reykjavík 1999.
ÉG ELSKA þig og Mamma
eru myndabækur eftir breska
listamanninn Lauren White. Um
er að ræða smágerðar bækur
sem draga fram og dásama „ein-
földu hlutina í lífinu“ með máli
og myndum. Þær eru, ímynda
ég mér, fyrst og fremst hugsað-
ar sem tækifærisgjafir.
Fyrrnefnda bókin, Ég elska
þig, er eins konar ástarbréf, eða
kannski heldur hugdettur að
mörgum ólíkum ástarbréfum.
Mynd er dregin upp af fjölmörg-
um hlutum sem gera ástina eft-
irsóknarverða („saman getum
við siglt á skýjunum"). Þá er
fjallað um hvað þarf að koma til
svo tvær manneskjur geti lifað í
samlyndi (umburðarlyndi, þolin-
mæði o.s.frv.). Einnig eru nefnd
til sögunnar dæmi um „stórkost-
leg sambönd". Sum eru hefð-
bundin (Rómeó og Júlía), önnur
frumleg (Tommi og Jenni), sum
sæt (Bogart og Bacall), enn önn-
ur skondin (skyr og rjómi) og
sum umdeilanleg (Samson og
Delíla). Myndrænar útfærslur á
ólíkum birtingarmyndum ástar-
innar og hjálpartækjum róman-
tíkurinnar eru stundum
skemmtilegar en yfirleitt mjög
bókstaflegar. Megingalli verks-
ins er hins vegar hversu klisju-
kennd hugmyndavinnan er -
morgunverður í rúminu táknar
þægindi ástarsambandsins en
rómantísk kvöldstund blíðan
ástríðuhita, og svo framvegis.
Bókin Mamma er byggð upp á
sama hátt, en hér er hið hefð-
bundna móður- og eiginkonu-
hlutverk hyllt með því að benda
á hversu mörg ólík störf móðirin
innir af hendi (kennari, þvotta-
kona, sáttasemjari, ástmey) og
framsetningarmátinn litríkar
myndir í bland við dálítinn
texta.
I báðum bókunum er innihald-
ið ósköp rýrt, gamansemin er
ófrumleg, og einföldu hlutirnir
yfirleitt afdankaðar klisjur dæg-
urmenningarinnar. Því verður
þó ekki neitað að bækurnar eru
snotrar, enda hugsaðar sem
krúttulegar gjafir. Ég get þó
ekki varist þeirri hugsun að
gjafabókmenntir sem þessar séu
í eðli sínu hálfómerkilegar og
skynsamlegra sé að gefa raun-
verulegar bækur, ef ætlunin er
að gleðja einhvern nákominn,
heldur en svona innantómt prjál.
Björn Þór Vilhjálmsson
Fjárfestar athugið!
Öll almenn verðbréfaviðskipti með
skráð og óskráð verðbréf.
©^áVerðbréfamiðlunin
Annafhf
Löggilt óháð fyrirtæki í verð
Verðbréf
Löggilt óháð fyrirtæki í verðbréfaþjónustu
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Suðurlandsbraut 46 • Sími: 568 10 20