Morgunblaðið - 02.03.2000, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
GÓUGLEÐI
M ATUR
DRYKRUR
TÓNLIST
1.-7. mars um land allt
Fjöldi tilboða
á Góugleði!
Argentína steikhús
Vegamót
Brasserie Askur
Naustkráin
Sportbarínn Ölver
Lónið Hótel Loftleiðum
Apótek kaffihús .
Veitingahúsið Perlan
Krínglukráín
Gaukur á Stöng
Jómfrúin
Ari í Ögri
Catalina Kópavogi
CaféVictor
Café Amsterdam
Glaumbar
Skólabrú
Carpe Diem
Potturinn og pannan
Hard Rock Café
Hótel Hvolsvöllur
Hótel Selfoss
SKG veítíngar-Hótel Ísafírðí
Gamli Baukur Húsavík
Hótel Egilsbúð Neskaupsstað
Fiðlarinn Akureyrí
Pizza 67 Akureyri
Við Pollinn Akureyri
Hótel Barbró Akranesí
ERLENT
Leitin að formannsefni Kristilegra demókrata í Þýzkalandi
Stuðningur kjósenda við
Merkel virðist vaxandi
Berlín. AFP, AP, Reuters.
MIKILL meirihluti Þjóðverja, sem
tóku þátt í símakönnun sem dag-
blaðið Bild birti niðurstöður úr í
gær, kaus frekar að sjá Angelu
Merkel, núverandi framkvæmda-
stjóra Kristilega demókrataflokks-
ins, CDU, taka við formennskunni í
flokknum en Volker Ruhe sem var
varnarmálaráðherra í síðustu ríkis-
stjórn Helmuts Kohls.
Um 61 af hundraði þeirra 32.746
sem hringdu og kunngerðu val sitt í
könnuninni studdu Merkel, en tæp
39% Ruhe.
Hinn 20. marz hyggst flokks-
stjórn CDU koma sér saman um til-
nefningar í æðstu embætti flokks-
ins, sem skipað verður í á
flokksþingi í byrjun apríl, en Wolfg-
ang Scháuble lætur þá af flokksfor-
mennsku.
Merkel, sem
er 45 ára og ein
fárra í forystu
CDU sem uppa-
lin er í austur-
þýzka alþýðu-
lýðveldinu, hef-
ur þótt standa
sig vel í að fást
við þann mikla
vanda sem
flokkurinn hefur
átt við að etja frá því fjármála-
hneykslið kom upp í nóvember sl.
Hún vildi í gær ekkert fullyrða um
hvort hún hygðist bjóða sig fram til
formanns, og Rúhe ekki heldur, en
hann er 44 ára og fór fyrir kosn-
ingabaráttu CDU í landsþingskosn-
ingunum í Slés-
vík-Holtseta-
landi um síðustu
helgi. Bæði
Rúhe og Merkel
mátu útkomu
flokksins úr
þessum kosning-
um varnarsigur
Volker og því er hún
Riihe hvorki til þess
fallin að hjálpa
né spilla fyrir möguleikum Rtihes.
„Gamlar kempur“
enn inni í myndinni
Annars vilja ófáir áhrifamenn í
flokknum ekki að dæminu verði nú
þegar stillt þannig upp að engir aðr-
ir komi til greina til að taka við for-
mennskunni en Merkel eða Rúhe.
Christoph Böhr, héraðsleiðtogi
CDU í Rheinland-Pfalz, var einn
þeirra sem vakti máls á þessu í gær,
og Erwin Teufel, forsætisráðherra
Baden-Wtirttemberg, sagði að með
Kurt Biedenkopf, sem er gamall
innanflokksandstæðingur Kohls og
forsætisráðherra Saxlands, og
Bernhard Vogel, forsætisráðherra
Þyringjalands, hefði flokkurinn á að
skipa „sannfærandi forystumönn-
um“. Yrði önnur hvor þessara
„gömlu kempna“ fyrir valinu yrði sú
lausn hins vegar aðeins til bráða-
birgða, svo að flokksmönnum gæfíst
betra ráðrúm til að skipuleggja sig
upp á nýtt, segja sldlið við öll
hneykslismál og velja nýja
framtíðarforystusveit.
Angela
Merkel
Björgunar beðið í Mósambík
FÓRNARLÖMB flóðanna í Mósabík halda hér fast í
trjágreinar á meðan þau bíða björgunar í þorpinu
Chibuto, um 120 km norður af höfðuborg landsins,
Mabuto, eftir að áinn Limpopo flæddi yfir bakka sína í
gær í kjölfar aukinna vatnavaxta í landinu.
Áætlað er að um 100.000 manns bíði enn björgunar á
húsþökum og í trákrónum eftir mikil flóð í landinu und-
anfarið og fæddi m.a. kona barn í gær þar sem hún beið
í björgunar í tré einu.
Hjálparsveitir hafa hins vegar áhyggjur af að björg-
unarstörf gangi ekki nógu hratt fyrir sig og er óttast að
sjúkdómar á borð við kóleru fari að breiðast út.
Viðræður
NATO og
Ukraínu
Kænugarði. AFP, Reuters.
STJÓRNVÖLD í Úkraínu og full-
trúar Atlantshafsbandalagsins
(NATO) hófu viðræður í Kænu-
garði, höfuðborg Úkraínu, í gær.
Borís Tarasjúk, utanríkisráðherra
Úkraínu, mun næstu tvo daga
ræða við framkvæmdastjora og
fulltrúa í fastaráði NATO um
tengsl Úkraínu og bandalagsins og
öryggis- og varnarsamvinnu í
Evrópu.
George Robertson lávarður,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, sagði á blaðamanna-
fundi í gær að öll ríki bandalagsins
hefðu áhuga á að efla tengsl sín
við Úkraínu. Hins vegar útilokaði
Robinson að Úkraína fengi aðild
að bandalaginu í nánustu framtíð.
NATO opnaði nýlega skrifstofu í
Kænugarði og sagði Robertson
það sýna fram á að Vesturlönd
væru staðráðin í að aðstoða Úkra-
ínumenn við þær breytingar sem
nú eiga sér stað í landinu. Hann
kvatti Úkraínustjórn til að fram-
kvæma umbætur á herafla sínum
hið fyrsta svo landið gæti hafið
þátttöku í fleiri friðargæsluverk-
efnum undir stjórn NATO. Um
8.000 hermenn eru nú við friðar-
gæslu á vegum Úkraínu á Balk-
anskaga.
VANTAR RÚM/@\
FYRIR FLEIRI RÚM! \g7
RÝMUM FYRIR NÝJUM SVEFNHERBERGISHÚSGÖGNUM
| Frábær tilboð á rúmum, náttborðum, kommóðum
og klæðaskápum. éJWrfWHlHflWlíWftl.ftLI wH Ll
Opið: laugardag 10-17
15% afsláttur af fylgihlutum (dýnum, dýnuhlífum, koddum o.fl.) þegar keypt er rúm. skútuvogi 11 • Sími 568 5588