Morgunblaðið - 02.03.2000, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 02.03.2000, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Nám eftir 40 ára hlé ÞAÐ er ögrandi verkefni íyrir verka- mann að setjast á skólabekk á fullorðins- árum. Möguleikarnir á námi samhliða vinnu eða í vinnutíma hafa ekki verið margir í gegnum tíðina og því greip ég tækifærið sem gafst þegar ég fékk inngöngu í Stóriðju- skóla ISAL fyrir rúmu ári. Eftir eins árs nám er ég mjög ánægður með námið, sem bæði þroskar mann og nýtist manni vel í vinnunni. Mér þótti þess vegna miður hvað fyrrverandi vinnufélagi og trúnaðar- maður starfsmanna ISAL var nei- kvæður í garð Stóriðjuskólans og fyrirtækisins í Morgunblaðinu á dög- unum. Við sem sitjum í skólanum vit- um að aðstandendur skólans eru til- búnir að leggja mikið á sig svo námið verði sem best, það er bæði þeirra hagur og okkar. Margir starfsmenn ISAL sem ekki höfðu tækifæri á sínum tíma til að halda áfram námi eftir að skóla- Brynjólfur Lárentsíusson skyldu lauk hafa nú upplifað að lærdómur er bæði gagnlegur og skemmtilegur. Hann eykur sjálfstraust manna og sjálfsvirð- ingu. Auðvitað eru margir tvístígandi um hvort þeir eigi að sækja um inngöngu í skólann, enda eru liðin meira en 40 ár síðan sumir okkar sátu á skólabekk. Það þarf kjark til að takast á við nám eftir svo langan tíma og eðlilega eru sumir hræddir við próf. Ég veit að fullur skilningur er á þessu hjá stjórnendum ISAL og prófin eru einungis aðhald í náminu svo menn fái sem mest út úr því. Nú bregður svo við, að sífellt koma upp atvik í vinnunni þar sem námið nýtist manni vel. Það gerir vinnuna skemintilegri og gjöfulli. Það skilar sér svo með jákvæðum hætti til fyr- irtækisins hvað varðar rekstur og af- komu. í fyrrnefndri blaðagrein spyr greinarhöfundurinn hvort stórfyrir- tæki eins og ISAL eigi að reka „rík- ENÞURREISN HÁLÞING BÆJA Háskóla Íslands 0G Revkjavíkurbörgar í sanvinnu VIÐ SaMTÖK UN BETRI BYGG& Haldið í Odda 101, föstudaginn 3. mars 2000 DAGSKRÁ Kl. 14.00-14.10 Páll Skúlason, rektor Háskóla íslands, flytur ávarp og setur málþingið. Kl. 14.10-14.30 Pétur H. Ármannsson, byggingarlistadeild Kjarvalsstaða, íslensk bæjarhefð í sögulegu Ijósi. Kl. 14.30-14.45 Umræður. Kl. 14.45-15.10 Þórunn Ragnarsdóttir, arkitekt í Karls- ruhe, Frá mfnum bæjardyrum séð. Kl. 15.10-15.25 Umræður. Kl. 15.25-15.45 Bjarni Reynarsson, skipulagsfræðingur, þróunarsviði Reykjavíkurborgar, Höfum i/ið gengið til góðs...? Hugmyndir um þróun borga á 20. öld. Kl. 15.45-16.00 Umræður. Kl. 16.00-16.20 Kaffihlé. Kl. 16.20-16.40 Björn Ólafs, arkitekt í París, Stefnumótun í skipulagi bæja. Kl. 16.40-16.55 Umræður. Kl. 16.55-17.15 Þorvaldur S. Þorvaldsson, skipulagsstjóri Reykjavíkur, Borgarskipulag - ferli og lýðræði. Kl. 17.15-17.30 Umræður. Kl. 17.30-17.45 Hjálmar Sveinsson, heimspekingur og dagskrárgerðarmaður, Samantekt á helstu niðurstöðum málþingsins. Kl. 17.45 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, slítur málþinginu. Fundarstjóri verður Hjálmar Sveinsson. I tengslum við málþingið verða til sýnis í anddyri Odda nýlega framkomnar tillögur um mismunandi leiðir við skipulag höfuöborgarsvæðisins. Máiþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir. Stóriðjuskólanám Hvað væri athugavert við að ríkið kostaði að einhverju leyti nám verkamanna, spyr Brynjólfur Lárentsíus- son, sem í áratugi hafa greitt ríkinu skatta og önnur gjöld? isstyrktan starfsþjálfunarskóla", m.ö.o. hvort ríkið eigi að styðja starfsmenntun verkamanna. Reynd- ar er of mikið sagt að námið sé ríkis- styrkt þótt starfsmenntasjóður fé- lagsmálaráðuneytisins hafi greitt hluta kostnaðar við námsgagagna- gerð. Námsgögnin eru ætluð öllum sem áhuga hafa og munu þau nýtast fleirum en starfsmönnum ISAL í framtíðinni. En þó svo að Stóriðju- skólinn væri ríkisstyrktur, hvað væri athugavert við það? Hvað væri at- hugavert við að ríkið kostaði að ein- hverju leyti nám verkamanna sem í áratugi hafa greitt ríkinu skatta og önnur gjöld? Sjálfur sæi ég ekkert athugavert við það. Það er nokkuð sem verkafólk á inni hjá ríkinu. Allir aðstandendur Stóriðjuskól- ans geta verið stoltir af honum, fyrh'- tækið, verkalýðshreyfingin og allir starfsmenn ISAL. Ég vil þakka fyrir það tækifæri sem ég fékk með inn- göngu í skólann og undirstrika að þeim peningum sem varið er í þetta merka verkefni er vel varið. Höfundur er nemandi í Stóriðjuskóla ISAL. Sjálfshól eða sjálfsögð kynning? SKAK Tékkland DEILDAKEPPNI TÉKKLANDS 1999-2000 SKIPAPLOTUR - INNRETTINGAR PLÖTUR í LESTAR SERVANT PLÖTUR I I I I I SALERNISHÓLF iJJJ BAÐÞILJUR ELDSHÚSBORÐPLÖTUR Á LAGER-N0RSK HÁGÆÐAVARA ÞP &CO Þ.ÞORGRÍMSSON & CO Á8MÚLA29 S: 353 8640 & 568 6100 I ISLENDINGASÖGUNUM var það jafnan talið fólki til lasts þegar það talaði mikið og þótti það bera merki um heimsku viðkomandi. Ekkert var þó vítaverðara en að við- hafa sjálfshól enda fengu þeir sem slíkt viðhöfðu ákaflega slæma dóma sagna- ritara. Hugsanlega með þessa fornu speki í huga hefur höfundur greinarinnar á síðustu misserum forðast að fjalla um eigin skákir hér á síðum blaðsins. Hins vegar verður því ekki á móti mælt, að fyrir vikið hefur verið mun erfiðara fyrir ís- lenska skákáhuga- menn að vita hvað hann hefur haft fyrir stafni á borði hinna 64 reita, ekki síst þar sem þátttaka hans er meira og minna í tengslum við liðakeppnir, en ekki skákmót. Þetta breytir því ekki að hann hefur haft tækifæri til að eiga við marga áhugaverða and- stæðinga og teflt lærdómsríkar skákir. í Tékklandi er sá siður viðhafður, að skákmönnum er leyft að tefla í tveim mismunandi deildum og þess vegna tveim mismunandi liðum. Þetta gerir að verkum að ávallt eru næg verkefni fyrir innlenda skák- menn. Greinarhöfundur hefur nýtt sér þetta til fullnustu og hefur teflt 13 skákir fyrir lið sín í efstu deild og fyrstu deild tékknesku deilda- keppninnar. Hann hefur lokið hlut- verki sínu í þessum deildum og hafa leikar farið þannig að í efstu deild hefur hann innbyrt 4% vinning af 7 mögulegum, en í fyrstu deild hefur hann fullt hús vinninga, eða 6 af 6 mögulegum. Til þess að gefa hug- mynd um styrkleika andstæðing- anna þá voru meðalstig þeirra í efstu deild í kringum 2.500 stig, en í fyrstu deildinni um 2.320. Sú skák er veitti greinarhöfundi mesta ánægju var síðasta skákin í fyrstu deild, en með sigri í þeirri fé- lagaviðureign varð klúbbur hans í efsta sæti í keppninni og tryggði sér úrvalsdeildarsæti að ári. Hvítt: Helgi Áss Grétarsson Svart: Milos Kozak l.d4 d5 2.c4 dxc4 3.e4 Rf6 4.e5 Rd5 5.Bxc4 Rb6 6.Bb3 Rc6 7.Re2 Bf5 8.Rbc3 Dd7 9.0-0 e6 10.a3 0-0-0 ll.Be3 li5?! ll...Be7 er traustari leikur. Þegar andstæð- ingurinn hefur væn- gárás er yfirleitt best að svara því með að- gerðum á miðborðinu. Þetta grundvallar- atriði fæddi af sér eft- irfarandi hugmynd. 12.Rg3!? Þessi leikur felur í sér nokkra áhættu þar sem nú verður d4-peð- Helgi Áss ið illa varið. Hins vegar Grétarsson stendur hvítur betur ef svartur tekur það strax: 12...Rxd4 13.Bxd4 Dxd4 14. Dxd4 Hxd4 15.Rxf5 exf5 16.Bxf7 12.. .Bg6 13.Rge4 Kb8? Eftir þessi mistök stendur hvítur töluvert betur. Hugsanlega hefði verið áhugaverðara að þiggja d4- peðið núna: 13...Rxd4 14.Bxd4 Dxd4 15. Rd6!+. Svartur tapar skipta- mun, en hefur ákveðnar bætur eftir 15...Hxd6 16.exd6 Dxdl 17.Haxdl! (17.Hfxdl Bxd6 er óljóst) 17...Bxd6 18.Rb5 Be5 19.Rxa7+ Kb8 20.Rb5 Bxb2 21.a4 og hvítur stendur betur. 14. De2! Be7 14.. .Rxd4 gekk ekki upp sökum 15.Bxd4 Dxd4 16.Hfdl og svartur tapar liði. 15. Hfdl h4 Ný sölu- og þjónustumiðstöð Ako-Plastos hf. Ako-Plastos hf. hefur flutt alla starfeemi sína úr Suðurhrauni 3 í Garðabæ og hefur opnað nýja sölu- og þjónustumiðstöð að Klettagörðum 15 í Reykjavík (VM-húsið). Tryggjum viðskiptavinum um allt land aukna þjónustu í samstarfi við vöruhótel Eimskips og miðstöð Flytjanda. 16.f3! Góður leikur sem styrkir mið- borðsstöðu hvíts og ver jafnframt kóngsvænginn betur. 16.. .Dc8 17.Hacl Bf5 18.Ba2 ! Að sumu leyti erfið ákvörðun þar sem 18. Ra4 var einnig fýsilegur kostur. Hinsvegar er þetta betra þar sem stjórn hvíts á miðborðinu helst ótrufluð og peðaframrásin b2- b4 er í bígerð. 18.. .Í6 19.exf6 gxf6 20.b4 Hdg8 21.Khl Hg6 22.d5!? Re5?! Svarta kóngsstaðan þolir þetta ekki. Betra var 22...exd5 og eftir 23.Rxd5 Rxd5 24.Bxd5 Re5 25.Bf4 Verid vclkomin Plastos JU Plastos Greiðslukerfi banka BKERFISÞRÓUN HF. Fákafcni 11 * Sími 568 8055 http://www.kerfisthroun.is/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.