Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 13

Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUD AGUR 2. MARS 2000 1 3 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Landssíminn ætlar að ráðast í miklar framkvæmdir á athafnasvæði sínu í Múlahverfi Teikning af breytingunum á athafnasvæði Landssímans í Múlahverfí séð úr vestri. SUOURLAf'IOSSRft.UT NÝTT AHOOYRI NÝ5.HÆÐ GIERBYOGIHG YFIRBYGGÐUR OAROUR Armúli Hús við Suðurlandsbraut og Armúla tengd saman Múlahverfi CQ co gjs jsfg , , J V l| _ § s . '5 Ö3 '.. . . .. J Á þessari teikningu sést athafnasvæðið að ofan. Byggingar eru merktar A, C, D og E, en tengibyggingin T. Aðkoman frá Ármúla. LANDSSÍMINN er um þess- ar mundir að heíjast handa um miklar framkvæmdir við Suð- urlandsbraut og Armúla þar sem ráðist verður í endurbæt- ur, viðbyggingar og samteng- ingu fimm húseigna fyrirtæk- isins á svæðinu. Samkvæmt upplýsingum Ólafs Þ. Stephensen, forstöðu- manns upplýsinga- og kynn- ingarmála hjá Landssímanum, voru húsin tekin í notkun á ár- unum 1979-1984 og var aðal- hönnuður þeirra Jósef Reynis arkitekt. Hluti húsnæðisins var áður notaður sem póstmið- stöð og pósthús en verður nú innréttaður fyrir starfsemi Símans. Til að sameina öll húsin í eina heild verður byggður samgönguás úr gleri, sem gengur í gegnum alla sam- stæðuna allt frá Suðurlands- braut að Armúla og inniheldur meðal annars nýtt mötuneyti. Verkið skiptist í nokkra áfanga, en byggja á ofan á svokallaða C-byggingu við Suðurlandsbraut og tengi- byggingu milli C- og D-húsa og endurgera að fullu svoköll- uð D- og E-hús, sem Pósturinn hafði áður til umráða við Ár- múla. Þessar byggingar voru teknar í notkun 1984 og voru sérhannaðar fyrir starfsemi Póstsins. Einnig mun verða byggður bílastæðapallur á baklóð Armúla 27, en þar munu fást 36 ný bílastæði. Hönnuðir að verkinu eru Teiknistofan Armúla 6, ehf., Rafteikning ehf., VGK ehf. og Almenna verkfræðistofan ehf. Eftirlit er í höndum Batterís- ins ehf. og VST hf. Verkefnis- stjóm er í höndum fasteigna- deildar Símans. Opið útboð fór fram um ára- mótin og buðu þrír aðilar í verkið, ístak hf., Eykt ehf. og Sérverk ehf., Sveinbjöm Sigurðsson ehf. og vom þeir síðastnefndu lægstir með tilboð upp á 291 milljón króna. Tilboð Eyktar og Istaks vom upp á 312 og 336 millj- ónir. Gengið hefur verið til samninga við lægstbjóðanda og era framkvæmdir hafnar. Fyrsta áfanga Iýkur í vor Að sögn Ólafs em stórir verkþættir utan þessa útboðs svo sem öll rif, nokkur flýti- verk er tengjast nýjum tækja- sal í E-húsi og sérkerfi í raf- magni. Heildarkostnaður við verkið mun því verða nokkuð hærri. Fyrsta áfanga verksins mun væntanlega ljúka 1. maí næstkomandi, en þá mun leiguhúsnæði á Sölvhólsgötu verða rýmt og öll starfsemi þar flytjast í Múlastöð, utan lagers á jarðhæðinni sem mun sam- einast öðrum lagemm Símans uppi á Jörfa. Með þeirri að- gerð verður öll lagerstarfsemi Landssímans komin á einn stað. Framkvæmdir á Jörfa munu hefjast um næstu mán- aðamót og verður lokið 1. maí. Þar með lýkur endumýjun húsnæðis á Jörfa, sem staðið hefur í 2 ár. Armúli 25, E- byggingin, þar sem áður var pósthús, verður tekin í notkun í tveimur áfóngum í júnímán- uði, en tengibygging sem teng- ir saman A- og C-hús við Suð- urlandsbraut við D- og E-hús við Armúla verður tekin í notk- un sem samgönguleið í byijun júlí auk þess sem nýtt mötu- neyti verður tilbúið í byrjun ágúst. Yfirbyggingin, 5. hæðin, á C-húsið, er síðasti áfangi verksins og er stefnt að verk- lokum þar 15. september. Flutt úr Sölvhólsgötu og Ármúla Með þessum breytingum mun starfsemi Símans í leigu- húsnæði á Sölvhólsgötu og í Hafnar- hvoli heyra sögunni til. í Múla munu flytjast eftir- farandi deildir: Farsímadeild, radíódreifistöðvar, lagnadeild og þjónustuverkstæði, gagna- lausnir, Síminn - Internet, rannsóknadeild og viðskipta- kerfi. Verslun og þjónustuver Símans - Intemet flytja úr leiguhúsnæði á Grensásvegi í húsnæðið, sem losnar á jarð- hæð við Armúla 25. Gagna- flutningsdeild mun flytjast til í húsinu og færast út C-húsi í D-E hús og fá aukið rými. Við það mun rýmka um símstöðva- deild á 4. hæð í C-húsi. Hug- búnaðarþróunardeild mun flytja í Armúla 32, leiguhús- næði. Með þessum breytingum gerbreytist aðstaða starfsfólks í Múlastöð, að sögn Ólafs, með bættum samgönguleiðum, björtu og vistlegu mötuneyti og búningsaðstöðu fyrir starfsmenn sem munu geta komið hjólandi eða hlaupandi til vinnu eða notað hádegið til hreyfingar. Mikið verður af fundarherbergjum, þar sem m.a. verða nettengingar íyrir ferðatölvur. „Við alla hönnun húsnæðisins er lögð áhersla á sveigjanleika, þannig að auð- velt sé að breyta starfsemi, færa deildir til eða stækka. Nánast öll vinnuaðstaða er í opnu rými,“ segir Ólafur. Umfangsmiklar dýpkunarframkvæmdir eru fyrirhugaðar á næstu árum í Sundahöfn Sundahöfn UMFANGSMIKLAR dýpk- unarframkvæmdir era fyrir- hugaðar í Sundahöfn og er kynning á frumathugun á um- hverfisáhrifum nú í gangi. Á næstu 10-15 árum verður höfnin dýpkuð um að meðal- tali tvo metra en fyrsti áfangi hefst væntanlega í haust og lýkur á árinu 2002, að sögn Jóns Þorvaldssonar, forstöðu- manns tæknideildar Reykja- víkurhafnar. Jón segir að tilgangurinn með dýpkuninni sé einkum að auka öryggi í siglingum, en einnig fáist á hagkvæman hátt efni til landfyllingar á hafnar- svæðinu og um leið er botn hafnarinnar hreinsaður en þar hefur gætt mengunar- áhrifa frá gömlu frárennslis- kerfi borgarinnar. Frá Klettasvæði í Kleppsvík Frammatsskýrsla um um- hverfisáhrif liggur nú fyrir og hefur almenningur tíma til 31. mars að kynna sér efni hennar og koma athugasemdum á Efni nýtt til landfyll- ingar og hreinsunar framfæri. Skýrsluna er m.a. að finna á heimasíðu Reykja- víkurhafnar, www.reykja- vik.is/hofnin. í fréttatilkynningu frá Skipulagsstofnun kemur fram að framkvæmdasvæðið nái frá Klettasvæði inn fyrir Voga- bakka í Kleppsvík og er heild- arrúmmál dýpkunarefnis áætlað um 1,3 milljónir rúm- metra á svæði sem er um 65 hektarar. Að sögn Jóns Þor- valdssonar verður höfnin dýpkuð um 300-400 þúsund rúmmetra í fyrsta áfanga. Dýpkunin kemur til vegna byggingar nýrra hafnarmann- virkja, svo sem nýrrar hafna- raðstöðu á Klettasvæði og nýs hafnarbakka suðaustan við Kleppsbakka. Einnig vegna færslu siglingarlínu, stækk- unar eldri mannvirkja, svo sem lengingar Kleppsbakka og Vogabakka og krafna um aukið dýpi við núverandi hafn- arbakka, segir í fréttatilkynn- ingu Skipulagsstofnunar. Framkvæmdir ekki taldar hafa áhrif á laxagöngnr Skipulagsstofnun hefur hafið athugun á umhverfis- áhrifum vegna dýpkunarinn- ar, en samkvæmt fram- matsskýrslu fara dýpkunar- framkvæmdir fram á núver- andi athafnasvæði og sigl- ingaleiðum og er náttúra svæðisins talin bera þess merki. Ekki er vitað til þess að á svæðinu sé sérstakt lífríki. Ströndin er að langmestu leyti manngerð á þessu svæði og áður hafa farið fram dýpkanir, bygging hafnarmannvú-kja og landfyllingar. Lax gengur meðfram ströndinni á leið í Elliðaár, en framkvæmdirnar era ekki taldar hafa áhrif á laxagöng- ur. Þó er talið rétt að ekki fari fram neðansjávarsprengingar á aðalgöngutíma, frá maí og fram í september. í frummatsskýrslunni kem- ur fram að ekki era þekktar neinar fornleifar á fyrirhug- uðu framkvæmdasvæði. Þá er, samkvæmt líkanreikning- um, talið að framkvæmdin muni hafa minniháttar áhrif á öldulag og strauma á Viðeyj- arsundi og í Kleppsvfk. Jón Þorvaldsson sagði í samtali við Morgunblaðið að á undanförnum áram hefðu starfsmenn hafnaiinnar verið að vinna næstu áfanga í þróun og uppbyggingu Sundahafnar en skip fari stækkandi og þurfi stæiri hafnarbakka með dýpri ristu. Framkvæmdar hafa verið ýmsar rannsóknir vegna þessa og fram- matsskýrslan, sem nú liggur frammi, er afrakstur þessarar vinnu starfsfólks hafnarinnar en talið var æskilegt að fá um- hverfissjónarmiðin fram á frumstigi hönnunar. Fyrsti áfangi í sumar Jón segir reiknað með að fyrsti áfangi verksins verði boðinn út seinni hluta sumars, að fengnum niðurstöðum skipulagssstjóra um mat á umhverfisáhrifum. Upplýsingar um kostnað liggja ekki fyrir enda gerð út- boðsgagna ekki lokið. í máli Jóns kom fram að allt efni, sem grafið verður út höfninni verði nýtt til land- gerðar á hafnarsvæðinu, en unnið er að stækkun þess og úthlutun lóða til ýmissa fyrir- tækja. Hráefnið af hafnar- botni verður nýtt sem undir- staða undir landfyllingar og með því verður dýpkunin og hagkvæm, þar sem minni þörf er fyrir efnisnám annars stað- ar, auk þess sem óhreint efni er fjarlægt og grafið niður á hreinan botn. „Þetta er að okkar mati verulegt átak í hreinsun á svæðinu og fer saman við þau áform sem borgin hefur verið að vinna að undanfarin ár um að sameina gamlar skolpútrásir á einn stað, byggja dælustöðvar og dæla skolpinu 3-4 km út fyrir strönd. Sú mengun sem við mælum í höfninni er fyrst og fremst komin frá gömlu útrás- unum,“ sagði Jón. „Um leið og þetta era dýpkunarfram- kvæmdir er þetta umhverfis- verkefni sem á samleið við áf- orm borgarinnar um að koma holræsakerfinu til betri veg- ar.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.